Morgunblaðið - 19.01.2013, Síða 36
36 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2013
Á Fréttablaðinu hafa
menn að undanförnu
verið að glefsa í hæla
mína. Þar sem blaðið
hefur dregið úr hömlu
að birta andsvör mín,
bið ég Morgunblaðið að
birta þennan grein-
arstúf. Orðaskipti hafa
spunnist út frá bók
minni, Váfugli, og
vangaveltum um nýja
heimsmynd sem hægt
og hljótt er að birtast í kjölfar kenn-
ingar Einsteins um að orka sé und-
irstaða efnisins. Það var árið 1905
sem Einstein setti fram hina frægu
formúlu E=mc² sem leitt hefur vís-
indin á slóð orkunnar. Kenning Ein-
steins var spádómur, forspá. Ef orka
er grundvöllur lífsins þá hljótum við
að leita til upprunans, ekki satt?
Heimsmynd okkar er að breytast.
Bandarísk heilbrigðisyfirvöld rekja
90% allra sjúkdóma til streitu. Nei-
kvæð reynsla truflar tíðnisvið og af-
vegaleiðir. Með nýrri heimsmynd
kemur nýr skilningur. Hægri/vinstri
pólitík gengur sér til húðar enda
reist á úreltri heimsmynd efn-
ishyggju. Til þess að komast út úr
öngstræti 20. aldar hugsunar verður
mannkyn að brjóta af sér hlekki úr-
eltrar efnishyggju.
Með lífsorkunni
á fund atómsins
Mönnum hefur lærst að virkja lífs-
orkuna með áhrifaríkari hætti en áð-
ur. Við förum inn í skammtaveröldina
á fund atómsins, leiðréttum tíðni sem
kann að hafa raskast; tíðni sem er or-
sök neikvæðra tilfinninga og sjúk-
dóma. Framtíðin er mætt til leiks. Við
förum til upphafsins. Stóri bónusvinn-
ingurinn er að lífsorkan er kærleikur,
líkt og Kristur boðaði fyrir tvö þúsund
árum.
Þetta kann að vera fólki í heimi
efnishyggjunnar torskilið og kannski
þess vegna sem Frétta-
blaðið á svo erfitt með
að ímynda sér Taggart
á Íslandi til þess að
rýna í veröld bullu sem
er leiksoppur eigin nei-
kvæðu tilfinninga og
tekur samfélag og fjöl-
skyldu í gíslingu, líkt og
í skosku þáttaröðinni á
dögunum.
Hin nýja heims-
mynd
Í skáldsögu minni,
Váfugli, skoða ég Íslandssöguna út
frá nýjum sjónarhól. Ég skoða einnig
harmleik Evrópu á 20. öld og reyni
að rýna í atburðarás núaldar út frá
þeim kröftum sem eru að verki. Með
valdatöku kommúnista og nazista
komst Nei-hugarfar til valda í Rúss-
landi og Þýskalandi í skjóli fátækt-
arvitundar. Ófyrirleitnir menn náðu
heljartökum á samfélögum með lyg-
um, svikum, ofríki og ofbeldi. Það
var gert út á lægstu hvatir. Sama
hugarfar var sett til valda í A-
Evrópu.
Sigmund Freud kvað Nei afl illsku
og dauða. Nei-hugur spilar á fátækt-
arvitundina; kerlinguna ógurlegu
með Drekann frá Niðafjöllum í
bandi. Kerling gerir dæturnar,
Ágirnd og Öfund, og synina, Spuna
og Hroka, út af örkinni. Hún hvorki
er né verður nokkru sinni lýðræð-
issinni. Nei-hugir sogast hver að öðr-
um enda alþekkt að sækjast sér um
líkir.
Siðblindur Nei-hugur
Sett er fram tilgáta um að pólar
mannlegrar vitundar hverfist frá kær-
leik til fátæktarvitundar sem sið-
blindur Nei-hugur spilar á í skjóli fá-
fræði og fordóma. Það er mikill
misskilningur vina minna á Frétta-
blaðinu að ESB sé váfugl þó sagan
hverfist um Evróníu í lok núaldar. Ég
ráðlegg því þeim, sem þar skammast
út í mig, að lesa þessa merku bók.
Ég vara við því í Váfugli að vald án
hirðis hafi hreiðrað um sig í Brussel.
Ég er ekki einn um það. Danski Evr-
ópuþingmaðurinn Morten Mes-
serschmidt segir að ESB hafi tæmt
Danmörku af krafti lýðræðis. Ekki
hafi frá tímum Rómarveldis safnast
jafn mikil völd á hendur jafn fáum og
í Brussel. Breska þingkonan Kate
Hoey varar okkur Íslendinga við því
að glata lýðræðinu.
Er þarna ástæðan fyrir því að
stjórnlynt fólk sogast til Brussel?
Í Váfugli tekst Eyjatröllið
Krummi á við svartan váfugl sem
hefur hreiðrað um sig djúpt í myrk-
viðum mannlegrar vitundar. Hinn
lokaði hugur varðar leiðina til ánauð-
ar þar sem vitund fátæktar er rót
illsku, Nei höfuðból og Kölski í önd-
vegi.
Váfugl brýnir,
glyrnur gráðugar,
ágirnd, öfund;
mannlíf siðspillist.
Klær kreppast.
Mér finnst líklegt að þessar
vangaveltur séu ástæðan fyrir því að
Evrópuþingmaðurinn Daniel Hann-
an telji Váfugl bestu bók frá Íslandi
síðan Sjálfstætt fólk. Hvorki RÚV né
Fréttablaðið eða Stöð 2 hafa fjallað
um bókina. Meira að segja Morg-
unblaðið tiplar í kring um váfuglinn
líkt og hann glefsi. Er umræðan
ómaksins virði í landi sem glímir við
varginn? Kannski þurfa að líða ein-
hver ár þar til augu fólks opnast.
Marblettir íslenskrar
þjóðarsálar
Þegar Baltasar frumsýndi Djúpið
kvað hann sjóslys stærsta marblett
íslenskrar þjóðarsálar. Þau orð voru
mælt af djúphygli. Ég vil bæta við
tveimur marblettum; erlendri ný-
lendukúgun og harðræði litlu ísald-
ar. Þeir eru sjálfsagt fleiri. Marblett-
irnir birtast í pólitískri heift og
ofríki.
Nú um stundir er Nei-hugarfar í
öndvegi í íslensku samfélagi. Nei-
hugarfar býr í VG og hefur tekið yfir
Samfylkinguna. Þangað leitaði hakka-
vélin sem Jón Ásgeir setti saman þeg-
ar hann lenti í klóm réttvísinnar.
Hann fann fyrir á fleti fámenna klíku
innan RÚV. Óheft Nei-hugarfar er
lýðræði varasamt, stórhættulegt.
Menn leika sér að eldi. Það ættu smal-
arnir á Fréttablaðinu að hafa í huga.
Af hakkavél og nýrri
heimsmynd
Eftir Hall Hallsson »Nú um stundir
er Nei-hugarfar
í öndvegi í íslensku
samfélagi. Nei-hugarfar
býr í VG og hefur tekið
yfir Samfylkinguna.
Hallur Hallsson
Höfundur er rithöfundur.
Á Seltjarnarnesi eru
95% íbúa ánægð með
búsetuskilyrði bæjar-
félagsins, samkvæmt
árlegri þjónustukönn-
un sem Capacent gerir
meðal sveitarfélaga.
Bærinn fær ein-
kunnina 4,5 af 5 mögu-
legum og er með aðra
hæstu einkunn af öllum
sveitarfélögum í land-
inu. Niðurstaðan undirstrikar já-
kvætt viðhorf bæjarbúa til samfélags-
þjónustunnar og er okkur hvatning
að halda áfram á sömu braut.
Þjónusta við barnafjölskyldur
skorar hátt. Seltjarnarnesbær fær 4,2
af 5 mögulegum þegar spurt er um
þjónustu við barnafjölskyldur. Bær-
inn er þar í fyrsta sæti af öllum sveit-
arfélögum landsins. Samkvæmt
könnuninni er um 91% bæjarbúa
mjög ánægt með aðstöðu til íþrótta-
iðkunar og er Seltjarnarnesbær þar í
öðru sæti á landsvísu.
Menningarmál og umhverfismál fá
góða umsögn bæjarbúa. Í menningar-
málum fær bærinn 4,0 af 5 mögu-
legum og er með hæstu einkunnina af
sveitarfélögum í landinu. Umhverf-
ismálin skora 4,3 af 5 mögulegum og
er bærinn með aðra
hæstu einkunnina af
sveitarfélögum í landinu.
Í þjónustu við fatlaða
þykir aðeins eitt sveitar-
félag á landinu standa
framar Seltjarnarnesi.
Seltjarnarnes skorar
hæst á landsvísu í þjón-
ustu við aldraða. Bærinn
hefur kappkostað að
skipuleggja nærþjón-
ustu við aldraða í sam-
ráði við eldri borgara.
Markmiðið er að aldr-
aðir eigi þess kost að
búa sem lengst á eigin heimili og er
það í samræmi við yfirlýsta stefnu fé-
lagasamtaka eldri borgara.
Gott samstarf, betra samfélag
Bæjarstjórn og starfsmenn bæj-
arfélagsins leggja sig fram um að
hlusta eftir hvaða þjónusta skiptir
máli fyrir bæjarbúa. Að baki þeirri
aðferðafræði liggur sú sannfæring
okkar að samstarfið skili sér í betra
samfélagi og hagkvæmari rekstri.
Börnin eru framtíðin og það skiptir
okkur sérstaklega miklu máli að vel
takist til með skólastigin sem eru á
ábyrgð sveitarfélagsins.
Um 89% íbúa Seltjarnarness eru
ánægð með leik- og grunnskóla bæj-
arins og erum við þar í 2. sæti meðal
sveitarfélaga landsins.
Seltjarnarnesbær leggur áherslu á
að Nesið verði áfram leiðandi í skóla-,
æskulýðs- og íþróttastarfi á lands-
vísu, þar sem lögð er áhersla á jöfn
tækifæri, árangur og vellíðan.
95% Seltirninga
ánægð með bæinn
Eftir Ásgerði
Halldórsdóttur
Ásgerður
Halldórsdóttir
»Niðurstaðan undir-
strikar jákvætt við-
horf bæjarbúa til sam-
félagsþjónustunnar.
Höfundur er bæjarstjóri Seltjarnarness.
Guðmundur og Jón Páll
unnu Monrad í Kópavogi
Þriggja kvölda Monrad-tvímenn-
ingi lauk sl. fimmtudag hjá Brids-
félagi Kópavogs. Glæsileg þátttaka
var og spilað á 14 borðum. Jón Páll
Sigurjónsson og Guðmundur Páls-
son náðu að hanga á efsta sætinu
samanlagt þrátt fyrir að ná aðeins
tæplega 49% skori síðasta kvöldið.
Besta skorið síðasta kvöldið fengu
Ólafur Þór Jóhannsson og Pétur Sig-
urðsson, 59,5% en það dugði þeim
ekki til verðlauna.
Lokastaða efstu para varð þessi
en lögð er saman prósentuskor úr
kvöldunum þremur.
Jón Páll Sigurjónss. - Guðm. Pálsson 167,4
Freyja Sveinsd. - Elín Jóhannsd. 166
Björk Jónsd. - Jón Sigurbjörnss. 165,4
Jörundur Þórðars. - Þórður Jörundss. 162,5
Júlíus Snorras. - Eiður Júlíusson 162
Sigm. Stefánss. - Hallgr. Hallgrímss. 161
Ekki er spilað 24. janúar vegna
Bridgehátíðar en aðaltvímenningur
hefst síðan fimmtudaginn 31. jan.
Skráning hjá Hjálmari, s. 898-3181,
og thorduring@gmail.com.
14 borð í Gullsmára
Spilað var á 14 borðum í Gull-
smára fimmtudaginn 17. janúar.
Úrslit í N/S:
Guðrún Gestsd. – Gunnar M. Hansson 346
Pétur Antonsson – Guðlaugur Nielsen 342
Sigurður Gunnlss. – Gunnar Sigurbjss. 309
Jón Jóhannsson – Sveinn Sveinss. 299
A/V
Ásgr. Aðalsteinss. – Ragnar Ásmundss. 321
Sigurður Njálsson – Pétur Jónsson 318
Guðrún Hinriksd. – Haukur Hannesson 294
Dagný Gunnarsd. – Steindór Árnason 284
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, mánud. 17. jan.
2013. Spilað var á 12 borðum. Með-
alskor 216 stig. Árangur N-S:
Valdimar Ásmundss. - Björn E. Péturss. 268
Hrafnhildur Skúlad. - Guðm. Jóhannss. 241
Magnús Oddss. - Oliver Kristófersson 231
Björn Árnason - Auðunn Guðmss. 231
Árangur A/V:
Tómas Sigurðss. - Friðrik Jónsson 270
Magnús Jónsson - Óli Gíslason 266
.Ægir Ferdinandss. - Helgi Hallgrímss. 247
Jón Þ. Karlss. - Björgvin Kjartansson 231
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
fjölmennum!
N1-deild kvenna
Haukar–Selfoss
Schenkerhöllin | Kl. 13:30
Lau. 19. jan. | N1-deild kvenna
Fram–ÍBV
Framhús | Kl. 13:30
Lau. 19. jan. | N1-deild kvenna
Afturelding–HK
Varmá | Kl. 13:30
Lau. 19. jan. | N1-deild kvenna
Stjarnan–Fylkir
Mýrin | Kl. 13:30
Lau. 19. jan. | N1-deild kvenna
Grótta–Valur
Hertz höllin | Kl. 13:30
Lau. 19. jan. | N1-deild kvenna
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu not-
anda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.