Morgunblaðið - 19.01.2013, Page 50
50 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2013
Þönglabakka 1 (inní Nettó búðinni) » 109 Reykjavík » Sími 587 4900
Allt fyrir farsíma, smartsíma og fistölvur
Allar GSM rafhlöður
2.990.-
SanDisk minniskort og minnislyklar í miklu úrvali -
Micro-SD - SDHC - Compact Flash - Memory Stick
Gerið verðsamanburð!
iPad borðstandur - Festing fyrir
sætisbak fylgir 5.990.-
Landsins mesta úrval af GSM aukahlutum!
Nettir en öflugir ferðahátalarar fyrir iPod/iPhone/iPad
og aðra spilara eða síma.
Innbyggð rafhlaða. 4.990
Allt fyrir IPod og Ipad
Ipad bílhleðslutæki
1.490.-
Öll GSM bílhleðslutæki
990.-
12V tvídeilir 1490.-
Flott úrval 12V fjöltengja
í bílinn, húsbílinn eða fellihýsið.
12V þrídeilir með Micro-USB
útgangi og viðvörunarljósi ef raf-
geymirinn í bílnum er að tæmast
2.990.-
Ísland er mér kært og þegar ég kynni landið tala ég frá hjartanu.Þá liggur í hlutarins eðli að mér gengur vel að selja ferðir hing-að. Það hjálpar til að Ísland er í tísku um þessar mundir og þar
vinnur með okkur m.a. að landið hefur verið í heimsfréttunum síð-
ustu misseri,“ segir Birna Lind Björnsdóttir sem er 46 ára í dag. Hún
hefur starfað á vettvangi ferðaþjónustunnar alla sína tíð og starf-
rækir í dag ráðgjafafyrirtækið Explore Dream Discover. Veitir þar
til dæmis minni fyrirtækjum í greininni ýmsa aðstoð, svo sem við
sýningar, sölu, markaðssetningu, vefsíðumál og svo mætti áfram
telja.
Birna Lind segir að gleðin á sínu heimili í dag verði í raun tvöfald-
ur skammtur því dóttir hennar, Vanessa Martinetti, á einnig afmæli
19. janúar. „Við tökum þetta með áhlaupi og leyfum okkur að vera
drottningar í einn dag. Gerum alltaf eitthvað skemmtilegt. Lengi var
til dæmis haldið grímuball á heimilinu á þessum degi,“ segir Birna
Lind sem ólst upp í Lúxemborg og bjó þar fram á þrítugsaldur.
„Ég á margar skemmtilegar minningar frá Lúxemborg, þar sem
foreldrarnir störfuðu við flugið. Þarna var stór Íslendingabyggð en
sjálf kynntist ég krökkum víðsvegar frá sem hjálpaði mér gríðarlega
við tungumálanám,“ segir Birna sem er í sambúð með Hrafnkatli
Konráðssyni. sbs@mbl.is
Birna Lind Björnsdóttir er 46 ára í dag
Mæðgur Birna Lind og Vanessa Martinetti eiga báðar afmæli 19. jan-
úar og ætla af því tilefni að leyfa sér að vera drottningar í einn dag.
Gleðiskammturinn
er tvöfaldur
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Hafnarfjörður Gabriel Oliver fæddist
7. apríl kl. 13.25. Hann vó 3.840 g og
var 50 cm langur. Móðir hans er Rann-
veig Sv. Benediktsd. Kroknes.
Nýir borgarar
Selfoss Þorvarður Logi fæddist 8.
apríl kl. 1.23. Hann vó 2.915 g og var
49 cm langur. Foreldrar hans eru Jó-
hanna Kristín Þorvarðardóttir og
Steinar Kristján Óskarsson.
E
lías fæddist í Reykja-
vík og ólst upp við
Kaplaskjólsveginn í
Vesturbænum. Hann
var í Landakotsskóla,
Gagnfræðaskóla Vesturbæjar við
Hringbraut, stundaði nám við VÍ
og lauk þaðan verslunarprófum
1957. Þá var hann þrjú sumur í
sveit að Varmadal á Kjalarnesi.
Elías starfaði í Slippnum í tvö
sumur á verslunarskólaárunum.
Hann hóf störf við Útvegsbankann
1957 og starfaði þar við sjávar-
útvegsdeild til 1962, hóf þá störf
hjá Vélsmiðjunni Héðni og vann
þar til 2008, lengst af sem yfirbók-
ari.
Sparkað á Framnesvellinum
Elías byrjaði að sparka bolta á
Framnesvellinum á horni Hring-
brautar og Framnesvegar, ásamt
Elías Hergeirsson, fyrrv. gjaldkeri KSÍ - 75 ára
Kát fjölskylda Elías og Valgerður Anna, ásamt börnunum, þeim Ragnheiði, Jónasi, Hergeir og Margréti.
Valsarinn sem kom
úr Vesturbænum
Barnabörn
Elías er
ríkur að
barnabörn-
um. Hér er
hópurinn að
undanskild-
um þeim
tveimur
yngstu.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is