Morgunblaðið - 19.01.2013, Page 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Með því að horfa aftur í tímann
tekst hrútnum að taka traustar ákvarðanir
fyrir framtíðina. Haltu öllu sem einföldustu
og þá mun árangurinn ekki láta á sér
standa.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú finnur löngun hjá þér til að gera
eitthvað nýtt og gætir fengið tækifæri til
þess fyrr en síðar. Gríptu tækifærið en
gættu þess að afraksturinn lendi í þínum
höndum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ég geri það bara sjálfur er helsta
viðkvæði tvíburans frá því að hann stígur
fram úr rúminu. Gættu þess að færast ekki
of mikið í fang í upphafi svo þú fáir ráðið við
verkið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er yndislegt að læra og fylla
andann af nýjum hugmyndum og lærdómi.
Ekki eyða tíma í að sannfæra fólk um að
það geri hlutina rangt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Eitthvað á heimilinu eða í fjölskyldulíf-
inu eykur á ríkidæmi þitt þessa dagana. Lát-
ið smámuni ekki skemma fyrir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þótt þér þyki lofið gott má of mikið
af öllu gera. Vertu sjálfum þér samkvæmur
og þá muntu uppskera laun erfiðis þíns.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hikaðu ekki við að sýna frumkvæði í
dag. Gefðu þér kvöldstund með góðum vin-
um. Verk sem tengjast útgáfu- og ferða-
málum, lögfræði og framhaldsmenntun
ganga sérstaklega vel.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú verður sjálfur að sjá um þitt
öryggi því að aðrir gera það ekki fyrir þig.
Og þú hugsar: „Var ég ekki að gera það?“
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Sambönd verða fyrir truflunum.
Reyndu að ganga frá skuldum og reikn-
ingum og málefnum sem tengjast sameig-
inlegum eignum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ekki eyða peningum í óðagoti. Við
þér blasa nú ýmsir möguleikar og það skipt-
ir sköpum hvernig þú heldur á málum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er hættulegt að trúa öllu
sem þú heyrir, og ekki er mælt með að eyða
öllu sem þú átt. Hlutirnir eiga eftir að breyt-
ast til betri vegar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Lánið leikur við fiskinn þegar fjárfest-
ingar eru annars vegar. Treystu innsæi þínu
en hafðu jafnframt í huga að vinur þinn vill
vel. Farðu því varlega og hafðu aðgát í nær-
veru sálna.
Karlinn á Laugaveginum studd-ist fram á staf sinn þegar ég
sá hann við bæjarklósettin í
Bankastræti horfa á Stjórnarráðs-
húsið eins og hann gerir svo oft.
Hann fór að tala um lausavísuna,
oft detti menn ofan á góðan botn
og reyni síðan að klastra ein-
hverju framan við en gangi mis-
jafnlega:.
Dýrmæt eru lýðsins ljóð,
landsins von þau styrkja.
Ekki er þetta Einars-Benedikts-
sonar-legt, sagði hann. En svo
kemur botninn:
Alltaf græðir þessi þjóð,
þegar skáldin yrkja.
Við þekkjum líka dæmi þess,
sagði hann, að fyrsta hendingin
komi fyrst, síðan botninn, en önn-
ur hendingin síðast og hangi þar
eins og merkingarlaus dula eins
og hjá Steingrími Thorsteinssyni í
þessari stöku:
Orður og titlar, úrelt þing, –
eins og dæmin sanna, -
notast oft sem uppfylling
í eyður verðleikanna,
Og svo varð hann skrýtinn á
svipinn, – sagði að sér hefði farið
eins og Einari, seinni parturinn
hefði komið eins og skrattinn úr
sauðarleggnum, – en ég prjónaði
framan við:
Þreyttur á Hjörleifi þagði ánn
og þingeyskar kollhúfur lagði ánn. –
„Ef eitthvað þú vilt
er þér auðvitað skylt
að gera hið gagnstæða,“ sagði ánn.
Kristján Karlsson orti:
„Ég fer,“ sagði faldabrík,
„klukkan fimm suðrí Grindavík.“
Hvílík endemisreisa
og heimska og hneisa.
En það hélt henni engin flík.
Og enn orti Kristján:
Daginn eftir oft var reimt
af illum hugarsýnum,
fékk þó ávallt aftur gleymt
yfirsjónum mínum.
Einar Benediktsson kvað:
Ég lyfti fingri. Lertrað var mitt blað.
Á lítinn miða var ein hending rituð.
Svo minnisbatt ég orð við stund og
stað.
Eitt stef ég kvað, mín rím, þau skulu
vituð.
Halldór Blöndal
halldor@simnet.is
Vísnahorn
Þannig verður
lausavísan til
Í klípu
„NÚ ÞARFTU AÐ BREGÐAST HRATT VIÐ.
SVONA BÍLAR ERU FLJÓTIR AÐ FARA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„BENNI, GAMLI VIN! KONAN MÍN TRÚIR
EKKI AÐ ÉG HAFI VERIÐ HJÁ ÞÉR Í
GÆRKVÖLDI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... minning sem
yljar þér enn um
hjartarætur.
1982
NOTAÐIR
BÍLAR
„VILT ÞÚ
GIFTAST
MÉR?“
Ó, LÚDÓ ... NÚ ERUM
VIÐ EIN OG ÞÚ GETUR
SAGT ORÐIN SEM MIG
DREYMIR UM AÐ HEYRA!
HVAÐA
ORÐ
ERU ÞAÐ,
LJÚFA?
ODDI GRÓF
BEIN.
EN GLEYMDI AÐ
SLEPPA ÞVÍ.Þrívíddarteiknimyndir eru snilld-arverk. Víkverji horfði nýverið á
tvær stórmyndir af þessari gerð.
Önnur var klassíska jólaævintýrið
Christmas Carol eftir Charles Dic-
kens og sú seinni Leyndardómur
Einhyrningsins um ævintýri hins
geðþekka Tinna eftir belgíska höf-
undinn Hergé sem var dulnefni
Georges Prosper Remi. Sögurnar
sem eru jafn ólíkar og raun ber vitni
eru fyrir löngu orðnar klassískar.
Því er Víkverji kannski ekki svo
hissa á að þær hafi náð að snerta ein-
hverja taug hvor með sínum hætti
því höfundar verkanna skipa sér á
fremsta bekk.
x x x
Töfrar þrívíddarinnar eru engu lík-ir og er eins og áhorfandinn taki
sjálfur þátt í ævintýrinu. Í mynd-
unum skapast á einhvern hátt nær-
vera sem er þægilega ágeng og hríf-
ur mann með. Fyrir utan tækni-
brellur og tölvufimi sem birtist eru
handritin að myndunum bæði feiki-
vel skrifuð.
x x x
Í ævintýrinu um Tinna er söguþráð-urinn fantagóður og æsispenn-
andi. Myndinni er leikstýrt af ekki
ómerkari manni en Steven Spiel-
berg. Hann fer mjúkum höndum um
vel skapað persónugallerí sem
Hergé skapaði í Tinna-bókunum.
Myndin er leyfð fyrir alla aldurs-
hópa, þrátt fyrir að töluvert af slags-
málum sé þar að finna. Víkverji
myndi ekki telja Tinna eiginlega
barnamynd.
x x x
Víkverji veltir því fyrir sér hvaðþað er nákvæmlega sem hann
heillast af við að horfa á teiknimynd-
ir af þessari gerð. Líklega er það
bernskan sem hann kemst í tæri við.
Myndin hrífur hann með sér aftur til
bernskunnar sem eru einungis
nokkur ár. En spakir menn hafa
fleygt því fram að það sé nefnilega
mikilvægt að týna ekki barninu í
sjálfum sér. Ætli það eigi ekki við
hér. Leyfa sér að heillast af ævin-
týraheiminum sem lýkst upp,
gleyma sér í stundarkorn og samlag-
ast honum. víkverji@mbl.is
Víkverji
Daníel tók til máls og sagði: Lofað sé
nafn Guðs um aldir alda því að hans
er viskan og mátturinn. (Daníel 2:20)
Borgartún • Fákafen • Hæðasmári
www.lifandimarkadur.is
OKKAR
LOFORÐ:
Lífrænt og
náttúrulegt
Engin
óæskileg
aukefni
Persónuleg
þjónusta
Fruit & Greens
Bætifeni frá NOW
Með Fruit & Greens er auðvelt að breyta
drykknum þínum í næringarbombu.
Sneisafullt af
vítamínum, steinefnum,
andoxunarefnum og
trefjum. Fruit & Greens
er glútenfrítt og 100%
jurtafæða.