Morgunblaðið - 19.01.2013, Page 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2013
LISTASAFN ÍSLANDS
Aðdráttarafl
Björk Viggósdóttir
Teikningar
Ingólfur Arnarsson
Fimmtudag 24. janúar kl. 20
Listamannsspjall
Ingólfur Arnarsson
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Afmælisblað Þjóðminjasafnsins er komið út
Tveir fyrir einn af aðgangseyri sunnudag 20. janúar
Nýjar sýningar:
Ljósmyndun á Íslandi 1970-1990
Nýjar myndir - gömul tækni
Góðar gjafir - Sýning í tilefni 25 ára afmælis Minja og sögu
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17
REK; Anna Hallin & Olga Bergmann 10.11.2012 – 27.1.2013
VETRARBÚNINGUR 10.11.2012 – 27.1.2013
HÆTTUMÖRK 19.5.2012– 27.1.2013
SAFNBÚÐ - Listaverkabækur, gjafakort og listrænar gjafavörur.
KAFFISTOFA - Heit súpa í hádeginu, úrval kaffidrykkja og heimabakað meðlæti.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
UMHVERFIS LANDIÐ Á FÁEINUM ÁRATUGUM og FORNMENN
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616
Opið þriðjudaga til fimmtudaga kl. 11-14, sunnudaga kl. 13-16
www.listasafn.is
Calum Colvin sýnir í anddyri
Skoski myndlistarmaðurinn Calum Colvin sýnir myndverk
í anddyri Norræna hússins 5.-20. janúar 2013.
Myndir hans eru á mörkum ljósmyndunar og málverks.
Borderlines
Í heilt ár unnu 12 ungir ljósmyndarar frá fjórum frábrugðnum löndum á
landamærum Evrópu að ólíkum verkum í kring um þemað landamæri.
Norræna húsið, Sturlugötu 5, s. 551 7030
www.norraenahusid.is , nh@nordice.is
Opið alla virka daga 9-17, helgar 12-17. Aðgangur ókeypis.
NORRÆNA HÚSIÐ
Söfn • Setur • Sýningar
Gísli B.
Fimm áratugir í grafískri hönnun
Opið alla daga nema mán. kl. 12-17.
Verslunin KRAUM í andddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Í salnum blasa þrjár stórar myndir
við á veggjum. Þær sýna allar hvíta
hringlaga fleti með óreglulegar út-
línur í gráu umhverfi; vísa í og
minna á kröftug abstraktmálverk.
En þessar myndir eru ekki málaðar
á striga eða beint á vegginn, heldur
koma þær frá skjávörpum og sýna
hvað þrjár smásjármyndavélar
nema þar sem þeim er beint að
litlum hvítum málningardropum
sem einhver óþekktur starfsmaður
Listasafns Reykjavíkur í Hafn-
arhúsi, hefur misst á gólfið þar í
salnum. Á fjórða veggnum eru þrjú
ljósmyndaverk þar sem listamað-
urinn veltir einnig fyrir sér málning-
ardropum.
Sýning Ívars Valgarðssonar í A-
sal Hafnarhússins nefnist Til spillis
og opnar í dag klukkan 16. Í tilkynn-
ingu frá safninu segir að Ívar veki í
verkunum athygli á málningu sem
hefur farið til spillis og færir sér í
nyt gáleysi málarans, sem málaði
veggi sýningarsalarins, með því að
færa dropana aftur upp á veggina.
„Til spillis er líkt og fyrri verk Ív-
ars nákvæmlega útfært, vel ígrund-
að og ljóðrænt. Ívar hrífst af þeim
sköpunarkrafti sem á sér stað í mót-
un og uppbyggingu hins manngerða
umhverfis,“ segir þar. Ívar vinnur
iðulega innsetningar þar sem mynd-
varpar og ljósmyndir koma við sögu,
auk allskyns iðnaðarefnis.
Fullkomið sköpunarverk
„Já, ég nota þessar stafrænu
stækkunarsmásjár, svona nútíma
stækkuargler sem eru notuð við ým-
iskonar rannsóknarstörf, til að
stækka þessa málningarbletti á gólf-
inu,“ segir Ívar og gerir hlé á still-
ingu skjávarpanna.
Af hverju er hann að stækka
málningarblettina?
„Það byrjar svo margt með einum
litlum dropa af einhverju,“ svarar
hann.
„Einn svona dropi er í mínum
huga fullkomið fagurfræðilegt sköp-
unarverk og rík ástæða til að
stækka hann upp til sýnis eins og
málverk. Það færi annars til spillis.
Ég hef líka lengi í verkum mínum
velt því fyrir mér á hvaða stigi sköp-
unin á sér stað; hvenær maður er að
skapa og hvenær maður er að
skemma. Þetta má heimfæra upp á
svo margt eins og til dæmis um-
gengni okkar við náttúruna. Þetta
er auk þess í mínum huga tilraun til
að koma reglu á óreiðu, leiðrétta
mistök; að skila slettunum aftur upp
á veggina.“
Eins og Ívar segir hefur hann
lengi tekist á við spurningar um
uppruna hlutana og hvar sköpunin
liggur. Margir hafa til dæmis séð
stóra pappírsskúlptúra hans sem
hann kallar vatnslitamyndir;
margra fermetra einlitar papp-
írsmyndir litaðar með vatnslit sem
hann krumpar upp í kúlu og setur út
á gólf.
„Er það þá orðið skúlptúr eða er
það ónýt vatnslitamynd?“ segir
hann um þau verk.
Ívar hefur einnig unnið nokkur
verk sem hverfast um iðnaðarmáln-
ingu, eins og myndbandsverk þar
sem málning sést renna í endalausri
bunu.
Samtal við slettumálverk
Má segja að þessi verk hans með
fundnum málningardropum kallist á
við verk Errós í Hafnarhúsinu, þar
sem Erró vinnur líka með fundið
myndefni, „slettur annarra“?
„Ef til vill í einhverjum skilningi,“
svarar Ívar. „Það má allavega segja
að það sé ákveðið samtal hér við
slettumálverkið „margfræga“, en
það er kannski svo augljóst að ekki
þarf að taka það fram,“ segir hann
hugsi og horfir á stækkaða málning-
arblettina á veggjunum.
Ívar hefur um árabil verið virkur
á vettvangi myndlistarinnar. Hann
hóf nám í Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands árið 1971 og stund-
aði framhaldsnám í Hollandi frá
1977 til 1980. Hann teiknar reglu-
lega skopmyndir sem birtast á síðu
átta í Morgunblaðinu.
Byrjar með litlum dropa
Morgunblaðið/Einar Falur
Stækkun Ívar Valgarðsson í rökkri A-salar Hafnarhússins, við myndavél-
ina sem horfir á málningardropann sem er varpað á vegginn.
Ívar Valgarðs-
son opnar sýningu
í Hafnarhúsinu
Þótt Robert Smithson (1938-1973)
hafi látist ungur af slysförum, 35 ára
gamall, er óhætt að segja að hann sé
í hópi hinna þekktari og áhrifameiri
myndlistarmanna seinni hluta 20.
aldar. Hann er þekktur sem einn af
upphafsmönnum umhverfislistar en
eitt verk hans, Spiral Jetty sem er í
stöðuvatni í Utah-ríki, er með þekkt-
ustu listaverkum síns tíma.
Í dag, laugardag klukkan 16, verð-
ur opnuð í Hafnarhúsinu sýning á
verkum Roberts Smithsons og um
hann um leið. Á sýningunni er lögð
áhersla á verkið Brotinn hringur/
Spíralhæð sem Smithson gerði í
Emmen í Hollandi árið 1971. Verkið
er eina umhverfislistaverk hans í
Evrópu.
Lykilverk á ferlinum
Á sýningunni getur að líta flesta
þá miðla sem Smithson notaði í list-
sköpun sinni, svo sem fjölda teikn-
inga, ljósmyndir, bréf og kvikmynd
sem hann var að vinna að þegar
hann lést, auk endurgerðar á skúlp-
túrnum Leaning Mirror frá árinu
1969. Verkin á sýningunni veita góða
innsýn í hugmyndafræði Smithsons
um endurnýjun iðnaðarlands og
hvernig hann skipulagði og byggði
upp verkið Brotinn hring/Spíralhæð.
Brotinn hringinn, sem sést á með-
fylgjandi ljósmynd, lét hann byggja
út í vatnsfyllta sandnámu og upp
litla hæð ofan hans gengur hvítur
spírallaga gangstígur. Verkið skap-
aði Smithson á furðuskömmum tíma,
fyrir listahátíðina Sonsbeek’71. Á
tveimur vikum valdi hann verkinu
stað, lauk við allskyns skipulag-
steikningar og hugmyndavinnu og
fylgdist með framkvæmd þess. Í við-
tali ári síðar sagðist hann líta á það
sem lykilverk á sínum ferli. Á sýn-
ingunni verða sýndar þrjár kvik-
myndir um önnur umhverf-
islistaverk hans.
Vegleg sýningarskrá um Smith-
son og verkið kemur út samhliða
sýningunni og er gefin út af Lista-
safni Reykjavíkur og Museum für
Gegenwartskunst Siegen. efi@mbl.is
Ljósmynd/Robert Smithson Estate
Umhverfisverk Hluti verks Roberts Smithsons frá 1971, Brotinn hringur/
Spíralhæð, sem hann gerði í Emmen í Hollandi. Sýningin hverfist um verkið.
Merk umhverfis-
list Smithsons
Sýning á myndverkum frumkvöðuls
Grímuklæddur maður réðst á Sergei
Filin, listrænan stjórnanda hins
heimskunna Bolshoi-balletts, í
Moskvu á fimmtudag og skvetti sýru
í andlit hans. Er Filin með þriðja
stigs bruna í andliti og mögulega
hefur sjón hans orðið fyrir skaða.
Árásin kom í kjölfar fjölda hótana
sem Filin hafa borist undanfarið en
hann hafnaði því að hafa lífvörð sér
við hlið.
Lögregla hefur ekki útilokað að
ástæða árásarinnar sé deilur um
peninga eða fasteignir en hallast
helst að því að ráðist hafi verið á Fil-
in vegna starfa hans fyrir ballettinn.
Þar sem dansarar Bolshoi skipt-
ust á að dvelja við brunadeild
sjúkrahússins þar sem Filin er með-
höndlaður, greindu þeir blaðamönn-
um frá þeirri skoðun að þeir teldu af-
brýðisemi búa að baki árásinni.
AFP
Sýruárás Bolshoi-stjórnandinn Fil-
in hlaut þriðja stigs bruna í andliti.
Ráðist á
stjórnanda