Morgunblaðið - 19.01.2013, Side 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2013
Hinn 30. janúar næstkomandi verða
þjóðlagatónlistarverðlaun BBC fyrir
síðasta ár afhent í Skotlandi, í The
Glasgow Royal Concert Hall svo við
gerumst nákvæm og er viðburðurinn
hluti af The Celtic Connections Festi-
val. Það eru spennandi tímar í þess-
um geira í Bretlandi nú um stundir
og greinileg vakning á meðal ungs
fólks í garð þessa tónlistararfs. En
ekki er um að ræða hreint rómantískt
endurlit þar sem menn og konur
reyna að fylla vandlega í skó forfeðr-
anna með nákvæmum eftirlíkingum
og endurvinnslum. Nei, þessi bylgja
einkennist þvert á móti af all-
nokkrum broddi þar sem tilrauna-
mennska er lykillinn; rannsóknir á
hvernig hægt er að vinna með formið,
endurskapa það og nýta í ljósi nýrra
tíma virðist vera málið.
Framsækni
Nægir að líta til þeirra platna sem
eru tilnefndar til verðlaunanna til að
sjá þetta. Af þeim fimm sem eru til-
nefndar eru þrjár þeirra lengst úti í
brúninni og í raun merkilegt hversu
opin tónlistarelítan hér er gagnvart
svona „usla“ (sögulega hefur það ekki
alltaf verið svo, sjá t.d. er Fairport
Convention og þeirra líkar stungu
gíturunum í samband. Fólk lærir
greinilega af reynslunni stundum).
Ég ætla að nefna þessar þrjár plötur,
sú fyrsta er Broadside með hinni ell-
efu manna Bellowhead en sveitin at-
arna rúllar gömlum þjóðlagastemm-
um miskunnarlaust í gegnum
strengjasveitir, blástur, kvikmynda-
tónlistarminni, rokk, áslátt og bara
hvað sem er. Lögin eru þess vegna
„stór“ og margbrotin, virðast stund-
um ætla að spóla yfir sig en Bellow-
head tekst einhvern veginn alltaf að
lenda á tveimur fótum (eða tuttugu
og tveimur öllu heldur). Edinborg-
arsveitin Lau er þá tilnefnd fyrir
þriðju plötu sína, Race The Loser, en
Lau þykir hafa komið með nýja orku
inn í þjóðlagasenuna, tónlistin ein-
læg, djúp og áhrifarík en algerlega
móðins á sama tíma. Þriðja platan er
Ground Of Its Own með Sam Lee en
lítum betur á pilt eftir næstu millifyr-
irsögn
Maðurinn
Saga Sams Lees er ótrúleg. Hann
hóf ekki að syngja fyrr en fyrir sex
árum. Þegar hann uppgötvaði sig
sem slíkan hætti hann stússi sínu sem
sjónlistarmaður, „burlesque“- dans-
ari og kennari í „afkomu“-list hvað
náttúruna varðar og einhenti sér af
öllum krafti í þjóðlagatónlistina.
Frami hans þar hefur verið undra-
skjótur og hann er talinn fremstur á
meðal jafningja hvað endurnýjun
arfsins varðar. Hann er nú þegar
margverðlaunaður, fékk meðal ann-
ars Arts Foundation-verðlaunin 2011,
í fyrsta skipti sem þjóðlagatónlist er
verðlaunuð með slíkum hætti. Hann
stýrði þá tónleikaröð, The Magpie
Nest (nú The Nest Collective), en
röðin gerði mjög mikið í því að koma
skurki á áðurnefnda senu.
Lee nam svo hjá hinum goðsagna-
kennda skoska söngvara Stanley Ro-
bertson og í kjölfarið lagðist hann í
rannsóknir á arfi flökkusöngvara frá
Bretlandi og Írlandi. Lee kennir auk
þess reglulega í háskólum víða um
eyjarnar, meðal annars í Royal Col-
lege of Music en hann er fyrsti þjóð-
lagasöngvarinn sem það gerir. Og er
þá lítið eitt af afrekum Lees upp talið.
Platan, Ground Of Its Own, er þá
stórmerkileg. Í grunninn þjóðlaga-
tónlist en sveipuð nýjabrumi og til-
raunum sem þjóna lögunum upp í
topp. Stjarna Lees á eftir að hækka á
himni og ég læt nægja að vísa í Joe
Boyd, upptökustjórann fræga sem
vann með Fairport Convention,
Sandy Denny, Nick Drake og fleirum
í eina tíð.
„Magnaður söngvari og heillandi
karakter,“ segir hann um Lee. „Hann
vinnur með tónlistarmönnum á mjög
áhugaverðan og heillandi hátt. Út-
setningar hans á þessum lögum eru
einstakar, svona nokkuð hefur bara
aldrei heyrst áður.“
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
Fjölsnærður Hinn margverðlaunaði Sam Lee er „burlesque“-dansari, sér-
fræðingur í því að komast af í villtri náttúru … og tónlistarmaður.
Arfurinn
endurnýjaður
» Af þeim fimm semeru tilnefndar eru
þrjár þeirra lengst úti
í brúninni og í raun
merkilegt hversu opin
tónlistarelítan hér er
gagnvart svona „usla“
Ný alda þjóðlagasöngvara skall á ströndum
Bretlands fyrir nokkrum misserum Hinn
fjölhæfi Sam Lee er þar í broddi fylkingar
Tríó Glóðir og Sigríður Thorlacius
flytja leikritalög Oddgeirs Krist-
jánssonar og Jóns Múla í Salnum í
Kópavogi í kvöld kl. 20.
Tríóið skipa þeir Hafsteinn Þór-
ólfsson söngvari, Jón Gunnar Bier-
ing Margeirsson á gítar og Ingólfur
Magnússon á bassa. Þeir hafa í sam-
einingu útsett dægurlagaperlur
Oddgeirs Kristjánssonar úr Eyjum
og gáfu út á plötunni Bjartar vonir í
lok ársins 2011. Gestasöngvari á
plötunni var Sigríður Thorlacius.
Tveimur árum áður gaf hún ásamt
Heiðurspiltum út plötuna Á ljúf-
lingshól með lögum Jóns Múla Árna-
sonar.
Á tónleikum kvöldsins verða flutt
lög Oddgeirs og Jóns Múla sem þeir
sömdu fyrir leikrit, en einnig verða
fluttir nokkrir dúettar Oddgeirs.
Þeirra á meðal eru Glóðir, Svo björt
og skær, Vor við sæinn, Án þín og Á
Ljúflingshól. Auk þess munu þau
flytja tvo vikivaka eftir þá félaga.
Tríó Glóðir leikur í Salnum
Gestur Sigríður Thorlacius verður
gestasöngvari á tónleikunum.
ÍSL.
TEXTI
SÉÐ OG HEYRT/VIKAN
ÍSL.
TEXTI
-EMPIRE
- V.J.V., SVARTHÖFÐI.IS
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%* AÐEINS LAUGARDAG 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
DJANGO KL. 6 - 9 14
THE HOBBIT 3D KL. 6 - 9 12
LIFE OF PI 3D KL. 3.40 (TILBOÐ) 10
HVÍTI KÓALABJÖRNINN KL. 4 (TILBOÐ) L
RYÐ OG BEIN
2 GOLDEN GLOBE TILNEFNINGAR
5 ÓSKARSTILNEFNINGAR
3 ÓSKARSTILNEFNINGAR11 ÓSKARSTILNEFNINGAR3 ÓSKARSTILNEFNINGAR
ÁST
LAUGARDAGUR
TÖFRAMAÐURINN** KL. 3.40 L
NÉNETTA & ÁHORFENDURNIR** KL. 4 L
JARÐARFÖRIN HENNAR ÖMMU* KL. 10.10L
WOLBERG FJÖLSKYLDAN** KL. 6 L
BANEITRAÐ** KL. 4 L
RYÐ OG BEIN* KL. 8 L
ÁST* KL. 8 L
GRIÐARSTAÐUR** 3.20 - 10.20 L
SUNNUDAGUR
TÖFRAMAÐURINN** KL. 3.40 L
NÉNETTA & ÁHORFENDURNIR** KL. 3.50 L
STÓRLAXARNIR** KL. 5.50 L
JARÐARFÖRIN HENNAR ÖMMU*KL.10.10
WOLBERG FJÖLSKYLDAN** KL. 3.50 L
RYÐ OG BEIN* KL. 8 L
ÁST* KL. 8 L
GRIÐASTAÐUR 3.20 - 10.20 L
*ÍSLENSKUR TEXTI ** ENSKUR TEXTI
DJANGO KL. 5.40 - 9 16
THE MASTER KL. 5.20 14
LIFE OF PI 3D KL. 6 - 9 10
OPNUNARMYNDIN
GOLDEN GLOBE
BESTA ERLENDA MYNDIN
DJANGO KL. 1 (TILBOÐ) - 4.30 - 8 - 9 - 11.20* 16
DJANGO LÚXUS KL. 8 - 11.20* 16
THE MASTER KL. 6 14
HVÍTI KÓALABJÖRNINN KL. 1 (TILBOÐ) - 3 L
THE HOBBIT 3D KL. 1 (TILB.) - 4.30 - 8 - 11.20* 12
THE HOBBIT 3D LÚXUS KL. 1 - 4.30 12
LIFE OF PI 3D KL. 5.15 - 8 - 10.40* 10
GOÐSAGNIRNAR FIMM KL. 1 (TILBOÐ) - 3.15 7
-H.V.A., FBL
- H.S.S., MBL” - Þ. Þ., FRÉTTATÍMINN
- S.S., LISTAPÓSTURINN” - G.F.V., VIÐSKIPTABLAÐIÐ
DJANGO UNCHAINED sýndkl. 2-6-10
JACK REACHER Sýndkl.8-10:30
THE HOBBIT 3D (48 ramma) Sýndkl.2-6
THE HOBBIT 3D Sýndkl.10
LIFE OF PI 3D Sýndkl.4
HVÍTI KÓALABJÖRNINN Sýndkl.2
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
12
12
12
10
16
L
L
11 ÓSKARSTILNEFNINGAR
„Life of Pi er mikil bíóveisla og ekta jólamynd,
falleg og upplífgandi“
-H.S.S., MBL
„Life of Pi er töfrum líkust”
- V.J.V., Svarthöfði.is
3 óskarstilnefningar
SÝND Í 3D
OG Í 3D(48 ramma)
“Ekta hátíðarævintýri fyrir alla famelíuna.”
-Séð & Heyrt/Vikan
The Hollywood Reporter
EMPIRE
“Tom Cruise Nails it.”
- The Rolling Stone
“It’s part Jason Bourne,
part Dirty Harry.”
- Total Film
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
- H.S.S MBL
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU