Morgunblaðið - 19.01.2013, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 19.01.2013, Qupperneq 57
AF MÁLMI Friðjón Fannar Hermannsson fridjon@mbl.is Dimma er þungarokks-hljómsveit sem er drifináfram af miklum áhuga og metnaði og útgáfutónleikar hennar í Norðurljósasal Hörpu báru þess öll merki. Vegleg tónleikaskrá með sögu hljómsveitarinnar fylgdi hverju sæti. Gaman að geta lesið sér til um sögu hljómsveitarinnar og ber að hrósa Dimmu fyrir það fram- tak. Myrkraverk er þriðja breið- skífa hljómsveitarinnar og jafn- framt sú fyrsta sem þeir félagar flytja á íslensku. Flest lög plötunnar voru samin þegar hljómsveitin dvaldi á yfirgefnu sveitahóteli í Bjarnarfirði á Ströndum og eru því undir sterkum áhrifum frá galdra- menningu Strandamanna. Setið var í hverju sæti í Norðurljósasal Hörpu og þurftu margir að gera sér að góðu að standa. Stundvíslega klukk- an átta renndi sveitin af stað og var ferðalagið þétt, þungt og þrusuflott. Opnunarlag tónleikanna var „Dimmalimm“, þar var grunnurinn lagður að glæsilegum tónleikum. Melódískt rokk með ævintýrlega þéttu samspili bassa, gítars og tromma. Sprengingar voru svo nýtt- ar vel til skreytinga og þegar stúlknakór birtist á svölum Norður- ljósa og söng með í lokakafla lagsins var búið að fanga athygli allra gesta kvöldsins. Ingó Geirdal gítarleikari er mikil sviðsmaður og var virki- lega gaman að fylgjast með honum og samspili hans við Birgi Jónsson trommara í laginu „Myrkraverk“. Hljómsveitin spilaði öll átta lögin af plötunni og Stefán Jakobsson söngvari, sem skartaði glæstum fjaðraskúf, sýndi svo mátt sinn og megin í laginu „Kóngulóarkonan“. Þessi magnaði söngvari sýndi það á þessum tónleikum hvers vegna hann er talinn einn efnilegasti söngvari landsins. Silli Geirdal bassaleikari djöflaðist um á sviðinu eins og óður hundur í ól og það smit- aði vel út frá sér. Síðasta lag á dag- skránni var „Lokbrá“ og þar fengu þeir til liðs við sig hljómborðsleik- arann geðþekka Harald V. Svein- björnsson og var samspil þeirra Ing- ós gítarleikara yndislegt og melódískt. Eftir að Dimma hafði verið klöppuð upp héldu þeir piltar áfram að bjóða upp á gesti og var söng- konan Lára Rúnarsdóttir næst á svið og flutti með þeim lagið „Dim- mey“, og í kjölfarið fylgdu svo eldri slagarar eftir Dimmu, „Dementian“ og „Black Magic“. Eftir svona magnaða rokk- tónleika þar sem maður labbar út með suð í eyrum þakkar maður fyr- ir metnað tónlistarmanna að setja saman svona flotta dagskrá. Um- gjörð tónleikanna var kannski ekki mikil en það þarf oft ekki þegar listamenn leggja sálina í flutning og framkomu og það gerðu liðsmenn Dimmu svo sannarlega. Vissulega voru sprengjur og ljós stór partur af tónleikunum. En þegar öllu er á botninn hvolft má alveg segja að Dimma hafi boðið upp á sæmi- legasta veisluborð fyrir auga og eyra. Ljósmynd/Brynjar Snær Kraftur Sprengingar voru svo nýttar vel til skreytinga í Norðurljósasal Hörpu nú í vikunni. »Eftir svona magn-aða rokktónleika þar sem maður labbar út með suð í eyrum þakkar maður fyrir metnað tón- listarmanna. Myrk veröld Dimmu MENNING 57 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2013 Tvær sýningar verða opnaðar á vegum Sjónlistamiðstöðv- arinnar á Akureyri í dag kl. 15. Annars vegar er um að ræða Kveikju í Ketilhús- inu og hins vegar Ferðalag í Deigl- unni. Á sýningunni Kveikju sýnir lista- konan Jóhanna Helga Þorkelsdóttir ljóðrænar nátt- úrutengdar innsetningar, útfærðar í takt við rýmið. „Í sýningunni er meðvitað reynt að flytja eftirlíkingar af náttúrunni inn í manngert umhverfi, líkt og landslagsmálverk gera, þótt miðl- arnir séu hér örlítið frábrugðnir,“ segir m.a. í tilkynningu. Ferðalag nefnist sýning text- íllistakonunnar Guðnýjar Mar- inósdóttur. Þar sýnir hún valin verk úr BA námi sínu í útsaums-textíl (e. embroidered textiles), allt frá skiss- um og teikningum yfir í fullunnin verk eins og brúðarkjól. Hugmyndir að verkum sínum sækir Guðný í náttúruna og tengsl mannsins við umhverfi sitt og ábyrgð hans á því. Báðar sýningar standa til 24. febr- úar, en opið er alla daga nema mánu- daga og þriðjudaga. Aðgangur er ókeypis. Kveikja Frá sýningu Jóhönnu Helgu Þorkelsdóttur í Ketilhúsinu. Kveikja og Ferðalög Eitt verka Guðnýjar. “IT’S PART JASON BOURNE, PART DIRTY HARRY.” -EMPIRE  -TOTAL FILM -THE HOLLYWOOD REPORTER  -SÉÐ & HEYRT/VIKAN 3 ÓSKARSTILNEFNINGAR NAOMI WATTS TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI 100/100 „Fer beint í efsta sæti yfir þær myndir sem fólk verður að sjá á árinu.“ 100/100 „Ógnvænlega vel gerð.“ NAOMI WATTS TILNEFND TIL ÓSKARSVERÐLAUNA MÖGNUÐ NÝ ÍSLENSK MYND BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM FRÁBÆR MYND MEÐ GERALD BUTLER OG ELISABETH SUE “SURPRISING” -ROGER EBERT “SOLID PERFORMANCES” -HOLLYWOOD REPORTER - ÞÞ, FRÉTTATÍMINN  "SKOTHELD Í ALLA STAÐI!" Í 2D OG 3D MEÐ ÍSLENSKU TALI 11ÓSKARSTILNEFNINGAR ANN HORNADAY, “ASTONISHING, INGENIOUSLY WRITTEN AND EXECUTED.” CLAUDIA PUIG, “PITCH-PERFECT PERFORMANCES. BEN AFFLECK SHINES AS A FILMMAKER AND AN ACTOR.” CHRISTY LEMIRE, “THE BEST FILM OF THE YEAR. ARGO FEELS IMMEDIATE AND RELEVANT. SEAMLESS.” ROGER EBERT, “SPELLBINDING, THE CRAFT IN THIS FILM IS RARE.” ONE OF THE MOST TAUT AND WELL-CONSTRUCTED THRILLERS IN YEARS. JOE MORGENSTERN, “NOTHING LESS THAN SENSATIONAL. SMART AND ACCOMPLISHED, ARGO HAS IT ALL.” OWEN GLEIBERMAN, “WILDLY ENTERTAINING. THE RARE MOVIE THAT HAS GREAT FUN WHILE TOUCHING A RAW POLITICAL NERVE.” DGA AWARD NOMINEE BEST DIRECTOR PGA AWARD NOMINEE BEST PICTURE OF THE YEAR WGA AWARD NOMINEE BEST ADAPTED SCREENPLAY SAG AWARD® N O M I N A T I O N S OUTSTANDING PERFORMANCE BY A MALE ACTOR IN A SUPPORTING ROLE OUTSTANDING PERFORMANCE BY A CAST IN A MOTION PICTURE 2 ACADEMY AWARD ® NOMINATIONS7 INCLUDING BEST PICTURE GRANT HESLOV BEN AFFLECK GEORGE CLOONEY WINNER BEST PICTURE  BEST DIRECTOR CRITICS’ CHOICE AWARDS BEN AFFLECK WINNER BEST PICTURE  BEST DIRECTOR GOLDEN GLOBE® AWARDS DRAMA 7 TILNEFNINGAR TILÓSKARSVERÐLAUNA BESTA MYND A YND A MYND BESTI LE KSTJÓRI BESTI LEIKSTJÓRI SIGURVEGARI MEÐAL ANNARS SIGURVEGARI EGILSHÖLLÁLFABAKKA VIP XL KL. 4 - 6 - 8 - 10:10 CHASING MAVERICKS KL. 5:30 - 8 - 10:30 JACK REACHER KL. 2:30 - 5:20 - 8 - 10:40 JACK REACHER VIP KL. 2:30 - 5:20 - 8 - 10:40 HOBBIT:UNEXPECTEDJOURNEY3D KL. 1:30 - 5 - 8:30 THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 - 10:30 SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 1:30 - 3:30 SAMMY 2 ÍSLTAL3D KL. 2 WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 1:30 RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTAL KL. 3:30 KRINGLUNNI MARIS STUARDA ÓPERA KL. 17:55 (LAU) XL KL. LAU: (3:20 - 9:10 - 11:10) SUN: (2 - 4 - 6 - 8 - 10:10) JACK REACHER KL. 5:20 - 10:20 THE IMPOSSIBLE KL. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 SINISTER KL. 8 SAMMY 2 ÍSLTAL3D KL. 1 RISEOFTHEGUARDIANS ÍSLTAL3D KL. 1 DJANGO UNCHAINED KL. 5 - 8 - 10:30 CHASING MAVERICKS KL. 5:30 - 8 JACK REACHER KL. 8 - 10:40 THE IMPOSSIBLE KL. 3 - 5:30 - 8 LIFE OF PI3D KL. 3 - 5:20 ARGO KL. 3 - 10:30 SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 3 KEFLAVÍK DJANGO UNCHAINED KL. 8 XL KL. 8 CHASING MAVERICKS KL. 10:10 JACK REACHER KL. 11 (LAU) THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 HOBBIT: UNEXPECTED JOURNEY 3D KL. 4 HVÍTI KÓALABJÖRNINN ÍSLTAL2D KL. 2 SAMMY 2 KL. 2 AKUREYRI XL KL. 6 - 8 CHASING MAVERICKS KL. 10:10 JACK REACHER KL. 10:10 THE IMPOSSIBLE KL. 8 RISEOFTHEGUARDIANS ÍSLTAL3D KL. 4 - 6 SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 4 NÚMERUÐ SÆTI MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT SPARBÍÓ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.