Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Qupperneq 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Qupperneq 16
*Fjölskylda úr Hafnarfirði fékk menningarsjokk við að koma til Katmandú í kolniðamyrkri »18Ferðalög og flakk „Í Gautaborg er frost og snjór en afskaplega fallegt veður og hér hef- ur verið stilla allan mánuðinn. Janúar er dimmur þó að hann sé ekki eins og á Íslandi. Munurinn á vetrinum í Gautaborg og á Ís- landi er sá að hér er fólk ekki hlaupandi á milli húsa í slabbinu. Þess í stað er auðvelt að komast á milli þó að kalt sé,“ segir Skúli Leifs- son sem dvelur í námi við Gautarborgarháskóla. Þar er hann í al- þjóðlegu meistaranámi í menntarannsóknum. „Í Svíþjóð klárast önnur önn af fjórum í janúar og allir eru sveittir að koma frá sér síðustu verkefnunum. Ég skilaði mínum í gær og fagnaði frelsinu í dag með því að fara í göngutúr að stöðuvatni sem heitir Delsjö,“ segir Skúli sem flutti utan í fyrrahaust ásamt fjölskyldu sinni. Skúli er nemi í merki vogarinnar Skúli Leifsson og Hafdís Ósk Guðlaugsdóttir fluttu til Gautaborgar. Á vetrargöngu með erfingjann. Vog í vetrarstillu Gleymið því stúlkur, hann er frátekinn. PÓSTKORT F RÁ GAUTAB ORG Í sjö mánaða heimsreisu sinni árið 2010 kom Baldur Kristjánsson ljósmyndari meðal annars við á Íslendingaslóðum við Gimli í Winnipeg í Kanada. „Það var ógleymanlegt að vera þarna og ég held að það hafi eitthvað spilað inn í hve lengi ég hafði verið frá Íslandi. Þarna upplifði ég mig eins og ég væri kominn heim þrátt fyrir að vera óralangt frá Íslandi,“ segir Baldur. Í Gimli dvaldi hann meðal annars 17. júní og tók þátt í hátíðarhöldum Vestur-Íslendinga þar sem fjallkonan kom meðal annars á svæðið og stúlknakór söng íslenska þjóðsönginn. „Það kom mér rosalega á óvart hve allt var í raun íslenskt þarna. Margir töluðu íslensku og eldra fólkið talaði skýrari og málfarslega réttari íslensku en ég heyri heima. Ég fann fyrir miklu Íslendingastolti og mér leið pínulítið eins og rokkstjörnu vegna þess hve góðar móttökur ég fékk,“ segir Baldur. Hann segir það hafa komið sér á óvart hve sterk tengslin við Ís- land voru meðal íbúa í Gimli. „Eitt skiptið fór ég á elliheimili og þar kom fólk saman einu sinni í viku til að tala íslensku. Ef einhver varð uppvís að því að „sletta“ á ensku var hann umsvifalaust sekt- aður. Á barnum mátti fá Egils gull og harðfisk og hvarvetna var mér boðið upp á vínartertu. Svo sá ég íslenska fánann oftar í Gimli en ég hef nokkurn tíma séð á Íslandi að 17. júní undanskildum,“ segir Baldur. Hann segir marga hafa haft áhyggjur af efnahagsástandinu á Ís- landi. ,,Allir voru svo vinalegir. Helga Mali, sem var fjallkonan á há- tíðarhöldum 17. júní, lánaði mér t.a.m. bílinn sinn þegar ég vildi fara og mynda einhvers staðar fyrir utan bæinn. Þá hafði ég þekkt hana í klukkutíma. Svo leyfði bæjarstýran mér að gista hjá sér fyrstu tvær næturnar þar sem ég var ekki kominn með gistingu þegar ég kom í bæinn. Afganginn af ferðinni gisti ég hjá dóttur hennar og tengdasyni,“ segir Baldur. Þegar til Winnipeg var komið var hann hálfnaður með ferðalagið. Aðspurður hvort eitthvað hafi komið honum sérstaklega á óvart segir Baldur alla hafa verið upp- tekna af því að bjóða honum vínartertur. „Ég hef aldrei orðið var við þær á Íslandi en allir þarna ytra voru sífellt að bjóða mér vín- artertu. Þarna mátti svo finna íslenskt bakarí þar sem meðal annars mátti fá snúð,“ segir Baldur að lokum. Ljósmynd/Baldur Kristjánsson BALDUR KRISTJÁNSSON Á ÍSLENDINGASLÓÐUM Heimili að heiman LJÓSMYNDARINN BALDUR KRISTJÁNSSON HEIMSÓTTI VESTUR-ÍSLENDINGA Í KANADA. ÞAR VAR HONUM TEKIÐ SEM ROKKSTJÖRNU OG GAT HANN BORÐAÐ VÍNARTERTU AÐ VILD. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Fjallkonan Helga Mali reyndist ferðalangnum Baldri vel og lánaði honum meira að segja bílinn sinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.