Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2013
Ferðalög og flakk
OPNU
NART
ÍMI
UM H
ELGIN
A
LAU.
10-18
SUN.
13-18Riii i i i i isa
VERT
UVEL
KOMI
N/N
ÚTSALA
A
HÚSGAGNAHÖLLIN • B í l d s h ö f ð a 2 0 • Re y k j a v í k • s í m i 5 5 8 1 1 0 0 OPIÐ V i r k a d a g a 1 0 - 1 8 , l a u g a rd . 1 0 - 1 8 o g s u n n u d . 1 3 - 1 8
B
rynjólfur Jónsson hefur
ásamt eiginkonu sinni,
Sigrúnu Víglundsdóttur,
farið í ófáar göngu- og
ævintýraferðirnar á liðnum árum,
síðast til Nepal í fyrra en þá ferð
skipulagði ferðaskrifstofan ÍT-
ferðir. Ferðin er hönnuð þannig
að hægt var að velja hvort farið
væri í Everest Base Camp eða að
Annapurna Base Camp og Brynj-
ólfur og Sigrún ákváðu að velja
síðarnefndu leiðina í samfloti með
sextán manna hópi.
„Okkur þótti það mikill bónus
að börnin okkar, Auður, sautján
ára, og Daníel, sem er tvítugur,
komu með okkur og það gerði
ferðina sérstaklega skemmtilega,“
segir Brynjólfur. „Við höfum farið
í nokkrar ferðir á vegum ÍT-
ferða, sérstaklega þær sem hafa
ekki verið farnar áður og þannig
fór Sigrún í fyrstu ferðina sem
ÍT-ferðir skipulögðu í Pýrenea-
fjöllin árið 2003. Má svo nefna
ferðir eins og Kilimanjaro og
Grand Canyon, í félagsskap fjöl-
breyttra og skemmtilegra hópa.“
Ferðin tók sautján daga og þar
af var gengið í ellefu. Brynjólfur
segir upplifunina hafa verið allt
öðruvísi en hefðbundna fjallgöngu.
„Tröppur og stígar eru alls stað-
ar. Ég er kannski ekki að segja
að fólk geti gengið þetta á striga-
skóm en það þarf enga jökla-
klossa. Ég var sjálfur allan tím-
ann í léttum Scarpa-skóm.
Krökkunum þótti þetta mikil upp-
lifun. Mestu þrumur og eldingar
sem við höfum séð á ævinni voru
daglegt brauð seinnipartinn og
umhverfið var í miklum blóma.
Allar hlíðar voru þaktar rauðum
alparósum og það er afar sérstakt
að rekast á staka asna, fólk að
bera tuttugu kíló á hausnum, kýr
á gangi og allt það sem tengist
þessu fjölskrúðuga menningarlífi á
fjallasvæðinu.“
Ferðin hófst á því að komið var
til Katmandú í kolniðamyrkri og
segir Brynjólfur það hafa verið
talsvert menningarsjokk; þetta
kvöld var rafmagnslaust og íbúar
elduðu við opinn eld. Hópurinn
skiptist þar í tvennt þar sem ann-
ar hlutinn fór í Ever-
est-grunnbúðirnar og Brynjólfur
og félagar til Annapurna. Eftir
skoðunarferð í Katmandú var far-
ið í rútuferð sem var skrautleg-
asta rútuferð sem fjölskyldan
Svæðið var óvenjublómlegt fyrir árstímann en ferðin var farin í mars.
ÆVINTÝRAGJÖRN FJÖLSKYLDA
Hópur Hauka-
manna í Nepal
HAFNFIRSK FJÖLSKYLDA HÉLT Á FRAMANDI SLÓÐIR Í
NEPAL SÍÐASTA VOR OG GEKK ÞAR Í UNDURFÖGRU
UMHVERFI Í 11 DAGA OG ENDAÐI Í 4.200 METRA HÆÐ.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Stórfallegt umhverfið var þægilegt til göngu – stígum lagt og þrepum þakið og veðrið var afar gott eins og sjá má.