Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Page 28
*Matur og drykkir Steinasteik og draumar nýs árs voru í aðalhlutverki í nýársmatarboði hjá Bryndísi og Örnólfi »32
Þ
etta er einfaldur og mjög góður réttur,“ segir Júlíus
Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi í Reykjavík, en hann
eldaði dýrindis aðalrétt fyrir Sunnudagsblað
Morgunblaðsins sem hann kýs hann að kalla því
ítalska nafni un pollo improvvisato. Júlíus stundaði söngnám
á Ítalíu og er því vel kunnugur ítalskri matargerð.
„Það er eiginlega ekki neitt almennilegt íslenskt orð yfir
þetta en það má eiginlega segja að þetta þýði að leika af
fingrum fram nú eða að nota innblásturinn í matargerðina
og það gerði ég þegar ég bjó til kjúklingaréttinn. Hann er
mjög einfaldur og aldrei eins sem hentar mér vel því ég er
frekar óagaður þegar kemur að matargerð,“ segir hann og
hlær.
„Það er raunar hægt að nota það sem til er í eldhússkáp-
unum í það og það skiptið. Þetta er semsagt ekki hefðbund-
inn hátíðarréttur en engu að síður bragðmikill, léttur réttur,
fljótlegur og stundum er svolítið spennandi hvað kemur út úr
ofninum,“ segir Júlíus Vífill og brosir.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
BRAGÐMIKILL KJÚKLINGARÉTTUR Á ÍTALSKA VÍSU
Innblásinn
kjúklingur
JÚLÍUS VÍFILL INGVARSSON HEFUR DÁLÆTI Á ÍTALSKRI MATARGERÐ EN SEGIST ÓAGAÐUR Í ELDHÚS-
INU. HANN MATREIDDI KJÚKLINGARÉTT AF FINGRUM FRAM OG DEILIR HÉR UPPSKRIFTINNI.
Unnur H. Jóhannsdóttir uhj@simnet.is
Júlíus Vífill Ingvarsson segir að hægt sé að nota nánast hvað
sem er í kjúklingaréttinn.
Uppskrift
Kjúklingabringur
saxaðar döðlur
ólífur, skornar í tvennt
sólþurrkaðir tómatar, skornir í
þunnar sneiðar
fetaostur
rautt pestó
salt og pipar
grænmeti af ýmsum toga eins
og paprika í öllum litum, svepp-
ir, kúrbítur
ólífuolía
Skerið vasa í kjúklingabringurnar og
fyllið þær með söxuðum döðlum, ólíf-
um, sólþurrkuðum tómötum og feta-
osti. Ef skorið er langt inn í bringurnar
er gott að hafa tannstöngla við höndina
til að loka þeim svo fyllingin renni ekki
út. Þegar fyllingin hefur verið sett í eru
bringurnar smurðar að utan með
rauðu pestói og saltaðar og pipraðar.
Þá er nokkrar döðlur settar ofan á
bringurnar og kjötinu síðan lokað með
því að snúa bringunum á vel heitri steik-
arpönnu í örfáar mínútur.
Áður en bringurnar eru settar í eld-
fast mót er það botnfyllt af fetaosti og
olían frá ostinum sett í botninn ásamt
miklu af rauðu pestói, handfylli af döðl-
um, sveppum, kúrbítssneiðum, papr-
ikum og raunar má setja hvaða græn-
meti sem er. Áður en rétturinn er
tekinn úr ofninum er gott að hella smá-
vegis af ólífuolíu yfir bringurnar.
Með réttinum er gott að hafa hrís-
grjón eða pasta og léttan hvítlauks- og
steinseljulög.
Hvítlauks- og steinseljulögur
Ólífuolía
steinselja
hvítlaukur
Allt sett í mixara og borið fram með
réttinum.
Un pollo
improvvisato
Morgunblaðið/Styrmir Kári