Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Page 34
*Græjur og tækniSjálfsvíg undrabarnsins Aarons Swartz hefur vakið spurningar um lagaumhverfi netheima »36
É
g hef alltaf verið mikill græjupúki, segir Gunnar Björn Þórhallsson, framkvæmdastjóri
fjarskiptafyrirtækisins Tengis á Akureyri. Hann varð fimmtugur í vikunni, og keypti
af því tilefni nýtt sjónvarp; Samsung 8000, 65 tommu, háskerpu-þrívíddartæki. „Ég
er sjúkur í allt nýtt, verð alltaf að prófa og helst að eignast það!“
Gunnar eignaðist fyrstu tölvuna 14 ára, sjónvarpstölvu, fyrstu „venjulegu“ tölvuna 18 ára
og fyrstu PC-tölvuna um miðjan níunda áratuginn, liðlega tvítugur.
„Menn spurðu hvað ég ætlaði eiginlega að gera með hana, enda var sú
tölva stærri en flest fyrirtæki notuðu. Ég hefði verið að forrita í
nokkur ár, alltaf verið í annarri vinnu, en á þessum tíma, þegar tölvu-
eign var orðin almenn, ákvað ég að snúa mér alfarið að þessu – og
þurfti því öfluga tölvu.“
Gunnar stofnaði fyrirtækið Netkerfi og tölvur um tölvuvinnuna fyr-
ir hálfum öðrum áratug og Tengir varð að veruleika 2002, til að halda
utan um ljósleiðarakerfi og -lagnir. En fleira kemst að; nefna má að
Gunnar á vélsleða, fjarstýrða þyrlu til að leika sér að og forláta bíl,
og keppir í kvartmílu og götuspyrnu. „Það er Chevrolet Pickup,
sennilega kraftmesti dísel-pickup landsins; á góðum degi – þegar búið
er að stilla tölvuna í bílnum og bæta á hann nítrógasi – slagar hann í
800 hestöfl og er innan við fimm sekúndur í hundraðið.“
Eins tölvur heima og í vinnunni; 24 og 30
tommu Intel I 7 með 32 gb vinnsluminni.
Samsung
Galaxy S III sími.
Gunnar stjórnar sjónvarpinu góða með
handahreyfingu einni saman.
Fjarstýrða þyrlan sem Gunnar eignaðist fyrir
nokkrum árum og hefur mjög gaman af.
Með dóttursyninum Kára Gunnari á Arctic
Cat-vélsleða, 2011. Sleðinn er 165 hestöfl.
Mitsub-
ishi 3000.
Hætt var
að fram-
leiða teg-
undina fyrir
rúmum áratug.
Gunnar Björn við 65 tommu, Samsung 8000, háskerpu-þrívíddarsjónvarp sem hann keypti nýlega. Það skynjar handahreyfingu svo hægt er að stjórna því þannig eða með því að tala við það!
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
TÖLVUKARL SEM SEGIST GRÆJUPÚKI
Verð að prófa allt
GUNNAR BJÖRN ÞÓRHALLSSON FÉKK TÖLVUBAKTERÍUNA SNEMMA OG
ÁHUGAMÁLIÐ TÓK SVO MIKINN TÍMA AÐ HANN ÁKVAÐ AÐ GERA ÞAÐ
AÐ ÆVISTARFI. HANN SEGIST HALDINN ÓSLÖKKVANDI GRÆJUDELLU.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Ein af spjaldtölvum
heimilisins. 64 gb Ipad 2.
Líklega kraft-
mesti dísel-
pickup landsins;
tæpar 5 sek. í
hundraðið!