Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Page 38
*Föt og fylgihlutir Létt og leikandi efni í gulu, bleiku og hvítu einkenna vor- og sumarlínu Malene Birger »40
Skipta fötin máli í þínu starfi í sjónvarpi? Já fötin skipta sko sannarlega
máli og því miður er ég ekki sú besta að velja þau. Þetta mætir alltaf afgangi
hjá mér. Ég hins vegar nýt góðrar aðstoðar Ragnheiðar Óskarsdóttur í Ilse
Jacobsen í Garðabæ og kvennanna í Hugo Boss-búðinni. Þessar konur hafa
reynst mér afskaplega vel við að velja klæðileg og falleg föt.
Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Ætli minn fatasmekkur myndi ekki
kallast klassískur. Ég legg mikla áherslu á að kaupa vönduð föt og kaupi mér
því færri flíkur en aðeins dýrari. Stundum langar mig að vera í fleiri litum og
sniðum en það er svo skrýtið, í sjónvarpi gengur bara einfalda sniðið, pokar
og pífur er nokkuð sem ekki gengur í fréttalestri og sjónvarpsdagskrárgerð.
Hver eru bestu fatakaupin þín? Það er nú saga að segja frá því, datt inn í
Gyllta köttinn um daginn með vinkonu minni Stefaníu Thors og keypti mér
„óvart“ stuttan pels á kostakjörum. Ég gerði svo góð kaup að mér fannst, að
ég gleymdi að spyrja hvers lags feldur þetta væri. Komst að því síðar. Er í
pelsinum öllum stundum, hann er bæði smart og hlýr. Góð tilbreyting frá því
að vera alltaf í úlpu í slagviðrinu.
En þau verstu? Ætli þau verstu hafi ekki verið þegar ég keypti einhvern rán-
dýran pallíettutopp fyrir mörgum árum (áður en pallíettan var komin í tísku
aftur) og taldi mér trú um að þetta væri málið. Ég fór aldrei í hann og klippti
hann svo seinna niður í skraut á jólapakka og gleymdi svo að setja það á
pakkana þegar kom að því. Hreinlega verstu kaupin svo ekki sé meira sagt.
Hverju er mest af í fataskápnum? Það er mest af ónotuðum gallabuxum
sem þarf að fara að grisja. Var að máta einar um daginn og þær voru frá
árinu 1999 – minnir að það hafi verið frekar útvíð tíska þá.
Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur þér föt? Ég passa að efnið sé
gott og við hversu mörg tækifæri ég get notað fötin. Sjónvarp, kokteilboð,
venjulegur vinnudagur og heima við, er ekki gott að geta samnýtt flíkurnar
svona?
Hvar kaupir þú helst föt? Ég versla helst í búðinni Ilse Jacobsen í
Garðabæ, þar eru skandinavísk föt, góð merki og passa vel hávöxn-
um konum eins og mér. Auk þess versla ég stundum í Hugo Boss-
búðinni.
Hver er flottasta búð sem þú hefur komið í? Filippa K-búð í
Berlín, gerði líka ein bestu kaupin þar, keypti þrjá kjóla, tvennar
buxur og bol á góðu verði. Filippa K og Ilse Jacobsen eru mín
uppáhaldsmerki.
Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl? Dorrit er stór-
glæsileg að mínu mati.
Ef þú þyrftir ekki að kíkja á verðmiðann, hvaða flík eða fylgi-
hlut myndirðu kaupa þér? O, hvar á ég að byrja? Efst á óska-
listanum er svört Marc Jacobs-taska sem ég hef augastað á í
Kron. Hljómar hégómlegt en þær eru bara svo fallegar. Ég
þyrfti helst að fá smáræðis vinning í happaþrennu eða svo til
að leyfa mér það þannig að við sjáum til.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó þegar kemur
að fatakaupum? Svartur kjóll fer vel við allt og svo er hægt að
djassa hann upp með alls konar fylgihlutum. Afskaplega frum-
legt ráð hjá mér, held ég hafi fengið þetta ráð frá einhverjum
öðrum í sambærilegu viðtali. En þetta virkar.
Ef þú gætir sest upp í tímavél og farið á annað tískutímabil,
hvert myndirðu vilja fara? Það er ekki nokkur spurning að ég
myndi fara aftur til charleston-tímabilsins. Finnst allt flott, glæsilegt
og kvenlegt frá þeim tíma, hvort sem það eru föt, hártíska, hattar,
skartgripir eða fylgihlutir. Hefði átt að vera fædd þá – með tilliti til
tísku, ekki réttinda kvenna.
Í Gyllta kett-
inum fann
Helga forláta
pels sem
hún notar
mikið.
HELGA ARNARDÓTTIR FÍLAR KLASSÍSK FÖT
Klippti pallí-
ettutopp niður
í pakkaskraut
HELGA ARNARDÓTTIR, FRÉTTAKONA Á STÖÐ 2, HEFUR VAR-
IÐ SÍÐUSTU MÁNUÐUM Í VINNSLU Á ÞÁTTUNUM MANNS-
HVÖRF SEM NÚ ERU SÝNDIR Á STÖÐ 2. HÚN SEGIR FATAVAL
ÞVÍ MIÐUR OFT MÆTA AFGANGI HJÁ SÉR EN NÚ SÉ KOMINN
TÍMI Á AÐ GRISJA FATASKÁPINN.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Dorrit Moussaieff
er ávallt flott.
Helga Arnardóttir hefur
vakið athygli fyrir þætti
sína Mannshvörf. Hún
segir fötin skipta máli í
starfi sjónvarpsfólks.
Gallabuxur
eru farnar að
hlaðast upp í
fataskáp
Helgu.
Gwyneth Paltrow
veit að svarti
kjóllinn virkar
hvar og hvenær
sem er.