Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2013
B
ergsteinn Björgúlfsson,
oftast kallaður hinu
hógværa nafni Besti,
hefur stýrt kvikmynda-
töku á mörgum af
áhugaverðari íslensku bíómyndum
síðari ár. Hann stýrði kvikmynda-
töku á íslensku kvikmyndinni XL
sem var frumsýnd föstudaginn
18.janúar.
Hann byrjaði fyrst sem kvik-
myndatökumaður hjá Stöð 2 árið
1986 eða þegar sú sjónvarpsstöð
var stofnuð. Þar vann hann í ein
fimmtán ár. Síðan fór hann utan og
lærði hljóðvinnslu í Bandaríkjunum
og fór eftir hljóðnámið til kvik-
myndaháskólabæjarins Rockport í
Maine-ríki þar sem hann lærði
meira í kvikmyndatöku. Þegar
hann kom heim fór hann beint upp
á Stöð 2 á nýjan leik, en byrjaði að
vinna að sínum eigin verkefnum
meðfram vinnunni.
Ekki sóst eftir vandaðri
vinnu hjá sjónvarpinu
„Það er einhvern veginn þannig á
sjónvarpsstöðvunum að hraðinn
skiptir öllu máli,“ segir Besti.
„Maður er ekkert skammaður fyrir
að vinna verk sitt vel, en það er
ekkert sérstaklega sóst eftir því.
Aðalmálið er að skila á réttum
tíma. Eftir að ég kom úr náminu
fór ég að færa mig hægt út í aug-
lýsingagerð og heimildarmynda-
gerð og síðan út í bíómyndir. Síð-
ustu sjö árin mín á Stöð 2 var ég í
hálfri vinnu og notaði tímann sem
var aukreitis í það sem mig langaði
til að gera.
Fyrsta bíómyndin sem ég tók
hét Leirburður og var aldrei klár-
uð. Viðar Víkingsson leikstýrði
henni en það vantaði ekki nema
nokkra daga til að klára hana en
fjármögnunin tókst ekki.
Fyrsta bíómyndin sem ég tók og
fór alla leið, var Börn og Foreldrar
með Ragnari Bragasyni, tvíbura-
myndirnar svokölluðu.
Manni leið strax betur við kvik-
myndatökuna á þessum myndum,
þetta var svo miklu meira gefandi
en að taka upp fyrir sjónvarp.
Manni fannst maður vera kominn
heim og ég er búinn að vera heima
síðan þá.“
Munurinn á auglýs-
ingagerð og kvikmynda-
gerð er mikill
Munurinn á tökum fyrir sjónvarp
og kvikmyndir er augljós en varð-
andi muninn á því að taka upp fyrir
auglýsingar annarsvegar og bíó-
myndir hinsvegar segir Besti að
hann sé líka töluverður. „Þegar
maður tekur upp fyrir auglýsingar
fær maður tíma til að vanda verk
sitt og maður skilar af sér fallegu
sjónrænu verki sem er gaman. En
eðli þeirra er einhvern veginn
hvorki aðlaðandi né gefandi. Maður
er að gefa allt í það að telja fólk á
að kaupa eitthvað sem það þarf
ekki á að halda. En í bíómyndunum
er maður að koma einhverju til
skila sem skiptir máli; eitthvað sem
maður skilur eftir sig og er stoltur
yfir að hafa komið á framfæri.
Það sama á við um heimildar-
myndirnar. Við vorum margir sem
komum að vinnu við heimildar-
myndina um Breiðavíkurpiltana og
það tók á en við vorum stoltir af
því að koma því efni frá okkur. Við
vorum lengi að vinna með þetta
efni því menn voru svo tregir til að
tala í byrjun.
En svo fóru menn hægt að gefa
sig og á endanum sprakk þetta út.
Það var alveg ótrúlegt að taka þátt
í því verkefni. Við fengum þetta
verkefni á heilann, við urðum að
klára að gera þessa mynd. En
trúðu mér, maður græðir ekki á
svoleiðis mynd.“
Allir leikstjórar eru
með sinn sérstaka stíl
Spurður um leikstjórana sem hann
hefur unnið með og muninn á þeim
segist hann hafa unnið með þeim
ansi mörgum. „Viðar Víkingsson og
Ragnar Bragason voru þeir fyrstu.
Svo er það Marteinn Þórsson núna
sem leikstýrði XL en ég er líka bú-
inn að taka eina með Benedikt Er-
lingssyni og svo með Ágústi Guð-
mundssyni. Ég var
kvikmyndatökumaðurinn á nýju
myndinni hans Ágústs, Ófeigur
gengur aftur, sem verður frumsýnd
í lok mars. Ég hafði aldrei unnið
með honum, það var mjög gaman.
En það er munur á öllum leik-
stjórunum, ekki beint tengt kyn-
slóðum heldur er bara persónu-
munur á fólkinu. Eftir því sem
menn eru reyndari, því slakari
verða þeir. Þeir stressa sig minna
yfir því sem þarf ekki að stressa
sig yfir. En í flestum tilfellum er
munurinn á milli þeirra aðallega
tengdur persónum þeirra. Það er
mikið bragð af leikstjórunum í
hverju verkefni. Því þetta eru
þeirra börn. En það hefur hver
sitt, allir með sína sérstöku sýn.
Ég hef mjög oft verið spurður að
því hvort ég ætti uppáhalds-
leikstjóra. En ég á erfitt með það,
því allir hafa sína plúsa og mínusa.
Það er bara gott að vinna með nýj-
um mönnum, það heldur manni við
efnið og maður staðnar ekki. Ég
vil helst vera að vinna við eitthvað
sem ég hef ekki reynt áður.“
Tilraunastarfsemi
við gerð XL
Samstarfið í kringum XL kom
þannig til að ég tók fyrir hann
Matta „show-reel“ yfir vetrartím-
ann á bíómyndinni hans, Roklandi.
Ég tók allar vetrarsenurnar fyrir
Besti fer
til Banda-
ríkjanna
LEIKARAR NJÓTA MIKILLAR ATHYGLI VIÐ GERÐ KVIK-
MYNDA OG ÞAÐ GERA LEIKSTJÓRAR LÍKA. EN MINNI AT-
HYGLI FÁ OFT HINIR MIKILVÆGU LISTAMENN SEM ERU Á
BAKVIÐ KVIKMYNDATÖKUVÉLINA OG STÝRA HENNI.
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
Svipmynd