Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Qupperneq 54

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Qupperneq 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2013 Menning Lykillinn að góðri myndasögufelst í jafnvæginu á millimynda og texta,“ segir teikn- arinn og útgefandinn Jean Posocco. Hann hefur um árabil rekið útgáfu- fyrirtæki er nefnist Froskur útgáfa (myndasogur.is) sem sérhæfir sig í útgáfu á myndasögum og hefur m.a. stýrt útgáfu á myndasögublaðinu NeoBlek sem áður hét hasarblaðið Blek og hóf göngu sína árið 1996 og kemur út fjórum sinnum á ári. Ný- verið komu út hjá Froski útgáfu þrjár nýjar bækur, barnabók er nefnist Lára lygakokkur og mynda- sögurnar Lóa! – Trúnaðarkver eftir Julien Neel og Tímaflakkararnir eftir Zep, Stan & Vince. „Ég valdi þessa tvo myndasögu- titla af því að mig langaði til að kynna nýtt efni fyrir landanum. Þetta eru stuttar sögur sem eru mjög skemmtilegar aflestrar,“ segir Jean og tekur fram að hann hafi góð tengsl við myndasögubransann erlendis, því hann hefur síðustu ár keypt myndasögur fyrir NeoBlek- blaðið. „Sumir líta á myndasögur sem strákabækur, enda eru margar af þekktustu söguhetjunum karl- kyns. Mér fannst því mikilvægt að bjóða líka upp á myndasögu sem höfðað gæti til stelpna,“ segir Jean og vísar þar til Lóu. Bendir hann á að Lóa hafi notið mikilla vinsælda í Frakklandi á síðustu árum og komið út í tuttugu löndum. „Ef viðtökur hérlendis við bókunum tveimur verða góðar stefni ég að því að gefa út fleiri bækur í sömu seríu.“ Jean segist sakna þess tíma hér- lendis þegar meira var gefið út af myndasögum. „Ég veit að ég er ekki sá eini sem saknar þess. Fjölvi og Iðunn stóðu sig mjög vel á sínum tíma og gáfu meðal annars út Lukku-Láka, Ástrík galvaska, Tinna, Sval og Val svo fáeinar sögu- hetjur séu nefndar. Um aldamótin síðustu dró verulega úr myndasögu- útgáfunni hérlendis sem varð til þess að Íslendingar hafa að miklu leyti misst af þeim breytingum sem orðið hafa í myndasögubransanum. Þannig eru t.d. mun fleiri konur farnar að skrifa og teikna mynda- sögur, sem er spennandi því þær hafa oft aðra sýn og áherslur í sög- um sínum.“ Aðspurður segir Jean Lóu og Tímaflakkarana ætlaða fyrir les- endur frá sex ára aldri og upp úr. Hann leggur hins vegar áherslu á að myndasögur séu ekki aðeins fyrir börn. „Erlendis eru lesendur myndasagna á öllum aldri. Þar skammast fullorðið fólk sín ekkert fyrir að lesa myndasögur, enda eru þær teknar mun alvarlegar sem list- form. Það væri ánægjulegt ef hægt væri að innleiða viðlíka viðhorf hér- lendis. Mér finnst alltaf leiðinlegt þegar lítið er gert úr myndlæsi og myndskreytingum bóka. En vonandi fer þetta að breytast og það mun auðvitað fyrst og fremst gerast með meiri og faglegri umfjöllun. Hafa verður í huga að fólk sem í dag er á þrítugsaldri ólst upp við mun meira úrval myndasagna hérlendis en finna má í dag. Vonandi vill þetta sama fólk halda myndasögunum að sínum börnum og þá er mikilvægt að gott úrval sé fyrir hendi,“ segir Jean og tekur fram að hann ali með sér draum um að geta líka gefið út klassískar myndasögur. „Sem dæmi er ég að vinna í því að gefa út bók um Sval og Val sem ekki hefur áður komið út hérlendis.“ Julien Neel er höfundur bókanna um Lóu. Sú fyrsta leit dagsins ljós árið 2004 og eru þær orðnar sex talsins. Gerðir hafa verið sjónvarpsþættir upp úr bókunum sem m.a. eru sýndir í Ríkissjónvarpinu. Í fyrstu bókinni glímir Lóa við mörg dæmigerð vandamál táningsstúlkna, hún kynnist fyrstu ástinni auk þess sem hún reynir að koma móður sinni saman við sjarmerandi nágranna. LYKILLINN AÐ GÓÐRI MYNDASÖGU FELST Í JAFNVÆGINU Á MILLI MYNDA OG TEXTA Myndasagan merkilegt listform TEIKNARINN OG ÚTGEFANDINN JEAN POSOCCO HEFUR ÞAÐ AÐ MARKMIÐI AÐ KYNNA GÓÐAR MYNDASÖGUR FYRIR LANDANUM. NÚ Í BYRJUN ÁRS BÝÐUR HANN LESENDUM UPP Á NÝTT EFNI EN Í FRAMHALDINU STENDUR TIL AÐ GEFA ÚT GÓÐKUNNINGJA ÚR HEIMI MYNDASÖGUNNAR. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Kápurnar að Lóu og Tímaflökk- urum sem nýverið komu út á íslensku. Tímaflakkarar koma úr smiðju Zep, Stan & Vince. Fyrsta bókin kom út árið 2008 og síðan hafa fjórar fylgt í kjölfarið. Systkinin Soffía og Snorri komast yfir farsíma sem getur flutt þau fram og til baka í tíma. Þau ferðast víða í fyrstu bókinni og valda iðulega miklum usla. Oft reyna þau að nýta sér nýfengna söguþekkingu í skólaritgerðum sínum sem fellur í misgóðan jarðveg hjá kennara þeirra. Jean Posocco hefur myndskreytt fjölda barna- og kennslubóka en einbeitir sér nú fyrst og fremst að útgáfu myndasagna fyrir fólk á öllum aldri. Morgunblaðið/Styrmir Kári Jean Posocco hefur verið búsettur hérlendis sl. þrjátíu ár, en hann er Frakki af ítölskum ættum. Hann lauk námi frá Myndlista- og hand- íðaskóla Ís- lands árið 1989 og hefur síðan þá unn- ið á auglýs- ingastofu, starfað sjálf- stætt við myndskreytingar og gefið út myndasögur. Jean hefur á ferli sín- um myndskreytt mikinn fjölda barna- og kennslubóka. Sú nýjasta er Lára lygakokkur sem er saga eftir Margréti Björgu Júlíusdóttur. Aðspurður segist Jean vera af gamla skólanum þar sem sér þyki alltaf best að vinna myndir með blýanti á pappír, síðan fer hann ofan í línurnar með blekpenna, skannar myndirnar inn og litar þær loks í tölvunni þegar við á. Langur ferill
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.