Morgunblaðið - 16.02.2013, Síða 1

Morgunblaðið - 16.02.2013, Síða 1
L A U G A R D A G U R 1 6. F E B R Ú A R 2 0 1 3  Stofnað 1913  39. tölublað  101. árgangur  ENDURGERÐIR ÁHUGAVERÐAR TILRAUNIR SKÁBÖRN OG BRASILÍA GETUR EKKI HUGSAÐ SÉR LÍF ÁN HUNDS SUNNUDAGUR HVOLPAR EINS OG LOTTÓMIÐAR 10VIÐTAL VIÐ PAUL RUDD 54 Pétur Blöndal pebl@mbl.is Tugþúsundir sitja eftir með óleyst vandamál eftir stjórnartíð norrænu velferðarstjórnarinnar, að sögn Bjarna Benedikts- sonar, formanns Sjálfstæðisflokks- ins. „Við þetta verður ekki búið. Það verður að rétta fólki hjálpar- hönd,“ segir hann í viðtali í blaðinu í dag. Þar ræðir hann stöðuna í stjórnmálum, m.a. stjórnarskrána, leiðir í efnahagsmál- um og þátttöku sína í atvinnulífinu. „Við eigum að nota skattkerfið til að auðvelda fólki að greiða niður húsnæðislán sín. Við ætlum líka að létta byrðarnar með því að heimila því að nýta skattahagræðið af sér- eignarsparnaðinum og leggja beint inn á húsnæðislánin,“ segir hann. Andlitslausir eigendur Bjarni segir það tvískinnungshátt að bankar á Íslandi séu í dag í eigu óþekktra aðila og að aldrei hafi farið fram úttekt á sérstöku hæfi þeirra til að fara með eignarhaldið. „Á sama tíma þykjast menn hafa lært að það skipti máli hver eigi bankana og að eignarhaldið sé gegnsætt. Þessu þarf að breyta. Það er óþol- andi að bráðum séu 5 ár frá hruninu og eignarhald allra stórra banka sé í höndum andlitslausra eigenda; vog- unarsjóða og áhættufjárfesta í leit að skyndigróða.“ Spurður um snjóhengjuna segir Bjarni m.a.: „Meginatriðið er að við ætlum ekki að láta erlenda kröfu- hafa, sem komu flestir hér inn eftir hrunið til að stórgræða á ástandinu, halda okkur í heljargreipum hafta. Það kemur ekki til greina. Það þarf að afskrifa stóran hluta þessara eigna með einum eða öðrum hætti.“ Hann segir nauðsynlegt að lækka skatta og einfalda skatta- og reglu- verk atvinnulífsins. „Ég nefni trygg- ingagjaldið hér alveg sérstaklega því það er hreinn skattur á það að ráða fólk og vinnur gegn því að fyrirtæki geti fjölgað störfum. Það þarf líka að skapa frið um grunn- atvinnuvegina sem óvissan nagar að innan.“ Ekkert á samviskunni Í samtalinu er vikið að þátttöku Bjarna í viðskiptalífinu og segir hann alveg skýrt að þau félög sem hann sat í stjórn hjá hafi ekki verið gerendur í þeirri atburðarás sem fór af stað í hruninu. „Að hafa komið ná- lægt atvinnurekstri þegar hrunið reið yfir er ekki sök í sjálfu sér. Þeir sem með einhverjum hætti höfðu rangt við þurfa að svara fyrir það. En ég hef einfaldlega ekkert á sam- viskunni og ég læt ekki kjafta mig út úr stjórnmálum með þvættingi og rakalausum áróðri,“ segir Bjarni. MÞarf að lækka álögur » 28-29 Nauðsyn að lækka skatta Bjarni Benediktsson  Tryggja þarf stöðugleika  „Læt ekki kjafta mig út úr stjórnmálum“  Skattkerfið verði notað til að auðvelda fólki að greiða niður húsnæðislán Tónlistarhátíðin Sónar hófst í gærkvöldi í Hörpu en þetta er í fyrsta sinn sem hún er haldin hér á landi. Fjöldi fólks kom saman í tónlistarhúsinu og myndaðist litrík stemning þegar íslenskir sem er- lendir listamenn, á borð við GusGus, Ghostigital, Retro Stefson og Trentemøller, stigu á svið. Morgunblaðið/Styrmir Kári Gleði og innlifun á Sónar Baldur Arnarson baldura@mbl.is Það er álit framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins að sé heildarkostnaður við lántöku ekki tilgreindur geti það brotið í bága við neyt- endalöggjöf sambandsins. Er sú afstaða talin geta haft víðtækar af- leiðingar fyrir verð- tryggð lán á Íslandi. Þetta álit kemur fram í svari Mariu Lissowska, sérfræð- ings innan fram- kvæmdastjórnarinn- ar, við fyrirspurn dr. Mariu Elviru Men- dez-Pinedo, prófess- ors í Evrópurétti við Háskóla Íslands. Svaraði Lissowska fyrir hönd Tonio Borg, sem fer með heilbrigðis- og neytendamál í framkvæmda- stjórn ESB, en spurningin var jafnframt lögð fyrir Stefan Füle, stækkunarstjóra sambands- ins. Allur kostnaður við lán falli niður Telur Mendez-Pinedo að í þessu svari felist að Íslendingar standi frammi fyrir aðstæðum sam- bærilegum þeim sem koma fram í tveim málum fyrir Evrópudómstólnum. Hefði sú staða í för með sér að fella bæri niður allan kostnað af lán- um sem ekki uppfylltu skilyrði reglnanna. MVerðtryggð lán »16 Lánin álitin ólögleg  ESB ályktar um verðtryggðu lánin 1.000 milljarðar » Upphæðin sem um er að tefla ef kostnaður af verð- tryggðum lánum fellur niður. » Þetta er mat Arnars Krist- inssonar lögfræð- ings.  „Við erum ekki farin að sjá það ennþá hvar rík- isstjórnin ætlar sér að stoppa þennan bolta, sem hún ýtti af stað,“ segir Vil- hjálmur Egils- son, fram- kvæmdastjóri SA, í tilefni af stofnanasamningi hjúkrunarfræð- inga og Landspítala. Ekki verði betur séð en að aðrar stéttir séu að setja sig í stellingar til að fara fram á svipaðar launahækkanir. »4 Ríkisstjórnin ýtti bolta af stað Vilhjálmur Egilsson  Í umsögn um frumvarp til breytinga á fjöl- miðlalögum leggur fjölmiðla- nefnd til að nokkrar breyt- ingar verði gerð- ar á 28. grein laganna, sem kveður á um vernd barna gegn skaðlegu efni. Nefndin hefur til skoðunar tæknileg úrræði fyrir- tækja til að uppfylla skilyrði lag- anna. »30 Ákvæðum um vernd barna verði breytt  Trygginga- miðstöðin var á fimmtudag sýkn- uð í máli sem slitastjórn Glitnis höfðaði gegn fé- laginu vegna ábyrgðartrygg- ingar stjórnar og yfirmanna bank- ans sem rann út 2009. Slitastjórn Kaupþings rekur sam- bærilegt mál fyrir dómstólum á Ís- landi en ekki slitastjórn gamla Landsbanka, LBI. »6 Slitastjórnir stefna tryggingafélögum  Safn tíu þúsund bóka, sem eru í eigu þjóðkirkjunnar, verður senn gert aðgengilegt. Safnið hefur í tæp fimmtíu ár verið geymt bak við luktar dyr í turni Skálholtskirkju en verður í sumar komið fyrir þar sem fleiri geta notið. Í safninu eru margar merkustu bækur Íslands- sögunnar, segir Kristján Valur Ing- ólfsson, og nefnir þar m.a. Guð- brandsbiblíu og frumútgáfu Passíusálma Hallgríms. » 18 Trú Biblíur frá fyrri öldum eru í safninu. Skálholtssafnið senn úr turninum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.