Morgunblaðið - 16.02.2013, Page 2

Morgunblaðið - 16.02.2013, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Yfir 85% fallið frá uppsögn á LSH  Læknaráð styður byggingu nýs spít- ala og vill að yfirvöld hætti niðurskurði Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Ég hugsa að þetta séu nær 90% hjúkrunarfræðinga sem hafa dregið uppsagnir sínar til baka en það er meiri ágiskun en útreiknaðar tölur. En ég þori að fullyrða að nú sé þetta komið í 85%,“ sagði Erna Einars- dóttir starfsmannastjóri Landspít- alans síðdegis í gær. Draga þurfti uppsögn til baka fyrir miðnætti í fyrrakvöld til þess að fá greiddar 60 þúsund krónur í álagsgreiðslur fyrir nóvember og desember. „Ég hugsa að ég leyfi helginni að líða og tek saman þær uppsagnir sem hafa verið dregnar til baka í byrjun næstu viku,“ segir Erna. „Við erum mjög ánægð með þann hóp hjúkrunarfræðinga sem hefur fallið frá uppsögnum sínum. Við vonumst til að fá fleiri því það er mjög mikilvægt,“ segir Ólafur Bald- ursson, framkvæmdastjóri lækninga á LSH. Hann reiknar fastlega með að starfsemin geti orðið með eðlileg- um hætti næstu mánaðamót. Rúmlega 40 geislafræðingar á Landspítalanum hafa sagt upp störfum, en þær uppsagnir eiga að taka gildi 1. maí. Þá hafa tvær form- legar beiðnir borist spítalanum um gerð stofnanasamnings, en þær eru frá náttúrufræðingum og Eflingu. Þung verkefni framundan „Það gera sér allir grein fyrir því að það eru þung verkefni fram- undan fyrir spítalann varðandi aðr- ar stéttir sem eru allar mjög mik- ilvægar,“ segir Ólafur og ítrekar að það þurfi marga með margvíslega hæfni til að spítalastarfsemi gangi upp. Læknaráð hélt fund í gær og mun senda frá sér ályktun eftir helgina. Fundurinn var fjölmennur. „Fund- armenn voru ákveðnir í því að skora á yfirvöld að hætta niðurskurði til Landspítalans,“ segir Ólafur. Þá sagði hann að annað málefni hefði einnig verið áberandi á fund- inum og það var hversu mikill ein- hugur hefði ríkt meðal lækna um byggingu nýs spítala. Skúli Hansen skulih@mbl.is Samstarfsyfirlýsing um kísilver á Bakka var undirrituð gær. Um er að ræða tvo samninga. Annars vegar yfirlýsingu um samstarf ríkisins við sveitarfélagið Norðurþing, Hafnar- sjóð Norðurþings og þýska iðnfyr- irtækið PCC vegna áforma um upp- byggingu kísilvers á Bakka. Þá var einnig undirritað samkomulag á milli Norðurþings, Hafnarsjóðs Norðurþings og íslenska ríkisins um nauðsynlegar aðgerðir svo hægt sé að ráðast í atvinnuuppbyggingu á Bakka. Þýskt stórfyrirtæki Að sögn Bergs Elíasar Ágústsson- ar, bæjarstjóra Norðurþings, mun þýska fyrirtækið PCC sjá um rekst- ur kísilversins. Samkvæmt upplýs- ingum af heimasíðu PCC starfa um 2500 starfsmenn hjá dótturfélögum, og tengdum fyrirtækjum, fyrirtæk- isins í sextán löndum. „Það sem þarna verður framleitt er kísill og hann er m.a. notaður í sólarrafhlöður og efnavöruiðnað. Síðan fylgja þessu ákveðnar rykteg- undir sem meðal annars fara í ál,“ segir Bergur Elías. Aðspurður hve- nær verksmiðjan muni hefja starf- semi sína segir Bergur Elías að skv. áætlun sem fyrir liggi sé stefnt að því að starfsemin hefjist seinni hluta árs 2015 eða í byrjun árs 2016. „Þegar hæst lætur á uppbygging- artímanum munu um 390 manns starfa við uppbyggingu verksmiðj- unnar og þá er ekki meðtalin at- vinnuuppbyggingin, höfn, vegteng- ing, orkuver og línulagnir,“ segir Bergur Elías og bætir við: „Síðan þegar fyrsta áfanga er lokið þá munu starfa við hana um 120 til 130 manns í beinum störfum og um 160 til 170 manns þegar seinni áfanga er lokið.“ Aðspurður hvers eðlis þessi störf verði segir Bergur Elías að stór hluti starfanna verði iðnaðar- og tæknistörf og síðan verði þarna einnig í boði verkamannastörf. Mikill gleðidagur „Þetta er mikill gleðidagur fyrir okkur, en ég hef trú á að þetta verði upphaf að samfelldu uppbyggingar- og hagvaxtarskeiði á Norðurlandi,“ sagði Kristján Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, um yfirlýs- inguna í samtali við mbl.is í gær. Þá sagðist Kristján vilja líta á umrædda uppbyggingu á Bakka í samhengi við aðra uppbyggingu sem áformuð er á norðurslóðum, þ. á m. olíuleit við Grænland, norðursiglingar og ol- íuleit á Drekasvæðinu. „Ég horfi til þess að þarna verði uppbygging næstu árin og áratugina og að þetta verði upphafið að sam- felldu uppbyggingar- og hagvaxtar- skeiði næstu árin,“ sagði Kristján. Undirrituðu samstarfs- yfirlýsingu um kísilver  Um 390 manns munu starfa við uppbyggingu kísilversins Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson Frá höfninni á Húsavík Uppbygging kísilversins skapar fjölbreyttara atvinnulíf fyrir íbúa Norðurþings. Tveir Íslendingar sem sitja nú þeg- ar í fangelsi í Danmörku fyrir smygl á fíkniefnum hafa verið handteknir af lögreglu grunaðir um aðild að smygli á 27 kílóum af amfetamíni. Þetta tengist máli Íslendinga sem voru handteknir í Danmörku í fyrra vegna smygls á 34 kílóum amfeta- míns. Á vef Ekstra Bladet kemur fram að mennirnir tveir, sem eru 25 og 37 ára, hafi verið dæmdir í fimm og átta ára fangelsi fyrir smygl á fimm kílóum af e-töflum og sitji í fangelsi í Danmörku fyrir það. Þeir eru nú grunaðir um að eiga aðild að smygli á 27 kg af amfeta- míni en fleiri Íslendingar tengjast því máli. Í september í fyrra handtók lög- reglan sjö Íslendinga sem taldir voru tengjast smygli á 34 kg af am- fetamíni. Er nú talið að tvímenning- arnir tengist því máli en 37 ára Ís- lendingur, sem var handtekinn á Spáni, er talinn höfuðpaurinn í mál- inu. Þegar hefur danskur karlmaður frá Fjóni verið dæmdur í 12 ára fangelsi fyrir hlut sinn í smyglinu á 27 kílóunum en það var hann sem tók á móti amfetamíninu á heimili sínu í Óðinsvéum. Íslendingarnir tveir voru úr- skurðaðir í 28 daga gæsluvarðhald í Kaupmannahöfn. Alls sitja nú tólf bak við lás og slá í Danmörku vegna þessa máls, Ís- lendingarnir sem voru handteknir í gær, Íslendingarnir sem voru hand- teknir í fyrra fyrir smygl á 34 kg og þrír að auki. Tukthúslimir í gæsluvarðhald  Tveir Íslendingar grunaðir um smygl TILBOÐ á 1 lítra Kókómjólk Skúli Hansen skulih@mbl.is Þingflokkar ríkisstjórnarflokkanna ræddu stjórnarskrárfrumvarpið á fundum sínum í gærkvöldi. Að sögn Össurar Skarphéðinssonar, utanrík- isráðherra og þingmanns Samfylk- ingarinnar, var mikil umræða um frumvarpið á þingflokksfundi Sam- fylkingarinnar. „Á þessum þingflokksfundi fórum við yfir málið og skoðuðum það frá öllum hliðum. Við veltum fyrir okk- ur ýmsum möguleikum, m.a. þeim sem kom fram í Feneyjaálitinu, að áfangaskipta, en það varð engin niðurstaða í þá veru,“ segir Össur. Hann bætir við að Árna Páli Árna- syni, formanni flokksins, hafi verið falið umboð til að skoða málið betur og ræða það við aðra stjórnmála- flokka. Aðspurður hvort sá kostur sé uppi á borðinu að ná einhverjum völdum köflum frumvarpsins í gegnum þingið fyrir þinglok segir Össur: „Á þessu stigi eru margir valkostir sem eru til umræðu og þetta er einn af þeim en hann er ekki endilega á þessari stundu ofar settur en aðrir. Menn fóru í gegn- um ýmsa kosti og mátu þetta út frá ýmsum hliðum, málið er flókið og það er okkar ágæti nýi formaður sem hefur úrslitavald í þessum efn- um.“ Þá bendir Össur á að hugsanlegt sé að þingflokkurinn ræði þetta mál aftur og telur hann slíkt ekki vera ólíklegt. „Við ræddum stöðu málsins sem er í miðri annarri umræðu í þinginu og við stefnum að því að ljúka þeirri umræðu og fá málið inn í nefnd til að geta farið yfir m.a. þá kafla sem við geymdum í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og biðum með að fjalla um þar til eftir álit Feneyja- nefndarinnar,“ segir Álfheiður Ingadóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna. Þar sagðist hún eiga sérstaklega við kaflann um stjórnskipun landsins sem lýtur annars vegar að ráðherrum og rík- isstjórn og hinsvegar forseta Ís- lands. Vilja fá kafla inn í nefnd „Þetta eru kaflar sem við viljum fá inn í nefndina til að fjalla um á milli annarrar og þriðju umræðu að fengnu áliti Feneyjanefndarinnar,“ segir Álfheiður. Aðspurð hvort sú hugmynd hafi verið rædd á fund- inum að ná ákveðnum köflum frum- varpsins í gegnum þingið fyrir þinglok og fresta öðrum segir Álf- heiður að það hafi ekki verið gert. Áfangaskipting rædd hjá Samfylkingu  Þingflokkar ríkisstjórnarflokkanna ræddu stjórnarskrána Össur Skarphéðinsson Álfheiður Ingadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.