Morgunblaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013
General Electric kæli- og frystiskápar sem hafa inn-
byggða klakavél með mulningi og ísköldu íslensku
vatni. Þeir eru öflugir og glæsilega innréttaðir. Fást
hvítir, svartir og með stálklæðningu.
Verð frá kr. 398.800 stgr.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
TILBOÐSDAGAR
Tilboð
Amerískir með klakavél
Svokallaður aðalsamningamaðurÍslands í viðræðunum um aðild
landsins að ESB opnaði sig í viðtali
við litháíska fréttaveitu. Þar sagð-
ist hann að telja að um mitt næsta
kjörtímabil yrðu
viðræðurnar komn-
ar mjög vel á veg.
Mitt næsta kjör-tímabil er ár-
ið 2015 og þá eru
sex ár liðin frá því
að umsóknin var
þvinguð í gegnum Alþingi með
ósannindum og fortölum sem seint
munu gleymast.
Árni Páll Árnason og JóhannaSigurðardóttir sögðu til að
mynda árið 2009 að Ísland gæti orð-
ið aðili að sambandinu strax árið
2010. Það sama sagði prófessor og
varaþingmaður Samfylkingarinnar
Baldur Þórhallsson.
Að ógleymdum sjálfum StefániHauki Jóhannessyni „að-
alsamningamanni“ sem sagði um
mitt ár 2009 að aðildarviðræður
tækju eitt til eitt og hálft ár.
Í litháíska viðtalinu sagði StefánHaukur einnig að fleiri Íslend-
ingar vildu klára viðræðurnar en
hætta þeim. Þetta er sérkennilegt
þegar haft er í huga að í spurningu
Capacent Gallup um þetta efni und-
ir lok síðasta árs vildi aðeins rúmur
þriðjungur halda viðræðunum
áfram en meira en helmingur vildi
slíta viðræðunum.
Hvernig stendur á því að svomiklum ósannindum hefur
verið beitt af hálfu stuðningsmanna
aðildar?
Getur verið að málstaðurinn veitiekki svigrúm fyrir sannleik-
ann?
Stefán Haukur
Jóhannesson
Örstuttar viðræður
sem aldrei lýkur
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 15.2., kl. 18.00
Reykjavík 3 heiðskírt
Bolungarvík 0 skýjað
Akureyri 1 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 3 skýjað
Vestmannaeyjar 4 heiðskírt
Nuuk -3 léttskýjað
Þórshöfn 6 léttskýjað
Ósló -2 frostrigning
Kaupmannahöfn 1 þoka
Stokkhólmur 1 þoka
Helsinki -2 alskýjað
Lúxemborg 2 þoka
Brussel 7 léttskýjað
Dublin 8 skýjað
Glasgow 8 skýjað
London 8 léttskýjað
París 8 skýjað
Amsterdam 6 skýjað
Hamborg 2 skýjað
Berlín 1 skýjað
Vín 2 þoka
Moskva -7 þoka
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 15 heiðskírt
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 10 léttskýjað
Aþena 10 skýjað
Winnipeg -16 snjókoma
Montreal 2 snjóél
New York 6 heiðskírt
Chicago -3 léttskýjað
Orlando 13 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
16. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:19 18:06
ÍSAFJÖRÐUR 9:34 18:01
SIGLUFJÖRÐUR 9:17 17:43
DJÚPIVOGUR 8:51 17:33
Elín Jónasdóttir, húsfreyja á Siglu-
firði, andaðist á sjúkradeild Heil-
brigðisstofnunar Fjallabyggðar í
fyrradag, 104 ára gömul. Hún var
fimmti elsti Íslendingurinn þegar
hún lést.
Elín fæddist 16. maí 1908 í Efri-
Kvíhólma í Ásólfsskálasókn í Vest-
ur-Eyjafjallahreppi. Foreldrar
hennar voru Jónas Sveinsson (1875-
1946), bóndi frá Rauðafelli í Ey-
vindarhólasókn í Rangárvallasýslu,
og Guðfinna Árnadóttir (1874-1972),
húsfreyja frá Mið-Mörk í Stóra-
Dalssókn í Rangárvallasýslu. Elín
var sú fjórða í röð níu systkina.
Elín bjó á æskuslóðum fram yfir
tvítugt en fór þá til Reykjavíkur.
Þar kynntist hún mannsefninu sínu,
Óskari Sveinssyni, sjómanni frá
Siglufirði. Hún flutti til Siglufjarðar
1939 og gengu þau Óskar í hjóna-
band 28. nóvember 1941. Elín var
húsmóðir og vann einnig við síld-
arsöltun á síldarárunum. Óskar lést
árið 1983. Elín bjó ein til 98 ára ald-
urs en flutti þá á Heilbrigðisstofnun
Siglufjarðar.
Elín var trúrækin og studdi líkn-
arstarf eftir bestu getu. Áratugum
saman saumaði hún og prjónaði föt
sem gefin voru fátækum í Austur-
Evrópu, Afríku og Asíu. Einnig var
hún dyggur stuðningsmaður ABC
Barnahjálpar.
Þau Óskar og Elín eignuðust
þrjú börn, Hauk (f. 1941), Guðlaugu
(f. 1942) og Guðfinnu (f. 1946, d.
2009).
Andlát
Elín
Jónasdóttir