Morgunblaðið - 16.02.2013, Page 10

Morgunblaðið - 16.02.2013, Page 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013 100% dúnn Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið Sími 533 2220 www.lindesign.is sendum frítt úr vefverslun á næsta pósthús 10.000 dúnsængur 100% bómull Settu nafnið þitt í pott í verslun og þú getur unnið sæng fyrir alla fjölskylduna Tilboð 7.686 kr (áður 10.980 kr) Stærð 100x140 - 400 gr dúnn Tilboð 10.486 kr (áður 14.980 kr) Stærð 140x200 - 790 gr dúnn Tilboð 23.490 kr (áður 33.490 kr) Við fögnum 10.000 ánægðum viðskiptavinum og bjóðum fleiri í hópinn með risatilboði á öllum dúnsængum. Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is H vað viltu?“ spyr Sirrý Halla þegar hún opn- ar dyrnar að bak- aríinu sínu Kökuhorn- inu í Lindarhverfinu í Kópavogi. „Ja, ég veit það ekki. Mér líður nú hálfilla að velja mér bara úr borðinu hjá þér,“ segir blaðamaður hálfvandræðalega. „Nú, veldu þér hvað sem er, þú ert svo heppin að taka viðtal við rétta manneskju,“ svarar Sirrý Halla að bragði. Með loppna fingur, rautt nef og kaldar tær sest blaðamaður niður og fær kaffi og með því. Eftir dágóða útiveru í Heið- mörk og hesthúsahverfi Gusts þar sem hundarnir hafa farið í gegnum sína daglegu æfingar er helsta áhugamál Sirrýjar Höllu rætt, hundaræktun og þjálfun. „Mig hafði í rauninni dreymt um að eignast hund frá því að ég var smákrakki. Svo þeg- ar ég lét verða af því fékk ég mér Pa- pillon. Ég fann fljótt að sú hundateg- und hentaði mér ekki af því að ég er svo mikið í hestunum. Þá fékk ég fyrsta Schäferinn (þýskan fjárhund). Fljótlega eftir það flutti ég inn rakka frá Noregi, hann Rambó minn sem er norsk-íslenskur alþjóðlegur meist- ari.“ Á eina þýska fjárhundinn sem er hlýðnimeistari Ári eftir að Rambó kom til land- sins flutti Sirrý Halla inn tík frá Nor- egi til að para hana með Rambó. „Í fyrsta gotinu kom meðal annars Gríma en hún er á útkallslista hjá Björgunarsveitinni. Ég er rosalega stolt af henni og Emil, eigandanum hennar. Úr ræktuninni minni á ég Blaze sem ég hef þjálfað frá því að hún var hvolpur. Hún er eini Schäfer- hundurinn á Íslandi sem er með OB1- próf en það er hlýðnimeistaratitill og hún er jafnframt íslenskur meistari. Hún er fyrsti og eini Schäferinn sem ber titilinn hlýðnimeistari á Íslandi. Ég hef notið dyggrar aðstoðar Þór- hildar vinkonu minnar við alla þjálf- un.“ Þórhildur Bjartmarz er eigandi hundaskólans Hundalíf en hún og Sirrý Halla hittast ásamt fleirum að minnsta kosti einu sinni í viku til að þjálfa hunda sína og nýta þær sér að- stæður í reiðskemmu Gusts. Getur ekki hugsað sér líf án hunds Þýskir fjárhundar hafa lengi verið í uppáhaldi hjá Sigríði Höllu Stefánsdóttur eða Sirrý Höllu eins og hún er alltaf kölluð. Hún var ekki búin að eiga sinn fyrsta hund lengi þegar hún ákvað að leita að góðum ræktarhundi í Noregi og skella sér í ræktun. Sirrý hefur vegnað vel en hún var stigahæsti ræktandinn í sinni tegund árið 2012 og í sjötta sæti yfir allar tegundir innan Hundaræktarfélags Íslands. Verðlaun Blaze hefur staðið sig vel og bregður á leik með Sirrý Höllu. Tengsl Sirrý Halla myndar einstök tengsl við hundana sem hún þjálfar. Hlýðni Blaze liggur kyrr og bíður eftir skipunum frá Sirrý Höllu. Morgunblaðið/Styrmir Kári Mikið er lagt upp úr því að hundaeig- endur sæki námskeið með hvolpum sínum og skilar það sér yfirleitt í betri tengslum milli manns og hunds. Hundaskólinn Hundalíf býður upp á alls kyns námskeið fyrir hunda eins og til dæmis hvolpa- og unghunda- námskeið og hlýðninámskeið. Frekari upplýsingar um námskeiðin má finna á heimasíðu skólans og þar má líka nálgast kennsluáætlun fyrir hvert námskeið. Stöku sinnum stendur hundaskól- inn fyrir námskeiðum utan höfuð- borgarsvæðisins og er vert að fylgj- ast með því. Allir kennarar skólans hafa áralanga reynslu af hundaþjálf- un og eru að sjálfsögðu hundaeig- endur sjálfir. Á heimasíðunni er hægt að skoða fjöldann allan af hundamyndum og má þar til að mynda finna ljósmyndir af nemendum Hundalífs. Vefsíðan hundalif.is Hundalíf Það er gefandi að fara með hlýðna hunda í göngu á vetrarkvöldi. Hvolpar setjast á skólabekk Mánudaginn 18. febrúar mun Tómas R. Einarsson mæta í Café Lingua og spjalla um áhuga sinn á rómönsku Ameríku, ferðir sínar um þær slóðir og segja frá því hvernig spænskan opnaði honum dyr inn í kúbanska tónlist og menningu. Hann fjallar einnig um kúbönsk skáld og kúb- anskar bókmenntir og lesin verða ljóð eftir skáldið Herberto Padilla á íslensku og spænsku. Í lokin mun Tómas grípa í kontrabassann og jafn- vel spila á bjöllur líka. Fyrir þá sem kunna spænsku er tilvalið að mæta og hrista aðeins upp í spænskunni en auðvitað eru allir velkomnir og ókeypis inn. Café Lingua er í Borgarbókasafn- inu Tryggvagötu 15 og er opið alla mánudaga kl. 17-18. Þar geta gestir hitt aðra heims- borgara á tungumálatorgi. Café Lingua Slegið á kúbanska strengi Kúba Tómas á röltinu með tónlistarmönnum á Kúbu. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.