Morgunblaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 14
Þrír matreiðslumenn og vínþjónn frá veitingastaðnum Fifteen í Lond- on stóðu fyrir gala-kvöldverði ásamt veitingastaðnum Kolabraut- inni í Hörpu í janúar. Verkefnið var að frumkvæði Fifteen og er liður í góðgerðarverkefni sem miðar að því að styðja við bakið á íslenskum ungmennum sem glímt hafa við vímuefnavanda og hjálpa þeim að komast út í atvinnulífið. Jamie Oli- ver stofnsetti veitingastaðinn Fif- teen og var eitt aðalmarkmið hans að hjálpa unglingum sem voru á leið út í lífið á nýjan leik eftir vímu- efnaneyslu. Leifur Kolbeinsson, matreiðslumeistari og fram- kvæmdastjóri Kolabrautarinnar, hefur í gegnum árin unnið með Ja- mie Oliver og í gegnum þau tengsl varð þetta verkefni að veruleika. Samtals söfnuðust 2,5 milljónir króna. Um 1,8 milljónir í formi að- gangseyris og þá var boðið upp verk eftir Birgi Andrésson sem gef- ið var af fjölskyldu Birgis og gall- erý i8. Verkið seldist á 700 þúsund krónur. Allir sem að þessu verkefni komu gáfu vinnu sína og birgjar gáfu hráefni og var þannig tryggt að fjármunirnir skiluðu sér að fullu til SÁÁ. Söfnuðu 2,5 millj- ónum fyrir SÁÁ Landskeppni í skák milli Íslands og Kína verður haldin í höfuðstöðvum Arion banka við Borgartún 16. og 17. febrúar. Keppni hefst báða daga klukkan 13 og eru áhorfendur velkomnir. Kínverska liðið er eitt hið sterk- asta sem sótt hefur Ísland heim. Aldursforsetinn í ís- lenska liðinu verður Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslendinga. Tefldar verða atskákir í landskeppninni með 20 mínútna umhugsunartíma og verður hvort lið skipað sex skákmönnum. Allir tefla við alla og því eru alls 72 vinningar í pottinum. Davíð Ólafsson verður lands- liðseinvaldur í keppninni og meðal þeirra sem munu keppa fyrir Íslands hönd eru, auk Friðriks, stórmeistararnir Helgi Ólafs- son, Stefán Kristjánsson og Þröstur Þórhallsson. Landskeppni við Kínverja í skák Friðrik Ólafsson 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013 vél og reykköfunarstólar. Að sögn Þorbergs Bæringssonar slökkviliðs- stjóra er bíllinn útbúinn tveimur há- þrýstidælum sem dæla 3.200 lítrum á mínútu. Í slökkviliðinu starfa 20 manns.    Úrkoma hefur verið mun minni í Hólminum í vetur en oft áður sem bætist við þurrviðrasamt sumar. Snjór hefur varla sést, aðeins föl í nokkra daga. Í janúar var úrkoman 20% undir meðaltali. Það er langt síðan vatnsborð stöðuvatna í ná- grenninu hefur verið jafn lágt á miðjum vetri.    Stykkishólmur er vaxandi ferðamannabær og á undanförnum árum hefur margt verið gert til að styrkja stoðir ferðaþjónustu. Miklar endurbætur fara fram á Hótel Stykkishólmi. Verið er að endurnýja öll herbergi í gömlu álmu hótelsins og að því loknu verður öll aðstaða fyrir gesti til fyrirmyndar.    Habour hostel er nýtt gisti- heimili sem verður opnað nú í vor. Rekstraraðilar keyptu Sjávarborg sem er gamalt hús við höfnina. Mikl- ar endurbætur fara fram á húsnæð- inu þessar vikurnar. Hostelið getur tekið allt að 50 manns í gistingu. Einnig verður þar til húsa nýstofnuð ferðaskrifstofa.    Í vor verður hafist handa um byggingu á tveimur íbúðarhúsum. Skipavík hf. í Stykkishólmi annast framkvæmdirnar fyrir eigendur. Þá er víða unnið að viðhaldi eldri húsa svo að iðnaðarmenn hafa í ýmsu að snúast næstu mánuðina.    Um helgina verður leikin önnur umferð 4., 5. og 6. deildar Íslands- mótsins í blaki kvenna í Stykkishólmi og eru skráð 22 lið í keppnina. Allt gistirými er upptekið þá daga sem mótið stendur. Morgunblaðið/Gunnlaugur Auðunn Árnason Alltaf á vaktinni Slökkviliðsmenn ánægðir með nýja slökkvibílinn enda er hann afar vel búinn tækjum. Atvinnuástand er gott en fjölbreyttari störf vantar ÚR BÆJARLÍFINU Gunnlaugur A. Árnason Stykkishólmur Atvinnuástandið í Hólminum hef- ur verið nokkuð gott. Hér eins og víð- ar í dreifibýli vantar meiri fjölbreytni í störf til að skapa ungu og menntuðu fólki vinnu sem gjarnan vill starfa hér.    Síldveiðum smábáta í Hólm- inum er lokið á þessari vertíð. 30 bátar lönduðu síld, samtals 622 tonn- um og fengust 85 þús. kr. fyrir hvert tonn. Síldin fór öll til vinnslu og var mestum afla landað til Agustson ehf. í Stykkishólmi, 440 tonnum. Heildar- aflinn er tæplega hálfur farmur hjá einum af stóru síldveiðibátunum.    Nýr slökkvibíll var keyptur ný- lega frá Hollandi. Hann er af gerð- inni Benz 1124 og fylgdi með allur búnaður, þ. á m. klippur, hitamynda- Reitir fasteignafélag hf. og Fjöl- skylduhjálp Íslands hafa undirritað þriggja ára leigusamning um hús- næði að Iðufelli 14 í Reykjavík. Um er að ræða 409 fermetra rými sem áður hýsti verslun Bónus. Nýtt húsnæði Fjölskylduhjálparinnar er um tvöfalt stærra og mun hentugra fyrir starfsemina heldur en það húsnæði sem samtökin hafa yfir að ráða í dag í Eskihlíð. Núverandi leigutaki húsnæðisins að Iðufelli 14 er Bónus og gildir sá leigusamningur út árið 2013. Bón- us hefur hins vegar ákveðið að rýma húsnæðið fyrir Fjöl- skylduhjálpina frá 1. mars nk., en verslun var aflögð í húsinu fyrir allnokkru. Bónus hefur jafnframt ákveðið að skilja eftir nokkuð af búnaði í húsnæðinu sem mun nýt- ast Fjölskylduhjálpinni í starfi hennar, s.s. innbrota- og bruna- varnarkerfi. „Leigukjör og skilmálar Reita gagnvart Fjölskylduhjálpinni út leigusamninginn eru afar hagstæð. Framlag Reita til starfsemi Fjöl- skylduhjálparinnar næstu 36 mán- uðina er því umtalsvert og gerir Reiti að einum af meginstuðnings- aðilum samtakanna,“ segir í frétta- tilkynningu frá Fjölskylduhálpinni. Fjölskylduhjálpin var stofnuð ár- ið 2003 af fimm konum, Ásgerði Jónu Flosadóttur, Guðrúnu Magnúsdóttur, Önnu Auð- unsdóttur, Rögnu Rósantsdóttur og Guðbjörgu Pétursdóttur, saman höfðu þær 80 ára reynslu sem sjálfboðaliðar í góðgerðarstörfum. Í upphafi var starfsemin stofnuð til að úthluta klæðnaði til fólks sem hafði ekki efni á slíku, en fljótlega fóru að berast til þeirra matvæli vegna gríðarlegra tenginga inn í atvinnulífið sem þær konur höfðu. Á myndinni eru (frá vinstri) Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, Ásgerður Jóna Flosadóttir, for- maður Fjölskylduhjálpar Íslands, Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir, varaformaður Fjölskylduhjálp- arinnar, og Ásta Katrín Vilhjálms- dóttir, stjórnarkona hjá Fjöl- skylduhjálpinni. Fjölskylduhjálpin flytur í Breiðholtið  Tvöfalt stærra húsnæði en áður Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. 14–16 Gulir sjóndeildarhringir Nikhil Nathan Kirsh 9. – 24. febrúar nr. 58 Myndlist 9. – 18. febrúar nr. 59 Silfur 9. – 25. febrúar Vefuppboð Erum að taka á móti verkum á næsta uppboð Listmunauppboð Leið til bata eða bara leiðindi? Samhjálp kvenna verður með fræðslufund í Skógarhlíð 8, húsi Krabbameinsfélagsins, 4. hæð, þriðjudaginn 19. febrúar 2013 kl. 20.00. Ásgerður Sverrisdóttir krabbameinslæknir flytur erindi: Hormónameðferð við brjóstakrabbameini. Allir velkomnir - ókeypis aðgangur Skógarhlíð 8, 105 R., 540 1900, www.samhjalpkvenna.org
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.