Morgunblaðið - 16.02.2013, Side 19

Morgunblaðið - 16.02.2013, Side 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013 Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Orator, félag laganema, hélt í gær hátíðarmálþing í tilefni af árshátíð félagsins undir yfirskriftinni „Ráð- gefandi álit EFTA dómstólsins – Er breytinga þörf á íslenskum reglum?“ Frummælendur voru þau Páll Hreinsson, dómari við EFTA-dóm- stólinn, Skúli Magnússon, héraðs- dómari og Margrét Einarsdóttir, forstöðumaður Evrópuréttarstofn- unar. Málþingið var mjög vel sótt og heppnaðist vel að sögn Kristínar Jónsdóttur, formanns Orators. Íslenskir dómstólar ráðþægir Samkvæmt upplýsingum Kristín- ar fjallaði Skúli Magnússon um regluverkið og það ferli sem fer af stað þegar dómstóll óskar eftir ráð- gefandi áliti. Jafnframt fjallaði hann í stuttu máli um fræðilegan og sögu- legan grundvöll EFTA-dómstólsins og bar saman muninn á ráðgefandi álitum EFTA-dómstólsins og forúr- skurðum Evrópudómstólsins. Mar- grét Einarsdóttir fór yfir niðurstöð- ur rannsókna sinna þess efnis að íslenskir dómstólar færu nánast undantekningalaust eftir ráðgefandi álitum EFTA-dómstólsins. Hún gagnrýndi dómstóla jafnframt fyrir að óska ekki í nægilega mörgum til- vikum eftir áliti dómstólsins. Páll Hreinsson sagði að Íslending- ar væru þó duglegir við að leita ráð- gefandi álits dómstólsins, margfalt á við Norðmenn miðað við höfðatölu og málafjölda fyrir dómstólum land- anna. Á málþinginu veitti Orator Páli Sigurðssyni, prófessor við HÍ, kennsluverðlaun Orators, sem nú eru veitt í annað sinn. Að sögn Krist- ínar Jónsdóttur bárust mjög margar tilnefningar og ekki auðvelt verk að velja á milli og margir kennarar vel að þeim komnir. Páll þótti, að mati nemenda, hafa lagt mikið til laga- kennslu á Íslandi á löngum kennslu- ferli sínum. Fram kom í tilnefning- um nemenda meðal annars að „það væri Páli að þakka að námsefni til BA-prófs er að stórum hluta á ís- lensku en ekki dönsku“ og að nem- endur sæktust eftir að sækja nám- skeið. Páll hefði jafnframt fengið marga nemendur til að sjá lögfræði og námið í nýju ljósi. Framlag Páls til fræðaheims lög- fræðinnar var einnig ákvarðandi þáttur við veitingu verðlaunanna. Í fyrra voru verðlaunin veitt Haf- steini Þóri Haukssyni fyrir ný- breytni í kennsluháttum. Morgunblaðið/Golli Málþing Grágás, Skúli Magnússon, Páll Hreinsson og Margrét Einarsdóttir á Hátíðarmálþingi Orators í gær Fjölmennt á málþingi um EFTA-dómstólinn  Páll Sigurðsson verðlaunaður fyrir lagakennslu við HÍ Málþing Orators » Íslenskir dómstólar duglegir við að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins » Algjör undantekning að dómstólar dæmi öfugt við álit dómstólsins » Páli Sigurðssyni prófessor voru veitt kennsluverðlaun Orators fyrir framlag hans til lagakennslu Vel miðar í hreinsunarstarfi í Kol- grafafirði. Vinna við að grafa dauða síld í fjörunni er langt komin og flutningur á grút úr fjörunni er haf- inn. Stjórnvöld telja hins vegar lík- legt að grípa þurfi til frekari að- gerða, enda sé umfangið mikið. Þetta kalli á frekari fjárveitingar til verkefnisins. Ríkisstjórnin samþykkti í gær- morgun að starfshópur ráðuneyt- isstjóra forsætisráðuneytis, um- hverfis- og auðlindaráðuneytis, atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytis og fjármálaráðuneytis ynni tillögur til ríkisstjórnar um útgjöld vegna þeirra verkefna, sem ráðast þarf í vegna síldardauðans í Kol- grafafirði. Líklegt er að grípa þurfi til frekari aðgerða, enda er umfangið mikið. Ljóst er því að síldardauðinn í Kol- grafafirði hefur óhjákvæmileg út- gjöld í för með sér umfram þær fjár- veitingar sem ríkisstjórn hefur þegar samþykkt til vöktunar og eft- irlits. Mun ofangreindur starfshópur annast tillögugerð vegna útgjalda sem ráðast þarf í vegna hamfaranna, líkt og gert var varðandi útgjöld í tengslum við óveður sem gekk yfir Norðurland sl. haust,“ segir í frétta- tilkynningu frá atvinnuvegaráðu- neytinu og umhverfisráðuneytinu. Allir ernirnir fleygir Mikið fuglalíf er á svæðinu og er því mikil hætta á að grútur setjist í fjaðrir fugla með neikvæðum afleið- ingum. Eftirlitsferð sérfræðinga Nátt- úrustofu Vesturlands og Nátt- úrufræðistofnunar Íslands leiddi í ljós að töluverður fjöldi arna er á svæðinu en svo virðist sem aðeins einn til tveir þeirra hafi komist í snertingu við grútinn. Grúturinn virðist þó ekki hamla örnunum því allir ernir sem sást til eru fleygir, segir í tilkynningunni. Frekari aðgerðir í Kolgrafafirði  Kallar á auknar fjárveitingar Morgunblaðið/RAX Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík | Sími: 557 9510 | Netfang: patti@patti.is | vefsíða: patti.is Verslun okkar er opin: Virka daga kl. 9-18 Laugardaga kl.11-16 Sunnudaga lokað Tilboðsvörur á frábæru verði 70%afsláttur allt að af völdum vörum og sýningareintökum Borðstofustólar frá 4.900 kr Heilsukoddar 2.900 kr Borðstofuborð 40.000 Höfðagaflar 5.000 Sjónvarpsskápar 25.000 Rúm 153cm 157.000 Púðar 2.900 Vín Torino Fjarstýringavasar 2.500 Hægindastólar 99.000 Tungusófar 75.400 Hornsófar 119.450 Sófasett 99.900 Mósel AquaClean áklæði kynningarafslátturAquaClean áklæði er sérstaklegaauðvelt að hreinsa aðeins með vatni! H Ú S G Ö G N Fyrirlestur í Hátíðasal Háskóla Íslands þriðjudag 19. febrúar kl. 17–18 á vegum Stofn- unar stjórnsýslufræða og stjórnmála. Fimm bækur hafa komið út gegn frjálshyggju og kapítalisma á íslensku síðustu árin, eftir Einar Má Jónsson, Einar Má Guðmundsson, Stefán Snævarr, Ha-Joon Chang, Stefán Ólafsson og fleiri. Hannes Hólmsteinn bregst við gagnrýni þeirra og ræðir sér- staklega orsakir hinnar alþjóðlegu lánsfjárkreppu og bankahrunsins íslenska, „frjáls- hyggjutilraunina“ á Íslandi, siðleysi í viðskiptum og samanburð hinna 50 Bandaríkja Norður-Ameríku, 10 fylkja Kanada og 27 ríkja Evrópusambandsins. Fundarstjóri er dr. Ómar H. Kristmundsson prófessor, forseti Stjórnmálafræðideildar Háskóla Íslands. Fundurinn er öllum opinn. Eftir fundinn verður móttaka í Hámu í Háskóla Íslands 18–20. Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson Frjálshyggjan, kreppan og kapítalisminn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.