Morgunblaðið - 16.02.2013, Page 24
Grafið Skóflustunguna tóku Sigurður A. Jónsson frá MP banka, Sigurður
Sveinbjörnsson frá Sveinbirni Sigurðssyni og Ingvi Jónasson frá Klasa.
Morgunblaðið/Golli
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Félagið Mánatún slhf. hefur keypt
svokallaðan Bílanaustsreit við
Mánatún og mun byggja þar allt að
175 íbúðir ásamt bílageymslum.
Þróunarvirði verkefnisins er sjö til
átta milljarðar króna. Þetta er
væntanlega umfangsmesta bygging-
arframkvæmd á íbúðahúsnæði frá
hruni.
Verkefnið er samstarf MP banka,
fasteigna- og ráðgjafarfyrirtækisins
Klasa, og verktakans Sveinbjörns
Sigurðssonar og er fjármagnað af
fjárfestum.
„Staðsetningin er mjög góð og við
finnum strax fyrir áhuga á íbúðun-
um,“ segir Jón Óttar Birgisson, for-
stöðumaður fyrirtækjaráðgjafar MP
banka, í samtali við Morgunblaðið
og nefnir að skortur sé á íbúðum.
Fyrsta skóflustungan
Reisa á þrjú fjölbýlishús, þ.e.
Mánatún 1, Mánatún 7-17 og Sóltún
1-3. Heildarflatarmál íbúðarýmis
verður um 20 þúsund fermetrar og
er áætlaður verktími um þrjú ár.
Samþykktar teikningar vegna Má-
natúns 7-17 liggja fyrir og er það
fyrsti áfangi verksins. Framkvæmd-
ir eru að hefjast og var fyrsta
skóflustungan tekin í gær. „Við
reiknum með að fyrstu íbúðirnar
verði tilbúnar í lok árs,“ segir Jón
Óttar.
Staðið er að verkefninu með ný-
stárlegum hætti, að hans sögn. Upp-
leggið var að skapa nýjan fjárfest-
ingarkost. Alla jafna í
framkvæmdum sem þessum reisa
verktakar byggingar með lánsfé og
selja þær að svo búnu. Það sé því
ekki auðvelt fyrir fjárfesta að kom-
ast inn í slík verkefni.
Draga fjárfesta að
„Við færðum fasteignaþróunar-
verkefni í þann búning að fjárfestar
geti tekið þátt,“ segir Sigurður Atli
Jónsson, forstjóri MP banka, við
Morgunblaðið.
Fyrirkomulagið er með þeim
hætti að bankinn hefur umsjón með
fjármögnunni, sameinar t.d. hags-
muni verktaka, hluthafa og lánveit-
enda. „Okkar hlutverk er að skipu-
leggja fjármögnunina, við lánum til
að mynda ekki til framkvæmdanna
nema að litlum hluta en útvegum
hagkvæmustu fjármögnunina fyrir
verkefnið,“ segir Sigurður Atli.
Jón Óttar segir að eiginfjárhlut-
fallið sé um 30% á hverjum tíma.
„Það þykir tiltölulega hátt í verkefni
sem þessu.“
Klasi er fyrirtæki sem er sérhæft
í rekstri fasteigna, en það á m.a. Há-
degismóa, og hefur umsjón með
stjórn verkkaupa. „Fjárfestar geta
því treyst því að verkefnið gangi vel
fyrir sig,“ segir Jón Óttar. Aðal-
verktakinn er Sveinbjörn Sigurðs-
son, sem er 70 ára gamalt fyrirtæki.
Um það bil tugur fjárfesta kemur
að eigendahópi Mánatúns, þar á
meðal eru MP banki, Klasi, Svein-
björn Sigurðsson, auk ýmissa fjár-
festa.
„Mögulega má rekja það hve
langt verkefnið er komið, að við
nálguðumst það með öðrum hætti.
Það hefði verið erfitt fyrir einn
verktaka að taka það að sér því það
er umfangsmikið,“ segir Jón Óttar
og vísar til þess að þróunarvirðið sé
sjö til átta milljarðar króna.
8 milljarða
fjárfesting
MP banki bauð upp á nýjan fjárfest-
ingarkost Nýtt líf Bílanaustsreitsins
Miklar framkvæmdir
» 176 íbúðir munu rísa á Bíla-
naustsreitnum og er um að
ræða þrjú fjölbýlishús.
» Heildarflatarmál íbúðarýmis
verður um 20 þúsund fermetr-
ar og er áætlaður verktími um
þrjú ár.
» Verkefnið er samstarf MP
banka, fasteigna- og ráðgjaf-
arfyrirtækisins Klasa, og verk-
takans Sveinbjörns Sigurðs-
sonar og er fjármagnað af
fjárfestum.
» Uppleggið var að skapa nýj-
an fjárfestingarkost. Fram að
þessu hefur verið erfitt fyrir
fjárfesta að taka þátt í fast-
eignaþróunarverkefnum.
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013
Reginn og Verkfræðistofan Verkís
hafa undirritað leigusamning um
fasteignina Ofanleiti 2, sem áður
hýsti Háskólann í Reykjavík, sem
er í eigu Regins hf.
Ofanleiti 2 er alls 8.012 m2 að
stærð. Samkvæmt samkomulaginu
verður húsnæðið afhent í áföngum.
Undirritun leigutilboðs er með fyr-
irvörum, þar á meðal um afhend-
ingartíma, umfang breytinga og
niðurstöðu áreiðanleikakönnunar
vegna kaupa á núverandi eignum
sem hýsa starfsemi Verkís. Að auki
er fyrirvari um samþykki stjórna
félaganna.
Reginn hefur samhliða gert til-
boð um kaup á ýmsum fasteigna-
félögum sem eiga fasteignir sem
hýsa núverandi starfsemi Verkíss.
Meðal félaga eru: Stórhöfði ehf.
og Goshóll ehf. en félögin eiga hluta
Suðurlandsbrautar 4, Almenna
byggingarfélagið ehf. en félagið á
hluta Fellsmúla 26 í Reykjavík og
VIST ehf. en félagið á eignirnar Ár-
múla 4 og 6 í Reykjavík.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ofanleiti 2 Húseignin hýsti áður Háskólann í Reykjavík, en mun hýsa starf-
semi Verkíss. Reginn vill kaupa fasteignafélög sem hýsa starfsemi Verkíss.
Verkís gerir leigusamning
við Regin um Ofanleiti 2
Reginn gerir til-
boð í fasteignafélög
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.-/
+00.12
+,-.23
,/.4+,
,/.,++
,4./4,
+/0.3+
+./0++
+03.51
+1+.31
+,0.+2
,44.,/
+,-.-2
,/.410
,/.,10
,4./3+
+24
+./05,
+01.+3
+1,.+5
,//.030
+,0.25
,44.1,
+,0.,,
,/.+23
,/./21
,4.2,
+24./0
+./00/
+01.15
+1,.3/
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
NÁMSKEIÐ UM SKÓLAGÖNGU BARNA
MEÐ ATHYGLISBREST OG OFVIRKNI
FYRIR KENNARA OG ANNAÐ STARFSFÓLK GRUNNSKÓLA
Fimmtudagur 28. febrúar 2013
Kl. 8:30-14:50
Almennt yfirlit um athyglisbrest og ofvirkni:
Páll Magnússon sálfræðingur.
Athyglisbrestur og nám:
Haukur Örvar Pálmason sálfræðingur.
Kennsla nemenda með ADHD og teymisvinna:
Elín Hoe Hinriksdóttir sérkennsluráðgjafi.
Föstudagur 1. mars 2013
Kl. 12:30-16:30
Líðan barna með ADHD í skólanum:
Urður Njarðvík sálfræðingur.
Samskipti skóla og heimila barna með ADHD:
Bóas Valdórsson sálfræðingur.
Fundarstjóri:
Ellen Calmon, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna.
Að námskeiðinu stendur samstarfshópur fulltrúa frá ADHD samtökunum, Símenntun Rannsóknir Ráðgjöf
á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, Félagi grunnskólakennara, SAMFOK, Heimili og skóla, Skólastjórafélagi
Reykjavíkur, Kennarafélagi Reykjavíkur og sérfræðingum.
Skráning og greiðsla fer fram hér á heimasíðu ADHD samtakanna:
www.adhd.is/is/fraedsla-og-namskeid/namskeid/namskeid-um-skolagongu-barna-
med-athyglisbrest-og-ofvirkni
Verð fyrir félagsmenn kr. 10.900 en 14.900 fyrir aðra.
Innifalið í námskeiðsgjöldum eru gögn og nýútkomin handbók
fyrir kennara: ADHD og farsæl skólaganga.
FIMMTUDAGINN 28. FEB
RÚAR OG
FÖSTUDAGINN 1. MARS
2013
samtökin Háaleitisbraut 13, 108 Reykjav
ík, sími 581-1110, w
ww.adhd.is