Morgunblaðið - 16.02.2013, Qupperneq 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013
Vefðu þig hlýju
Ábreiða úr hinni einstöku íslensku ull gerir hverja stund hlýja og notalega...
Sjá sölustaði á istex.is
Styrking • Jafnvægi • Fegurð
CCFlax
Frábært gegn fyrirtíðarspennu fyrir konur á öllum aldri
og einkennum breytingaskeiðs
Heilbrigðari og grennri konur
Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið lignans i blóðinu eru
að meðaltali með 8,5 kg minni fitumassa en þær konur
sem skortir eða hafa lítið af Lignans.**
* Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082
** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University.
1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur
Fæst í apótekum, heilsubúðum og völdum stórmörkuðum
www.celsus.is
Slegið í gegn í vinsældum,
frábær árangur !
Mulin hörfræ – Lignans – Trönuberjafræ
Kalk úr hafþörungum
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Suðurafríski spretthlauparinn Oscar
Pistorius brast í grát þegar hann
kom fyrir dómara í Pretoríu í gær og
var ákærður fyrir morð á unnustu
sinni að yfirlögðu ráði. Pistorius neit-
ar sök.
Oscar Pistorius er þekktasti fatlaði
íþróttamaður heims, var sigursæll á
ólympíumótum fatlaðra í Peking og
London og varð fyrsti fótalausi
íþróttamaðurinn til að taka þátt í Ól-
ympíuleikunum þegar hann keppti í
400 metra hlaupi og 4x400 metra boð-
hlaupi á leikunum í London á liðnu
ári.
Pistorius, sem er 26 ára, hefur ver-
ið álitinn þjóðhetja í Suður-Afríku og
ákæran er því reiðarslag fyrir þjóð-
ina. Hann sat álútur og þögull í rétt-
arsalnum þar til hann brast í grát
þegar skýrt var frá því að saksókn-
ararnir teldu að hann hefði framið
morðið af ráðnum hug. Hann á allt að
lífstíðarfangelsi yfir höfði sér verði
hann fundinn sekur.
Sagður hafa skotið
í gegnum hurð
Verjendur Pistorius fóru fram á að
hann yrði látinn laus gegn tryggingu.
Dómarinn frestaði því til þriðjudags-
ins kemur að taka þá beiðni fyrir.
Þangað til verður Oscar Pistorius í
varðhaldi á lögreglustöð í Pretoríu.
Fjölskylda spretthlauparans gaf
út yfirlýsingu eftir að morðákæran
var birt og þar kom fram að hann
hygðist „harðneita sök“. Hann vott-
aði einnig fjölskyldu unnustu sinnar
samúð sína.
Að sögn lögreglunnar í Pretoríu
hleypti Pistorius af skammbyssu á
unnustu sína sem varð fyrir fjórum
skotum í höfuðið og aðra höndina.
Suðurafríska dagblaðið Beeld segir
að unnustan hafi læst sig inni á bað-
herbergi og Pistorius skotið á hana í
gegnum hurð.
Kemur fram í sjónvarpi
Unnusta Pistorius, Reeva Steen-
kamp, var 29 ára fyrirsæta og tók
þátt í raunveruleikaþætti sem tekinn
var upp í Jamaíku og verður sýndur í
sjónvarpi í Suður-Afríku í dag.
Framleiðendur þáttarins sögðu að
sýningunni yrði ekki frestað vegna
morðsins. Í þættinum keppa nokkrar
þekktar suðurafrískar konur um
verðlaun að andvirði tæpra 15 millj-
óna króna.
Pistorius brast
í grát fyrir rétti
Neitar því að hafa myrt unnustu sína
AFP
Ákærður Oscar Pistorius grætur
fyrir rétti í Pretoríu í gær.
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/