Morgunblaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 29
29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013 við hátt vaxtastig, verðbólgu og flökt í gengi krónunnar. Hluti lána félagsins var í erlendri mynt, gengisvísitalan var 106 þegar kaupin voru gerð en í nóvember 2008 þegar ég hætti sem stjórnarformaður fór gengisvísitalan í 290. Sé þörf fyrir stjórnmálamenn sem hafa skiln- ing á mikilvægi þess fyrir heimili og atvinnulíf að hér ríki meiri stöðugleiki þá ætti að það vera nokkuð óumdeilt að ég get talað af reynslu í þeim málum.“ Hjálpum fólki í gegnum skattkerfið – Hver er afstaða Sjálfstæðisflokksins í skuldamálum heimilanna? „Ég tel að þetta sé eitt alvarlegasta vanda- málið sem enn er óleyst í lok þessa kjörtímabils. Vandinn er gríðarlegur. Tugþúsundir sitja eftir með óleyst vandamál eftir stjórnartíð norrænu velferðarstjórnarinnar. Við þetta verður ekki búið. Það verður að rétta fólki hjálparhönd. Við eigum að nota skattkerfið til að auðvelda fólki að greiða niður húsnæðislán sín. Við ætl- um líka að létta byrðarnar með því að heimila því að nýta skattahagræðið af séreignarsparn- aðinum og leggja beint inn á húsnæðislánin. Þetta hjálpar fólki að halda heimilum sínum og greiða niður skuldir sem verst brenna á því. Samhliða þarf auðvitað atvinnuátak. Að auki þarf að gera kerfisbreytingar sem horfa til framtíðar og þar er verkefnið að taka húsnæðislánakerfið á Íslandi til endurskoð- unar. Hugmyndir ASÍ í þessu efni eru allrar at- hygli verðar og koma til móts við þá skýru kröfu að fólk geti fengið óverðtryggð lán með föstum vöxtum til langs tíma. Til þess að það sé raunhæft er grundvallaratriði að tryggja stöð- ugleika. Mér finnst skipta miklu að tryggja fólki valfrelsi hér. Það er ekkert unnið með því einu að banna verðtryggð lán ef grundvöllur þess að óverðtryggðir vextir lækki hefur ekki verið skapaður. Einstaklingur sem tók 20 millj- ón króna lán árið 2005 með 100 þúsund króna greiðslubyrði á mánuði óverðtryggt og með breytilegum vöxtum, hann hefði þurft að standa skil á 300 þúsund krónum á mánuði af því láni þegar vextir fóru hér í hæstu hæðir. Af þessu má sjá að það eitt að geta boðið upp á óverð- tryggð lán leysir ekki vandann. Ákallið er um óverðtryggð lán með föstum vöxtum til langs tíma og þau munu ekki verða að veruleika nema þjóðfélaginu sé stýrt af festu og að hér ríki stöð- ugleiki. Önnur kerfisbreyting sem við viljum láta reyna á er sú að í stað þess að fólk taki almennt há lán og fái svo í framhaldinu vaxtabætur frá ríkinu, þá færum við okkur á næstu árum yfir til þess að fólk hafi skattalegan hvata til að safna fyrir höfuðstólseign fyrir útborgun í fast- eignum og hefji þannig íbúðakaupin með eig- infjárframlagi sem skipti máli. Þannig hvetjum við til sparnaðar í stað þess að hvetja til lán- töku.“ Aldrei orðið vitni að öðru eins – Hvað finnst þér um farveginn sem ný stjórnarskrá hefur ratað í? „Mér er algjörlega miðsboðið að sjá hversu langt stjórnarflokkarnir eru tilbúnir að ganga til að vinna pólitískan slag, þar sem sjálf stjórn- arskráin er undir. Mér er líka fullkomlega mis- boðið að heyra í einkasamtölum að þetta fólk sér að dæmið gengur ekki upp, en fylgjast síðan með því tala til almennings á allt annan hátt. Ég hef á þessum tíu árum sem ég hef setið á þingi aldrei orðið vitni að öðru eins. Þrátt fyrir ágreining og ólíkar skoðanir hafa gilt gam- algróin lögmál um stjórnarskrána sem er grundvöllur stjórnskipunar landsins. Þau felast í því að vinna út frá þeim þáttum sem mest sátt getur tekist um, ekki ala á ágreiningi. En strax vorið 2009 byrjuðu stjórnarflokkarnir að snið- ganga þá hugmyndafræði og þeir hafa fylgt þeirri línu í fjögur ár. Fyrir vikið eru djúp- stæðar deilur um fjölmörg atriði málsins, ekki bara á þingi heldur einnig meðal fræðimanna og helstu lögspekinga. Endurskoðun stjórnarskrárinnar hófst að nýju eftir synjun forseta Íslands á fjölmiðalög- unum á sínum tíma og þá lentum við í stjórn- arskrárkrísu. Umræða um þörfina fyrir auð- lindaákvæði í stjórnarskrá hefur líka verið lifandi í talsvert langan tíma. Þessi stóru atriði, þ.e. valdmörk forsetaembættisins gagnvart öðrum valdhöfum, beint lýðræði og auðlinda- ákvæði í stjórnarskrá hefðu verið nægt fóður ein og sér fyrir þingið til þess að ná góðri sátt. En í stað þess að einbeita sér að þeim, sem aug- ljóst tilefni var til að taka til sérstakrar skoð- unar, þá var öll áherslan lögð á heildarend- urskoðun og t.d. nýlegur mannréttindakaflinn tekinn upp og endurskrifaður. Til hvers? Ég vil fyrir alla muni og endilega nýta allt það sem nýtilegt er í vinnunni fram til þess, en mér hef- ur frá upphafi fundist augljóst að þingið eigi að fara með forræði málsins. Nú er komin ný for- ysta í annan stjórnarflokkinn sem talar um að láta af pólitík af þeim toga sem einkennt hefur umræðuna í stjórnarskrármálinu og á næstu dögum ætti að koma í ljós hvort innistæða er fyrir þeim orðum eða hvort nýju vinnubrögðin sem heitið hefur verið í tengslum við formanns- skiptin eru innantóm orð. Sjálfstæðisflokkurinn hefur á undanförnum árum lagt fram sínar tillögur um nýtt auðlinda- ákvæði í stjórnarskrá og sérstaklega kallað eft- ir því að efnisleg umræða fari fram um þær á Alþingi, en stjórnarflokkarnir hafa kosið að halda málinu frá þinginu allt fram á þennan vet- ur. Þingið hefur einfaldlega verið í algjöru aukahlutverki.“ – Heldurðu að nýtt frumvarp um stjórn fisk- veiða verði samþykkt á kjörtímabilinu? „Nei, það er engan veginn nægur tími eftir af þinginu til að vinna að svona stóru máli og ég skil atvinnuvegaráðherrann þannig að það sé fyrst og fremst lagt fram til kynningar og um- ræðu.“ Þurfum að þétta raðirnar – Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur lýst yfir framboði til varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Er það áhyggjuefni fyrir þig hversu vel hún hefur komið út í skoðanakönnunum? „Ég lít ekki þannig á það. Við tókumst á um það á síðasta landsfundi hvort okkar ætti að leiða starfið áfram og inn í kosningarnar. Að- dragandinn að því var mjög keimlíkur því sem ég hef séð núna. Og það var útkljáð á þeim landsfundi. Það sem er mér efst í huga nú í að- draganda landsfundar og síðan kosninga er ánægja með að Hanna Birna skuli í fyrsta lagi hafa stigið það skref að koma inn í landsmálin og eins gleðst ég yfir því fyrir hönd allra flokks- manna að það sé eftirspurn eftir henni og hún hafi traust til að taka að sér forystuhlutverk. Hún ætlar að sækjast eftir varaformannsemb- ætti í flokknum og verður þannig minn helsti samstarfsmaður. Við eigum eftir að ná vel sam- an. Af hverju í ósköpunum ætti það að vera áhyggjuefni að Sjálfstæðisflokkurinn hafi yfir frambærilegu fólki að ráða í sínum röðum? Það eimir um of eftir af þeirri hugsun að í stjórn- málunum séu allir á eigin forsendum og líti á fólkið í kringum sig sem andstæðinga. Mér finnst það nokkuð áberandi í umræðunni um okkur Hönnu Birnu. En ég vil undirstrika að okkur sjálfstæðismenn tengja sterk hug- sjónabönd sem engin innbyrðisátök geta slitið í sundur. Og ég finn fyrir því núna þegar þessar mikilvægu kosningar eru framundan að fram- bjóðendur flokksins tala mikið um þörfina fyrir að þétta raðirnar, stilla saman strengi. Það gera sér allir grein fyrir því að verkefnin sem bíða kalla á þétt samstarf og samvinnu þeirra sem í fremstu röð vinna fyrir flokkinn.“ – Hvaða stjórnarmynstur sérðu fyrir þér eft- ir kosningar? „Ég sé fyrir mér stjórnarsamstarf sem bygg- ist á skýrri sýn á þau stóru mikilvægu mál sem við okkur blasa. Þetta verður að vera sterkur stjórnarmeirihluti, bæði hvað varðar afgerandi stefnu og framtíðarsýn og einnig fjölda þing- manna. Það bíða mörg úrlausnarefni sem krefj- ast seiglu og þolinmæði og af þeirri ástæðu er þessi sameiginlega sýn og sterkur meirihluti mikilvægur. Þetta verður um leið að vera rík- isstjórn sem getur sameinað ólík öfl í þjóðfélag- inu, þar með talið aðila vinnumarkaðarins, að baki ákveðnum meginmarkmiðum. Mikilvægasta markmiðið á næsta kjör- tímabili er að leggja grunn að stöðugleika og vexti. Framtíðarsýnin þarf að vera skýr til þess að þessi samstaða geti myndast. Það þurfa allir að skynja hvert förinni er heitið og að það sé þjóðarheildinni til heilla að ná þeim mark- miðum. – Er raunhæft að lækka skatta í þessu ár- ferði? „Það er ekki bara raunhæft. Það er nauðsyn- legt. Það þarf að lækka álögur á heimilin og at- vinnulífið, einfalda skattkerfið og gera það skil- virkara og sanngjarnara. Þetta þarf að gera til að örva hagvöxt í landinu og við höfum fjölmörg tiltölulega nýleg dæmi þess að lægri og einfald- ari skattar geta skilað ríkinu auknum tekjum. Það er algeng hugsanavilla að ganga út frá því að hærri skattar þýði ávallt hærri tekjur. Þess- um misskilningi skýtur reglulega upp kollinum. Það keyrði þó um þverbak fyrir kosningarnar 2003 þegar Sjálfstæðisflokkurinn þurfti að svara ásökunum um það, þrátt fyrir að hafa lækkað skatta, að þeir hefðu í raun hækkað vegna þess að tekjur ríkisins höfðu aukist! Það var þá sem þetta dæmi varð til, að ef við lækk- um fargjaldið í strætó en tekjurnar aukast af því að það koma fleiri farþegar – hvort hefur þá fargjaldið verið lækkað eða hækkað?“ Morgunblaðið/Ómar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.