Morgunblaðið - 16.02.2013, Page 50
50 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013
Bóas Kristjánsson fatahönnuður hefur ekki setið auðum höndumfrá því að hann flutti heim til Íslands frá Belgíu 2008 til aðstofna eigið fyrirtæki. Hann hefur verið með annan fótinn í
París á milli þess sem hann hefur unnið að því að byggja upp nafn sitt
hér heima en í haust kemur á markað eftir hann ný herrafatalína sem
hann kallar Karbon. „Línan gengur út á mjög margt sem er persónu-
legt fyrir mig,“ segir Bóas. „Hún er tenging við rætur mínar á Íslandi
og uppvaxtarárin í kringum landbúnað og kirkjuna,“ útskýrir prests-
sonurinn og segir línuna að einhverju leyti í þjóðlegum dúr.
Bóas hefur þegar samið við verslanir í Evrópu, Japan og Kanada
um sölu á línunni en hann segist vera að velta því fyrir sér að selja lín-
una hér heima í hönnunarversluninni ATMO. Í liðinni viku sótti hann
textílsýningu í París þar sem hann valdi efni fyrir vor- og sumarlín-
una 2014 en hann segist stefna að því að koma merkinu „fagmannlega
í sölu og dreifingu og sjá síðan hvað gerist“.
Bóas segir tækifærin mörg fyrir íslenska hönnuði. „Það er ekki til
neinn fatahönnuðariðnaður á Íslandi sem fólk tengir við eða þekkir.
Það þekkir Ísland fyrir tónlist, kvikmyndir eða myndlist frekar en
fyrir fatahönnun. En það hefur mikinn áhuga, af því að því finnst Ís-
land áhugavert og hefur trú á því að það komi skapandi fólk frá Ís-
landi.“ holmfridur@mbl.is
Bóas Kristjánsson er 31 árs í dag
Tíska Bóas klæddist að sjálfsögðu eigin hönnun þegar myndir voru
teknar af honum fyrir umfjöllun í frönsku tímariti fyrir nokkrum árum.
Sækir innblástur
í uppvaxtarárin
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Sigríður K. Valdi-
marsdóttir verður
fimmtug á morgun, 17. febrúar. Maki
hennar er Jón Helgason og eiga þau
tvær dætur, Guðrúnu Valdísi, 19 ára,
og Höllu Margréti, 13 ára. Sigríður
heldur upp á daginn í faðmi fjölskyld-
unnar.
Árnað heilla
50 ára
Laugardal Védís fæddist 14. nóv-
ember kl. 21.50. Hún vó 3.315 g og var
51 cm löng. Foreldrar hennar eru
Ragnhildur Sævarsdóttir og Daníel
Pálsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Arngrímur Tinni fæddist
29. október kl. 1.35. Hann vó 2.388 g
og var 47 cm langur. Foreldrar hans
eru Anna Sigríður Skarphéðinsdóttir
og Jón Ingi Stefánsson.
Ó
lafur fæddist í Reykjavík
en ólst upp í vest-
urbænum í Kópavogi, á
Skjólbraut 8. Hann fór
fyrst í Ísaksskóla, síðan
í Kársnesskóla og útskrifaðist af nátt-
úru- og eðlisfræðibraut frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð. Svo fór
Ólafur í Háskóla Íslands og útskrif-
aðist þaðan í byggingaverkfræði árið
1987. Þá hóf hann framhaldsnám í
Kaupmannahöfn í hljóðverkfræði.
Vinnur við hljóðhönnun
„Þegar ég kom úr framhaldsnámi
árið 1989 voru menn ekki farnir að
líta á það sem vandamál að hávaðinn
á Miklubrautinni væri kominn í 65
desibel. Ég þekkti stöðuna í Dan-
mörku og bjóst við að það tæki fimm
til tíu ár að breyta hugarfarinu hér.
Það tók hins vegar lengri tíma og í
raun þurfti nýja kynslóð til.“
Ólafur fór því fyrst að vinna við
brúarhönnun og hönnun háspennu-
mastra en smám saman jókst þáttur
Ólafur Hjálmarsson hljóðverkfræðingur – 50 ára
Í Baldri á Breiðafirði Fjölskyldan á leiðinni á Vestfirði sumarið 2011, en þá keyrðu þau allt norður á Snæfjallaströnd.
Gott hljóð gulls ígildi
Fjölskyldan Í garðinum hjá foreldrum Sesselju í Kópavogi.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður
sem hefur hafið göngu sína
í Morgunblaðinu. Þar er
meðal annars sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum, barnsfæðingum
eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjónÓDÝRU BÍLALEIGUBÍLARNIR
VORUAÐKOMA!
Vertu fyrstur, fáðu þann besta!
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | hofdahollin@hofdahollin.is
Eigum allskonar bíla,
langar þig í einn?
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 580 8900 | bilalind.is
Ertumeð kaupanda?
Skjalafrágangur frá 14.990 kr.
Löggildir bílasalar tryggja öryggi beggja aðila
Fylgstu með okkur á facebook
Sölulaun
frá 39.900 kr.