Morgunblaðið - 16.02.2013, Page 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú færð góðar hugmyndir í dag um
það hvernig þú getur nýtt orku annarra til að
gera gagn. Ef þú vilt að þér verði eitthvað úr
verki þarftu að halda þig við raunveruleikann.
20. apríl - 20. maí
Naut Hlustaðu á stjórnendur, umsjónarmenn
og yfirboðara í dag. Ykkur er eðlilegt að líta
vel út, sem er í lagi, ef þið leyfið ykkra innri
manni að njóta sín.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Tvíburinn hefur hæfileikana sem
þarf til þess að leysa verk sín meistaralega
vel af hendi. Einhver er á höttunum eftir rifr-
ildi.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er bara spurning um að horfa
nógu lengi á hlutina til þess að sjá fegurðina
sem þeir búa yfir. Láttu leggja öll spilin á
borðið og ræddu svo um sanngirni hlutanna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Myndaðu þér skoðanir áður en þú að-
hefst eitthvað. Sjálfstraust snýst um það að
treysta sjálfum sér nógu vel til að taka hvat-
vísi sína alvarlega.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þetta er þinn dagur, þú skalt njóta
hans eins og þú getur en mundu að hóf er
best á hverjum hlut. Að vita hvað er mik-
ilvægt hverju sinni er lykillinn að velgengni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Sú lausn sem virðist best í stöðunni þarf
ekki endilega að vera sú rétta. Þú munt lesa
um allar gáfulegu lausnirnar á vandamáli
þínu, og ekki fara eftir neinum þeirra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú átt að hafa þann aga til að
bera sem þarf til að rannsaka málin vandlega
áður en þú segir af eða á. Láttu það ekki
trufla þig þótt möguleikarnir séu margir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það getur verið dýrkeypt að
blanda sér í annarra mál að ástæðulausu.
Einhver þér eldri getur miðlað þér af reynslu
sinni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Reyndu að gera þér grein fyrir því
hvað þú skuldar mikið og vertu varkár þegar
þú þarft að tala út. Forðastu loforð og skuld-
bindingar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Efasemdir um framtíðaráform þín
munu líklega sækja að þér í dag. Láttu ekkert
bifa trú þinni á sjálfan þig og taktu frum-
kvæðið í þínar hendur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Sá sem hefur allt sitt á þurru getur
leyft sér að líða vel og líta til framtíðarinnar
með bros á vör. Búðu þig undir glímu en þér
er sigurinn vís ef þú ert nógu fylginn þér.
Ég hitti karlinn á Laugaveginumþar sem hann stóð við styttuna
af Jóni Sigurðssyni á Austurvelli.
Hann hafði orð á því að nú væru
breyttir tímar og margt af okkar
besta fólki flytti af landi brott, – og
snússaði sig:
Hvort vinstri stjórn verði til nytja?
Nei, vonlaust en þó mun hún sitja
lengur en sætt er
og lengur en stætt er..
Það er eins gott að fara að flytja!
Ég hef alltaf haft gaman af því að
rifja upp tildrög þess að ég orti
mína fyrstu limru. Það var á ár-
unum eftir 1970 og Ólafur Jóhann-
esson var forsætisráðherra. Við sát-
um þrír yfir kaffibolla á Borginni
Kristján Karlsson skáld, Þorsteinn
Gylfason heimspekingur og ég og
Kristján kenndi mér þessa limru:
„Ég man ekki meira í flýti,“
sagði maður sem flaut á spýtu.
Hann drukknaði óðara,
en hann drukknaði fróðari
um dauða og minni og spýtu.
Síðan fylgdi limra eftir Þorstein í
kjölfarið. Gæti verið þessi:
„Ég var eins og vera ber,“
mælti Vera. „En ekki hver?
Fæst má nú gera...“
Og fyrr má nú vera
en vera eins og Vera ber.
Þetta olli því að ég fór að spreyta
mig á limrunni og byrjaði:
Ólafur fæddist í Fljótum
En Þorsteinn leiðrétti:
„Ólafur fór burt úr Fljótum.“
Ég:
og forðum hér syðra skaut rótum.
Þorsteinn leiðrétti:
„Í flýti hér syðra skaut rótum.“
Og nú gat ég botnað limruna
hjálparlaust sem hljóðar þá svona:
Ólafur fór burt úr Fljótum,
í flýti hér syðra skaut rótum.
Í verðbólgudans
með sinn sjöunda sans
hann svífur á afturfótum.
Og svo að lokum limra eftir
Kristján frá þessum tíma:
„Ég má ekki meira í einu,“
sagði Magnús og nartaði í kleinu.
Ef þér ofbýður þetta,
er ekkert að frétta
og engin framtíð í neinu.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hvernig limra verður til
Í klípu
„ÉG PLANAÐI AÐ LÁTA BRENNA HANN, EN
ÞÚ ÞEKKIR MIG, ALLTAF AÐ BREYTA UM
SKOÐUN Á SEINUSTU MÍNÚTU.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞETTA VAR EKKI HLJÓÐKÚTURINN ÞINN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þín verðlaun.
ÉG GET EKKI ÁKVEÐIÐ
HVORT ÉG EIGI AÐ
GIFTA MIG...
... EÐA AÐ FÁ
MÉR VINNU!
HVAÐ Á ÉG AÐ
GERA, MAMMA?
AF HVERJU FÆRÐU
ÞÉR EKKI TÍMABUNDNA
VINNU VIÐ AÐ
LEGGJA Á BORÐ!
ÉG VAR AÐ STARA Í
AUGUN Á LÍSU...
OG SÍÐAN
HVARF HÚN!
HÚN HLÝTUR AÐ HAFA
EKKI STARAÐ TIL BAKA!
VILTU
VEÐJA?
ENGIN
VINSTRI
BEYGJA
Víkverji lét tilleiðast á dögunumog brá sér í bíó. Fyrir valinu
varð myndin The Impossible sem út-
leggst á íslensku: Hið ómögulega.
Víkverji er ekki mikill aðdáandi svo-
kallaðra náttúruhamfaramynda en
hafði ekkert val að þessu sinni; hann
varð að hrökkva eða stökkva á boðið
þegar klukkan nálgaðist hratt mið-
nætti. Víkverji ákvað að sinna fé-
lagslegu hliðinni að þessu sinni og sá
ekki eftir því að hafa fellt nokkuð
mörg tár í fámennum en góðmenn-
um myrkum bíósal. Leikurinn var á
köflum oftast góður en undir lokin
var hann orðinn fulldramatískur þá
helst hjá móðurinni Naomi Watts.
Ewan McGregor átti góða takta sem
ábyrgur fjölskyldufaðir sem gerði
allt sem í hans valdi stóð til að sam-
eina fjölskylduna. Stundum fórnaði
hann meiri hagsmunum fyrir minni
en þetta fór þó allt vel að lokum.
Stjarna myndarinnar er Tom Hol-
land, unglingspiltur sem sýnir stór-
leik og verður gaman að fylgjast
með honum í framtíðinni.
x x x
Myndin fjallar um flóðbylgjunasem skall á strönd Taílands ár-
ið 2004 með hörmulegum afleið-
ingum þar sem fjöldi fólks lést. Flóð-
bylgjan skildi eftir sig slóð
eyðileggingar sem samfélagið er enn
að bíta úr nálinni með.
x x x
Fjölmiðlar gerðu þessum nátt-úruhamförum rækilega skil á
sínum tíma. En einhverra hluta
vegna verður Víkverji að viðurkenna
að hann hafði hreinlega gleymt þess-
um tilteknu hörmungum. En það er
einmitt snilldin við listgreinar, hvort
sem um ræðir kvikmyndir eða bæk-
ur, að rifja reglulega upp sögulega
atburði og minna á þá svo við getum
dregið lærdóm og haldið minningu á
lofti.
x x x
Víkverji verður að minnast á hiðklassíska umræðuefni – veðrið,
hvað annað. Fyrir sléttri viku síðan
dásamaði Víkverji íslenska veturinn.
Nú fagnar hann sólinni og er með
vorfiðring í hjarta. Hann sveiflast
með náttúrunni og fagnar því – ann-
ars gæti hann vart búið hér á Fróni.
víkverji@mbl.is
Víkverji
því að orð Drottins er áreiðanlegt og
öll hans verk eru í trúfesti gerð.
(Sálmarnir 33:4)
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Verð kr.
7.950
Verð kr.
12.000
Verð kr.
10.500
Verð kr.
6.600
Verð kr.
4.900
Verð kr.
5.300
Verð kr.
6.400
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 - SPÖNGIN GRAFARVOGI - SÍMI 577 1660
Gjafir sem gleðja