Morgunblaðið - 16.02.2013, Page 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013
Brad Pitt og Angelina Jolie ætla að
framleiða vín úr þrúgum land-
areignar sinnar, Chateau Miraval, í
samstarfi við Perrin-fjölskylduna
sem kunn er í Frakklandi fyrir vín-
gerð. Í frétt á vef Reuters segir að
vínið muni heita Miraval og koma á
markað í mars næstkomandi. Haft
er eftir Marc Perrin á vefnum Dec-
anter.com að hið víðfræga par vilji
tryggja að vínið verði eins gott og
hægt er.
Perrin-fjölskyldan mun að mestu
sjá um framleiðslu vínsins en leik-
araparið hefur þó tekið þátt í und-
irbúningnum og t.d. með því að
koma að hönnun flösku og merkis
Miraval. Fyrsta vínið sem kemur á
markað verður rósavín.
Víngæðingarnir
Jolie og Pitt
AFP
Brangelina Pitt og Jolie reyna fyrir sér í
vínbransanum og sökkva sér í fræðin.
Hjartað tekur aukakipp,ávallt, þegar maður lesfrétt um að Nick Cave sé
að fara að snara út nýju verki, veri
það bók, kvikmyndatónlist, handrit
þar að lútandi eða plata með
Grinderman eða sveit sinni The
Bad Seeds. Nú á mánudaginn kem-
ur út ný hljóðversplata með síðast-
nefnda fyrirbærinu og kallast hún
hinu mikilúðlega nafni Push the
Sky Away.
Titillinn gefur ýmislegt til kynna
hvað varðar innihaldið, dreymið og
dulúðugt verk sem líður lymsku-
lega um eyrun. Allt öðruvísi en síð-
asta verk, Dig!!! Lazarus Dig!!!
(2008), sem bjó líka yfir vísbend-
ingum um innihald í titli, tónlistin
hrá og rokkuð og meira að segja
glettin á tímabili. Áhrif frá Grin-
derman, bílskúrshljómsveit Cave
sem gaf út tvær plötur árin 2007
við Cave sem flutt var á BBC 6
þann 10. janúar í þætti Marks
Radcliffe og Stuart Maconie. Með
aldrinum hefur Cave leyft sér að
stíga úr hlutverki hins ósnert-
anlega, dulúðuga snillings og leyft
manneskjulegheitunum að flæða
fram, eitthvað sem hefur styrkt
hann ef eitthvað er. Að geta hlegið
að sjálfum sér ber vott um öryggi
og Cave leyfir sér léttúð í dag, upp
að vissu marki eðlilega (jakkafötin
eru m.ö.o. ennþá stífpessuð). M.a.
ræddi hann um það vinnulag sitt að
mæta á skrifstofu og vinna jafnt og
þétt að hlutunum, aðferð sem
margir eiga ennþá erfitt með að
samsama villingnum, rokkaranum
Cave.
„Skrifstofan er reyndar í kjall-
aranum mínum,“ sagði Cave, sem
býr í Hove, rétt hjá Brighton. „En
ég fer út um dyrnar hjá mér og
kyssi konuna bless, til að hafa
þetta formlegt.“ Í framhaldinu
upplýsti hann svo að ljósmyndin
fyrir umslagið, sem sýnir hann
ásamt nakinni konu, hefði verið
tekin í svefnherberginu hans og
nakta konan væri kona hans, Susie
Bick. „Þið megið horfa á umslagið í
takmarkaðan tíma,“ bætti hann við
kíminn.
Titillinn gefur ýmislegt til kynna
hvað varðar innihaldið, dreymið og
dulúðugt verk sem líður lymsku-
lega um eyrun.
„Ský, ský …
burt með þig“
og 2010, voru þónokkur þar. Þann-
ig að enn og aftur er um gírskipt-
ingu að ræða en platan á undan
Dig!!! …, Abattoir Blues/The Lyre
of Orpheus (2004) bar með sér enn
aðra áru; var stór, dramatísk og
strengjahlaðin. Þessar þrjár plötur
mynda endurreisnartímabil Cave
en Nocturama (2003) var óvenju
fátækleg. Hér sést, svart á hvítu,
að ekki er fyrir afköstum að fara
varðandi Bad Seeds, enda Cave á
kafi í alls kyns vinnu annarri.
Um hríð
The Bad Seeds var um hríð stór
hópur manna, átta til níu manns á
tímabili, en heldur hefur kvarnast
úr hópnum. Félagarnir eru fimm á
Push the Sky Away, í raun allir
meðlimir Grinderman auk trym-
bilsins Thomas Wydler. Þungavigt-
armennirnir Mick Harvey og Blixa
Bargeld horfnir á braut en tónlist-
arbróðir Cave hin síðustu ár hefur
verið hinn mikilhæfi Warren Ellis
(The Dirty Three m.a.) en þeir
hafa og unnið í sameiningu að kvik-
myndatónlist.
Upptökur á plötunni nýju fóru
fram í Frakklandi, í La Fabrique,
hljóðveri sem er í 18. aldar setri
rétt utan við smábæinn Saint-
Rémy-de-Provence í Suður-
Frakklandi. Upptökustjórnandi var
sem fyrr Nick Launay sem hefur
vélað um allar fyrrgreindar plötur
Bad Seeds. Cave kom með lögin
svona hæfilega tilbúin og hann og
Ellis tálguðu þau svo til þarna suð-
ur frá. Cave segir að andi plöt-
unnar, sem er mjög heildstæður,
þar sem hvert lag flýtur einhvern
veginn áfram og tekur við af hinu
næsta, eins og alda á eftir öldu, sé
tilkominn vegna hinnar þægilegu
einangrunar í setrinu. Nálgast má
mjög skemmtilega stiklu á youtube
þar sem fylgst er með Cave og
köppum hans að störfum (sláið inn
„push the sky away trailer“).
Manneskjulegheit
Umræðan um anda plötunnar
kom upp í bráðskemmtilegu viðtali
» Titillinn gefur ým-islegt til kynna hvað
varðar innihaldið,
dreymið og dulúðugt
verk sem líður lymsku-
lega um eyrun.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
Fimmtánda hljóðversplata Nick
Cave & The Bad Seeds kemur út á
mánudaginn Push the Sky Away er
hægstreymt, sveimi lagt verk
Meistarinn Nick Cave er skuggum bundinn skýjaglópur. Hér sést hann á
tónleikum í miklum ham.
A GOOD DAY TO DIE HARD Sýndkl.5:50-8-10:10(Power)
ZERO DARK TIRTY Sýndkl.6-9
VESALINGARNIR Sýndkl.7-10
HÁKARLABEITA 2 Sýndkl.2-4
THE HOBBIT 3D Sýndkl.4
THE HOBBIT 3D (48 ramma) Sýndkl.2
HVÍTI KÓALABJÖRNINN Sýndkl.2
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
12
12
12
16
16
L
L
L
3 óskarstilnefningar
“Ekta hátíðarævintýri fyrir alla famelíuna.”
-Séð & Heyrt/Vikan
“Magnþrungin og
eftirminnileg”
T.V. - Bíóvefurinn
H.S.S
-MBL
Frábær spennumynd byggð á
leitinni af Osama Bin Laden.
5 óskarstilnefningar
H.S.S
- MBL
SÝND Í 3D
OG Í 3D(48 ramma)
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:10
BESTI LEIKAR ÁRSINS - BESTI LEIKSTJÓRI ÁRSINS - BESTA MYND ÁRSINS
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%*AÐEINS LAU **AÐEINS SUN 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
” - Þ. Þ., FRÉTTATÍMINN
- S.S., LISTAPÓSTURINN
” - G.F.V., VIÐSKIPTABLAÐIÐ
-H.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ
DIE HARD 5 KL. 5.40 - 8 - 10.20 16
KON-TIKI KL. 3 (TILBOÐ) - 5.30 - 8 - 10.30 12
LINCOLN KL. 2.40 (TILBOÐ) - 5.50 - 9 14
VESALINGARNIR KL. 2.40 (TILBOÐ) - 5.50 - 9 12
LIFE OF PI 3D KL. 3 (TILBOÐ) 10
-EMPIRE
“MÖGNUÐ MYND Í
ALLA STAÐI”
-V.J.V., SVARTHÖFÐI
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
Yippie-Ki-Yay!
DIE HARD 5 KL. 5.50 - 8 - 10 16
ZERO DARK THIRTY KL. 10 16
HVELLUR KL. 5.50 L / THE LAST STAND KL. 8 16
HÁKARLABEITA 2 KL. 3.40 (TILB) / HVÍTI KÓALA KL. 3.40(TILB)
GUNNAR NELSON BARDAGI KL. 8*
DIE HARD 5 KL. 5.30 - 8 - 10.20 16
DIE HARD LÚXUS KL. 1 - 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 16
ZERO DARK THIRTY KL. 8** 16
DJANGO KL. 8 16 / LINCOLN KL. 5 14
LAST STAND KL. 8 - 10.20 16
HÁKARLABEITA 2 KL. 1 (TILBOÐ) - 3 L
THE HOBBIT 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 4.30 12
LIFE OF PI 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 5.20 10
HVÍTI KÓALABJÖRNINN KL. 1 (TILBOÐ) - 3 L