Morgunblaðið - 16.02.2013, Síða 56

Morgunblaðið - 16.02.2013, Síða 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013 Brad Pitt og Angelina Jolie ætla að framleiða vín úr þrúgum land- areignar sinnar, Chateau Miraval, í samstarfi við Perrin-fjölskylduna sem kunn er í Frakklandi fyrir vín- gerð. Í frétt á vef Reuters segir að vínið muni heita Miraval og koma á markað í mars næstkomandi. Haft er eftir Marc Perrin á vefnum Dec- anter.com að hið víðfræga par vilji tryggja að vínið verði eins gott og hægt er. Perrin-fjölskyldan mun að mestu sjá um framleiðslu vínsins en leik- araparið hefur þó tekið þátt í und- irbúningnum og t.d. með því að koma að hönnun flösku og merkis Miraval. Fyrsta vínið sem kemur á markað verður rósavín. Víngæðingarnir Jolie og Pitt AFP Brangelina Pitt og Jolie reyna fyrir sér í vínbransanum og sökkva sér í fræðin. Hjartað tekur aukakipp,ávallt, þegar maður lesfrétt um að Nick Cave sé að fara að snara út nýju verki, veri það bók, kvikmyndatónlist, handrit þar að lútandi eða plata með Grinderman eða sveit sinni The Bad Seeds. Nú á mánudaginn kem- ur út ný hljóðversplata með síðast- nefnda fyrirbærinu og kallast hún hinu mikilúðlega nafni Push the Sky Away. Titillinn gefur ýmislegt til kynna hvað varðar innihaldið, dreymið og dulúðugt verk sem líður lymsku- lega um eyrun. Allt öðruvísi en síð- asta verk, Dig!!! Lazarus Dig!!! (2008), sem bjó líka yfir vísbend- ingum um innihald í titli, tónlistin hrá og rokkuð og meira að segja glettin á tímabili. Áhrif frá Grin- derman, bílskúrshljómsveit Cave sem gaf út tvær plötur árin 2007 við Cave sem flutt var á BBC 6 þann 10. janúar í þætti Marks Radcliffe og Stuart Maconie. Með aldrinum hefur Cave leyft sér að stíga úr hlutverki hins ósnert- anlega, dulúðuga snillings og leyft manneskjulegheitunum að flæða fram, eitthvað sem hefur styrkt hann ef eitthvað er. Að geta hlegið að sjálfum sér ber vott um öryggi og Cave leyfir sér léttúð í dag, upp að vissu marki eðlilega (jakkafötin eru m.ö.o. ennþá stífpessuð). M.a. ræddi hann um það vinnulag sitt að mæta á skrifstofu og vinna jafnt og þétt að hlutunum, aðferð sem margir eiga ennþá erfitt með að samsama villingnum, rokkaranum Cave. „Skrifstofan er reyndar í kjall- aranum mínum,“ sagði Cave, sem býr í Hove, rétt hjá Brighton. „En ég fer út um dyrnar hjá mér og kyssi konuna bless, til að hafa þetta formlegt.“ Í framhaldinu upplýsti hann svo að ljósmyndin fyrir umslagið, sem sýnir hann ásamt nakinni konu, hefði verið tekin í svefnherberginu hans og nakta konan væri kona hans, Susie Bick. „Þið megið horfa á umslagið í takmarkaðan tíma,“ bætti hann við kíminn. Titillinn gefur ýmislegt til kynna hvað varðar innihaldið, dreymið og dulúðugt verk sem líður lymsku- lega um eyrun. „Ský, ský … burt með þig“ og 2010, voru þónokkur þar. Þann- ig að enn og aftur er um gírskipt- ingu að ræða en platan á undan Dig!!! …, Abattoir Blues/The Lyre of Orpheus (2004) bar með sér enn aðra áru; var stór, dramatísk og strengjahlaðin. Þessar þrjár plötur mynda endurreisnartímabil Cave en Nocturama (2003) var óvenju fátækleg. Hér sést, svart á hvítu, að ekki er fyrir afköstum að fara varðandi Bad Seeds, enda Cave á kafi í alls kyns vinnu annarri. Um hríð The Bad Seeds var um hríð stór hópur manna, átta til níu manns á tímabili, en heldur hefur kvarnast úr hópnum. Félagarnir eru fimm á Push the Sky Away, í raun allir meðlimir Grinderman auk trym- bilsins Thomas Wydler. Þungavigt- armennirnir Mick Harvey og Blixa Bargeld horfnir á braut en tónlist- arbróðir Cave hin síðustu ár hefur verið hinn mikilhæfi Warren Ellis (The Dirty Three m.a.) en þeir hafa og unnið í sameiningu að kvik- myndatónlist. Upptökur á plötunni nýju fóru fram í Frakklandi, í La Fabrique, hljóðveri sem er í 18. aldar setri rétt utan við smábæinn Saint- Rémy-de-Provence í Suður- Frakklandi. Upptökustjórnandi var sem fyrr Nick Launay sem hefur vélað um allar fyrrgreindar plötur Bad Seeds. Cave kom með lögin svona hæfilega tilbúin og hann og Ellis tálguðu þau svo til þarna suð- ur frá. Cave segir að andi plöt- unnar, sem er mjög heildstæður, þar sem hvert lag flýtur einhvern veginn áfram og tekur við af hinu næsta, eins og alda á eftir öldu, sé tilkominn vegna hinnar þægilegu einangrunar í setrinu. Nálgast má mjög skemmtilega stiklu á youtube þar sem fylgst er með Cave og köppum hans að störfum (sláið inn „push the sky away trailer“). Manneskjulegheit Umræðan um anda plötunnar kom upp í bráðskemmtilegu viðtali » Titillinn gefur ým-islegt til kynna hvað varðar innihaldið, dreymið og dulúðugt verk sem líður lymsku- lega um eyrun. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is  Fimmtánda hljóðversplata Nick Cave & The Bad Seeds kemur út á mánudaginn  Push the Sky Away er hægstreymt, sveimi lagt verk Meistarinn Nick Cave er skuggum bundinn skýjaglópur. Hér sést hann á tónleikum í miklum ham. A GOOD DAY TO DIE HARD Sýndkl.5:50-8-10:10(Power) ZERO DARK TIRTY Sýndkl.6-9 VESALINGARNIR Sýndkl.7-10 HÁKARLABEITA 2 Sýndkl.2-4 THE HOBBIT 3D Sýndkl.4 THE HOBBIT 3D (48 ramma) Sýndkl.2 HVÍTI KÓALABJÖRNINN Sýndkl.2 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar 12 12 12 16 16 L L L 3 óskarstilnefningar “Ekta hátíðarævintýri fyrir alla famelíuna.” -Séð & Heyrt/Vikan “Magnþrungin og eftirminnileg” T.V. - Bíóvefurinn H.S.S -MBL Frábær spennumynd byggð á leitinni af Osama Bin Laden. 5 óskarstilnefningar H.S.S - MBL SÝND Í 3D OG Í 3D(48 ramma) -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU POWE RSÝN ING KL. 10 :10 BESTI LEIKAR ÁRSINS - BESTI LEIKSTJÓRI ÁRSINS - BESTA MYND ÁRSINS SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%*AÐEINS LAU **AÐEINS SUN 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS ” - Þ. Þ., FRÉTTATÍMINN - S.S., LISTAPÓSTURINN ” - G.F.V., VIÐSKIPTABLAÐIÐ -H.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ DIE HARD 5 KL. 5.40 - 8 - 10.20 16 KON-TIKI KL. 3 (TILBOÐ) - 5.30 - 8 - 10.30 12 LINCOLN KL. 2.40 (TILBOÐ) - 5.50 - 9 14 VESALINGARNIR KL. 2.40 (TILBOÐ) - 5.50 - 9 12 LIFE OF PI 3D KL. 3 (TILBOÐ) 10 -EMPIRE “MÖGNUÐ MYND Í ALLA STAÐI” -V.J.V., SVARTHÖFÐI BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM Yippie-Ki-Yay! DIE HARD 5 KL. 5.50 - 8 - 10 16 ZERO DARK THIRTY KL. 10 16 HVELLUR KL. 5.50 L / THE LAST STAND KL. 8 16 HÁKARLABEITA 2 KL. 3.40 (TILB) / HVÍTI KÓALA KL. 3.40(TILB) GUNNAR NELSON BARDAGI KL. 8* DIE HARD 5 KL. 5.30 - 8 - 10.20 16 DIE HARD LÚXUS KL. 1 - 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 16 ZERO DARK THIRTY KL. 8** 16 DJANGO KL. 8 16 / LINCOLN KL. 5 14 LAST STAND KL. 8 - 10.20 16 HÁKARLABEITA 2 KL. 1 (TILBOÐ) - 3 L THE HOBBIT 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 4.30 12 LIFE OF PI 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 5.20 10 HVÍTI KÓALABJÖRNINN KL. 1 (TILBOÐ) - 3 L

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.