Morgunblaðið - 01.03.2013, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1. M A R S 2 0 1 3
Stofnað 1913 50. tölublað 101. árgangur
GAMANLEIKRIT
UM ALVARLEG
MÁLEFNI
VETURINN VAR
Á MILLI JÓLA
OG NÝÁRS
SÖNGGLÖÐ
SYSTKINI FRÁ
VOPNAFIRÐI
BLÍÐVIÐRI Í GRÍMSEY 4 UNNU TÓNKVÍSLINA 2013 10LA FRUMSÝNIR KAKTUS 39
Tónleikar til styrktar Ingólfi Júlíussyni, ljósmyndara og margmiðlunarhönnuði, og fjölskyldu hans voru haldnir í
Hörpu í gærkvöldi. Ingólfur á í baráttu við bráðahvítblæði og hefur verið óvinnufær vegna veikindanna. Fjöldi
listamanna kom fram, þ.á m. Ari Eldjárn, Hörður Torfason, Bodies, Dimma, Fræbbblarnir, Hellvar, Hljómeyki,
Hrafnar, KK, Nóra, Nýdönsk, ÓP-hópurinn og Q4U. Ingólfur hefur lengi verið gítarleikari Q4U og spilaði hann
eitt lag með hljómsveitinni. Styrktarreikningur Ingólfs er 0319-26-002052, kt. 190671-2249. gudni@mbl.is
Stuð á styrktartónleikum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Tónleikar til styrktar Ingólfi Júlíussyni ljósmyndara voru haldnir í Hörpu í gær
Guðni Einarsson
Baldur Arnarson
Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar-
og eftirlitsnefndar Alþingis, mun koma þeirri ósk
meirihluta nefndarinnar á framfæri að þingfundur
verði haldinn nk. mánudag í stað nefndafunda eins
og starfsáætlun gerir ráð fyrir. Á dagskrá verði
frumvarp til stjórnskipunarlaga. „Það er til þess að
nægur tími gefist til að ræða þetta mikilvæga mál,“
sagði Valgerður. Hún sagði að nefndin hefði nú af-
greitt framhaldsnefndarálit og breytingartillögur
við frumvarpið. „Það er augljós vilji nefndarinnar
að málið verði rætt, helst þegar á mánudag.“
Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Al-
þingis lagði í gærkvöldi fram 87 blaðsíðna fram-
ar til verulegar breytingar á tveim fyrstu greinum
kafla sem nú heitir Mannréttindi. Eins mun vera
lögð til talsverð breyting á greininni um dvalarrétt
og ferðafrelsi. Sömu sögu er að segja um greinina
um réttláta málsmeðferð sem mun hafa verið lengd
frá upphaflegri tillögu. Grein um friðhelgi einkalífs
mun einnig hafa verið breytt sem og grein um skoð-
ana- og tjáningarfrelsi. Þá mun grein um upplýs-
inga- og þátttökurétt hafa verið breytt verulega.
Þónokkrar breytingar munu vera gerðar á kafl-
anum um Alþingi. Óverulegar breytingar eru á
kaflanum um ráðherra og ríkisstjórn en þar má
nefna að grein um vantraust hefur verið breytt.
Kaflinn um dómsvald er einnig lítið breyttur.
Vilja aukaþingfund
Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar lagði fram 87 síðna framhalds-
nefndarálit um stjórnarskrána Óskað eftir að málið verði rætt á mánudag
MViðamiklar breytingar »6
haldsnefndarálit um stjórnarskrárfrumvarpið og
kynnti fjölmargar breytingartillögur, að sögn Vig-
dísar Hauksdóttur, alþingismanns Framsóknar-
flokks, sem situr nefndinni, í gærkvöldi.
„Við erum að ljúka okkar vinnu og taka frum-
varpið úr nefndinni. Við erum búin að leggja fram
breytingartillögur. Málsmeðferðin í þinginu er hins
vegar ófrágengin. Eftir því sem ég best veit er ekki
búið að semja um hana,“ sagði Lúðvík Geirsson,
þingmaður Samfylkingar og einn fulltrúa meirihlut-
ans í nefndinni, í samtali í gærdag.
„Allir meginannmarkarnir sem voru á frumvarp-
inu eru meira og minna enn til staðar,“ sagði Birgir
Ármannsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokks og
fulltrúi í nefndinni, að loknum fundinum.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru lagð-
„Hún sagði mér
hreint og klárt
að þetta [þ.e.
launahækkanir
hjúkrunarfræð-
inga] ætti að
fara líka til
sjúkraliðanna
og hún lofaði
mér því að hún
myndi halda
fund með yfirmönnum Landspítal-
ans til þess að gera þeim grein fyrir
þessu,“ segir Kristín Á. Guðmunds-
dóttir, formaður Sjúkraliðafélags
Íslands, um fund sem hún átti fyrir
stuttu með Katrínu Júlíusdóttur
fjármálaráðherra.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náð-
ist ekki í Katrínu Júlíusdóttur fjár-
mála- og efnahagsráðherra við
vinnslu fréttarinnar í gær. »22
Fékk loforð
um hækkun
Sólarlanda-
ferðir um
páskana eru
óðum að selj-
ast upp hjá
ferðaskrifstof-
unum. Lausum
sætum í sólina
er farið fækka
verulega en
örlítið hægar
gengur að
selja í borgarferðir um páskana.
Viðmælendur Morgunblaðsins eiga
von á því að kippur komi í sölu
þeirra þegar nær dregur páskum.
Framboð á ferðum er svipað og í
fyrra en sala á ferðum hefur gengið
heldur hraðar. Þá virðist sem ásókn
í sumarferðir sé meiri enn í fyrra,
t.a.m. hefur Úrval-Útsýn selt fleiri
slíkar ferðir heldur en á sama tíma
í fyrra. »4
Margir á leið í
sólina um páskana
Strönd Fólk í sólbaði.
Þrjú sveitarfélög vinna saman að
rammaáætlun fyrir samgöngur og
ferðaþjónustu á Fjallabakssvæðinu,
eða Suðurhálendinu eins og svæðið
er einnig nefnt. Tilgangurinn er að
efla ferðaþjónustu en létta álagi af
vinsælustu stöðunum.
Meginhugsunin er að byggja upp
þjónustu í útjaðri svæðisins, í stað
þess að gera það í nágrenni Land-
mannalauga, en annars staðar á há-
lendinu. Til umræðu er að færa
tjaldsvæðin frá Landmannalaugum
til að hlífa viðkvæmum gróðri við
laugarnar. »12
Létta álagi af
vinsælum stöðum
Landmannalaugar Vinsælt að tjalda.
Frumvörp um stjórn fiskveiða voru
afgreidd úr atvinnuveganefnd í gær-
kvöldi. Þrír þingmenn Samfylkingar
samþykktu frumvörpin með fyrir-
vara og hafa þeir frest til þess að
greina frá þeim. „Frumvarpið er lít-
ið breytt frá því frumvarpi sem var á
síðasta þingi. Breytingarnar eru
fyrst og fremst ívilnandi og til þess
að mæta þeim umsögnum sem komu
síðasta vor,“ segir Lilja Rafney
Magnúsdóttir, þingmaður VG og
formaður nefndarinnar.
Einar K. Guðfinnsson, sem situr í
nefndinni fyrir Sjálfstæðisflokk, tel-
ur að meðferð málsins „skrípaleik“.
„Frá upphafi var ætlunin að keyra
þetta mál í gegn eins og það kom
fram á þinginu og fyrirfram var búið
að ákveða að hvað sem tautaði og
raulaði, hvað sem hver myndi segja,
þá yrði engu breytt. Og við það hef-
ur þetta fólk staðið,“ segir Einar.
Frumvarp um náttúru-
vernd afgreitt úr nefnd
Frumvarp til náttúruverndarlaga
var sent úr umhverfis- og sam-
göngunefnd í gærkvöldi. Stjórnar-
liðar auk Atla Gíslasonar og Þórs
Saari samþykktu frumvarpið.
vidar@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Atvinnuveganefnd Fiskveiðistjórn-
unarfrumvörp voru afgreidd í gær.
Stjórnar-
liðar með
fyrirvara
Fiskveiðifrumvörp
afgreidd úr nefnd