Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 35
hafréttarsamningnum 1982-83, var skipaður deildarstjóri í við- skiptaráðuneytinu 1983 og skipaður skrifstofustjóri þar og staðgengill ráðuneytisstjóra frá 1988 og hefur verið skrifstofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu frá sept- ember 2012 til febrúarloka 2013. Jón var prófdómari í Evrópurétti við HÍ um nokkurra ára skeið. Jón var formaður Stúdentafélags HÍ 1967-68, forseti Stúdenta- akademíu 1968, ritari stjórnar Júdó- sambands Íslands 1973, hefur verið þátttakandi og formaður í ýmsum nefndum fyrir hönd viðskiptaráðu- neytisins, sinnti málefnum er lutu að viðræðum um Evrópska efnahags- svæðið og hafði umsjón af hálfu utan- ríkisráðuneytisins með þýðingu á meginmáli EES-samningsins. Jón æfði og keppti í frjálsum íþróttum með ÍR, vann til ýmissa verðlauna í frjálsum íþróttum, m.a. 3. verðlauna í sleggjukasti í landskeppni Íslands við Vestur-Noreg 1964. Meðal rita Jóns: Drög að íslenzkrí hraðritun - hraðritunartákn algeng- ustu orða tungunnar, Rvík 1966; Feg- ursta kirkjan á Íslandi, ljóðabók, myndabók, fræðibók, útg. 1995; Peace and War: Niagara of Quota- tions (Friður og stríð - Hafsjór af til- vitnunum), útg. 2012. Meðal greina eftir Jón má nefna Heildarendurskoðun stjórnarskrár- innar frá 17. júní 1944, Úlflj. XXII, 2. tbl. 1969. Jón hlaut syrk úr sjóði Franks Boas við Harvard Law School til náms í þjóðarétti þar. Friður og stríð í 33 ár Óneitanlega urðu tímamót í lífi Jóns með útgáfu bókar hans Friður og stríð - Hafsjór af tilvitnunum, sem nú er nýútkomin. Sú bók var ekki hrist fram úr erminni. Jón hefur unn- ið að henni að meðaltali í þrjá tíma á dag í 33 ár og hefur farið fjölda ferða í fjórar til sex vikur í senn á bókasöfnin í Harvard til að viða þar að sér efni í ritið sem er rúmlega 1.300 blaðsíður í tveimur þykkum bindum: „Þetta er einfaldlega mín aðferð til að minna á þær skelfingar sem stríðrekstur hef- ur í för með sér – mín leið til að láta gott af mér leiða,“ segir þessi hóg- væri en stórskemmtilegi maður. Fjölskylda Eiginkona Jóns er Lilja Júlía Guð- mundsdóttir, f. 13.6. 1948, hjúkr- unarfræðingur við Landspítala í Fossvogi. Hún er dóttir Guðmundar Ívarssonar Ágústssonar, f. 25.8. 1918, d. 21.11. 2009, skipstjóra og útgerð- armanns í Vogum, og Guðríðar Þórð- ardóttur, f. 15.5. 1923, d. 18.12. 2007, ljósmóður. Sonur Jóns og Lilju Júlíu er Þor- móður Árni Jónsson, f. 2.3. 1983, júdókappi, búsettur í Reykjavík en kona hans er Bylgja Sigurðardóttir og eru synir þeirra Elías Funi, f. 2008, og Fannar Frosti, f. 2012. Systkini Jóns: Salvör Þormóðs- dóttir, f. 1946, fyrrv. flugfreyja, og Guðmundur Þór Þormóðsson, f. 1948, framkvæmdastjóri. Foreldrar Jóns: Þormóður Ög- mundsson, f. 17.2. 1910, d. 25.9. 1985, aðallögfræðingur og síðar aðstoðar- bankastjóri Útvegsbanka Íslands, og Lára Jónsdóttir, f. 6.8. 1913, hús- freyja. Úr frændgarði Jóns Ögmundar Þormóðssonar Jón Ögmundur Þormóðsson Björg Sigurðardóttir frá Stokkahlöðum í Eyjafirði Þorkell Ingjaldsson b. á Írafelli í Kjós Salvör Þorkelsdóttir húsfr. í Varmadal Jón Þorláksson b. í Varmadal Lára Jónsdóttir húsfr. í Rvík Geirlaug Gunnarsdóttir húsfr. í Varmadal Þorlákur Jónsson b. í Varmadal Halldóra Jónsdóttir húsfr. í Vatnskoti Þórður Jakobsson b .í Vatnskoti í Flóa Jónína Margrét Þórðardóttir húsfr. á Eyrarbakka Ögmundur Þorkelsson kaupm. á Eyrarbakka Þormóður Ögmundsson aðallögfræðingur og síðar aðstoðarbankastj. Útvegsbanka Íslands Þórunn Siggeirsdóttir húsfr. á Króki Þorkell Ögmundsson b. á Króki í Flóa Guðmundur Ögmundsson b. Efri-Brú í Grímsnesi Tómas Guðmundsson skáld Jón Jónsson b í Varmadal á Kjalarnesi Þorgeir Jónsson b. og hestam. í Gufunesi og glímukóngur Íslands Þóra Þorgeirsdóttir húsfr. í Rvík Þorgeir Örlygsson hæstaréttar- dómari Júdókappi Þormóður Árni Jónsson, sonur þeirra Jóns og Lilju Júlíu. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013 Ólafur Jóhannesson fæddist íStórholti í Fljótum fyrirréttum hundrað árum. For- eldrar hans voru Jóhannes Frið- bjarnarson, b. og kennari þar, og k.h., Kristrún Jónsdóttir. Jóhannes var af Hvassafellsætt, en Guðrún, langamma hans, var systir Rannveigar, móður Jónasar Hallgrímssonar skálds. Ólafur var kvæntur Dóru Guð- rúnu Magdalenu Ástu Guðbjarts- dóttur húsfreyju sem lést 2004. Þau eignuðust þrjú börn, Kristrúnu, Guðbjart sem er látinn og Dóru. Ólafur lauk stúdentsprófi frá MA 1935, embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1939 með hæstu einkunn sem þá hafði verið gefin við deildina og stundaði framhaldsnám í Stokk- hólmi og Kaupmannahöfn 1945-46. Hann sinnti lögfræðistörfum og end- urskoðun hjá SÍS 1939-43 og var prófessor við lagadeild HÍ 1947-78. Ólafur var án efa einn fremsti lög- spekingur þjóðarinnar á síðustu öld. Rit hans, Stjórnskipun Íslands, hef- ur verið meginstoð allrar lögfræði- kennslu í stjórnskipunarrétti frá fyrstu útgáfu, 1960. Hann samdi al- mennt yfirlitsrit, Lög og rétt, og skrifaði einnig um stjórnarfarsrétt. Ólafur var alþm. á árunum 1959- 84. Hann tók við formennsku í Framsóknarflokknum 1968 og varð áhrifamesti stjórnmálamaður þjóð- arinnar á áttunda áratugnum sem forsætisráðherra við fall viðreisn- arstjórnar 1971 og til 1974, dóms-, kirkjumála- og viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar 1974-78, forsætisráðherra nýrrar vinstri stjórnar í rúmt ár frá hausti 1978 og utanríkisráðherra í ríkis- stjórn Gunnars Thoroddsen 1980-83. Hann var forsætisráðherra í 50 mílna þorskastríðinu og á tímum Vestmannaeyjagossins, lenti í orra- hríð Vilmundar Gylfasonar og fleiri rannsóknarblaðamanna vegna Geir- finnsmálsins og hann braut blað í hagsögunni með setningu Ólafslaga. Ólafur var þéttur á velli, hægur í framgöngu, brosmildur og viðræðu- góður, en fastur fyrir og býsna slyngur stjórnmálamaður þegar á reyndi. Hann lést 20.5. 1984. Merkir Íslendingar Ólafur Jóhannesson 85 ára Ófeigur Pétursson 80 ára Haukur Otterstedt Jón Elberg Baldvinsson Svanhvít Kjartansdóttir 75 ára Birna Tyrfingsdóttir Emma Stefánsdóttir Guðrún Steinþórsdóttir Gunnar Árnason Hulda Benediktsdóttir Olga Khaevna Akbasheva Una Árnadóttir 70 ára Aðalsteinn Einarsson Margrét Svavarsdóttir María Friðriksdóttir Sigríður Björk Einarsdóttir Sigurður Guðjónsson 60 ára Antoni Turek Hreinn Sigurgeirsson Ísfold Helga Kristjánsdóttir Jóhanna Júlíusdóttir Ragnar Ragnarsson Ragnheiður Torfadóttir 50 ára Eyrún Ragnarsdóttir Gestur Jón Gestsson Gísli Örn Arnarson Guðleif Þórunn Stefánsdóttir Guðmundur Þorvaldsson Halldóra Aradóttir Heidi Charlotte Troelsen Helga Björk Bragadóttir Hjörtur Hjartarson Oddný Inga Fortescue Serafin Prado Magdaraog Stefán Dagbjartsson 40 ára Aðalsteinn Örn Svansson Árni Geir Norðdahl Eyþórsson Ása Heiður Rúnarsdóttir Ásgeir Hjartarson Grímur Tómas Tómasson Guðmundur Kári Daníelsson Hrafnkell Harðarson Jóhanna Bjarnveig Magnúsdóttir Kolbrún Erla Pétursdóttir Kristmann Már Ísleifsson Sylvía Hilmarsdóttir 30 ára Árni Freyr Árnason Guðrún Lilja Friðgeirsdóttir Helga Sif Andrésdóttir Ingvar Steinarsson Katrín Eva Auðunsdóttir Kristjana Þórunn Eðvarðsdóttir Sara Vilhjálmsdóttir Sigurmann Rafn Sigurmannsson Snædís Ögn Flosadóttir Svandís Ósk Gestsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Þóra fæddist í Reykjavík og ólst þar upp, lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskól- anum í Árósum og er læknir við Landspítala - háskólasjúkrahús. Maki: Níels Lynggaard, f. 1978, kerfisfræðingur. Börn: Sölvi, f. 2007, og Silja, f. 2009. Foreldrar: Þóra Víkings- dóttir, f. 1958, ónæmisfr. og kennari, og Bjarni Jónsson, f. 1954, kerfisfr.. Þóra H.B. Lynggaard 40 ára Linda lauk BA-prófi í mannfræði og MA-prófi í hagnýtum hagvísindum frá Bifröst og er kennari við Hringsjá. Maki: Einar Logi Vign- isson, f. 1969, auglýs- ingastjóri hjá RÚV. Börn: Hafsteinn, f. 2000; Aðalbjörg Helga, f, 2005, og Hlynur og Kolbeinn, f. 2007. Foreldrar: Sigríður M. Pét- ursdóttir, f. 1950, og Sig- urður Friðriksson, f. 1951. Linda Björk Sigurðardóttir 40 ára Svanhildur er robe-yogakennari og snyrti- og förðunarfr. Maki: Hermann Ingason, f. 1963, búfræðingur. Börn: Arnar Már, f. 1991; Marías Leó, f. 1997, og Daníel Dagur, f. 2006. Stjúpbörn: Thelma Björk, f. 1984; Unnur Lilja, f. 1987, og Jón Þór, f. 1992. Foreldrar: Marías Sveins- son og Gyða Guðmunds- dóttir. Svanhildur Ósk Maríasdóttir Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Ármúla 32 · 108 Reykjavík · Sími 568 1888 · parketoggolf.is · Þú finnur okkur líka á Facebook Parket & gólf - Sérfræðingar í gólfefnum! Vönduð gæðateppi á heimilið og skrifstofuna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.