Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Leikritið Karma fyrir fugla, sem frumsýnt verður í Kassanum í Þjóð- leikhúsinu í kvöld, er frumraun höf- undananna, Kari Óskar Grétudóttur og Kristínar Eiríksdóttur, á sviði leikritunar. Verkið hefur verið um nokkra hríð í vinnslu í skjóli leik- hússins og er sagt ljóðrænt og sál- fræðilegt í senn, og fjalla um afleið- ingar ofbeldis, heljartök fortíðar á sálinni, ranglæti og fegurð. Við sögu kemur stúlka eða kona, Elsa að nafni, sem er kannski sautján ára stúlka sem er til sölu og kannski heimilislaus gömul kona. Höfundarnir, Kristín og Kari Ósk, eru báðar menntaðar myndlist- arkonur – Kristín segist reyndar að mestu vera komin yfir í heim orðanna, en hvernig kom það til að þær fóru að skrifa leikrit? „Mig hefur mjög lengi langað til að skrifa fyrir leikhús og er mjög hrifin af þessu formi,“ segir Kristín en eftir útskrift úr Listaháskólanum vann hún um skeið að gjörningalist. „Við Kari Ósk höfðum lengi rætt að vinna saman, myndlistarsýningu eða annað, því listrænt séð tengj- umst við á margskonar hátt og erum góðar vinkonur,“ segir hún. „Kari datt síðan í hug að við byrjuðum að skrifa leikrit og sæjum hvert það leiddi okkur. Það gekk mjög vel og síðan vildi svo til að Tinna Gunn- laugsdóttir þjóðleikhússtjóri hafði samband stuttu eftir að við byrj- uðum að skrifa. Hún hafði lesið bók- ina mína Doris deyr og fundist vera einhverjar sviðstilhneigingar í text- anum; þetta var einhvern veginn í stjörnunum.“ Þær réðust því í að klára verkið. „Tilraunaleikhúsið er eiginlega orðið hefðbundið“  Nýtt leikrit eftir Kari Ósk Grétudóttur og Kristínu Eiríksdóttur frumsýnt Ljóðrænt Leikritið Karma fyrir fugla er sagt fjalla um afleiðingar ofbeldis, heljartök fortíðar á sálinni, ranglæti og fegurð. Kristín Eiríksdóttir Kari Ósk Grétudóttir „Við hittum listráð Þjóðleikhúss- ins og þau hvöttu okkur áfram. Það eru tvö ár síðan við byrjuðum á þessu, við höfum unnið að verkinu á öllum þeim tíma og nú er komið að frumsýningu.“ – Kemur „hefðbundið“ leikrit út úr því þegar myndlistarkonur setj- ast við að skrifa leikverk? „Ég veit ekki hvað er hefðbundið leikrit í dag. Svo margar tilraunir eru komnar inn í hefðina að tilrauna- leikhúsið er eiginlega orðið hefð- bundið,“ segir hún og hlær. „En ég tel okkur líka mjög lánsamar að vinna með Kristínu Jóhannesdóttur leikstjóra, sem kemur með sína ein- stöku nálgun að verkinu. Hún er mjög myndrænn leikstjóri og verkið fór á talsvert flug hjá henni.“ Kristín ítrekar að þótt minnst sé á gjörn- inga, ljóðrænu og sálfræði, þá sé söguþráður í verkinu. „Hetju er fylgt eftir og hennar ferðalagi.“ Og þær Kari hyggjast halda áfram að vinna með leikritaformið. „Við ætlum pottþétt að gera meira, þetta gekk svo vel. Við erum farnar að ræða næsta verkefni.“ Myndlistarsýn- ingin Innrím verður opnuð í dag kl. 18 í Víði- hlíð Landspítala við Klepp. Á henni sýna sam- an Björk Guðna- dóttir, Helga Óskarsdóttir, Helga Þórs- dóttir, Hlynur Helgason, Karlotta Blöndal og Ólöf Björnsdóttir. Um sýningarstaðinn segir í tilkynningu að húsnæðið hafi lengi vel verið dvalarstaður sjúklinga á Klepps- spítala sem hafi verið að reyna að aðlaga sig á ný að lífinu utan spít- alans. Nú standi til að taka hús- næðið á ný í notkun sem félags- og starfsstöð fyrir nýgreinda geðrofs- sjúklinga þar sem tónlist sem og myndlist skipi mikilvægan sess. „Það er í tengslum við þau tímamót sem þessi sýning á sér stað, sýning sem tekst á fjölbreyttan hátt við sögu staðarins, Kleppsspítala, rými hússins sjálfs, sem er lýsandi og til merkis um fjölbreytta sögu, og um- hverfi þess,“ segir í tilkynningu. Frekari fróðleik um sýninguna og listamennina má finna á inn- rim.this.is. Innrím í Víðihlíð Karlotta Blöndal Steingrímur Ey- fjörð myndlist- armaður heldur í dag kl. 13 opinn fyrirlestur um verk sín og vinnuaðferðir í myndlistardeild Listaháskóla Ís- lands að Laug- arnesvegi 91. Steingrímur hefur undanfarnar vikur starfað sem stundakennari við myndlist- ardeildina, og kennt námskeiðið Verkleg hugmyndavinna. Fjallar um verk sín Steingrímur Eyfjörð Myndlistarmaðurinn Erlingur Jón Valgarðsson, eða Elli, opnar sýn- ingu á verkum sínum, Óþægilegar hugsanir, í sal SÍM í Hafnarstræti 16 í dag kl. 17. Í verkunum vinnur Elli út frá hugsunum ónafngreinds fólks og geta sýningargestir tekið þátt í áframhaldandi mótun verks- ins með því að skrásetja hugsanir sínar á einblöðunga og setja í sér- stakan kassa, að því er fram kemur í tilkynningu. Sýningin er opin á skrifstofutíma SÍM, mánudaga til föstudaga frá kl. 10 til 16. Henni lýkur 26. mars. Nánar á sim.is. Óþægilegar hugsanir Nýtt íslenskt leikrit, Karma fyrir fugla, verður frumsýnt í Kass- anum í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Höfundar eru þær Kari Ósk Grétudóttir og Kristín Eiríks- dóttir sem báðar eru myndlist- armenntaðar. Kristín er einnig kunn fyrir skrif; ljóð, smásögur og skáldsöguna Hvítfeld. Leikstjóri er Kristín Jóhann- esdóttir og leikarar eru Krist- björg Kjeld, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Hilmir Jensson, Þór- unn Arna Kristjánsdóttir og Þorsteinn Bachmann. Anna Rún Tryggvadóttir hannar leikmynd, Halldór Örn Óskarsson sér um lýsingu og Guðlaug Mía Eyþórs- dóttir, Helgi Þórsson og Stein- unn Harðardóttir hljóðmynd. Frumraun FRUMSÝNING Í KASSANUM STOFNAÐ 1987 M ál ve rk : Sv al a Þó rð ar d ó tt ir einstakt eitthvað alveg Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n S k i p h o l t 5 0 a | S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.