Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013 sjávarútvegsins eða 15% og 13% lán- anna eru til fasteignafélaga. Heildar- útlán bankans jukust í 612 milljarða króna úr 608. Fram kom á fundinum að Íslands- banki sé að skoða það að fá lánshæf- ismat. Brátt munu stjórnendurnir ræða við lánshæfismatsfyrirtækin og í kjölfarið verður tekin ákvörðun um næstu skref. UBS veitir Íslands- banka ráðgjöf í verkefninu. Ferlið að fá lánshæfiseinkunn mun taka þrjá til níu mánuði. Skattar og gjöld greidd til ríkis- stofnana námu samtals 9,3 milljörð- um á tímabilinu, samanborið við 2,0 milljarða á sama tímabili árið 2011. Þar af nam tekjuskattur í fyrra 6,3 milljörðum króna. Íslandsbanki hagnaðist um 23,4 milljarða króna  Stjórnendur skoða möguleika á að fá lánshæfismat Morgunblaðið/Ómar Starfsemi Hagnaður af reglulegri starfsemi var 15,7 milljarðar króna. Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Íslandsbanki hagnaðist um 23,4 milljarða árið 2012, samanborið við 1,9 milljarða árið 2011 en það ár lit- aðist afkoman af virðisrýrnun á við- skiptavild í kjölfar yfirtöku Byrs sem olli einskiptiskostnaði upp á 17,9 milljarða króna. Hagnaður af reglu- legri starfsemi eftir skatta jókst milli ára, var 15,7 milljarðar í ár, saman- borið við 13,9 milljarða árið 2011. Arðsemi eigin fjár jókst í 11,6% úr 11%. Yfir 75% af rekstrartekjum bankans koma frá vaxta- og þókn- anatekjum. Birna Einarsdóttir, forstjóri Ís- landsbanka, sagði á fundi með blaða- mönnum að ný útlán á árinu hafi ver- ið hátt í hundrað milljarðar króna, sem sé töluverður vöxtur. „Það hefur verið stígandi í nýjum útlánum,“ seg- ir hún og nefnir að aukningin komi frá ýmsum sviðum; bílalánum Ergo, fyrirtækjasviði og almennum útlán- um í útbúum. Flest útlán bankans – og þá er ekki verið að einblína á ný útlán heldur öll – eru húsnæðislán til ein- staklinga eða 29%, næstflest eru til Íslandsbanki sameinaðist Byr » Meðalfjöldi stöðugilda móð- urfélagsins var 1.119 árið 2012, samanborið við 1.003 árið 2011. » Samruna Íslandsbanka og Byrs lauk á árinu. » Eiginfjárhlutfall bankans hækkaði milli ára í 25,5% úr 22,6%. Eigið fé nam 148 millj- örðum króna við árslok. » Kostnaðarhlutfallið lækkaði í 48,1% úr 51,5%. Útflutningstekjur af áli námu ríf- lega 225 milljörðum á síðasta ári eða 23% af útflutningstekjum þjóð- arinnar, að því er fram kom á árs- fundi Samáls á miðvikudaginn. Beint og óbeint framlag áliðnaðar- ins til þjóðarbúsins var 85-96 millj- arðar króna á árunum 2008-2010 eða 6,8% af heildarmyndinni. Til samanburðar var framlag sjávar- útvegsins 17,5% árið 2010. Þetta kemur fram í skýrslu Hagfræð- stofnunar. Afleidd störf vegna starfsemi í áliðnaði eru um fimm þúsund, segir í upplýsingariti sem dreift var á ársfundinum. Lengi hefur verið rætt um áhrif byggingar Kárahnjúkavirkjunar á þenslu á árunum 2004 til 2007. Magnús Ásmundsson, forstjóri Al- coa á Íslandi, sagði á fundinum að nauðsynlegt væri að horfa á heild- armyndina á tímabilinu og að fram- kvæmdin sem slík hafi verið dverg- vaxin miðað við aðra bólumyndun í hagkerfinu. Kárahnjúkar hafi kost- að um 83 milljarða, en á sama tíma hafi aukning húsnæðislána verið um 780 milljarðar, heildarfjárfest- ing í atvinnulífinu verið um 1.500 milljarðar, verðmæti hlutabréfa í Kauphöllinni hafi aukist um 2.600 milljarða og skuldsetning atvinnu- lífsins hafi einnig aukist um 2.600 milljarða. Gunnar Haraldsson, forstöðu- maður Hagfræðistofnunar, sagði að spurningin um hvort áliðnaðurinn væri of stór væri kannski ekki sú rétta; hún ætti fremur að snúast um það hvort áliðnaðurinn skapi meiri verðmæti en önnur atvinnu- starfsemi, beint og óbeint. Huga ætti að því að áliðnaðurinn vaxi að verðmætum og að gæta þyrfti að skilyrðum hans svo hann nái að blómstra. Hann taldi mikil tækifæri liggja í frekari þróun á álklasa og að mikilvægt væri að hlúa að og stuðla að uppbyggingu áliðnaðarins og starfsemi honum tengdri. Í ritinu segir að alls verði rúmir 100 milljarðar eftir í landinu vegna áliðnaðar, eða um 275 milljónir á dag. Talan hafi hækkað jafnt og þétt undanfarin ár. 23% útflutnings- tekna eru vegna áls  Afleidd störf eru fimm þúsund Morgunblaðið/ÞÖK Iðnaður Rúmir 100 milljarðar verða eftir í landinu vegna áliðnaðarins. Vandaðir og vottaðir ofnar www.ofnasmidja.is - Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 LAGERSALA OG TILBOÐSDAGAR Í MARS *ATH. Lagersalan gildir út mars 2013 eða á meðan birgðir endast. 10 - 50% afsláttur á völdum Thor ofnum 10 - 20% afsláttur á MHS handklæðaofnum Alara 60x72 cm Ryðfrýtt stál Square 50x120 cm Ryðfrítt stál Aquila 50x119 cm Burstað stál Oval 50x120 cm Ryðfrítt stál Halo 25x120 cm Krómað stál 10% 20% 15% 10%15% Home Swim pakki, án klórs 2 fyrir 1 6.990,- Eura L Eura C ATH. opið laugardaginn 2 mars 11-14 Fylgihlutir fyrir nuddpotta á 10% afslætti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.