Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013 Hannes H. Gissurarson hélt fyr-irlestur fyrir troðfullum há- tíðarsal HÍ 19. febrúar sl. Hann sagði markaðskapítalisma „fela í sér opið hagkerfi og fjöruga sam- keppni. Þar er leiðarljósið að virkja ávinningsvonina í almannaþágu.    Slíkur kapítalismier öflugasta tækið, sem enn hefur fundist til að breyta fátækt í bjargálnir.    Klíkukapítalismier hins vegar, þegar fámenn auð- klíka nær víðtækum áhrifum og jafnvel völdum, eins og gerðist hér á landi í hinum hatrömmu átökum ársins 2004 (ekki síst um fjölmiðlafrumvarpið).    Þessi auðklíka tæmdi bankana,keypti upp fyrirtæki og tak- markaði samkeppni. Eftir banka- hrunið sást, að hún skuldaði miklu meira en áður hafði verið talið, en á mörgum kennitölum. Þótt margir gáfaðir og góðviljaðir menn hefðu starfað í bönkunum og í fjármála- eftirlitinu fyrir bankahrunið, var þeim þetta ekki að fullu ljóst. En með þessu jókst kerfisáhættan stór- lega á Íslandi umfram það, sem gerðist í grannríkjunum.    Þessi auðklíka merkti lysti-snekkju sína með tölunni 101 og einkaþotuna með sömu tölu.    Þetta var eflaust ekki aðeins gerttil þess að minnast hirðskálds klíkunnar, Hallgríms Helgasonar, höfundar bókarinnar101 Reykja- vík, heldur líka til að hælast um af því, sem klíkunni tókst óneitanlega:    Skuldirnar voru á 100 kennitöl-um, þótt skuldarinn væri 1“. 100 og 1 STAKSTEINAR Jón Ásgeir Jóhannesson Hannes H. Gissurarson PÁSKATILBOÐ! GLÆSILEGAR OG VANDAÐAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR AUKAHLUTIR FYRIR ELDHÚSINNRÉTTINGAR NÚ ER TÆKIFÆRIÐ TIL AÐ ENDURNÝJA ELDHÚSIÐ! TIL AFGREIÐSLU AF LAGER - TAKMARKAÐ MAGN! BÚR-ÚTDRAG - TÖFRAHORN ÚTDRAGANLEG HÁLFMÁNASETT HNÍFAPARABAKKAR ÚTDRÖG Í NEÐRI SKÁPA OPIÐ 9-18, LAUGARD. 11-15 Ármúla 31 | Sími: 588 7332 COUNTRY Fulningur, hvítlökkuð háglans. LINE Hvítlökkuð háglans, höldulaus. HORIZONTAL Spónlögð amerísk hnota. DUCALE Hvítlökkuð háglans, innfelld handföng. DUCALE Ljós eik - innfelld handföng. WWW.I-T.IS Veður víða um heim 28.2., kl. 18.00 Reykjavík 7 alskýjað Bolungarvík 1 snjókoma Akureyri 1 skýjað Kirkjubæjarkl. 5 rigning Vestmannaeyjar 6 alskýjað Nuuk -2 snjókoma Þórshöfn 7 léttskýjað Ósló 7 heiðskírt Kaupmannahöfn 6 skýjað Stokkhólmur 3 heiðskírt Helsinki 3 skýjað Lúxemborg 2 skýjað Brussel 2 skýjað Dublin 6 skýjað Glasgow 7 skýjað London 6 heiðskírt París 2 alskýjað Amsterdam 2 léttskýjað Hamborg 2 skýjað Berlín 3 skýjað Vín 7 léttskýjað Moskva 2 snjókoma Algarve 11 skýjað Madríd 5 súld Barcelona 11 skúrir Mallorca 12 skýjað Róm 12 léttskýjað Aþena 10 léttskýjað Winnipeg -12 skýjað Montreal 0 snjókoma New York 7 skýjað Chicago 1 snjókoma Orlando 17 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 1. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:35 18:47 ÍSAFJÖRÐUR 8:45 18:46 SIGLUFJÖRÐUR 8:28 18:29 DJÚPIVOGUR 8:05 18:15 „Það er ekki svo langt síðan farið var að viðurkenna að þetta væri raunverulegur sjúkdómur en ekki bara móðursýki,“ segir Silja Ást- þórsdóttir, formaður samtaka um endómetríósu. Íslenska heitið yfir sjúkdóminn er legslímuflakk en Silja segir það hafa gefist illa. „Það vakti of neikvæð hughrif hjá fólki,“ segir hún. Samtökin standa í dag fyrir gula deginum en hann markar upphafið að fræðsluviku um sjúkdóminn. „Landspítalinn verður lýstur gulur alla vikuna og við hvetjum fólk til þess að klæð- ast gulum fötum til þess að sýna samhug,“ segir Silja. Hún segir dagskrá vikunnar fjölbreytta. Á laugardaginn verður haldinn fund- ur þar sem flutt verða erindi um hefðbundnar og óhefðbundnar verkjameðferðir. Á sunnudaginn eru konur sem glíma við endómet- ríósu svo hvattar til þess að hittast á kaffihúsinu Súfistanum í Hafnar- firði. Einkennin breytileg Endómetríósa er krónískur sjúk- dómur sem leggst á 5-10 prósent kvenna. Einkennin eru breytileg en þau algengustu eru sárir tíða- verkir, meltingartruflanir, verkir við þvaglát og tímabundin ófrjó- semi. Silja telur starfsemi samtak- anna skila árangri: „Þegar ég greindist fyrir 13 árum vissi eng- inn hvað þetta var en nú finnst mér eins og fólk sé að verða upp- lýstara um sjúkdóminn.“ Hvetja fólk til að klæð- ast gulu Morgunblaðið/Golli Gulur Landspítalinn hefur oft verið bleikur en verður nú gulur í tilefni fræðsluviku um endómetríósu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.