Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013 Það er með sorg í hjarta sem við kveðjum elsku Andra. Elsku því hann var ætíð svo ljúfur og hlýr í viðmóti. Honum var annt um fólkið í kringum sig og lagði sig fram við að rækta sambandið við vini sína og ættingja. Á ung- lingsárum Jakobs var Andri mik- ið með honum og vinum Jakobs, þegar hann passaði hann. Það var æðislegt að vera stóri bróðir hans því hann var alltaf svo góð- ur og áhugasamur að vera með stóru strákunum. Hann naut þess að fara í jeppaferðir með bræðrum sínum og ein eftir- minnileg ferð var með Binna bróður þar sem þeir fóru upp á hálendið. Andri tók með sér snjó- bretti og menn skemmtu sér vel í þeirri ferð. Andri var líka alltaf áhugasamur um vinnuna hjá Jakobi og kom þá oft á vinnu- staðinn og svo fór að hann byrj- aði að vinna með honum með skóla. Við minnumst einnig hjálpsemi Andra, en hann var ið- inn við að passa litlu frændur sína og vikuna áður en hann dó passaði hann vel upp á að litli frændi mætti í leikskólann þegar Jakob bróðir og Herdís vorum í útlöndum. Síðustu þrjú ár Andra voru honum erfið en stoð hans og stytta var Viktoría unnusta hans. Hann hafði hug á að halda skóla- göngu sinni áfram og stefndi á lögfræði í haust. Sorgin er mikil og missirinn sár og ótal spurn- ingar sem koma upp í hugann þegar svo ljúfur og fallegur drengur tekur þá ákvörðun að Andri Líndal Jóhannesson ✝ Andri LíndalJóhannesson fæddist 12. ágúst árið 1989 í Reykja- vík og lést þann 17. febrúar 2013. For- eldrar hans eru þau Ingigerður Jakobs- dóttir, f. 17. desem- ber 1952, og Jóhannes L. Brynj- ólfsson, f. 2. októ- ber 1952. Bræður hans eru Brynjólfur Líndal Jó- hannesson, f. 31. ágúst 1971, og Jakob Líndal Jóhannesson, f. 7. júní 1977. Unnusta Andra er Viktoría Dröfn Ólafsdóttir, f. 9. maí 1994. Útför Andra fer fram frá Víðistaðakirkju í dag, 1. mars 2013, og hefst athöfnin kl. 11. binda enda á líf sitt. Eitt stundarkorn sem breytir öllu. En það er eins og með svo margt annað í lífinu, að spurning- arnar verða oft fleiri en svörin sem maður fær. Minn- ingarnar um Andra verða að haldreipi í gegnum sorgina, því þær lýsa upp myrkrið sem nú umlykur mann. Það var nefnilega birta í brosinu hans Andra, gamansemi í hrekkjunum hans, ástúð í við- móti hans gagnvart öllu fólki og kærleikur í brjósti hans. Elsku Andri, minning þín er ljós í lífi okkar Mamma og pabbi munu ætíð varðveita minningu þína í hjarta sínu. Brynjólfur bróðir og Katherine, Jakob bróðir og Herdís. Andri Líndal er einhver ynd- islegasta manneskja sem við höf- um kynnst. Allt frá því að hann kom inn í líf okkar hlýjaði hann okkur með þeirri einstöku gleði og þægilegu nærveru sem fylgdi honum hvar sem hann kom. Hann var tíður gestur á Kær- leiksheimilinu en stoppaði oft stutt í senn, enda þurfti allt helst að vera á fullu í kringum Andra og því gafst yfirleitt lítill tími fyr- ir þau rólegheit sem einkenna Kærleiksheimilið að öllu jöfnu. Í einni af mörgum heimsókn- um hans rauk hann til dæmis á dyr án nokkurra skýringa til þess eins að snúa aftur skömmu síðar. Þá hafði honum blöskrað hvernig búið var um baðherberg- isgluggann á heimilinu, sem sjaldnast var hulinn nema með lítilli tusku, náð í verkfæra- töskuna sína og sett filmu í gluggann svo heimilismenn gætu baðað sig án þess að eyðileggja daginn fyrir nágrönnunum. Lengi verður svo í minnum höfð frábær frammistaða Andra á íþróttaleikunum sem við héld- um eitt sumarið á Þingvöllum. Lítið fór fyrir kappseminni enda sjaldnast í forgangi hjá Andra. Hann setti frekar púður í að skemmta okkur hinum og láta okkur hlæja og tókst það alltaf. Ég, Erling, gleymi aldrei ætt- armóti fyrir nokkrum árum í Reykholti. Eitt það fyrsta sem blasti þar við mér var Andri af öllum mönnum. Við föðmuðumst, eins og Andra var von og vísa, og spjölluðum um lífið og veginn í drykklanga stund þar til við fór- um báðir að spá í því hvað í ósköpunum við værum að gera á sama ættarmótinu. Kom þá í ljós að við vorum frændur ofan á vin- skapinn! Við höfðum báðir af- skaplega gaman af því og köll- uðum hvor annan alltaf frænda upp frá því. Við hefðum óskað þess að fá lengri tíma með Andra, að eldast með honum og öllum þeim uppá- tækjum sem hann hefði tekið upp á. Erling Reynisson, Daníel Kristinsson og Hafsteinn Hauksson. Til minningar um góðan dreng. Elsku Andri okkar er farinn! Söknuður, tómleiki og sorg. Að skrifa minningargrein um þig, elsku Andri, er eitthvað svo fá- ránlegt og óraunverulegt. Það virðist svo stutt síðan ég hitti þig fyrst, 7 ára, ótrúlega hress og glaður drengur með fallegu brúnu augun þín. Þú gafst mér blóm úr næsta garði og auðvitað fylgdi knús með, svo varst þú rokinn. Ég hlaut þau forréttindi að fylgjast með þér stækka og þroskast í fallegan og duglegan ungan mann, framtíðin virtist þín og svo ert þú farinn allt of fljótt. Í minningu okkar strákanna ert þú næstum alltaf brosandi og urðum við vön að fá það sem hér eftir mun kallast Andraknús þegar að við hittumst. Ég veit að afi Binni hefur tekið vel á móti þér og þú munt passa upp á og veita þeim styrk sem sakna þín og syrgja. Ég vil þakka þér fyrir að þú varst hluti af lífi okkar og fyrir að þú kysstir strákana bless á miðvikudaginn, það er þeim ómetanlegt og síðasta minning þeirra um þig. Minningin um þig mun lifa í hjörtum okkar allra. Söknuður sál mína kvelur minn kæri vinur þú ei lengur hér á jörðu dvelur þinni lífsgöngu ei ætlað var lengri veg sárt er því að taka vildi að þú værir ennþá hér. Nú þú leið þína hefur lagt yfir móðuna miklu með vissu ég veit þar þú mætt hefur móttökum góðum þar hlýtur nú að vera glatt á hjalla þannig ávallt það var er þú mættir með brosið þitt bjarta. Þú einstaka sál hafðir að geyma þér ég aldrei mun gleyma minningin um þig er björt og mikil hér á jörðu niðri hún áfram lifir í hjarta mínu þinn stað þú ætíð munt eiga. (Jónína Sesselja Gísladóttir.) Sólrún Björk, Óliver Líndal og Sölvi Líndal. Ég er gríðarlega stoltur af því að hafa átt þig sem vin, elsku Andri minn. Þú bjóst yfir svo fá- gætum hæfileikum og mannkost- um að það var bæði upphefð og forréttindi að hafa umgengist þig jafn mikið og ég var svo lánsam- ur að gera. Þú gast á svo óþving- aðan máta látið mér líða vel og gerðir líf mitt á allan hátt inni- haldsríkara og litríkara. Í söknuðinum er þó huggunar skammt að leita því að minning- arnar sem þú skilur eftir eru margar og hver annarri verð- mætari. Vinskapur okkar hófst í unglingadeild Setbergsskóla og vorum við ákaflega samrýndir allar götur síðan. Við deildum ekki alltaf sömu áhugamálum eða lífsskoðunum en í þér sá ég frá upphafi eiginleika sem ég vildi tileinka mér. Þú varst miklu innilegri en flest fólk og þú hafð- ir einlægan áhuga á fólkinu í kringum þig. Þú tókst alltaf utan um mig þegar við hittumst og í seinni tíð dugði ekkert minna en koss á munn, sérstaklega ef lengra en nokkrir dagar voru liðnir frá síðasta fundi. Þá hafðir þú dásamlega skemmtileg tök á íslenskri tungu og beitir þeirri kunnáttu óspart, bæði til að kasta á mig kveðju en einnig í góðu gríni sem þá var flestum nema mér til skemmtunar. Þegar við höfðum aldur til fór- um við að ferðast um landið og eru margar mínar bestu minn- ingar tengdar þessum ferðum, þá sérstaklega þær sem við lögð- um í þinn síðasta vetur. Varð þér tíðrætt um mikilvægi þess að fjárfesta í almennilegum jeppa í hvert skipti sem við sátum fastir, sérstaklega í ljósi þess hve nei- kvæð áhrif slíkt athæfi hafði á veiðidaga okkar. Hins vegar varst þú það mikill dýravinur að ég hef grun um að þú hafir bara verið því feginn hversu lítið oft- ast veiddist. Síðasti dagurinn okkar saman, sem jafnframt var sá síðasti sem þú upplifðir á þessari jörð, verð- ur mér þó eftirminnilegastur allra. Við grilluðum lambalæri í holu fyrir utan Gufuhlíðina, stað- ráðnir í að bæta upp fyrir fyrri axarsköft í þeim efnum, og eins og fyrir guðlega forsjá varð út- koman himnesk. Við hnupluðum gúrkum úr gróðurhúsi fjölskyld- unnar og síðan útlistaðir þú hug- myndir þínar um framtíðarupp- byggingu íbúðarhússins sem þér var svo hugleikið. En þakklát- astur er ég fyrir að alveg fram í andlátið varstu sami góði vinur- inn sem fékk mig alltaf til að brosa. Ég elska þig, kæri vinur – ég vildi bara að ég hefði sagt þér það oftar. Búi Steinn Kárason. Elsku besti Andri okkar, það er skrítin tilfinning að upplifa að þú sért farinn frá okkur. Dofinn og sársaukinn er of mikill til þess að við getum áttað okkur vel á því, sárt og erfitt að trúa því að við höfum fengið okkar síðasta Andraknús. Síðustu daga höfum við hugsað fallega til fjölskyldu þinnar og rifjað upp okkar uppá- haldsstundir með þér. Þær eru nú ansi margar sögurnar sem við eigum með þér, enda varstu löngu orðinn hluti af okkar fjöl- skyldu. Þegar þú og Hreinn urð- uð vinir, bræddirðu okkur strax. Húmorinn þinn var einn sá skemmtilegasti og gátum við hlegið með þér tímunum saman. Okkur er það mjög minnisstætt þegar þú komst á afmælinu þínu upp í sveit til okkar og við borð- uðum saman humar í tonnatali og hlógum að sjálfsögðu í marga klukkutíma saman. Stundir eins og þessa munum við alltaf geyma í minningunni. Mikið erum við þakklát fyrir að hafa kynnst þér og fengið að taka þátt í lífi þínu. Þú munt ávallt eiga stað í hjarta okkar. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem) Fjölskyldan á Móbergi 10, Guðlaugur, Björk, Arna, Hilmar og Viktor. Elsku besti Andri minn. Það er erfitt að hugsa til þess að þú sért farinn frá okkur alltof snemma. Það rifjast upp fyrir mér sá tími sem við kynntumst, ég var nýkominn heim af sjúkrahúsinu og þú gafst þér tíma á hverjum degi til að koma í heimsókn til mín. Frá þeirri stundu urðum við bestu vinir og óaðskiljanlegir. Þetta lýsir þér best, tilbúinn að gera allt fyrir alla. Hugmynda- flug þitt gerði hvern dag hjá okk- ur að ævintýri. Allar hugmyndir þínar urðu að veruleika, það var ekkert sem stoppaði það. Ég á svo margar ógleymanlegar minningar um þig og allir sem þekktu þig eiga það líka. Þú varst besti vinur sem maður get- ur átt og það er erfitt að hugsa sér lífið án þín, því munu minn- ingarnar lifa í hjartanu mínu. Ég er svo þakklátur fyrir að hafa kynnst þér og þinni fjölskyldu. Ég mun alltaf elska þig, Andri minn, og vona að þú sért kominn á betri stað. Þinn besti vinur, Hreinn Guðlaugsson. Mér þótti svo ótrúlega vænt um þennan litla fjörkálf sem ég var að passa á Kató í gamla daga og allt í einu var orðinn fullorð- inn maður. Þegar ég hitti hann um daginn svo glaðan og kátan grunaði mig ekki að það yrði í síðasta sinn. Í minningu þessa góða drengs ætla ég að láta þessar ljóðlínur eftir Braga Valdimar fylgja: Sérhver draumur lifir aðeins eina nótt sérhver alda rís en hnígur jafnan skjótt hverju orði fylgir þögn og þögnin hverfur alltof fljótt. En þó að augnablikið aldrei fylli stund skaltu eiga við það mikilvægan fund ✝ Jóhanna Þor-leifsdóttir fæddist í Arn- ardal, Norður- Ísafjarðarsýslu, 20. júní 1929. Hún lést 20. febrúar 2013. Jóhanna var dóttir Þorleifs Þorleifssonar út- vegsbónda f. 1895, d. 1984 og Stef- aníu Mörtu Guðmundsdóttir húsfreyju f. 1907, d. 1983. Systkini Jóhönnu voru 8 alls og eru tvær systur eftirlifandi, Aðalheiður f. 1928 og Guð- finna f. 1940. Jóhanna giftist 22.12. 1957 Gunn- ari Gunnarssyni f. 22.12. 1931, d. 3.7. 2002. Foreldrar hans voru Gunnar Lárentíus Guð- mundsson bóndi f. 1897, d. 1988 og Guðríður Guð- mundsdóttir hús- freyja f. 1899, d. 2000. Börn Jó- hönnu og Gunnars eru: 1) Sigurður Grétar f. 26.9. 1951, kvæntur Kristjönu Björk Þórarinsdóttur og eiga þau 3 börn og 9 barnabörn. 2) Sig- urlín f. 7.11. 1956, gift Eiríki Jónssyni og eiga þau 4 börn og 5 barnabörn. 3) Þór Arnar f. 27.7. 1960, kvæntur Björgu Agnarsdóttur. 4) Gunnar Rún- ar f. 18.2. 1967, kvæntur Sig- ríði Dagnýju Þrastardóttur og eiga þau 5 börn. Jóhanna var barnung send í fóstur hjá móðurforeldrum sínum, þeim Guðmundi Guð- mundssyni, bónda á Gelti í Súgandafirði, og konu hans Sigríði Magnúsdóttir hús- freyju. Jóhanna flytur suður um tvítugsaldur og kynnist þá verðandi eiginmanni sínum og hefja þau búskap á Akranesi og bjuggu þar nánast allan sinn búskap fyrir utan um 15 ár er þau héldu bú að Lamb- haga í Borgarfirði. Síðustu ár sín var Jóhanna búsett á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða. Útför Jóhönnu fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 1. mars klukkan 14. Elsku besta amma mín, núna ertu búin að kveðja okkur. Það er svo óraunverulegt að sitja hérna og skrifa minningargrein um þig, þín er sárt saknað. Ég man svo ótal stundir með þér. T.d. þegar ég var lítil þá labbaði ég heim eftir skóla og kom yfirleitt við hjá ykkur afa. Þú tókst á móti mér, oftast búin að baka brauð og búa til rúllu- pylsu sem ég alveg elskaði, og þú gafst mér oft nýtt brauð og rúllupylsu til að taka með heim. Ég man þegar ég gisti hjá ykkur afa og ef ég varð myrk- fælin var afi sendur í annað her- bergi svo ég gæti verið hjá þér. Þú sagðir mér alls konar sögur þar til ég sofnaði þótt þú værir hálfsofandi við að segja sögurn- ar. Ég hugsa oft til þegar þú varst að brýna fyrir mér ýmsar forvarnir t.d. að ég mætti aldrei þiggja far með ókunnugum því þar gætu verið slæmir aðilar á ferð sem myndu þess vegna bara stela mér. Ég tók þig á orðinu og ég hef aldrei þegið far með ókunnugum og brýni þetta fyrir mínum börnum. Þú ræddir oft við mig að ég skyldi aldrei prufa fíkniefni og ég skyldi gæta mín á hinum ýmsu hættum í líf- inu og ég bar alltaf virðingu fyr- ir því sem þú sagðir við mig og ég er þér þakklát fyrir það. Þú varst alltaf til í að hlusta á mig og það var svo gott að eiga þig að. Ég man þegar mig lang- aði í pitsu þegar ég var ung en var alltof feimin til að panta hana sjálf, þú sagðir að ég fengi pitsu ef ég myndi hringja sjálf og þú settir símann inn í for- stofu ásamt stól og ég átti bara að taka mér þann tíma sem ég þyrfti sem tókst á endanum og ég var mjög stolt af mér að hafa pantað þessa pitsu sjálf. Ég á svo ótal minningar um okkar spjall, þú varst svo vel lesin að þú varst inni í öllu hvort sem það voru unglingamál eða hvað sem var annað. Svíþjóðar ferðin með þér til Sillu og fjöl- skyldu var ógleymanleg, ég man þegar ég komst í tölvu þar og spilaði tölvuleik í marga tíma og fékk svo martröð um nóttina þar sem ég sá bara tölvukalla. Þú passaðir svo vel upp á mig þá nótt, mér fannst ég alltaf svo örugg með þér. Amma mín, þú varst svo gull- falleg kona bæði að innan sem utan og hugsaðir mikið út í fal- lega hluti, það var eitt af þínum áhugamálum. Ég á enn þá leð- urjakkann sem þú gafst mér þegar ég var unglingur sem þú áttir þegar þú varst ung. Ég held ég hafi mátað hann nánast í hvert skipti þegar ég kom í heimsókn til þín þar sem mér fannst hann svo fallegur og á endanum þá gafstu mér jakk- ann. Allar myndir sem ég málaði og teiknaði þegar ég var lítil fyr- ir ykkur afa hengdir þú inn í skáp inn í eldhúsi sem mér þótti alltaf svo vænt um. Eins þegar ég vildi fara að breyta herberg- inu mínu í unglingaherbergi bauðst þú til að geyma allt bar- bie-dótið mitt, ég var með hálf- gert dótaherbergi hjá þér sem vinkonurnar vissu ekki af og ég kom oft heim til þín að leika mér í leyni í barbie. Síðan léstu mig hafa dótið eftir að ég eignaðist mitt fyrsta barn. Ég gæti skrif- að ótal minningar um þig, amma, en í staðinn geymi ég þær í hjarta stað. Nú kveð ég þig, elsku amma mín, og vona að afi sé búin að finna þig. Þín, Anna María Sigurðardóttir. Elsku amma Jóhanna, það er ótrúlegt að hugsa til þess að þú sért ekki lengur hjá okkur. Það er svo skrítið að hugsa til þess að við eigum ekki eftir að sjá þig aftur. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Minning þín mun lifa í huga okkar og eigum við margar góð- ar minningar um þig og afa Gunnar. Ófáar eru minningarnar sem við eigum og getum við nefnt þegar þið fóruð í ferðalög með okkur barnabörnin, hring- inn í kringum landið, til Akur- eyrar og sumarbústaðarferðir. Þú elskaðir sólina og um leið og það kom sól varstu farin út í sól- bað. Þú sagðir að þú værir svona dökk því þú værir fran- skættuð langt aftur í ættir. Þú fórst líka reglulega til sólarlanda þegar þú varst við betri heilsu, þú varst alltaf voða falleg og brún. Jóhanna Þorleifsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.