Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 11
Ljósmynd/Örlygur Hnefill Örlygsson Á sviði Daníel Smári kann vel við sig á sviðinu og hér fagnar hann á Tónkvíslinni 2013. er ekki frá því að ég hafi fengið þrjár ímyndunarhálsbólgur.“ Daníel er sviðsvanur því hann er söngvari í hljómsveitinni sem spilaði undir í keppninni. „Ég vissi að ég gæti treyst þeim og það dró úr stressinu. Hljómsveitarmeðlimir eiga mikið hrós skilið fyrir frábæra frammi- stöðu í keppninni allri.“ Daníel segist ekki plana framtíðina langt fram í tímann, en hann voni að hann verði sem lengst í hljómsveitinni. „Mér finnst rosalega gaman að syngja og auðvitað er það draumurinn að geta eitthvað gert með þetta í framtíðinni. Það kemur bara í ljós,“ segir Daníel sem hefur einnig sungið heilmikið með leikdeild Eflingar fyrir norðan. Tárhrein rödd Gabríela Sól, systir Daníels, stóð uppi sem sigurvegari í söng- keppni grunnskóla á norðausturhorni Íslands sem haldin er í tengslum við Tónkvíslina og fór fram sama kvöld á sama stað. Gabríela er 14 ára og hún er í ní- unda bekk grunnskólans á Vopnafirði. „Þetta var ótrúlega gaman og frábært að standa við hlið Daníels í úrslit- unum. Þetta er líka dýrmæt reynsla fyrir mig að standa á sviði og syngja fyrir fimm hundruð manns,“ segir Gabríela sem tók nú þátt í keppninni í þriðja sinn, en í fyrra lenti hún í öðru sæti. Hún hefur afar háa og tár- hreina rödd og hún valdi lag þar sem rödd hennar nýtur sín vel. Hún seg- ist hafa valið lagið Titanium, með Boyce Avenue af því að það er eitt af hennar uppáhaldslögum. „Mér finnst gaman að syngja þetta lag og ég æfði mig heilmikið heima. Svo voru æfingar fyrir keppnina með hljómsveitinni. Ég væri alveg til í að gera eitthvað meira með sönginn. Mig langar að fara í framhaldsskól- ann á Laugum þegar ég verð búin með tíunda bekk, og þá keppi ég örugglega í Tónkvíslinni.“ Háværir foreldrar Þegar Dagný Sigurjónsdóttir, móðir Daníels og Gabríelu, er spurð hvaðan afkvæmin hafi sönghæfileik- ana, segir hún að vissulega séu þau foreldrarnir frekar hávær. „Hér á heimilinu hefur alltaf verið hlustað mikið á tónlist. Við erum bæði í kór, ég syng í kirkjukórnum og Magnús pabbi þeirra er í karlakór Vopna- fjarðar. Föðuramma þeirra syngur í þremur kórum. Ætli þetta sé ekki í genunum.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013 Verð kr. 7.950 Verð kr. 12.000 Verð kr. 10.500 Verð kr. 6.600 Verð kr. 4.900 Verð kr. 5.300 Verð kr. 6.400 LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 - SPÖNGIN GRAFARVOGI - SÍMI 577 1660 Gjafir sem gleðja vere i Kardemomme by sem kom út árið 1955. Æfingar hafa staðið yfir frá ára- mótum og um fimmtíu manns, á aldr- inum 5 til 71 árs hafa komið að vinnunni. Kardimommubærinn var einnig settur upp hjá Leikfélagi Fljótsdals- héraðs árið 1993, þá í leikstjórn Guð- jóns Sigvaldasonar, og á sú sýning enn aðsóknarmet hjá félaginu. Möguleiki er á áframhaldi eftir páska, ef vel gengur. Miðapantanir eru í síma 867 1604. Ókeypis er á sýninguna fyrir börn undir tveggja ára. Rán Kasper, Jesper og Jónatan. Tónkvíslin er stór keppni í alla staði. Í Laugaskóla eru 100 manns, atriðin voru 30 og áhorf- endur í sal voru 500, þeir fylltu Íþróttahöllina á Laugum. Í ár var 8 véla HD-upptaka af keppninni og komu nemendur skólans að allri tæknivinnu með fagmönn- um, en Hlynur Þór Jensson, útsendingarstjóri hjá RÚV, var ráðinn til að hafa yf- irumsjón með tækni- málum og námskeiði í tæknivinnslu fyrir sjón- varp. Allir nemendur skólans taka áfanga sem tengist ut- anumhaldi við- burðarins og læra þannig við- burðastjórnun, tæknivinnu, kynningarstörf og skipulagn- ingu. Tónkvíslin 2013 8 VÉLA HD-UPPTAKA Maðurinn er skrýtinskepna. Á fyrstu árumævi sinnar fær hanneinlæga ánægju úr því að raða púslum á réttan stað, móta form úr kubbum og spila samstæðu- spil. Síðar meir finnum við þessum hvötum farveg með því að litaflokka þvottinn, raða geisladiskunum í staf- rófsröð eða ráðstafa hverri klukku- stund í Google calendar. Kaótíkin er það sem gerir mann- eskjuna fallega en samt leitum við sí- fellt leiða til að hemja óreiðuna. Við reynum að beisla þær hvatir okkar sem við höfum ákveðið að séu óæski- legar, við fellum okkur að reglum samfélagsins og högum okkur eftir óljósri forskrift. En við látum ekki staðar numið við flokkun og tiltekt hjá okkur sjálfum. Til að greiða úr óreiðunni sem ríkir annars staðar grípum við til þess ráðs að raða öðrum manneskjum í flokka. Það eru til skrilljón leiðir til að skipa manneskjum í hópa; þær vinsælustu eru kyn, þjóðerni, ald- ur og stétt. Stjórnmálaskoðanir, klæðaburður og útlit koma líka sterk inn. Við skipum fólki í skúffur og þegar manni hef- ur einu sinni verið útdeilt hólf í týpu- safninu er ómögu- legt að komast þaðan. Mín kynslóð hefur til að mynda smíðað ramm- gerðar skúffur sem eru merktar skinkum, hnökkum, vatns- greiddum stuttubuxna- strákum og listhneigðum latté-lepjurum. Skúffurnar eru fleiri en flokkunin í þær er nánast end- anleg. Það er lítið rúm til að brjótast út úr því móti sem samfélagið hefur skipað manni. Það vekur ugg þegar í ljós kemur að Hverfisbarsskinkan er með gráðu í bókmenntafræði eða að latté-lepjarinn kjósi Sjálfstæðisflokk- inn. Við verðum hreinlega sjóveik þegar smjörkúkar úr Garðabæ láta sjá sig á málverkaopnunum. Þetta er enn ein leiðin til að henda reiður á havaríinu sem einkennir manneskjuna. En í allri flokk- unargleðinni gleymist að líta til þess að við erum öll mótuð úr sama leirnum, óreiðukenndar og gallaðar manneskjur. Miklu fleira sameinar okkur en greinir okkur í sundur og það er öllum hollt að endurinnrétta hirslurnar sínar af og til. Gerum stórtæka vorhreingerningu í hjartanu, hendum hólfunum í ruslið og leyfum staðaltýp- unum að sigla sinn sjó. »Mín kynslóð hefurtil að mynda smíðað rammgerðar skúffur sem eru merktar. HeimurGuðrúnar Sóleyjar Guðrún Sóley Gestsdóttir gudrunsoley@mbl.is Bretta- og tónlistarviðburðurinn Mintan 2013 sem átti að vera í Blá- fjöllum á morgun laugardag, verður vegna snjóleysis fluttur í miðbæinn. Við gamla Gaukinn Tryggvagötu verð- ur nýsmíðuð „jibb braut“ með snjó sem sóttur verður í Bláfjöll. Í braut- inni munu bestu brettamenn lands- ins sýna listir sínar. Dj og léttar veit- ingar. Tónleikar á Gauknum um kvöldið með Agent Fresco, Úlfur Úlfur og Emmsjé Gauta. Endilega... ...kíkið á bretta- fjör í bænum Morgunblaðið/Árni Sæberg Emmsjé Gauti Spilar í kvöld.  Frumsýning: laugardaginn 2. mars kl. 15  Önnur sýning: miðvikudaginn 6. mars kl. 18  Þriðja sýning: laugardaginn 9. mars kl. 15  Fjórða sýning: miðvikudaginn 13. mars kl. 18  Fimmta sýning: fimmtudaginn 14. mars kl. 18  Sjötta sýning: þriðjudaginn 19. mars kl. 18 SÝNINGAR Í VALASKJÁLF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.