Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 18
Pétur Einarsson Jakob Ásmundsson Stjórn Straums fjárfestingarbanka hefur ákveðið að Jakob Ásmundsson taki við starfi forstjóra bankans og var starfsfólki kynnt það í upphafi starfsdags. Pétur Einarsson, sem gegnt hefur starfi forstjóra síðan 2011, hefur lát- ið af störfum. Í tilkynningu segir, að Pétur hafi stjórnað árangursríku uppbyggingarstarfi Straums á liðn- um misserum og sé honum þakkað fyrir framlag sitt. Fyrrverandi for- stjóri og stjórn bankans séu sam- mála um að umfjöllun er varðar lok viðskipta hans í Bretlandi kynni að skaða hagsmuni Straums. Því hafi verið ákveðið að bregðast við með framangreindum hætti. Í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í gær var greint frá því að Pétur hefði gert samkomulag við bresk yfirvöld um að hann stjórni ekki fyrirtæki þar í landi næstu fimm árin vegna vangoldinna skatta. Jakob Ásmundsson, sem verið hef- ur framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Straums að und- anförnu, er 38 ára að aldri, doktor í iðnaðarverkfræði frá Purdue- háskóla í Bandaríkjunum. Hann réðst til Straums á árinu 2005 sem framkvæmdastjóri áhættustýringar. Jakob hefur gegnt ýmsum fram- kvæmdastjórastöðum hjá Straumi á liðnum átta árum, samkvæmt frétta- tilkynningu frá Straumi. Forstjóra- skipti hjá Straumi  Stjórnin ákvað breytinguna í gær 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013 Hörður Ægisson hordur@mbl.is Fjölmiðlasamsteypan 365 miðlar þarf ekki að reiða fram banka- ábyrgð né stóran hluta af kaup- verðinu fyrirfram fyrir útsending- arréttinn að enska boltanum næstu þrjú tímabilin. Þetta segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, í samtali við Morgun- blaðið. Hann segist ekki geta tjáð sig um verðið fyrir útsendingar- réttinn, en frá því hefur verið greint í Viðskiptablaðinu að þrír að- ilar, meðal annars 365 og Skjárinn, hafi tekið þátt í útboði um enska boltann og áttu 365 miðlar hæsta tilboðið, sem ekki var undir einum milljarði króna. Niðurstaða útboðs- ins hefur ekki enn verið kynnt op- inberlega og er nú í gildi kyrrstöðu- samningur meðan gengið er frá ýmsum fjárhaglegum þáttum samningsins. Ari upplýsir að samkvæmt al- mennum fjárhagslegum skilyrðum í útboðinu sé meðal annars gert ráð fyrir því að sú staða geti komið upp að krafist sé bankaábyrgðar og að greidd séu 60% af kaupverðinu fyr- ir öll þrjú tímabilin fyrir 1. júní næstkomandi. „Ég hafði hins vegar gengið frá því við Premier League með sér- stökum samningi,“ útskýrir Ari, „að ef til þess kæmi að enski bolt- inn yrði áfram hjá 365 þá yrði greiðslufyrirkomulagið með sama hætti og verið hefur,“ segir Ari, en 365 miðlar hafa fram til þessa „bara borgað hvert ár fyrir sig“. Takist samningar milli 365 miðla og Pre- mier League um útsendingarrétt- inn að enska boltanum þá verður engin breyting á í þeim efnum. Að sögn Ara mun Premier League jafnframt ekki gera kröfu um bankaábyrgð frá 365 miðlum. „Það væri hvort eð er til einskis enda getum við ekki útvegað bankaábyrgð frá erlendum banka,“ segir Ari, en samkvæmt almennum skilyrðum í útboðinu var gert ráð fyrir að slík bankaábyrgð yrði fengin frá fjármálastofnun með starfsemi á Bretlandi. „Við höfum haft enska boltann til margra ára og njótum mikils trausts hjá þeim aðilum sem selja réttinn.“ Aðspurður vill Ari ekkert tjá sig um það hvort fyrirtækið sé ekki að taka talsverða áhættu með því að bjóða ekki undir einum millj- arði króna fyrir útsendingarrétt- inn. Hann bendir afur á móti á að fyrirtækið hafi „miklar tekjur af enska boltanum, enda sé hann stór hluti af starfsemi þess“. Áskrifendum hefur fækkað Viðmælendur Morgunblaðsins sem þekkja vel til á þessum mark- aði telja þó að það gæti reynst þrautin þyngri fyrir 365 miðla að fá nægjanlegar tekjur af enska bolt- anum til að mæta þeim mikla kostnaði sem mun fylgja því að hafa tryggt sér útsendingarréttinn til næstu þriggja ára. Sú afstaða byggist ekki síst á þeirri staðreynd að þróunin hefur verið sú á undan- förnum árum að áskrifendum að enska boltanum hefur fækkað nokkuð. Hægara sagt en gert gæti verið að snúa þeirri þróun við. Engin bankaábyrgð eða fyrirframgreiðsla  365 miðlar buðu ekki undir milljarð fyrir enska boltann Morgunblaðið/Sverrir Boltinn „Við höfum haft enska boltann til margra ára og njótum mikils trausts hjá þeim aðilum sem selja réttinn,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365. Keppt um boltann » 365 miðlar áttu hæsta boðið fyrir útsendingarréttinn að enska boltanum næstu þrjú tímabil. » Forstjóri 365 segir að fyrir- tækið þurfi ekki að reiða fram bankaábyrgð eða greiða stóran hluta kaupverðsins fyrirfram. » Kaupverðið var ekki undir einum milljarði króna. ● Róbert Guð- finnsson fjárfestir hlaut í gær verð- laun frá Nýsköp- unarmiðstöð Ís- lands fyrir brautryðj- endastarf á Siglu- firði. Meðal verk- efna sem Róbert hefur komið að á Siglufirði er upp- bygging á veitingasölu og samkomu- húsum í gömlum stíl í bænum, en einnig var nýlega hafist handa við uppbyggingu hótels þar við höfnina. Þá eru uppi áform um að byggja lyfjaverksmiðju í húsnæði bátaverk- smiðjunnar, nýjan golfvöll og bæta skíðasvæði bæjarins. Verðlaun fyrir nýsköpun Róbert Guðfinnsson ● Í janúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 55,7 milljarða króna og inn fyrir 44,2 milljarða króna. Vöruskiptin í jan- úar voru því hagstæð um 11,6 millj- arða króna en voru hagstæð um 0,5 milljarða í janúar 2012 á gengi hvors árs. Sjávarafurðir voru fluttar út í janúarmánuði fyrir tæplega 20,7 millj- arða króna og iðnaðarvörur voru flutt- ar út fyrir tæplega 32,5 milljarða króna, samkvæmt frétt Hagstofunnar. Vöruskipti hagstæð um 11,6 milljarða króna Stuttar fréttir…                                          !"# $% " &'( )* '$* +,-.-/ +01./ +,,.-2 ,,.1-3 ,+.024 +0./-3 +5/.3- +.52, +40.02 +2/./3 +,-.4/ +01.42 +,,.0, ,,.+,, ,,.155 +0.-+/ +5-.+5 +.522 +01.-5 +2/.05 ,,/.-+12 +,2.+/ +0+.5, +,5.,4 ,,.+43 ,,.104 +0.-3+ +5-.-+ +.53 +0+.+ +2-.50 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi fyrir Dýrfisk hf. í Dýra- firði. Um er að ræða starfsemi sem hefur verið rekin í firðinum í nokk- ur ár. Á þeim tíma var fyrirtækið með starfsleyfi frá heilbrigð- isnefnd og undir mengunarvarna- eftirliti frá Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða. Flutningur á starfsleyfinu yfir til Umhverfisstofnunar kemur til vegna þess að reksturinn hefur aukist og hefur farið upp fyrir há- marksstærð (200 tonna framleiðslu á ári) sem heilbrigðisnefndir mega veita starfsleyfi fyrir. Meðan unnið var að gerð starfsleyfis fór rekst- urinn reyndar yfir framleiðslu- mörkin en rekstraraðili fékk tíma- bundna undanþágu til þess frá umhverfisráðuneytinu. Þetta kemur fram í frétt á vef Umhverfisstofnunar. Þar kemur jafnframt fram að rekstraraðili fær með starfsleyfinu heimild til að framleiða allt að 2.000 tonn samtals af regnbogasil- ungi eða laxi á ári í sjókvíum í Dýrafirði. Starfsleyfið öðlast þegar gildi og gildir til 28. febrúar 2029. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fiskeldi Dýrfiskur má framleiða 2.000 tonn af laxi og regnbogasilungi. Dýrfiskur má fram- leiða 2.000 tonn á ári

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.