Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013 Gleði Það var margt um manninn á árlegu þorrablóti og góugleði hjá ORG ættfræðiþjónustu í gær. Að sögn eigandans Odds F. Helgasonar ríkti þar góð stemning, eins og ætíð. Árni Sæberg Það felst engin einangr- unarhyggja í því að vilja ekki að Ísland gangi í Evrópusam- bandið. Alls ekki. En sú skoðun að aðild að Evrópusambandinu sé forsenda alþjóðlegs sam- starfs, lýsir á hinn bóginn ótrú- legri einsýni. Við Íslendingar tökum þátt í margvíslegu al- þjóðlegu samstarfi. Bæði vegna þess að það er okkur í hag en einnig vegna þess að við teljum að slíkt alþjóðlegt sam- starf sé almennt til góðs fyrir heimsbyggð- ina. Evrópa er langstærsta viðskiptasvæði okk- ar. Evrópsk viðhorf lita að margvíslegu leyti grunngildi sem okkar samfélags. Við erum Evrópubúar og höfum aldrei þurft að færa sérstaklega heim sanninn fyrir því. Gagn- stætt til að mynda ýmsum ríkjum í aust- anverðri álfunni, sem hafa verið á ýmsum tímum þvinguð til þess að taka sér stöðu með hinum voldugu Sovétríkjum og Rússlandi. Sú sögulega, hernaðarlega og pólitíska stað- reynd átti til að mynda mikinn þátt í áhuga þessara ríkja margra á að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Þessu kynntist ég meðal annars á sínum tíma, þegar við þáverandi fulltrúar utanríkismálanefndar Alþingis sótt- um Pólland heim, í aðdraganda aðildar lands- ins að Evrópusambandinu. Við eigum val Þessar aðstæður allar þurfum við að hafa í huga þegar við ræðum stöðu okkar í Evrópu. Við búum að þeirri blessun að eiga val, gagn- stætt ýmsum þjóðum. Við hljótum því að taka afstöðu til málsins í ljósi hagsmuna okkar, hugmynda okkar um fullveldi og þeirrar stöðu sem við viljum skipa okkur í samfélagi þjóðanna. Við erum frjáls að því að velja okkur leið, án utanaðkomandi þvingana. Og við getum haft áhrif og styrkt stöðu okkar, í góðu sam- starfi við Evrópusambandið án aðildar, á grundvelli EES-samningsins. Tillaga um að fara aðrar leiðir Þetta er kjarni þingsályktunartillögu sem ég var fyrsti flutningsmaður að á Alþingi ásamt 13 öðrum þingmönnum, sem nú sitja í þremur þingflokkum. Tillagan var svohljóð- andi: „Alþingi ályktar að efla beri þátttöku stjórnmálamanna og embættismanna í hags- munagæslu tengdri Evrópusamstarfi með það að markmiði að auka áhrif Íslands á mót- un og töku ákvarðana á vettvangi Evrópu- samstarfs.“ Nú hefur þessi tillaga verið afgreidd sam- hljóða, með svohljóðandi hætti: „Alþingi ályktar að efla beri þátttöku stjórnmála- manna og embættismanna í hagsmunagæslu tengdri Evrópusamstarfi með það að mark- miði að auka áhrif Íslands á ákvarðanir á vettvangi Evrópu- samstarfs.“ Valkostur við ESB-vegferðina Þetta eru talsverð tíðindi. Hér er Alþingi að segja með skýrum hætti, að við getum haft meiri áhrif í samstarfi við ESB. Þessi tillaga sem hér hefur verið af- greidd felur í sér raunverulegan valkost við þá vegferð sem á að enda inni í Evrópusambandinu. Tillagan sem um ræðir byggir algjörlega á niðurstöðu nefndar allra þáver- andi þingflokka sem Björn Bjarnason þáver- andi dómsmálaráðherra leiddi og skilaði nið- urstöðu vorið 2007 og ég átti meðal annars sæti í. Nefndin lagði fram ítarlegar tillögur um „að Ísland leggi áherslu á aukna þátttöku stjórnmálamanna og embættismanna í hagsmunagæslu tengdu Evrópusamstarfi, með það að markmiði að auka áhrif Íslands á mótun og töku ákvarðana á þessum vett- vangi“. Klár stefnumótun Alþingis um styrkingu EES-samstarfsins Síðan hefur ýmislegt gerst. Áhersla beggja núverandi ríkisstjórnarflokka hefur á hinn bóginn gert það að verkum að lítil rækt hefur verið lögð við þessa aðferð sem nefnd Björns Bjarnasonar setti fram. Þess í stað hefur allt stefnt í eina átt; í átt til aðildar að ESB. Núna þegar það mál er allt komið í hreint óefni, er mjög brýnt að við hyggjum að öðr- um leiðum, sem þjóni hagsmunum okkar sem þjóðar, stuðli að áframhaldandi góðum sam- skiptum og blómlegum viðskiptum við ríki ESB, en tryggi um leið meiri áhrif okkar á stefnumótun og ákvarðanir innan bandalags- ins. Sú leið er fær og hún er gerleg, eins og sést á tillögunum frá 2007, sem Alþingi hefur nú samþykkt. Í þessari samþykkt Alþingis felst mjög skýr stefnumótun og valkostur við ESB- aðildina. Áköfustu talsmenn ESB, svo sem utanríkisráðherrann, hafa fundið EES- samstarfinu flest til foráttu. Nú hefur Alþingi talað einum rómi með skýrum hætti um að við eigum að nýta okkur kosti EES- samningsins til frekari áhrifa og styrkja það samstarf. Þetta eru því talsverð tíðindi á sama tíma og ríkisstjórnin vill greinilega stefna í allt aðra átt, út úr EES-samstarfinu og inn í ESB. Eftir Einar Kristin Guðfinnsson » Í þessari samþykkt Alþing- is felst mjög skýr stefnu- mótun og valkostur við ESB- aðildina. Einar Kristinn Guðfinnsson Höfundur er alþingismaður. Aukin áhrif í Evrópusamstarfi Fjölmennur landsfundur Sjálfstæðisflokksins síðustu helgi heppnaðist afar vel og gaf tóninn fyrir kosningabaráttuna sem fram undan er. Sjálfstæðisflokk- urinn gengur til kosninga með skýra og raunhæfa stefnu í öllum málaflokkum frá landsfundinum. Stefnu sem tekur á vanda heim- ilanna í landinu og blæs krafti í atvinnulífið á ný. Ég vil þakka þeim 1.700 landsfundarfulltrúum, sem tóku þátt í að móta og skerpa á stefnu Sjálfstæðisflokksins, þeirra óeig- ingjarna starf þessa fjóra daga sem landsfund- urinn stóð. Í þágu heimilanna Á þessu kjörtímabili hefur verið herjað á heimilin í landinu. Mikill samhljómur var um það á landsfundinum að allar aðgerðir sem ráð- ist yrði í á næsta kjörtímabili yrðu í þágu heim- ilanna. Þær snúa helst að eftirfarandi:  Að ráðast að rót vanda íslenskra heimila með skulda- og skattalækkunum.  Að breyta umhverfi lánamála þannig að húsnæðis- og neytendalán séu almennt ekki verðtryggð.  Að auka verðmætasköpun í íslensku at- vinnulífi.  Að stuðla að efnahagslegum stöðugleika og afnema gjaldeyrishöft.  Að sýna ábyrgð og bæta opinberan rekst- ur, lækka skatta og endurskoða bótakerfi.  Að tryggja grunnþjónustu fyrir alla lands- menn og standa vörð um velferðina Með sérstökum skattaafslætti vegna afborg- ana af húsnæðislánum skal létt undir með fjöl- skyldum sem orðið hafa fyrir verðbólguskotum og eignaverðslækkunum. Fólk á jafnframt að fá val um að ráðstafa þeim fjármunum sem ella færu í séreignar- sparnað beint inn á húsnæðislán með fullum skattaafslætti. Það mun lækka afborganir af skuldum og hraða eignamyndun. Fráfarandi ríkisstjórn hefur fyrst og fremst valið leið skatta- og gjaldahækkana í þeirri við- leitni að loka fjárlagagatinu. Þrátt fyrir að hafa gengið lengra en nokkurn gat órað fyrir í þess- um efnum hefur fjárlagagatinu þó enn ekki ver- ið lokað. Ástæðan er sú að þessi stefna hefur virkað hamlandi á hagvöxt sem hefur verið langt undir því sem nauðsynlegt er. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins kvað skýrt á um að hverfa frá þessari skattastefnu. Við ætlum að taka tekjuskattskerfið til endur- skoðunar, lækka skatta og einfalda skattkerfið með afnámi þriggja þrepa kerfis. Með þessu mun krónunum fjölga í launaumslaginu. Aðrir skattar og gjöld, t.d. eldsneytisgjöld, verða lækkuð. Fyrir fyrirtækin er rétt að byrja á trygg- ingagjaldinu og lækka það. Með trygginga- gjaldinu eru fyrirtæki skattlögð fyrir að ráða fólk til vinnu, þegar fátt er mikilvægara en að fjölga störfum. Nú er staðan sú að með um það bil hverjum tíu starfsmönnum sem fyrirtæki hefur í vinnu greiðir það jafngildi launa eins starfsmanns í tryggingagjald. Það sér hver maður að slíkt fyrirkomulag dregur úr hvötum fyrir fyrirtæki til að ráða fólk til starfa og er ekki til þess fallið að vinna bug á atvinnuleysinu. Vinda þarf ofan af alls kyns skattaflækjum frá- farandi stjórnar sem virka haml- andi á framtakssemi í atvinnulíf- inu. Oft er langt seilst eftir litlu með miklum kostnaði. Engar viðræður við ESB án lýðræðislegs umboðs Sjálfstæðisflokkurinn vill halda sig utan ESB. Við teljum mikilvægustu viðskiptahagsmunum Íslands í samskiptum við ESB vel borgið með aðildinni að EES. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins ályktaði að aðildarviðræðum við ESB verði hætt og þær ekki teknar upp aftur nema að und- angenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Það hefur verið stefna flokksins frá því að þetta mál kom fyrst til kasta þingsins, að rangt væri að eiga í aðildarviðræðum án þess að skýrt umboð hefði verið fengið hjá þjóðinni. Undanfarin ár hefur komið æ betur í ljós hversu mikilvægt það er að skýr vilji þings og þjóðar liggi að baki aðildarviðræðum. Það blasir við að ríkisstjórnin er ekki trú- verðugur viðsemjandi. Viðræðurnar eru miklu nær því að vera sýndarviðræður en aðildarviðræður. Sumir virðast halda að forysta í utanríkis- málum okkar Íslendinga felist fyrst og fremst í því að berjast fyrir inngöngu í sífellt fleiri milliríkjasamtök. Ég tel forystuna miklu fremur ráðast af staðfastri afstöðu, sem stenst dóm tímans, og baráttu fyrir því að Ís- land skipi sér þar sess á meðal þjóða sem skapar landsmönnum mesta farsæld. Að vaxa út úr vandanum Við Íslendingar þurfum að hefja nýtt skeið stöðugleika og vaxtar. Það gerist ekki nema heimilunum verði komið til aðstoðar, kraftur settur í atvinnulífið og verðmætasköpun auk- in. Þannig vöxum við út úr vandanum og treystum um leið mikilvægar stoðir velferð- arkerfisins. Vísasta leiðin til að gera betur er að gera stöðugleika- og vaxtarsáttmála milli aðila vinnumarkaðarins og vinna saman að bættum lífskjörum. Í þágu heimilanna mun Sjálfstæðisflokk- urinn forgangsraða rétt. Það er kominn tími til að nýta tækifærin, kominn tími til aðgerða, tími til sóknar – í þágu okkar allra. Að loknum landsfundi Eftir Bjarna Benediktsson Bjarni Benediktsson » Vísasta leiðin til að gera betur er að gera stöðug- leika- og vaxtarsáttmála milli aðila vinnumarkaðarins og vinna saman að bættum lífs- kjörum. Höfundur er formaður Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.