Morgunblaðið - 01.03.2013, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013
Margrét Vignisdóttir byrjaði í fjallamennsku árið 2009,
þá 18 ára, en hefur sinnt áhugamálinu af slíkum krafti að
það er nú orðið að hennar aðalatvinnu. Hún dreif sig
ásamt vinkonu sinni á 42 daga fjallamennskunámskeið í
Síle árið 2010, vann um tíma við leiðsögn á Nýja-Sjálandi
og er nú í fullu starfi sem leiðsögumaður hjá Íslenskum
fjallaleiðsögumönnum.
Þegar Margrét sneri aftur frá Síle fannst henni afar
erfitt að hefja aftur hefðbundið menntaskólanám. „Elsk-
an mín góða, eftir Síle þá get ég þetta bara ekki lengur.
Að setjast niður og lesa bók er bara ekki hægt, ekki
nema hún sé þá bara um fjallamennsku. Að læra stærð-
fræði það er bara … einbeitingin er bara einhvers staðar
allt annars staðar.“
Margét stundar nú nám í fjallamennsku við FAS og er
ánægð með námið. Skipulag námsins sé gott. Í bóklega
hlutanum sé farið yfir afar gagnlega hluti og í verklega
hlutanum sömuleiðis. „Mér finnst svo skemmtilegt við
þetta nám að maður fær rosalegt magn af upplýsingum á
stuttum tíma. Þetta er mjög sniðugt fyrir þá sem eru að
byrja en líka þá sem eru lengra komnir.“
Margrét segir greinilegt að stelpum fari fjölgandi í
fjallamennsku. „Það er alltaf að verða auðveldara fyrir
okkur að komast í hópinn.“ Fjallaþrá Margrét slakar á í kennslustund á fjöllum.
Fjöllin toga fastar
en stærðfræðin
Byrjaði 18 ára og hefur
leiðsögn að aðalatvinnu
Tökum á skulda- og
greiðsluvanda heimilanna
Í þágu heimilanna
› Verðtrygging á húsnæðis- og
neytendalánum verði ekki
almenn regla
› Auðveldum afborganir af húsnæðis-
lánum með skattaafslætti
› Fellum niður skatt þegar greitt er inn
á höfuðstól húsnæðislána í stað þess
að greiða í séreignarsjóð
› Leyfum skuldsettum íbúðareigendum
að hefja nýtt líf án gjaldþrots
› Afnemum stimpilgjöld
Markvissar og raunhæfar aðgerðir
í þágu heimilanna sem má koma
í framkvæmd án tafar.
BAKSVIÐ
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Það er vel við hæfi að fyrsti mennta-
skólinn sem býður upp á nám í fjalla-
mennsku skuli vera Framhaldsskól-
inn í Austur-Skaftafellssýslu (FAS)
sem er til húsa á Höfn í Hornafirði.
Óvíða má finna eins marga ögrandi
fjallatinda og freistandi jökla eins og
þar um slóðir. Nú stunda átta nem-
endur nám í fjallamennsku sem sér-
grein til stúdentsprófs frá skólanum
en umsjónarkennari fjallabraut-
arinnar hugsar lengra og hærra -
hann segir tíma til kominn að æv-
intýraferðaþjónusta verði kennd á
háskólastigi á Íslandi.
Ragnar Þrastarson, umsjón-
arkennari fjallamennskubsviðs FAS,
bendir á að ævintýraferðamennska -
s.s. fjallgöngur, ísklifur og flúðasigl-
ingar - njóti sífellt meiri vinsælda.
Því sé nauðsynlegt að ferðaþjón-
ustan á Íslandi geti boðið upp á vel
menntaða leiðsögumenn í slíkum
ferðum. Fjallamennskunámið í FAS
sé liður í því. Um er að ræða 60 ein-
inga jafngildi eins
árs náms til stúd-
entsprófs.
Ragnar segir
að nemendur vilji
flestir halda
áfram að mennta
sig í fjalla-
mennsku þegar
stúdentsprófi lýk-
ur en enn sem
komið er sé ekkert akademískt nám
á háskólastigi í boði í þessari grein
hér á landi. Nemendur neyðist því til
að leita til Kanada eða Noregs með
tilheyrandi kostnaði.
Það var einmitt það sem Ragnar
gerði, hann skráði sig til náms í
Thompson Rivers háskólanum í
Kanada (www.tru.ca) og lauk
tveggja ára diplóma-námi í æv-
intýraferðaþjónustu. Þrír aðrir Ís-
lendingar hafa lokið námi við sama
skólann. „Við erum alveg samkeppn-
ishæf við Kanada og Noreg. Ísland
er lítið land en við erum með allt til
alls,“ segir hann.
Ragnar hefur verið í viðræðum við
skóla á höfuðborgarsvæðinu um að
bjóða upp á háskólanám í samvinnu
kanadíska háskóla og nýtt Félag
fjallaleiðsögumanna á Íslandi. Til að
byrja með yrði námið eins árs dip-
lóma-nám fyrstu tvö árin en síðar
lengt í tveggja ára nám. Stefnt er að
því að bjóða upp á námið 2014. „Það
er engin spurning að það er þörf á
menntuðum ævintýraleiðsögumönn-
um á Íslandi,“ segir Ragnar.
Fara í 10 daga vetrarferðir
Fjallamennskunámið í FAS skipt-
ist í bóklegt og verklegt nám. Bók-
legi hlutinn fjallar m.a. um jarð-
fræði, jöklafræði, veðurfræði,
leiðsögn og ferðaþjónustu á fjöllum
og í óbyggðum. Umfangsmesti
áfanginn fjallar um stjórnun hópa og
skipulagningu ferða.
Verklega námið fer annars vegar
fram í þremur 10 daga ferðum með
kennara og sérfræðingum á þeim
sviðum sem verið er að fjalla um;
rötun, klettaklifur, þverun straum-
vatna, ísklifur, sprungubjörgun og
svo framvegis. Hins vegar þurfa
nemendur að skipuleggja sjálfir
ferðir sem þau fara í á eigin spýtur.
„En ég fylgist auðvitað vel með þeim
á meðan,“ segir Ragnar.
Ljósmynd/Ragnar Þrastarson
Fjallamennska Nemendur borga 5.000 kr. í skólagjöld eins og aðrir. Í skólanum fá þau lánaðan allan sérhæfðan búnað, s.s. tjöld, mannbrodda og ísaxir. FAS hefur fengið styrki til að kaupa
þennan búnað. Ragnar Þrastarson segir að margir vilji taka þátt í þessu þróunarverkefni og aðstoða skólann við að koma þessu námi á koppinn. Myndin hér að ofan er tekin í kennslustund.
Kennari í fjallamennsku vinnur að því að leiðsögn í ævintýraferðum verði kennd á háskólastigi
Hafa þurft að leita til Noregs og Kanada eftir háskólanámi í fjallamennsku Allt til alls á Íslandi
Ævintýri á háskólastigi
Ragnar Þrastarson