Morgunblaðið - 01.03.2013, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013
Háþróaður svefnbúnaður
duxiana.com
DUXIANA
Ármúla 10
S-5689950
Kynnum nýjar gerðir
af dýnum frá DUX.
50% afsláttur *
af höfuðgöflum og rykföldum við kaup á nýju gerðunum.
Ragnar Þrastarson, umsjón-
arkennari fjallamennskusviðs
Fjölbrautaskóla Austur-Skafta-
fellssýslu, er í undirbúningshópi
fyrir stofnun Félags fjallaleið-
sögumanna á Íslandi. Félagið á
að vera fagfélag fyrir þá sem
starfa við leiðsögn á fjöllum og
jöklum án þess að nota vélknúin
ökutæki.
Í leiðbeinandi reglum Ferða-
málastofu, sem birtar verða inn-
an skamms, um leiðsögn í fjall-
lendi er miðað við þjálfunarkerfi
félagsins. Leiðsögumenn eru
gjarnan mjög vanir fjallamenn
þótt þeir hafi ekki lokið þeim
námskeiðum sem gert er ráð fyr-
ir í þjálfunarkerfinu.
Reynsla mikilvæg en einnig
þörf á þjálfunarkerfi
Ragnar segir að félagið nálgist
málið með auðmýkt. Þeir sem
vinni að stofnun félagsins haldi
því alls ekki fram að þeir sem
ekki hafi lokið þjálfunarkerfi fé-
lagsins verði þegar í stað að
hætta að fara með hópa á fjöll.
„En einhvers staðar verðum við
að byrja,“ segir hann.
Reynsla skipti miklu máli en
einnig sé þörf á ákveðnu þjálf-
unarkerfi. Hann tekur skýrt fram
að kerfið eigi ekki að verða til
þess að rífa einhvern niður held-
ur eigi að vera til upplyftingar
fyrir alla. „Þetta á að vera fag-
legt og upplýsandi og það hafa
allir gott af því að fara á nám-
skeið og rifja upp og læra nýja
hluti,“ segir hann. Bratt Úr kennslustund í FAS.
Fagleg og upplýsandi þjálfun
Undirbúa þjálfunarkerfi fyrir fjallaleiðsögumenn
Páli Guðmundssyni, framkvæmda-
stjóra Ferðafélags Íslands, líst ágæt-
lega á að stofnsett verði rannsókn-
arnefnd ferðaslysa sem myndi
rannsaka slys sem verða við ferða-
mennsku hérlendis en eins og greint
var frá í Morgun-
blaðinu í gær hafa
fulltrúar Lands-
bjargar rætt um
möguleika á slíkri
nefnd við stjórn-
völd.
Páli líst sömu-
leiðis vel á að
auka menntun
fjallaleiðsögu-
manna. Hann hef-
ur ekki kynnt sér tillögur að þjálf-
unarkerfi Félags fjallaleiðsögu-
manna en mjög mikilvæg sé að ekki
verði horft fram hjá reynslu. „Okkar
fararstjórar eru margir með langa
reynslu af fjallamennsku og gjarnan
hámenntaðir á sínu sviði. Okkur hef-
ur þótt ósanngjarnt að horfa fram
hjá þessari reynslu og segja að menn
geti ekki verið fararstjórar nema
þeir hafi farið á fimm daga námskeið
í fjallaleiðsögn. Ef við berum saman
þessa reynslumiklu fararstjóra og
tvítugan einstakling sem hefur tekið
þetta próf, þá er ekki spurning um
hvorn fararstjórann maður myndi
velja,“ segir Páll.
Hann tekur fram að fararstjórar
FÍ hafi almennt lokið námskeiðum í
ferðamennsku, skyndihjálp og rötun.
Ferðafélagið býður aðallega upp á
sumarleyfisferðir um svæði þar sem
yfirleitt er lítil hætta á ferðum og
kalla ekki á sérhæfða fjallaleiðsögu-
menn. Á því eru þó undantekningar
en þegar Ferðafélagið skipuleggur
ferðir á brött fjöll eða um jökla er
gerð krafa um að fararstjórar hafi
lokið námskeiði um öryggi á jöklum
og fjöllum og hafi reynslu af jökla-
ferðum.
Fjögur óhöpp á fjórum árum
Páll bendir á að yfirleitt séu ferðir
svokallaðra fjallahópa Ferðafélags-
ins engar ofurfjallgöngur heldur
fyrst og fremst ætlaðar til heilsubót-
ar. Fyrir áramót varð þó óhapp í
einni slíkri ferð. Þá var hópur á leið
upp á Vatnsfellshorn, skammt frá
Krýsuvík, þegar skyndilega hvessti
og kona fauk um koll og rann niður
hlíðina, lenti á grjóti og meiddist á
læri. Tveir úr hópnum ætluðu að
hjálpa konunni en runnu einnig í
brekkunni og annar meiddist.
Hluti hópsins var á svokölluðum
hálkubroddum. Páll segir að hálku-
broddarnir hafi dugað vel við
ákveðnar aðstæður en fararstjórar
eigi að meta hvenær aðstæður séu
þannig að þeir dugi ekki lengur. „Við
erum að skoða tillögur Landsbjargar
um að nota skuli mannbrodda og ís-
axlir í öllum ferðum yfir vetrartím-
ann en okkur finnst það of strangar
kröfur á mörg létt og einföld fjöll,“
segir Páll. „Um 48.000 manns hafa
tekið þátt í fjallaverkefnum okkar
sem hafa staðið í fjögur ár. Það hafa
orðið fjögur óhöpp, tvisvar hefur fólk
runnið en annars hefur fólk hrasað á
göngustíg og dottið. Með stóraukinni
þátttöku í útivist og fjallaferðum
mun tölfræðin segja okkur að slysum
mun einnig fjölga en nauðsynlegt er
að gera allt sem hægt er til að fyrir-
byggja þau.“
Gott að vera á tveimur bílum
Spurður um atvikið í Landmanna-
laugum á mánudag, þegar bjarga
þurfti fimm manns af þaki jeppa sem
var fastur í á, segir Páll að það sé
mikilvægt að menn fari ekki af stað
nema þeir viti hvað þeir eru að gera.
„Og það er góð regla að vera alltaf á
tveimur bílum og besta reglan er að
snúa við ef þú ert ekki öruggur um
þær aðstæður sem þú ert í.“
Reynsla
metin að
verðleikum
Páll Guðmundsson
Óhöpp fátíð
hjá Ferðafélaginu