Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013
Leikskólanum Sunnuhvoli í Garða-
bæ verður breytt í ungbarnaleik-
skóla fyrir börn á aldrinum 12-24
mánaða á næstu misserum.
Í tilkynningu frá Garðabæ segir,
að með þessu vilji bæjarstjórn koma
betur til móts við fjölskyldur
yngstu barnanna í Garðabæ. Engin
breyting verði hjá þeim börnum
sem séu nú þegar í leikskóla á
Sunnuhvoli nema foreldrar óski eft-
ir flutningi í annan leikskóla.
Breytingin á starfi leikskólans
verður gerð í tveimur áföngum.
Fyrri áfanginn verður í haust en þá
verður deild yngri barnanna,
Bangsadeild, breytt í ungbarna-
deild um leið og börnin sem þar eru
núna flytjast á Fiðrildadeild. Börn
sem þá verða tekin inn í leikskólann
dvelja þar í eitt ár.
Ljósmynd/Af vef Sunnuhvols
Að leik Börn á Sunnuhvoli í skólanum.
Sunnuhvoll verður
ungbarnaleikskóli
Árleg byssusýn-
ing Veiðisafnsins
á Stokkseyri í
samvinnu við
verslunina Vest-
urröst verður
haldin laug-
ardaginn 2. og
sunnudaginn 3.
mars frá kl. 11-
18 í húsakynnum safnsins.
Fram kemur í tilkynningu að á
sýningunni verði fjölbreytt úrval
skotvopna til sýnis, m.a. úr einka-
söfnum.
Jóhann Vilhjálmsson, byssu- og
hnífasmiður, verður á staðnum og
kynnir sín verk og félagar úr Bog-
veiðifélagi Íslands kynna sína starf-
semi og sýna veiðiboga.
Byssusýning í Veiði-
safninu um helgina
Alþjóðlegur bænadagur kvenna er í
dag, 1. mars, en hann er haldinn ár-
lega í yfir 170 löndum, þar á meðal
á Íslandi.
Fyrstu bænirnar biðja stúlkur á
Tonga í Suður-Kyrrahafi og þær
síðustu eru beðnar 35 stundum síð-
ar í nágrannaríkinu Vestur-
Samóaeyjum. Alþjóðlegur bæna-
dagur kvenna hefur verið haldinn á
Íslandi í rúma hálfa öld. Konur úr
Hjálpræðishernum höfðu lengst af
forystu um þetta starf.
Alþjóðlegur bæna-
dagur kvenna í dag
STUTT
Albert Kemp
Fáskrúðsfirði
Þegar þjóðvegur 1 er ekinn niður
Breiðdalsheiði blasir við Breiðdalur
yfir 30 km langur með fallegum
fjallahring og miklum sléttum grasi-
vöxnum. Fyrsti bærinn á vinstri
hönd þegar niður er komið er Þor-
grímsstaðir. Þar hefur um langan
tíma verið rekinn sauðfjárbúskapur
en nú hefur orðið breyting á því þótt
enn séu nokkrar kindur í fjárhús-
unum.
Fyrir nokkrum árum keyptu hjón-
in Jón B. Stefánsson og Guðrún
Sveinsdóttir jörðina, en þau komu
bæði frá Reykjavík, Jón er bygg-
ingaverkfræðingur og Guðrún lög-
fræðingur. Þau eru nú að hefja gisti-
rekstur á staðnum og hafa þau í
sameiningu endurhannað bygging-
arnar. Nefna þau gistihúsið Silfur-
berg.
Klettabelti gleður augað
Íbúðarhúsinu hafa þau breytt og
byggt við það sólstofu sem nýtist
sem borðstofa. Er hún einkar fallega
hönnuð með tilliti til útsýnisins úr
stofunni en þar gefur að líta kletta-
belti sem gleður augað og er ekki of
nálægt húsinu.
Hlöðuna hafa þau stækkað og
gert þar nútímaleg herbergi af mikl-
um hagleik þar sem allt er gert til að
gestir geti dekrað við sig. Utan dyra
er heitur pottur í glerkúpli og gufu-
bað og þegar inn er komið eru sturt-
ur og búningsaðstaða.
Gamla hlaðan hefur verið gerð
upp með samblandi af gömlu og
nýju. Þar er setustofa og æfinga-
aðstaða fyrir gólfíþróttir, þar eru
nýttir saman gamall og nýr viður
sem fer einkar vel saman. Salurinn
hefur götumynd og eru gömlu hurð-
irnar af hlöðunni nýttar innandyra,
Verður hugmyndaflugið eitt að ráða
hvað er þar á bakvið. Gluggar eru
þar sem sér inn í fjárhúsið úr hús-
unum svo hægt verður fyrir gesti að
fylgjast með sauðburði meðan hann
stendur yfir. Helga Jónsdóttir, dótt-
ir þeirra hjóna, verður hótelstýra og
ætlar hún að opna gistihúsið 15. apr-
íl og hafa opið fram í nóvember.
Helgu, sem er lögfræðingur að
mennt, hefur langað til að prófa nýtt
starf á nýjum stað í fallegu um-
hverfi. Hún mun reka húsið með
gistingu og morgunmat en hægt
verður að panta mat með fyrirvara
ef þess er óskað á vefsíðunni Silfur-
berg.com.
Bóndabænum breytt
Hjónin Jón B. Stefánsson og Guðrún Sveinsdóttir eru
að hefja gistihúsarekstur á Þorgrímsstöðum í Breiðdal
Í gömlu hlöðunni Hlöðuhurðin er nú orðin til prýði í setustofunni í hlöðunni.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Eigendurnir Hjónin Guðrún Sveinsdóttir og Jón B. Stefánsson framan við íbúðarhúsið á Þorgrímsstöðum.
Íslensk hönnun
Sendum fermingargjafirnar
frítt innanlands!
www.jens.is
www.uppsteyt.is
Síðumúla 35
Kringlunni og
11.900.-
10.800.-
Fermingar 2013
12.900.-
12.300.-
7.600.-
11.400.-
7.900.-
9.900.-
7.900.-
8.200.-
Formaður Lögmannafélagsins er
ósammála ríkissaksóknara um að
ekki sé hægt að koma í veg fyrir að
lögreglumenn hlusti á samtöl verj-
enda og sakborn-
inga, sem tekin
eru upp í síma-
hlerunum, eins og
fram kom í máli
Sigríðar J. Frið-
jónsdóttur í sam-
tali við Morgun-
blaðið í gær. „Ég
fagna því að ríkis-
saksóknari hafi
skilning á áhyggjum lögmanna af því
að í hlerunum á síma sakbornings
komi fram upplýsingar úr trúnaðar-
samtölum sakbornings og verjanda,“
segir Jónas Þór Guðmundsson, for-
maður Lögmannafélagsins.
Hann er þó ósammála ríkissak-
sóknara um að ekki sé hægt að koma
í veg fyrir að lögreglumaður hlusti á
upptökur af trúnaðarsamtölum.
„Ýmsar leiðir má skoða til úrbóta.
T.d. að hlutlaus aðili eyði upptökum
með símtölum verjanda og sakborn-
ings áður en lögregla fer yfir upp-
tökur,“ segir Jónas. Eins hljóti að
vera til tæknilegar útfærslur um að
upptaka stöðvist þegar hringt er úr
hleruðum síma í tiltekin símanúmer.
Þá leggur Jónas til að við upp-
kvaðningu úrskurðar um símahlerun
skipi dómari sakborningi sérstakan
lögmann, án vitundar hans, sem
hefði það hlutverk að gæta hags-
muna sakbornings og þeirra sem
hann talar við. „Auk þess tel ég blasa
við að treysta þarf trúnaðarskyldu
lögmanna, sem ekki hafa verið skip-
aðir verjendur, við umbjóðendur
sína. Virðast rannsóknaraðilar og
ríkissaksóknari líta svo á aðheimilt
sé að hlera trúnaðarsímtöl þessara
aðila og að ákærendur geti notað
gögn um þau sem sönnunargögn í
sakamálum, jafnvel þótt lögmaður-
inn liggi ekki undir grun um að hafa
framið afbrot. Því eru lögmenn
ósammála og telja það ótæka niður-
stöðu sem ekki getur staðist í rétt-
arríki,“ segir Jónas. vidar@mbl.is
Getur ekki stað-
ist í réttarríki
Lögreglan hlusti ekki á samtöl
Jónas Þór
Guðmundsson
Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð
um nálgunarbann margdæmds rúm-
lega þrítugs ofbeldismanns gagnvart
16 ára gamalli stúlku. Stúlkan á við
fíkniefnavanda að stríða og hefur oft
verið vistuð á meðferðarheimilum
Barnaverndarstofu. Það var Barna-
verndarnefnd Reykjavíkur sem fór
fram á nálgunarbannið.
Stúlkan hefur verið í harðri neyslu
fíkniefna og í félagsskap sem talinn
er henni hættulegur, eins og kemur
fram í dómsorði. „Telpan hafi litla
innsýn í vanda sinn og þá hættulegu
stöðu sem hún sé í. Hafi það verið
mat sóknaraðila að til þess að ná tök-
um á vanda hennar væri nauðsynlegt
að vista hana á langtímameðferðar-
heimil fjarri þeim félagsskap sem
hún sæki í og hafi það verið gert með
hennar samþykki,“ eins og þar segir.
Barnaverndarnefnd Reykjavíkur
barst tilkynning frá þeim stað þar
sem stúlkan var vistuð að hún ætti í
samneyti við manninn. „Þar kom
fram að hún hefði talað um að hafa
orðið vitni af grófum ofbeldisverkum
s.s. barsmíðum varnaraðila og fylgt
honum eftir þegar hann hefði ásamt
vinum sínum innheimt vímuefna-
skuldir. Þá leiki grunur á kynferð-
islegu sambandi þeirra sem staðfest-
ur hafi verið af öðrum skjólstæð-
ingum.“
Bannað að koma
nálægt 16 ára stúlku
Er margdæmdur ofbeldismaður