Morgunblaðið - 01.03.2013, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013
Stjarnvísindamenn hafa í fyrsta
skipti reiknað út snúningshraða of-
ursvarthols í miðju nærliggjandi
stjörnuþoku með nákvæmum hætti.
Lengi hefur verið talið að slík
svarthol snúist gríðarlega hratt og
og stækki mikið þar sem þau sjúga
til sín gas, ryk, stjörnur og annað
efni.
Alþjóðlegur hópur vísinda-
manna, sem notaði meðal annars
Nustar-sjónauka NASA sem nýlega
var tekinn í notkun, hefur nú stað-
fest þá kenningu en hann komst að
því að snúningshraði risasvarthols-
ins nálgist ljóshraða, eða um 1,08
milljarða kílómetra á klukkustund.
Sú vitneskja getur hjálpað þeim í að
skilja hvernig svarthol vaxa. Niður-
stöður þeirra voru birtar í vísinda-
tímaritinu Nature í síðustu viku.
Talið er að slík risasvarthol sé að
finna í miðju allra stjörnuþoka en
massi þeirra er á við milljónir ef
ekki milljarða af sólinni okkar.
Þyngdarafl svarthola er slíkt að
ekki einu sinni ljós sleppur úr
greipum þeirra. Vísindamenn geta
hins vegar fundið þau með því að
mæla röntgengeislun frá þeim.
AFP
Ferlíki Teikning NASA af risasvartholi í miðju stjörnuþoku. Massi þeirra
getur verið á við milljónir eða milljarða stjarna eins og sólarinnar okkar.
Risasvarthol sem snýst
nálægt hraða ljóssins
Vegfarendur taka myndir af hluta af Berlínarmúrnum
sem enn stendur nærri járnbrautarstöð í Austur-
Berlín. Um 25 metrar af þessum hluta múrsins víkja þó
á næstunni fyrir nýjum íbúðabyggingum sem eiga að
rísa við ána Spree. Listamenn og aðgerðasinnar sem
hafa skreytt múrinn eru ósáttir við að hluti þessara
sögulegu minja verði fjarlægður og hafa mótmælt
þeirri ákvörðun borgaryfirvalda.
AFP
Enn kvarnast úr Berlínarmúrnum
Bruce Reynolds, heilinn á bak við lestarránið mikla á
Bretlandi árið 1963, lést í gær, 81 árs að aldri. Hann fór
fyrir flokki glæpamanna sem frömdu eitt frægasta lest-
arrán sögunnar þegar þeir rændu póstlest á milli Lond-
on og Glasgow þann 7. ágúst það ár. Ræningjarnir höfðu
jafnvirði rúmra sex milljarða króna að núvirði á brott
með sér. Fimmtíu ár verða liðin í ár frá glæpnum sem
hefur verið viðfangsefni fjölda kvikmynda og bóka.
Reynolds lagði á flótta eftir ránið og faldi sig í Mexíkó
og Kanada með konu sinni og ungum syni. Hann var hins
vegar handtekinn árið 1968 þegar hann sneri aftur til
Bretlands. Hann var dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir hlut-
deild sína í ráninu sem þótti óheyrilega langur dómur á
þeim tíma. Árið 1995 skrifaði hann
æviminningar sínar í bókinni „Sjálfs-
ævisaga þjófs“ þar sem hann rakti
meðal annars hvernig hann leiddist út
á braut glæpa eftir að hafa upp-
haflega reynt að komast að í blaða-
mennsku.
Frumkvöðull ránsins
Lestarræninginn Reynolds hafði
verið heilsuveill um einhverra mánaða
skeið og lést í svefni að sögn sonar
hans sem hafði annast hann síðustu dagana.
„Þetta var vissulega vel skipulögð aðgerð og Reynolds
var frumkvöðullinn. Þetta er lítið brot af sögunni,“ segir
Leonard Read, lögreglufulltrúi hjá Scotland Yard sem
hafði hendur í hári Reynolds eftir langa leit.
Höfuðpaur frægasta lest-
arráns sögunnar er látinn
Ræningi Bruce
Reynolds árið 1968
„Aðgerðin var vel skipulögð“
FÍB AÐILD SPARNAÐUR OG ÖRYGGI
FÍB AÐILD MARGBORGAR SIG
Lögfræðiráðgjöf
FÍB Aðstoð
Þétt afsláttarnet
Allt þetta innfalið og meira til!
Ársaðild FÍB er aðeins kr. 6.600
Kynntu þér málið á fib.is
eða í síma 414-9999
Tækniráðgjöf
Eldsneytisafsláttur
Félag íslenskra bifreiðaeigenda Skúlagötu 19 101 Reykjavík Sími. 414 9999 fib@fib.is www.fib.is
LINNETSSTÍG 2 | SÍMI: 565-4854
Mánudag - Föstudag 11:00 - 18:00 | Laugardagur 11:00 - 14:00
Handsmíðað í Hafnarfirði síðan 1993
www.siggaogtimo.is