Morgunblaðið - 01.03.2013, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013
Smáauglýsingar
Gisting
Gisting Akureyri
Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm
einbýlishús, 4 svefnherbergi. Að-
staða fyrir ca. 13 manns. Leyfilegt að
hafa hund í Skógarhlíð. Er með fleiri
orlofshús við Akureyri og öll með
heitum potti.
orlofshus.is Leó 897 5300
Sumarhús
VORIÐ ER AÐ KOMA !
Ölfusverk ehf. –
Stoðverk, Grásteini,
Ölfusi
Tökum að okkur alla trésmíða- og
raflagnavinnu. Áratugareynsla í
smíði sumarhúsa 70 hús afgreidd
sl. 10 ár. Sjáum einnig um bygg-
ingastjórn og umsjón fasteigna.
Einnig er til sölu á sama stað
45m² ferðaþjónustuhús, innréttað
sem 2 íbúðir (hægt að breyta
skipulagi að innan) selst ódýrt.
Kjartan, rafverktaki,
gsm 892 8661.
Þorsteinn,húsasmíðameistari,
gsm 660 8732.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Frímerki til sölu
Afsláttur allt að 80% miðað við Facit,
sænskan verðlista. Upplýsingar í
síma 544 8181 eða 557 2574.
Ódýr blekhylki og tónerar
verslun í Hagkaup Smáralind og
Fjarðargötu 11, Hafnarfirði.
Blekhylki.is, sími 517-0150.
Kompu- og markaðsdagur í
húsnæði félagsheimilis
Sjálfsbjargar, Hátúni 12, 105 Rvk.
Laugardaginn 2. mars 2013 kl. 11-16.
Nýtt og notað, t.d. að lesa, klæðast,
borða, skreyta, bera á sig.
Gjafir við öll tækifæri.
S-inngangur.
Kristalsljósakrónur til sölu
Glæsilegar kristalsljósakrónur, vegg-
ljós, matar- og kaffistell og skart-
gripir til sölu. Nýtt á facebook:
Bohemia ljós, lýsing, kristall.
Bohemia Kristall, Glæsibæ
Ýmislegt
Kristall, hreinsisprey
Hreinsisprey fyrir kristalsjósakrónur
og kristal.
Slóvak Kristall
Dalvegur 16 b , Kópavogur
S. 544 4331
TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ
Vandaðir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stakar stærðir.
TILBOÐSVERÐ: 3.900.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
NÝKOMIÐ - GLÆSILEGT !
Teg. REBECCA - léttfylltur og BARA
flottur í D-, DD-, E-, F-, FF-, G-skálum
á kr. 11,550.
Teg. GEM - mjúkur, æðislegur í D-,
DD-, E-, F-, FF-, G-skálum á kr. 9.770.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-föst. 10-18,
laugard. kl. 10-14.
Þú mætir - við mælum
og aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
Teg. 38588 Þægilegir dömuskór úr
mjúku leðri, skinnfóðraðir. Stærðir:
36-40. Verð: 17.200.
Teg. 8745 Þægilegir dömuskór úr
mjúku leðri, skinnfóðraðir. Stærðir:
36-40. Verð: 15.885.
Teg. 8742 Þægilegir dömuskór úr
mjúku leðri, skinnfóðraðir. Stærðir:
36-40. Verð: 15.885.
Teg. 7573 Þægilegir dömuskór úr
mjúku leðri, skinnfóðraðir. Stærðir:
36-40. Verð: 15.885.
Teg. 7097 Sérlega mjúkir og
þægilegir dömuskór úr mjúku leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 36-42.
Verð: 15.685.
Teg. 7904 Þægilegir dömuskór úr
leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-42.
Verð: 14.685.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán. - föst. 10 - 18.
Opið laugardaga 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Hjólbarðar
Ný heilsársdekk
185/70 R 14 kr. 14.900
195/70 R 14 kr. 15.900
205/65 R 16 kr. 22.900
215/55 R 16 kr. 19.700
215/55 R 17 kr. 23.500
235/55 R 17 kr. 26.700
225/65 R 17 kr. 26.900
Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b,
201 Kópavogi, s. 5444 333.
Varahlutir
Sendu eina fyrirspurn á 39
PARTASaLa og þeir svara þér ef
hluturinn er til.
www.partasalar.is
mbl.is
alltaf - allstaðar
Afmæli
Þessi glaðværa Austfjarðarmær
og margfaldur íslandsmeistari í
hrútaþukli á 2x20 ára afmæli í
dag. Þeir sem vilja gleðja hana
með afmælisóskum er bent á að
gera það á facebook síðu hennar.
Gjafamóttaka verður auglýst
síðar - nýmóðins hjólaskautar eru
þar efstir á lista. Grúppan sendir
1000 kossa.
✝ Anna Karels-dóttir fæddist í
Borgarnesi hinn 14.
desember 1943.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu Sól-
vangi 17. febrúar sl.
Foreldrar Önnu
voru Karel G. Ein-
arsson, f. 17. júní
1913, d. 5. óvember
1989, og Guðný
Halldórsdóttir, f.
17. apríl 1915, d. 27. janúar 2000.
Systkini Önnu eru Halldór Kar-
elsson f. 26. desember 1940, Sig-
urást Karelsdóttir f. 26. júní
1942, Gígja Karelsdóttir f. 2.
mars 1945, Einar
Örn Karelsson f. 23.
september 1948,
Erla Karelsdóttir f.
24. október 1951, d.
3. janúar 2013.
Hinn 15. júní 1966
giftist Anna Sigurði
Má Gestssyni f. 10.
júní 1944, d. 12.
nóvember 2006.
Foreldrar hans
voru Gestur Magn-
ússon f. 12. apríl 1918, d. 3. febr-
úar 2000 og Rut Ingimarsdóttir
f. 20. júlí 1928. Börn Önnu og
Sigurðar Más eru: 1) Gestur Már
Sigurðsson f. 1. janúar 1963,
maki Harpa Þorleifsdóttir f. 19.
maí 1966, börn þeirra Alexander
Gunnarsson f. 24. nóvember
1990 og Sigurður Már Gestsson
f. 6. september 2001. 2) Guðný
Sigurðardóttir f. 5. júní 1968.
Dóttir hennar er Lýdía Rún Sóf-
usdóttir f. 4. ágúst 1993. 3) Marí-
anna Sigurðardóttir f. 22. des-
ember 1975, maki Tómas
Bentsson f. 16. ágúst 1971. Börn
Maríönnu: Stefán Már Guð-
mundsson f. 21. desember 1995
og Andrea María Andradóttir f.
11. janúar 2001.
Sonur Tómasar: Björgvin
Dagur Tómasson f. 16. ágúst
1997.
Anna Karelsdóttir verður
jarðsungin frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 1. mars 2013 og
hefst athöfnin kl. 13.
Elsku fallega mamma mín, nú
ertu farin mér frá og komin á
besta stað þar sem pabbi tók á
móti þér með opinn arm, mikið
held ég að hann hafi verið glaður
að faðma þig aftur. Mamma mín
var sú duglegasta kona sem ég
veit um og kenndi hún mér það
snemma, en mamma vann alla tíð
mjög mikið. Vil ég þakka mömmu
minni fyrir allt það sem hún
kenndi mér. Man ég að snemma
fór ég með henni á Heilsugæsluna
í Borgarnesi þar sem hún skúraði
á kvöldin og fékk ég að koma með
og skipta um poka í ruslinu og
seinna unnum við saman við ræst-
ingar í Ráðhúsi Reykjavíkur, hún
hjá borgarstjóra og ég hinum
megin í húsinu. Þessi tími var
ómetanlegur, að fá að vera saman
í vinnunni.
Við mamma höfðum okkar sér-
staka tungumál þegar enginn
mátti heyra eða skilja okkur, en
það var oftast þegar hún bað mig
að fara og kaupa prins polo og
appelsín í gleri á Esso og þá mátti
Maríanna litla systir ekki heyra.
Betri ömmu gátu ekki börn okkar
systkina fengið. Lýdía, Stefán
Már, Andrea María og Siggi Már
voru umvafin ást og umhyggju að
annað eins hef ég ekki séð og hafði
pabbi mikið með það að gera líka.
Alla tíð vildi mamma vera fín og í
fallegum fötum og þótt Alzheim-
er-sjúkdómurinn hafi tekið yfir
hafði hún alltaf skoðun á því í
hverju hún var, það var mamma.
Nú kveð ég þig, elsku fallega
mamma mín, en við hittumst aft-
ur, þangað til mun ég gera þig
stolta af mér.
Þín elskulega dóttir,
Guðný Sigurðardóttir.
Elsku hjartans móðir mín hefur
kvatt þennan heim og er komin á
betri stað í faðm elskulegs föður
míns sem hefur örugglega tekið
vel á móti henni eftir sex og hálf
árs bið. Mikið sakna ég þín sárt,
ég hélt að ég væri tilbúin að sleppa
þér eftir sex ára baráttu þína við
Alzheimer-sjúkdóminn sem hefur
verið sorgarferli upp á hvern ein-
asta dag. Þrátt fyrir hetjulega
baráttu þína þá gafst líkaminn
upp en hugurinn var samt sem áð-
ur til staðar, þú þekktir okkur allt-
af þegar við komum til þín. Þú
sýndir okkur ást og umhyggju
sem skein úr augum þínum og
andliti þegar við vorum hjá þér.
Ég er svo þakklát fyrir það. Mest
af öllu er ég þakklát fyrir að hafa
verið hjá þér og haldið í hönd þína
þegar þú yfirgafst þennan heim,
þú horfðir svo djúpt í augun mín
síðustu andartökin og ég sá hvern-
ig friður og ró færðist yfir þig þeg-
ar þú fékkst hvíldina löngu. Margs
er að minnast og margs er að
sakna. Þú og pabbi voruð mér
yndisleg foreldrar, klettarnir í lífi
mínu sem kennduð mér svo
margt. Prjónaskapnum sem þú
kenndir mér elsku mamma held
ég við og það færist yfir mig ynd-
isleg ró þegar ég prjóna og hugsa
til þín, ég dáðist alltaf að dugnaði
þínum, þú varst hugrökk, ábyrgð-
arfull, þolinmóð, hjálpsöm góð
móðir og kenndir mér góðu gildin
í lífinu. Ég ætla að endurnýja
kynni mín við golfvöllinn í Borg-
arnesi í sumar og njóta þess sem
pabbi kenndi mér á golfvellinum
þar sem við áttum ómetanlegar
stundir þegar ég var barn og ung-
lingur.
Ég á líf vegna ykkar, elsku
mamma og pabbi, þó að lífið virð-
ist óyfirstíganlegt núna þegar ég
er búin að missa báða foreldra
mína, þá á ég líf, líf sem ég ætla að
njóta til hinsta dags og þegar
minn tími kemur þá sameinumst
við öll á ný.
Mamma, elsku mamma,
man ég augun þín,
í þeim las ég alla
elskuna til mín.
Mamma, elsku mamma,
man ég þína hönd,
bar hún mig og benti
björt á dýrðarlönd.
Mamma, elsku mamma,
man ég brosið þitt;
gengu hlýir geislar
gegnum hjarta mitt.
Mamma, elsku mamma,
mér í huga skín,
bjarmi þinna bæna,
blessuð versin þín.
Mamma, elsku mamma,
man ég lengst og best,
hjartað blíða, heita –
hjarta, er sakna ég mest.
(Sumarliði Halldórsson.)
Saknaðarkveðja.
Þín dóttir,
Maríanna Sigurðardóttir.
Kæra Anna, takk fyrir að fá að
kynnast þér. Með þessum fátæk-
legum orðum langar mig að minn-
ast Önnu Karelsdóttur.
Margs er að minnast, góðu
stundanna í sláturhúsinu í Borg-
arnesi
og samvista með ykkur fjöl-
skyldunni. Ég minnist með sökn-
uði hláturskastanna sem þú tókst
hjá okkur þegar við Maríanna
dóttir þín vorum að kýta þegar þú
bjóst hjá okkur.
Eins og þegar hún kynnti þig
fyrir mér í fyrsta sinn, þá voru við-
brögð mín: „Nei, ert þetta þú“ því
ég þekkti þig frá fyrri árum í slát-
urhúsinu í Borgarnesi þar sem þú
stóðst vaktina í þvottahúsinu.
Takk fyrir allt.
Hvíldin er fengin himins öldur rugga
hjartkærri móður inn í djúpan frið.
Nú ber ei lengur yfirskin né skugga
skínandi ljómi Drottins blasir við.
Líður hún nú um áður ókunn svið.
Englanna bros mun þreytta sálu
hugga.
Hvíldin er fengin himins öldur rugga
hjartkærri móður inn í djúpan frið.
Þökk sé þér fyrir alla ástúð þína
allt sem þú gafst af þinni heitu sál.
Lengi skal kær þín milda minning
skína
merlar hún geislum dauðans varpa á.
Fagurt um eilífð blossar andans bál.
Burt er nú kvöl og þreyta sorg og
pína.
Þökk sé þér fyrir alla ástúð þína
allt sem þú gafst af þinni heitu sál.
(Matthías Jochumsson.)
Hinsta kveðja,
Tómas Bentsson.
Elsku amma Anna.
Hvernig er hægt að þakka,
það sem verður aldrei nægjanlega
þakkað.
Hvers vegna að kveðja,
þann sem aldrei fer.
Við grátum af sorg og söknuði
en í rauninni ertu alltaf hér.
Höndin sem leiddi okkur í æsku
mun gæta okkar áfram okkar veg.
Við vitum þó að víddin sé önnur
er nærveran nálægt okkur.
Og sólin hún lýsir lífið
eins og sólin sem lýsti frá þér.
Þegar að stjörnurnar blika á himnum
finnum við bænirnar, sem þú baðst fyrir
okkur.
Þegar morgunbirtan kyssir daginn,
finnum við kossana líka frá þér.
Þegar æskan spyr okkur ráða,
munum við orðin sem þú sagðir
okkur.
Vegna alls þessa þerrum við tárin
því í hjarta okkar finnum við það,
að Guð hann þig elsku amma okkar
geymir
á alheimsins besta stað.
Ótti okkar er því enginn
er við göngum áfram lífsins leið.
Því með nestið sem amma okkar gaf
okkur,
vitum við að gatan hún verður greið.
Og þegar sú stundin hún líður
að verki okkar er lokið hér.
Þá vitum við að amma okkar bíður
og með Guði tekur við okkur.
(Sigga Dúa.)
Þín minning er ljós í lífi okkar.
Kveðja frá barnabörnum,
Lýdía Rún, Stefán Már,
Andrea María
og Sigurður Már.
Anna var falleg sem barn, svo
nett með krullað rautt hár og hafði
fallegan sveip og var hún oft köll-
uð Anna litla ljósálfur. Hún hafði
mjög gaman af að dansa og var oft
fjör á heimilinu þegar við systurn-
ar sem vorum fjórar tókum okkur
til og dönsuðum. Nú erum við
tvær eftir systurnar, Erla og
Anna féllu frá með mánaðar milli-
bili og er þeirra sárt saknað.
Við þökkum þér, elsku systir,
allar góðu stundirnar sem við átt-
um saman. Hvíl í friði.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Við sendum Gesti, Guðnýju og
Maríönnu, barnabörnum og
öðrum aðstandendum okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Systurnar
Sigurást (Sísí) og
Gígja Karelsdætur.
Anna Karelsdóttir