Morgunblaðið - 01.03.2013, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013
Halldór Fannar Halldórsson fagnar 29 ára afmæli sínu í dag.Aðspurður segist hann ekki hafa skipulagt mikil veisluhöldí tilefni dagsins. „Það verður kannski farið í bíó eða fengið
sér eitthvað gott að borða,“ segir Halldór Fannar sem starfar í
Tækniskólanum auk þess að vera Herbalife-leiðbeinandi. „Ég hjálpa
fólki að breyta um lífsstíl t.d. varðandi næringu og hreyfingu, í raun
er þetta alhliða lífsstílsþjálfun. Oft er erfiðast að standa sig sjálfur,
þetta snýst um að vera besta útgáfan af sjálfum sér og hjálpa öðrum
við það sama,“ segir Halldór sem stefnir á að marka dýpri spor á
þessum vettvangi í framtíðinni.
Halldór Fannar er mikill íþróttaáhugamaður, hefur m.a. leikið
knattspyrnu með Fjölni í 1. deild og auk þess hefur hann stundað
fleiri íþróttir en almennt gengur og gerist. Síðasta árið hefur hann
verið að ná sér eftir fótbrot, en um þessar mundir stundar hann
bandí einu sinni í viku auk þess sem hann byrjaði nýlega aftur í
skvassi. Þá hefur hann æft handknattleik auk þess að hafa prófað
júdó. Þá er Halldór Fannar farinn að hlakka til sumarsins enda ætl-
ar hann að fylgjast vel með félögum sínum í Fjölni í 1. deildinni í
knattspyrnu. Halldór Fannar hefur einnig lagt stund á golf. „Ég var
kominn niður í 4,3 í forgjöf en hef verið í afturför undanfarin 2-3 ár
og er núna með 5,6. En ég ætla mér að koma forgjöfinni niður í sum-
ar og stefni að því að keppa á mótaröðinni,“ segir Halldór Fannar að
lokum.
Halldór Fannar Halldórsson 29 ára
Líkamsrækt Halldór Fannar á ekki í vandræðum með að finna leiðir
til að halda sér í formi, hér má sjá hann glaðan á Helgafelli.
Margar aðferðir til
að halda sér í formi
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Selfoss Karen Ösp fæddist 29. janúar
2012 kl. 17.45. Hún vó 3.405 g og var
50 cm löng. Foreldrar hennar eru
Aníta Dís Káradóttir og Friðrik Freyr
Friðriksson.
Nýir borgarar
Reykjavík Ingólfur fæddist 2 maí.
Hann vó 3.602 g og var 52 cm langur.
Forleldrar hans eru Olga Kristrún Ing-
ólfsdóttir og Sveinn Rúnar Reyn-
isson.
J
ón Ögmundur fæddist í
Reykjavík 1.3. 1943 og ólst
þar upp á Bjarnarstígnum
og síðan við Miklubrautina.
Hann var í Austurbæj-
arskólanum og Gagnfræðaskóla
Austurbæjar, lauk stúdentsprófi frá
MR 1963, embættisprófi í lögfræði
frá HÍ 1971, stundaði framhaldsnám í
þjóðarétti við Harvard Law School í
Cambridge 1971-72 og lauk LLM-
prófi þaðan 1972.
Jón var fulltrúi í almennri deild og
alþjóðadeild utanríkisráðuneytisins
1972-74, sendiráðsritari í París 1974-
77 og jafnframt varafastafulltrúi hjá
OECD og UNESCO, sendiráðsritari
í Moskvu 1977-79 en var þá veitt
lausn frá störfum að eigin ósk.
Jón var deildarstjóri í viðskipta-
ráðuneytinu 1979-80, sinnti lög-
fræðistöfum og ritstörfum í Reykja-
vík 1980-83, m.a. þýðingu á
Jón Ögmundur Þormóðsson skrifstofustjóri - 70 ára
Rithöfundurinn Jón Ögmundur hvílir sig á lestri og skriftum í bókasafni í Harvard í Cambridge.
Auðvitað er lífið haf-
sjór af tilvitnunum
Talstöðvasamband Jón Ögmundur og sonasonurinn, Elías Funi Þormóðs-
son, ræða málin í sófanum með hjálp labbrabbtækjanna.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Holtagörðum, s. 553-1800
Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-15
www.facebook.com/fondurlist
Föndur
Föndraðu fyrir
ferminguna
Úrvalið er hjá okkur
Föndur