Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hugar meira að þínum persónu-
legu málum en ella á næstu vikum. Fjöl-
skyldan býður þér allt það besta. Skipu-
leggðu tíma þinn svo þú komist yfir hlutina.
20. apríl - 20. maí
Naut Þótt þér finnist gaman að gefa öðrum
ráð, þá verður þú að minnast þess að þú átt
ekki að stjórna lífi annarra. Vertu rólegur, þú
þarft ekkert að vita alla hluti.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Með þeirri samskiptatækni sem til
er eiga boð milli vina ekki að dragast úr
hömlu eða detta upp fyrir. Reyndu að missa
ekki sjónar á velferð þinna nánustu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Spennan sem þú finnur til vegna yfir-
vofandi fundar með nýju fólki er til komin
vegna ímyndaðs mikilvægis þess. Stundum
þurfum við að taka því sem að höndum ber.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú munt rekast á gamlan félaga þar
sem þú áttir síst von á honum svo það verða
fagnaðarfundir. Allt í einu finnst þér allt snú-
ast um stöðu og frama.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Fólk sýnir þér vinsemd um þessar
mundir og á næstu vikum. Vertu opin/n fyrir
breytingum sem tengjast börnunum. Vertu
lítillátur, ljúfur og kátur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að verja sjálfan þig betur og
hætta að hafa svona miklar áhyggjur af fólki
sem þér finnst einblína á þig. Þú veltir fyrir
þér lífinu og tilverunni þessa dagana.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þetta er góður dagur til að ræða
vandamál sem hafa komið upp í vinnunni.
Gaumgæfðu líf þitt og kannaðu hvort þú vilt
breyta til.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér finnast aðrir gera of miklar
kröfur til þín en veist ekki hvernig þú átt að
komast undan þeim. Þú hefur sterka löngun
til að brjótast út úr viðjum vanans. Hafðu
ekki áhyggjur af tímanum, það liggur svo
mikið á.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þeir þættir í fari þínu sem fram að
þessu hafa valdið ánægju í vinahópnum virð-
ast nú valda þér erfiðleikum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú beinir athygli þinni mest að
hversdagslegum hliðum lífsins. Líklega getur
einhver kennt þér eitthvað, til að mynda á
sviði tækni eða vísinda.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Sá hæfileiki þinn að gera hlutina að-
laðandi gæti skipt sköpum í vinnunni í dag.
Leitaðu hins gullna meðalhófs. Stundum ertu
djúpur og aðra stundina ertu fullur af leik.
Davíð Hjálmar Haraldsson gerðisér að yrkisefni fregnir af gull-
fundi og væntanlegri gullleit hér á
landi.
Dregur gullið drós og hal,
drjúgur sviti lekur
þegar fólk í Þormóðsdal
þarf að brýna rekur.
Hjálmar Freysteinsson áttar sig á
því að best er að treysta varlega
merkingum á matvælum:
Í eftirlitinu eru göt
og oft við ljúgum.
Hér er sjaldan hrossakjöt
í hrossabjúgum.
Hreinn Guðvarðarson kastaði
fram afhendingu á Boðnarmiði á
fésbókinni undir yfirskriftinni „Um
tvo bridge-spilara-spekinga“:
Af eigin visku allri svo og öðrum gögnum
komust þeir í tígla tvo í tíu sögnum.
Philip Vogler sendi sögu af því er
hann var í heita pottinum með
nokkrum skólapiltum: „Einn bættist
við og var spurður hvort hann vildi
ekki segja sögu. Eins og svo oft
langaði mig strax að semja vísu með
orðunum sem stuðluðu. Ég lauk við
hana í sturtunni:
Margt hef ég til mála lagt,
það minnsta þó af viti.
Hef þar með alla sögu sagt
sæll að enginn nyti.“
Friðrik Hansen orti á sínum tíma:
Þó að ég sé gleðigjarn
og gangi á vegi hálum,
er ég saklaus eins og barn
í öllum kvennamálum.
„Úr skúffuhorni“ er yfirskrift
greinar Hannesar Péturssonar í
Skagfirðingabók frá árinu 1973.
Þar rifjar hann upp kveðskap Guð-
mundar Jónssonar, bónda Árnason-
ar á Kleif: „Einhvern tíma á færa-
skaki kvað Guðmundur:
Hér á að vera, hér á að bera niður,
hér á að laga handfærin,
hér á að laga þyrsklinginn.
Eitt sinn kom Guðmundur heim
úr Hólaneskaupstað. Verzlunarskip
hafði hafnað sig þar nýverið. Þeir,
sem heima sátu, spurðu hverjar
vörur það hefði flutt til staðarins.
Guðmundur anzaði því með vísu:
Korn, salt, mjölið, klæðin fín,
kolin, melís, rullu,
klúta, sjölin, léreft, lín
leirtau, þjöl, brauð, messuvín.
Færra er nefnt girnilegra hluta í
þessu stefi:
Flýti ég mér fljótt að reyna að fara í verið,
hef þó ekki neitt af neinu nema smérið.“
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahornið
Af hrossabjúgum, bridds
og gulli í Þormóðsdal
Í klípu
„BLA BLA BLA BLA BLA .. HÉRNA ER
ÞETTA: „LÁTIÐ MIG FÁ ALLA
PENINGANA!“ ÞÚ HEFÐIR NÚ GETAÐ
SLEPPT ÖLLU ÞESSU VÆLI Á UNDAN.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„AUÐVITAÐ ÞARFTU EKKI AÐ BORGA FYRIR
STÓRA PITSU EF ÞÚ PANTAÐIR LITLA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að velja saman
máltíð sem þið ætlið
að deila.
ÞETTA ER MERKILEGT
FRÍMERKI.
ÁHUGAVERT! TAKK
FYRIR UPPLÝSINGARNAR!
ÉG ER
EKKI BÚINN!
NEI SKO!
FLÓTTA-
LÚGAN ER AÐ
LOKAST!
STUNDUM SKIL ÉG EKKI HVERNIG ÞÚ
KRÆKTIR Í MIG, FREKAR EN ALLIR
UNGU VONBIÐLARNIR.
VOGUN
VINNUR,
VOGUN
TAPAR.
Víkverji kann óneitanlega vel viðsig í Vesturheimi og er enn með
kjötbragð í munni eftir að hafa grill-
að besta fáanlega nautakjöt vestra
svo til á hverju kvöldi í hálfan mánuð
ekki alls fyrir löngu.
x x x
Sumir hafa reynt að eyðileggjaímynd norður-ameríska nauta-
kjötsins með því að blanda sterum í
umræðuna en nautaræktendur, sem
Víkverji þekkir í Norður-Ameríku,
segja óvarlegt að alhæfa slíkt. Vissu-
lega séu svartir sauðir á meðal
þeirra eins og víða annars staðar en
þeir séu lítið brot af nautakjöts-
framleiðendum í álfunni.
x x x
Þegar „nautakjöt“ er keypt í Vest-urheimi er það nautakjöt.
Nautahakk er nautahakk og ribeye-
steik er ribeye-steik. Ekki skemmir
fyrir að hægt er að fá kg af besta
kjötinu fyrir sem samsvarar um
1.700 kr., miðað við að dollarinn
kosti 130 krónur.
x x x
Að undanförnu hefur verið sýntfram á að nautakjöt í Evrópu er
víða ekki nautakjöt heldur blanda af
nautakjöti og hrossakjöti. Svo langt
hefur þetta gengið að nautakjöt sem
ekki er nautakjöt, eins og til dæmis
kjötbollur í Ikea, hefur verið inn-
kallað í einhverjum löndum. Sagt
var að þetta hefði farið illa í Dani
sem vilja fá sínar kjötbollur í Ikea,
sama hvað á gengur. Víkverja finnst
þetta hin bestu meðmæli með
hrossakjöti og skilur ekki hvers
vegna framleiðendur merkja vöruna
ekki rétt. Þeir eiga að halda hrossa-
kjötinu á lofti frekar en að fela það.
x x x
En Íslendingar eru ekki barnannabestir í þessu efni. „Ekkert kjöt
reyndist í nautaböku“ var fyrirsögn í
Morgunblaðinu í gær. Þar kom fram
að innlend nautabaka var sögð inni-
halda 30% nautahakk í fyllingu, sem
átti að vera helmingur af þyngd vör-
unnar. Lambahakksbollur frá sama
fyrirtæki voru sagðar innihalda
lamba- og nautakjöt en þar var ekk-
ert nautakjöt. Þetta fær Víkverja til
að hugsa vestur. víkverji@mbl.is
Víkverji
Ef einhvern mann í ykkar hópi brestur
visku, þá biðji hann Guð sem gefur öll-
um örlátlega og átölulaust og honum
mun gefast. (Jakobsbréfið 1:5)
ÞARFNAST ÞÚ MEIRI ORKU
TIL DAGLEGRA STARFA?
Betri heilsa borgar sig!
Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is
Orkulausnir, henta einstaklingum sem glíma við
orkuleysi, þrekleysi, verki eða svefnvanda, svo
sem einstaklingum með vefjagigt og þeim sem
þurfa þjálfun eftir veikindi af ýmsum toga.
Orkulausnir hefjast•
12. mars
8 vikna námskeið.•
Þjálfun 2x í viku:•
Þri og fim kl. 10:00
eða 15:00.
Fræðsla um svefntruflanir, streitu, andlega•
líðan og verki.
Einstaklingsviðtal við hjúkrunarfræðing.•
Þjálfari: Linda Gunnarsdóttir, sjúkraþjálfari.•
Verð kr. 16.900 pr. mán. (samtals 33.800 kr.•
fyrir 8 vikur).