Morgunblaðið - 01.03.2013, Síða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013
Þetta reddast!
Kvikmynd eftir Börk Gunnarsson
sem segir af drykkfelldum blaða-
manni sem kominn er á síðasta
séns, bæði í ástarmálum og starfi.
Til að bjarga sambandinu skipu-
leggur hann rómantíska ferð á
Snæfellsnes en er skipað af yfir-
manni sínum að fara í vinnuferð í
Búrfellsvirkjun. Blaðamaðurinn
ákveður að bjóða kærustunni með í
vinnuferðina en við Búrfell gerist
margt óvænt. Í aðalhlutverkum eru
Björn Thors, Jón Páll Eyjólfsson,
Maríanna Clara Lúthersdóttir og
Guðrún María Bjarnadóttir.
Beautiful Creatures
Kvikmynd byggð á samnefndri
skáldsögu og segir af ungri konu,
Lenu, sem þarf að velja milli ljóss
og myrkurs á 16 ára afmæli sínu en
í fjölskyldu hennar eru allir gæddir
yfirnáttúrulegri orku. Ungur mað-
ur verður ástfanginn af Lenu og
reynir að koma í veg fyrir að hún
gangi myrkrinu á vald. Leikstjóri
er Richard LaGravenese og í aðal-
hlutverkum eru Alice Englert og
Alden Ehreinreich.
Rotten Tomatoes: 45%
21 and Over
Jeff Chang á 21 árs afmæli og til að
fagna því ákveða vinir hans að fara
með honum út á lífið. Vandinn er sá
að morguninn eftir á Chang að
þreyta mikilvægasta próf ævi sinn-
ar. Vinum hans tekst engu að síður
að sannfæra hann um að sletta ör-
lítið úr klaufunum. En kvöldið verð-
ur ekki jafnrólegt og til stóð. Leik-
stjórar eru Jon Lucas og Scott
Moore og í aðalhlutverkum eru
Jonathan Keltz, Justin Chon, Miles
Teller og Sarah Wright. Enga sam-
antekt á gagnrýni er að finna um
myndina enn sem komið er.
Flóttinn frá jörðu
Teiknimynd sem segir af geimver-
um, sk. Bláverjum, sem svara neyð-
arkalli frá jörðu. Hetja bláveranna,
Scorch Supernova, fer fremstur í
flokki Bláverja í björgunarleið-
angrinum og komast þeir að því að
jörðin er býsna hættulegur staður
fyrir geimverur. Leikstjóri er Cal
Brunker og af helstu leikurum í ís-
lenskri talsetningu má nefna Ævar
Þór Benediktsson, Viktor Má
Bjarnason, Sólmund Hólm Sól-
mundarson, Hjálmar Hjálmarsson,
Selmu Björnsdóttur, Lilju Nótt Þór-
arinsdóttur og Jóhönnu Vigdísi
Arnardóttur. Um leikstjórn talsetn-
ingar sá Tómas Freyr Hjaltason.
Rotten Tomatoes: 27%
Þess má að lokum geta að Ósk-
arsverðlaunamyndin Argo hefur
verið tekin aftur til sýninga í Sam-
bíóunum Egilshöll og kvikmynda-
klúbburinn Svartir sunnudagar
sýnir gamanmyndina Pee-wee’s Big
Adventure í Bíó Paradís á sunnu-
daginn kl. 20.
Bíófrumsýningar
Geimverur og gallagripir
Gleðskapur Úr gamanmyndinni 21 and Over sem frumsýnd verður í dag.
Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn
Steven Spielberg verður formaður
dómnefndar kvikmyndahátíðar-
innar í Cannes í ár sem hefst 15.
maí. Spielberg er einhver þekktasti
kvikmyndaleikstjóri heims og hlaut
nýjasta kvikmynd hans, Lincoln,
tvenn Óskarsverðlaun sunnudaginn
sl. Spielberg frumsýndi eina af sín-
um þekktustu myndum, E.T., á há-
tíðinni í Cannes árið 1982 og hefur
verið tíður gestur á henni æ síðan.
Hann hefur margsinnis verið beð-
inn um að leiða dómnefndina og
hefur nú loksins þekkst boðið. Formaðurinn Steven Spielberg.
Spielberg verður
formaður í Cannes
Myndlistarhópur Hlutverkaseturs í
Reykjavík opnar þriðju sýningu
sína í 002 galleríi í Hafnarfirði í dag
kl. 17. Galleríið er í íbúð 002, Þúfu-
barði 17 sem er heimili og sýning-
arrými Birgis Sigurðssonar, mynd-
listarmanns og rafvirkja. Sýnendur
vinna í ýmsa miðla, sýna m.a. bæk-
ur, tússteikningar og málverk unn-
in með olíu á tréplötur og striga.
Verkin voru unnin í fyrra á mynd-
listarnámskeiðum í Hlutverka-
setrinu undir leiðsögn listkenn-
aranna Önnu Henriksdóttur, Svöfu
Bjargar Einarsdóttur og Hildar
Margrétardóttur. Sýningin verður
opin til kl. 21 í kvöld og um helgina
milli kl. 14 og 17. Hún stendur að-
eins yfir þessa helgi.
Myndlist Frá einu af myndlistar-
námskeiðum Hlutverkaseturs.
Hlutverkasetur í
002 galleríi
Íslenskir og erlendir listamenn
munu í dag og á morgun sýna
borgarbúum afrakstur lista-
mannadvalar sinnar hér í borg
undanfarnar tvær vikur á Make
Space Initiative sem er samstarfs-
verkefni hátíðanna The Festival á
Íslandi og ANTI í Finnlandi. Lista-
mennirnir eru Satu Herrala og
Mari Keski- Korsu frá Finnlandi,
hin sænsk/danska Juli Reinartz og
Eva Ísleifsdóttir. Listamennirnir
hafa unnið með borgarbúum að
verkefnum sínum, að því er fram
kemur í tilkynningu. Þar segir að
meðal þeirra viðburða sem boðið
verði upp á sé fyrirlestraröð í salt-
vatnspottinum í Laugardalslaug
og að flugdrekum verði flogið með
það að markmiði að „kæla jörðina
á túninu við Norræna Húsið“ og
að kveikt verði í húsi í miðbænum
en þó ekki í bókstaflegum skiln-
ingi. Með því síðastnefnda er átt
við verkefni Evu Ísleifsdóttur, Cry
Havoc, sem felst í því að „eitt hús
hefur verið valið í samráði við
borgarbúa sem þeir telja að eigi
að brenna í Reykjavík“, eins og
því er lýst. Frekari upplýsingar
má finna á thefestival.is.
Flug Flugdrekar koma við sögu í
verkefninu Make Space Initiative.
Kveikt í húsi á Make
Space Initiative
AFP
100/100
R.Ebert
100/100
Entertainment Weekly
DENZEL WASHINGTON
Frá Óskars-
verðlauna-
leikstjóranum
sem færði okkur
Forrest Gump
og Cast Away
– Robert Zemeckis
2 ÓSKARSTILNEFNINGAR
3
14
3 óskarstilnefningar
“Ekta hátíðarævintýri fyrir alla famelíuna.”
-Séð & Heyrt/Vikan
SÝND Í
3D(48 ramma)
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
L
L
21 AND OVER Sýndkl.8-10
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU Sýndkl.4
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D Sýndkl.4
FLIGHT Sýndkl.6-9
VESALINGARNIR Sýndkl.6-9
THE HOBBIT 3D (48 ramma) Sýndkl.4
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
m.a. Besta
leikkona
í aukahlutverki
12
12
12
Stórskemmtileg teiknimynd
fyrir alla fjölskylduna!
ÓSKARSVERÐLAUN
M.A. BESTI LEIKARI ÁRSINS
DANIEL DAY-LEWIS
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
-EMPIRE
21 AND OVER KL. 5.50 - 8 - 10 14
THIS IS 40 KL. 8 12 / DIE HARD 5 KL. 10.20 16
JAGTEN (THE HUNT) KL. 5.50 12
21 AND OVER KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 14
21 AND OVER LÚXUS KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 14
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D KL. 3.40 - 5.50 L
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 2D KL. 3.40 L
THIS IS 40 KL. 8 - 10.45 12
DIE HARD 5 KL. 5.40 - 8 - 10.20 16
HÁKARLABEITA 2 KL. 3.30 L
DJANGO KL. 5.40 - 9 16
“MÖGNUÐ MYND Í
ALLA STAÐI”
-V.J.V., SVARTHÖFÐI
- H.S.S., MBL
Yippie-Ki-Yay!
JAGTEN (THE HUNT) KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
THIS IS 40 KL. 10.30 12
KON-TIKI KL. 5.30 - 8 12
LIFE OF PI 3D KL. 8 - 10.40 14
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D KL. 6 L
LINCOLN KL. 6 - 9 14