Morgunblaðið - 12.03.2013, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2013
Andri Karl, Baldur Arnarson,
Egill Ólafsson og Una Sighvatsdóttir
Vantrauststillaga Þórs Saari, þing-
manns Hreyfingarinnar, var felld
með 32 atkvæðum gegn 29 á Alþingi.
Var þetta önnur atlaga Þórs að van-
trausti en hann dró þá fyrri til baka
21. febrúar og útilokaði ekki í kjöl-
farið að leggja hana fram á ný.
Þingmönnum var mörgum hverj-
um heitt í hamsi í umræðum um til-
löguna og voru framíköll ófá.
Atkvæði féllu eftir flokkslínum.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks,
Framsóknarflokks og Hreyfingar-
innar studdu tillöguna. Það gerði
einnig Lilja Mósesdóttir, en Jón
Bjarnason sat hjá í atkvæðagreiðsl-
unni. Fyrrverandi félagi þeirra í VG,
Atli Gíslason, var fjarverandi. Öll
eru þau þrjú utan flokka. Allir þing-
menn Samfylkingar, VG og Bjartrar
framtíðar greiddu atkvæði gegn til-
lögunni, eða samtals 32 þingmenn.
Stjórninni ber að fara frá
Þór Saari kynnti tillögu sína svo:
„Tillagan … er svohljóðandi með
leyfi forseta: Alþingi ályktar að lýsa
vantrausti á ríkisstjórnina. Alþingi
lýsir þeim vilja sínum að þing verði
rofið og efnt til almennra þingkosn-
inga. Fram að kjördegi sitji ríkis-
stjórn skipuð fulltrúum allra flokka á
þingi … Með hliðsjón af því grund-
vallaratriði í lýðræðisríkjum að allt
vald komi frá þjóðinni virðist ríkis-
stjórnin ganga í berhögg við augljós-
an vilja þjóðarinnar um nýja
stjórnarskrá. Slíkri ríkisstjórn er
eðli málsins samkvæmt ekki stætt að
vera við völd og ber því að fara frá.“
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra gagnrýndi tillöguna.
„Háttvirtur þingmaður velur í
raun heimskulegustu leið sem hægt
er að hugsa sér í núverandi stöðu;
ræðst til atlögu við helstu samherja
sína í málinu og kallar eftir banda-
lagi við þá sem helst hafa barist gegn
nýrri stjórnarskrá með málþófi og
klækjabrögðum sem aldrei fyrr.
Verði tillagan samþykkt er það vís-
asta leiðin til að ná engum árangri í
stjórnarskrármálinu … Hið eina
sem kemur í veg fyrir afgreiðslu
málsins er fordæmalaust málþófs-
ofbeldi þingmanna Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks.“
Ríkisstjórnin rúin trausti
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, túlkaði van-
traustið á þennan veg:
„Ég hef áður staðið í þessum
ræðustól og sagt að ríkisstjórnin sé
rúin trausti. Það er það sem þetta
vantraust snýst um … Þessi tillaga
sem hér liggur fyrir í dag fjallar um
það mál sem oft á tíðum hefur sýnt í
hnotskurn ranga forgangsröðun
ríkisstjórnarinnar. Ég og flutnings-
maður tillögunnar erum jafn ósam-
mála í því máli og tveir menn geta
orðið um nokkurt mál,“ sagði Bjarni
en sem fyrr segir studdu þingmenn
Sjálfstæðisflokksins tillöguna.
Skýli sér á bak við Þór
Össur Skarphéðinsson utan-
ríkisráðherra sakaði stjórnarand-
stöðuflokkana um að fela „sig á bak
við hið … breiða bak Þórs Saari“.
„Dapurlegast er hlutskipti Sjálf-
stæðisflokksins. Eru menn búnir að
gleyma landsdómsmálinu? Ég er
ekki búinn að gleyma því. Það var
mér þungbært og erfitt og er það
enn,“ sagði Össur sem rifjaði upp að
Bjarni Benediktsson hafi á sínum
tíma viknað í ræðustól þegar hann
ræddi „herförina“ að Geir Haarde,
„réttilega“.
„Og hver var það sem valdi þá
þeim ágæta manni hæðilegustu köp-
uryrðin sem íslensk tunga á að
geyma? Það var háttvirtur þingmað-
ur Þór Saari,“ sagði Össur. Því væru
það ill örlög Sjálfstæðisflokksins að
gerast nú málaliði Þórs Saari.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
sagði ekkert hafa verið rætt um til-
lögu að nýrri stjórnarskrá. „Svoleið-
is að það er nú erfitt fyrir hæstvirtan
forsætisráðherra að halda því fram
að það mál hafi verið stöðvað með
málþófi stjórnarandstöðu þegar það
er ekki byrjað að ræða það.“
Morgunblaðið/Ómar
Spennufall Þingmenn standa upp eftir atkvæðagreiðsluna. Þetta er önnur vantrauststillagan sem lögð er fram gegn stjórninni. Sú fyrri var felld 2011.
Vantrauststillaga felld
32 þingmenn greiddu atkvæði gegn tillögu Þórs Saari en 29 með henni
Forsætisráðherra segir Þór hafa valið heimskulegustu leiðina í stöðunni
„En tillagan sem
hér hefur verið
lögð fram mun
ekki leiða til
neins góðs og
ekki neins nýs.
Hún mun fyrst og
fremst valda því
að kosningum
þarf að flýta um
tvo daga og
ógilda þá utankjörfundaratkvæða-
greiðslu sem hafin er,“ sagði Árni
Páll Árnason, formaður Samfylk-
ingar, á Alþingi í gær. Hann sagði
dapurlegt að Þór Saari og Bjarni
Benediktsson „fallist í kæfandi
faðmlag“. Þar „sameinist öfgaöflin“
um „kyrrstöðu vonleysisins“.
„Kæfandi
faðmlag“ Þórs
og Bjarna
Árni Páll Árnason
Fyrrverandi forstöðumaður milli-
bankamarkaðar í fjárstýringu Glitn-
is, Friðfinnur Ragnar Sigurðsson,
var í gær dæmdur í eins árs óskil-
orðsbundið fangelsi fyrir innherja-
svik í Héraðsdómi Reykjaness.
Manninum var gefið að sök að hafa
selt hlutabréf sín í Glitni að andvirði
20 milljóna króna á nokkurra mán-
aða tímabili árið 2008, þrátt fyrir að
hafa búið yfir innherjaupplýsingum í
öllum tilvikum er vörðuðu lausafjár-
stöðu bankans sem hann varð
áskynja í starfi sínu.
Ákæran var í þremur liðum, fyrri
liðirnir tveir vörðuðu sölu hlutabréfa
í mars og apríl 2008. Í þessum tveim-
ur liðum telur dómurinn að upplýs-
ingar sem ákæruvaldið vísi til teljist
til innherjaupplýsinga, þær hafi ekki
verið gerðar opinberar og verið lík-
legar til að hafa marktæk áhrif á
markaðsverð í Glitni ef þær hefðu
verið opinberar. Þriðji ákæruliður-
inn varðar sölu hlutabréfa um miðj-
an september 2008. Um þennan
ákærulið segir dómurinn m.a. að
sýnt þyki að ákærði hafi búið yfir ná-
kvæmum og tilgreindum upplýsing-
um um yfirvofandi veðköll, sem
markaðurinn hafði ekki og hefðu án
efa haft marktæk áhrif á hlutabréf í
Glitni.
Forstöðumaðurinn fyrrverandi er
fæddur 1976 og í dómsorði er honum
gert að sæta upptöku á 19,2 millj-
ónum króna, þ.e. ávinningi hans af
sölu hlutabréfa í Glitni eftir skatta.
Þá er ákærða gert að greiða verj-
anda sínum tvær milljónir króna í
þóknun.
Dæmdur í árs fangelsi
fyrir innherjasvik
Seldi hlutabréf í Glitni banka fyrir 20 milljónir árið 2008
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þrot Glitnir féll í október 2008
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðherra, gagnrýndi tillögu Þórs Saari.
„Ég held að þessi vantrauststillaga sé sennilega
það furðulegasta og fjarstæðukenndasta sem hér
hefur verið borið á borð, eins og umræðan um hana
hefur sýnt,“ sagði Steingrímur sem taldi að Þór ætti
heldur að flytja vantraust á Sjálfstæðisflokkinn.
„Sjálfstæðisflokkurinn kemur alltaf úr kafinu í
lokin og kemur í veg fyrir að við komumst lönd né
strönd með stjórnarskrána vegna þess að það á ekki
að breyta henni nema eins og Sjálfstæðisflokkurinn
vill hafa hana,“ sagði Steingrímur.
„Það fjarstæðukenndasta“
ATVINNUVEGARÁÐHERRA VAR HARÐORÐUR
Steingrímur J.
Sigfússon
léttur fiskréttur
’
Það er komið nýtt þríeyki fram í ísl.
stjórnmálum … Þór Saari yfir-
formaður og varaformennirnir Bjarni
Benediktsson … og Sigmundur Davíð.“
Steingrímur J. Sigfússon
’
Mér er slétt sama þó hæstvirtur
utanríkisráðherra Össur Skarphéð-
insson gjammi hér enn einu sinni … Það
er ekkert óheiðarlegt við þetta hæst-
virtur utanríkisráðherra. Stundum færi
þér betur að þegja.“
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
’
Það er algjörlega ljóst að það eru
þessir þrír flokkar sem ætla í kosn-
ingabandalag og Framsóknarflokkurinn
verður ekki í því bandalagi, þannig að
það sé tekið af skarið strax með það;
ekki frekar en í bandalagi með öðrum
flokkum.“
Gunnar Bragi Sveinsson, formaður
þingflokks framsóknarmanna, vísar
til meints bandalags Samfylkingar, VG
og Bjartrar framtíðar.
’
Ég tel þessa atkvæðagreiðslu um
vantraust og þingrof sjö vikum fyrir
kosningar gott dæmi um það sem fólk
vill ekki sjá frá Alþingi Íslendinga.“
Katrín Jakobsdóttir
’
Það að þröngva málinu núna í at-
kvæðagreiðslu gerir það að verkum
að málið lokast, það koma kosningar og
næsta þing verður að segja af eða á, því
verður stillt upp við vegg, já eða nei,
viljið þið allan pakkann eða ekkert? Við
höfum verið að segja … að þessi leið
kunni að vera vísasta leiðin til að fara
með alla heildarendurskoðunina rak-
leiðis í ruslakistuna.“
Guðmundur Steingrímsson
’
Þetta er fyrsta stjórnarskráin okk-
ar, þar sem okkur öllum var boðið
að taka þátt … Svona tækifæri mun
ekki bjóðast aftur.“
Birgitta Jónsdóttir
Orðrétt af Alþingi