Morgunblaðið - 12.03.2013, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 12.03.2013, Blaðsíða 35
Í Reykjavík starfaði Ingimar hjá Byggingavöruverslun SÍS í nokkur ár, var gangavörður í Árbæjarskóla og síðar í Hólabrekkuskóla. Þá starfaði hann við íþróttahús. Vill skrifa endurminningar Ingimar var formaður Héraðs- sambands Strandamanna 1951-56 og 1967-72 og sat í hreppsnefnd Kaldrananeshrepps 1954-70. Hvað hefurðu haft fyrir stafni eftir að þú hættir að vinna? „Ekkert sem orð er á gerandi. Jú, ég hef haft gaman af að setja saman vísur og kvæði. Þetta er gamall ávani frá því ég var ungur maður.“ Er þá ekki kominn tími á útgáfu? „Nei, það verður nú ekki af því. En það hefur hvarflað að mér að setja einhverjar endurminningar á blað, greina frá uppgangi og þróun á Drangsnesi og aðstæðum við kennslu á Klúku, svo eitthvað sé nefnt. Ég hef upplifað ýmislegt um dagana.“ Þú leyfir mér nú að heyra eitthvað eftir þig um æskuslóðirnar? „Það væri þá helst þetta:“ Norður Strandir liggja leiðir langar götur út með sjó. Húnaflói hugann seiðir heimabyggðar kyrrð og ró. Sígur alda að svörtum björgum sömu fjöllin standa vörð. Eins og fyrir öldum mörgum, Ennishöfði, Drangaskörð. Sé ég ótal undraheima er ég kem í dalinn minn. Fornar sagnir sögur geyma um Svan er gekk í fjallið inn. Gleði vekja gömul kynni, grænu flosi skrýdd er jörð. Aldrei hverfur mér úr minni minningin um Steingrímsfjörð. Fjölskylda Ingimar kvæntist 7.4. 1953 Ástu Vigdísi Bjarnadóttur, f. 30.11. 1932, húsfreyju. Hún er dóttir Bjarna Bjarnasonar, bónda í Gautshamri og á Drangsnesi, og k.h., Önnu Áskels- dóttur húsfreyju. Börn Ingimars og Ástu Vigdísar eru Bjarni Jónas Ingimarsson, f. 31.12. 1952, d. 6.7. 2008, lengst af skrifstofumaður hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli, var búsettur í Njarðvík og var kvæntur Söru Harð- ardóttur en dætur þeirra eru Sara og Ásta Vigdís; Þorbjörg Eyrún Ingimarsdóttir, f. 20.12. 1953, ráðs- kona við leikskóla í Reykjavík, bú- sett í Reykjavík, gift Árna Ingasyni og er sonur þeirra Ingi Ernir en fyrri maður Þorbjargar er Helgi Nil- sen og eru synir þeirra Ingimar Karl og Brynjar; Elías Jakob Ingimars- son, f. 22.6. 1956, húsa- og bátasmið- ur og framkvæmdastjóri Bláfells, búsettur í Reykjanesbæ en dóttir hans og Sjafnar Magnúsdóttur er Ellen Dana og börn hans og fyrrv. konu hans, Jóhönnu Harðardóttur, eru Ingimar og Ása Lind en sam- býliskona hans er Magnea Guðný Róbertsdóttir; Ástmar Ingimarsson, f. 25.6. 1959, verkamaður í Reykja- vík; Ingi Vífill Ingimarsson, f. 27.9. 1962, útvegsb. á Kaldrananesi við Bjarnarfjörð en kona hans er Birna Ingimarsdóttir og eru börn þeirra Alda Ýr og Daníel Elí en börn hans og fyrrv. konu hans, Brynju Brynj- arsdóttur, eru Arnór og Eygló. Systkini Ingimars eru Þorbjörg Elíasdóttir, f. 22.4. 1930, húsfreyja á Akureyri, gift Frímanni Haukssyni; Esther Elíasdóttir, f. 6.7. 1932, hús- freyja á Akureyri, gift Bjarna Jóns- syni; Bjarni Elíasson, f. 29.8. 1933, fyrrv. útgerðarmaður á Drangsnesi, nú búsettur í Reykjanesbæ en kona hans var Gyða Steingrímsdóttir sem er látin; Sólrún Elíasdóttir, f. 24.8. 1936, fyrrv. gangavörður, búsett í Kópavogi, gift Sigmari Ingvarssyni. Foreldrar Ingimars voru Páll Elí- as Bjarnason, f. 15.5. 1899, d. 10.8. 1987, bóndi á Mýrum við Drangsnes, og Jakobína Guðrún Halldórsdóttir, f. 14.5. 1900, d. 22.7. 1995, húsfreyja. Úr frændgarði Ingimars Elíassonar Ingimar Elíasson Guðríður Pálsdóttir húsfr. á Svanshóli, systir Soffíu á Kleifum Jón Arngrímsson b. á Svanshóli Halldór Jónsson b. á Kaldrananesi Þorbjörg Kristjánsdóttir húsfr. Jakobína Guðrún Halldórsdóttir húsfr. á Mýrum Kristján Kristjánsson vinnum. á Hellu Júlíana Kristjana María Jónsdóttir Helga Hjaltadóttir húsfr. Guðmundur Guðmundsson úr Tröllatungusókn Jóhanna Guðmundsdóttir húsfr. á Klúku Bjarni Guðmundsson b. á Klúku í Bjarnarfirði Páll Elías Bjarnason b. á Mýrum við Drangsnes Guðmundur Guðmundsson b. á Kleifum í Kaldbaksvík Soffía Pálsdóttir af Pálsætt, bróðurdóttir Guðmundar í Kjörvogi, langafa Hannibals Valdimarssonar, föður Jóns Baldvins, fyrrv. ráðherra, og Arnórs heimspekings. Þá var Soffía systurdóttir Jóns Magnússonar á Saurhóli, afa Stefáns frá Hvítadal og systur hans, Guðbjargar á Hörgshóli, ömmu Nínu Bjarkar Árnadóttur skáldkonu Ingimundur Jónsson b. á Svanshóli Guðjón Ingimundars. sundkennari, skólastj. og forseti bæjarstjórnar á Sauðárkróki Birgir Guðjónsson læknir Ingimundur Kristján Guðjónsson tannlæknir ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2013 Jón Björnsson rifhöfundurfæddist í Holti á Síðu 12.3.1907 og ólst þar upp. Hann var sonur Björns Runólfssonar, hrepp- stjóra í Holti, og k.h., Marínar Þór- arinsdóttur húsfreyju. Föðurbróðir Siggeirs var Vigfús, afi Helga Þorlákssonar skólastjóra, föður Þorkels stærðfræðiprófessors og Þorvaldar Karls, prests í Njarð- víkum. Föðursystir Siggeirs var Oddný, móðir Jóns Kjartanssonar, alþm. og ritstjóra. Systkini Jóns: Siggeir, hrepp- stjóri í Holti á Síðu; Sigrún, hús- freyja á Lundum í Stafholtstungum; Runólfur, lengst af starfsmaður í prentsmiðju Þjóðviljans og Sigur- laug, húsmóðir í Reykjavík. Fyrri kona Jóns var Guðbjörg Sigurðardóttir en seinni kona hans var Gréta Sigfúsdóttir skáldkona. Jón stundaði nám við lýðháskól- ann Voss í Noregi 1929-30 og lýðhá- skólann Askov í Danmörku 1930-32. Hann var búsettur í Danmörku fram að lokum seinni heimsstyrjaldar en síðan hér á landi. Jón var bókmenntagagnrýnandi við Morgunblaðið 1948-55 og bóka- vörður við Borgarbókasafnið í Reykjavík 1959-77. Þá var hann rit- stjóri tímaritsins Heima er best 1952-1955. Jón var afkastamikill rithöfundur. Hann samdi þó nokkrar vinsælar spennusögur fyrir drengi, fyrst á dönsku en þýddi þær síðan á íslensku, s.s. Leyndardómar fjallanna, útg. í Danmörku 1945 og á Íslandi 1947; Smyglararnir í skerja- garðinum, 1945 og 1948; Sonur öræf- anna, 1944 og 1949; Á reki með haf- ísnum, 1944 og 1950, og Steini í Ásdal, 1957. Þá skrifaði Jón sögulegar skáld- sögur, þ. á m. Jón Gerreksson, 1947; Valtýr á grænni treyju, 1951, og Jómfrú Þórdís, 1964. Hann samdi auk þess fjölda smásagna sem birt- ust í norskum, sænskum, dönskum og þýskum blöðum og tímaritum og skrifaði greinar í erlend dagblöð. Jón sat í stjórn Félags íslenskra rit- höfunda. Jón lést 15.2. 1994. Merkir Íslendingar Jón Björnsson 95 ára Regína Guðmundsdóttir 85 ára Haraldur Sigurbergsson Kristrún Guðmundsdóttir 80 ára Erna Eden Marinósdóttir Guðný Sigurbjörnsdóttir Ingimunda Ólöf Sigurðardóttir Jóhann M. Þorvaldsson Sigtryggur Kristjánsson Stefán Bragi Einarsson 75 ára Ágúst Þór Oddgeirsson Bragi Björnsson Gísli S. Hafliðason Guðbjörg Pálína Sveinsdóttir Kolbeinn Sæmundsson Ragnheiður Þorsteinsdóttir Þórhallur Hermannsson 70 ára Bragi Ólafsson Hallfríður Elíasdóttir Jóhann Purkhús Ragnheiður Skúladóttir Ragnheiður Þormóðsdóttir Sturla Kristjánsson 60 ára Aðalbjörg María Ólafsdóttir Anna Elín Marteinsdóttir Erna Steina Guðmundsdóttir Gísli Sæmundur Guðmundsson Inga Sigrún Gærdbo Ólafsdóttir Lárus Björgvin Jónsson Margrét Ólafsdóttir Pálmar Karl Sigurjónsson Þorsteinn Pétursson 50 ára Alda Alberta Guðjónsdóttir Guðný Herdís Kjartansdóttir Hálfdán Gústav Hálfdánarson Helga Lísa Jónsdóttir Helga Tómasdóttir Paulo Jorge Massano G. Da Cunha Sigrún Gísladóttir Sigurður Egill Rögnvaldsson Þorgeir Smári Einarsson 40 ára Anna Vilborg Sölmundardóttir Bryndís Theresía Gísladóttir Daníel Brandur Sigurgeirsson Gareth Carlisle Rendall Hanna Margrét Einarsdóttir Helgi Einar Harðarson Honeyly Abrequino Limbaga Hulda Lóa Svavarsdóttir Ingi Valur Þorgeirsson Ingvar Valsson Ryszard Witek Sólveig Ásgeirsdóttir Þormóður Kristján Aðalbjörnsson 30 ára Aðalheiður Jóhannsdóttir Ellert Bjarki Gunnarsson Guðrún Kristín Björnsdóttir Jóhanna Helga Viðarsdóttir Katarzyna Anna Jablonska Kusse Sukuta Bersha Ósk Dagsdóttir Róbert Aron Ólafs Kristinsson Til hamingju með daginn 30 ára Steinunn ólst upp í Kópavogi, lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá HÍ og starfar hjá Umferðar- stofu. Maki: Stefán Jökull Sig- urðarson, f. 1979, forritari hjá CCP. Dóttir: Steinunn Edda Stefánsdóttir, f. 2011. Foreldrar: Steinunn Pét- ursdóttir, f. 1945, hjúkr- unarfræðingur, og Skúli Birgir Kristjánsson, f. 1946, d. 1998, sjómaður. Steinunn Skúladóttir 40 ára Ingibjörg ólst upp í Súðavík, stundar sjúkra- liðanám við MÍ og er deildarstjóri heimaþjón- ustu hjá Ísafjarðarbæ. Maki: Haraldur Á. Kon- ráðsson, f. 1970, skipstj. Börn: Kolbrún María, f. 1991; Halldór Ingvi, f. 1995, og Eggert Karvel, f. 1998. Foreldrar: Dagrún Dag- bjartsdóttir, f. 1955 og fósturfaðir, Halldór Jóns- son, f. 1959. Ingibjörg Guðný Kjartansdóttir 30 ára Sigurður er raf- virki frá FB og er að ljúka meistaraprófi í greininni. Sonur: Breki Páll Sigurð- arson, f. 2009. Systir: Ásta Kristín, f. 1987. Stjúpsystkini: Hjör- dís B. Zebitz, f. 1978, og Guðmundur S. Zebitz, f. 1973. Foreldrar: Páll Sigurðs- son, f. 1958, og Guðrún M. Þorbergsdóttir, f. 1961, d. 1991. Stjúpmóðir: Sig- rún Bjarnadóttir, f. 1956. Sigurður Óskar Pálsson Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is Golfhermir DOUBLE EAGLE 2000 Frábær aðstaða til að spila golf. Þú getur valið um 9 golfvelli, St. Andrew´s, Coeurd Alene, Firestone, Pebble Beach, Druids Glen, Doral Resort, Emirates. Óþarfi að týna sveiflunni í vetur Hægt er að bóka fasta tíma í vetur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.