Morgunblaðið - 12.03.2013, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2013
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Ef fer sem horfir verða allt að nítján
stjórnmálasamtök í framboði í kom-
andi alþingiskosningum en a.m.k.
fjórtán hyggjast bjóða fram í öllum
kjördæmunum sex. Einn flokkur,
Landsbyggðarflokkurinn, hefur
ákveðið að bjóða fram í færri kjör-
dæmum, eða þremur, þ.e. Norðvest-
urkjördæmi, Norðausturkjördæmi
og Suðurkjördæmi.
Af átján stjórnmálasamtökum með
listabókstaf munu a.m.k. þrjú ekki
bjóða fram í kosningunum í vor. Það
eru Frjálslyndi flokkurinn og Borg-
arahreyfingin, sem fara fram undir
merkjum Dögunar, og Samstaða. Að
sögn forsvarsmanna Bjartsýnis-
flokksins, sem hefur listabókstafinn
E, verður ákvörðun um framboð tekin
í vikunni en óvíst er um framboð
Framfaraflokksins, sem hefur lista-
bókstafinn K, og Lýðræðishreyfing-
arinnar, sem hefur listabókstafinn P.
Allt að nítján flokkar í framboði
Fjöldi fram-
bjóðenda Fjöldi
Kjördæmi Þingsæti á lista meðmælenda
Norðvesturkjördæmi 8 16 240-320
Norðausturkjördæmi 10 20 300-400
Suðurkjördæmi 10 20 300-400
Suðvesturkjördæmi 13 26 390-520
Reykjavíkurkjördæmi suður 11 22 330-440
Reykjavíkurkjördæmi norður 11 22 330-440
63 126 lágmark 1.890
Samanlagður fjöldi miðað við
19 flokka í framboði á landsvísu: 2.394 35.910
Stefnir í líflega
kosningabaráttu
Eitt býður ekki fram á landsvísu
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
VATTERAÐIR
JAKKAR
KR. 12.900.-
Litir: brúnt, dökkblátt
Str. S - XXL
Klútur á kr. 1.990.-
MIKIÐ ÚRVAL
af garni, blöðum, prjónum,
tölum, og öðrum prjónavörum
Þönglabakka 4, sími: 571-2288, www.gauja.is
Lopi frá
Ístex -
mögulega
besta
verð á
landinu!
Laugavegi 63 • S: 551 4422
GARDEUR
GALLABUXUR
margir litir, mörg snið
laxdal.is
Vertu
vinur
á
Svartar
klassískar
Tilboðsverð
17.900
Buxur kr. 1.000.-
Buxur kr. 2.500.-
Kjólar kr. 4.000.-
1.000 kr. hengi
3.000 kr. hengi
Eddufelli 2 - sími 557-1730
Opið virka daga 10-18
LAGER
HREINSUN
SÍÐUSTU DAGAR
RÍTA LOKAR Í
EDDUFELLI
Laugavegi 178 - S. 555 1516
Opið virka daga kl. 11-18,
laugardaga kl. 11-16.
Flottar þessar!
Leggings frá one two
7.900 kr.
Str. S-XXL- háar í mittið
Um hádegi í gær voru yfir 400 ís-
lensk skip á sjó, sem er með því
mesta undanfarna daga. Víðast
hvar var gott veður, nokkuð sem
sjómenn hafa ekki átt að venjast
að undanförnu.
Nú þegar veður fer batnandi og
vorar í lofti eykst sjósókn þar
sem bátasjómenn fara að hugsa
sér til hreyfings og halda til
veiða. Landhelgisgæslan minnir á
heimasíðu sinni sjómenn á að
kanna gildistíma haffær-
isskírteina og vera með lögskrán-
ingar í lagi um borð áður en hald-
ið er á sjó.
„Að undanförnu hefur talsvert
borið á því að starfsmenn á að-
gerðasviði Landhelgisgæslunnar
hafi þurft að gera athugasemdir
við ferðir báta á sjó þar sem þessi
mál hafa ekki verið í lagi. Ef bátar
eða skip eru ekki með lögskrán-
ingar- og réttindamál í lagi eða
gild haffærisskírteini er Landhelg-
isgæslunni uppálagt samkvæmt
lögum og reglugerðum að vísa
þeim til hafnar. Eins er Landhelg-
isgæslunni uppálagt samkvæmt
sömu ákvæðum að kæra og til-
kynna slík mál til lögreglustjóra í
viðkomandi umdæmi sem getur
leitt til sekta í kjölfarið,“ segir á
heimasíðunni.
Yfir 400 skip á sjó í gær
Landhelgisgæslan hefur þurft að gera athugasemdir
vegna lögskráningar, réttindamála og haffærisskírteina
Morgunblaðið/Ernir
Við Reykjavíkurhöfn Með hækk-
andi sól eykst sjósókn minni báta.
mbl.is
alltaf - allstaðar
Framkvæmdir eru hafnar í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar sem miða að því að
auka afköst í stöðinni og stytta bið-
tíma við afgreiðslu flugfarþega með-
al annars með fjölgun sjálfsinnritun-
arstöðva, fjölgun brottfararhliða,
fjölgun landamærabása og með nýj-
um biðsvæðum. Nokkur fjárfesting
verður einnig vegna sjálfs flugvall-
arins og er gert ráð fyrir að fram-
kvæmdir á þessu ári og því næsta
kosti um þrjá milljarða króna, segir
á vef innanríkisráðuneytisins.
Alls verður fjárfest fyrir um 1,4
milljarða króna í flugstöðinni og um
nálega 1,3 milljarða vegna verkefna
við flugvöllinn og þjónustu við flug-
vélar og dreifist þessi fjárfesting á
tvö ár.
Björn Óli Hauksson, forstjóri
Isavia sem rekur alla flugvelli lands-
ins, segir í samtali á vefnum að síð-
asta ár hafi verið metár í umferð og
rekstri Keflavíkurflugvallar. Liðlega
2,3 milljónir farþega fóru um völlinn
á síðasta ári sem er 12,7% aukning
frá 2011. ,,Umsvif á Keflavíkurflug-
velli hafa farið vaxandi síðustu árin
og við gerum ráð fyrir um 10% fjölg-
un í sumaráætlun flugfélaganna í
ár,“ segir Björn Óli en 17 félög munu
annast áætlunar- og leiguflug um
Keflavíkurflugvöll í sumar.
Morgunblaðið/ÞÖK
Leifsstöð Endurbætur eru hafnar á
Keflavíkurflugvelli.
Endurbætur
fyrir þrjá
milljarða
Biðtími verður
styttri í Leifsstöð
Lögreglan á Suðurnesjum handtók
tvo ökumenn um helgina vegna
gruns um fíkniefnaakstur.
Sést hafði til annars þeirra aka á
ofsahraða á Reykjanesbrautinni,
samkvæmt tilkynningu frá vegfar-
anda. Lögregla færði manninn, sem
er um tvítugt, á lögreglustöð. Sýna-
tökur þar sýndu að hann hafði
neytt kannabisefna.
Akstur hins mannsins, sem er á
svipuðum aldri, var stöðvaður í
Keflavík. Sýnatökur á lögreglustöð
staðfestu að hann hefði neytt kók-
aíns og kannabisefna. Hann hafði
áður verið sviptur ökuréttindum.
Tveir teknir undir
áhrifum fíkniefna