Morgunblaðið - 12.03.2013, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.03.2013, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2013 ✝ Eiríkur JakobHelgason fædd- ist í Reykjavík 18. janúar 1931. Hann lést á heimili sínu, Kelduhvammi 22, Hafnarfirði, 27. febrúar 2013. Foreldrar hans voru Helgi Sig- urður Eggertsson, verkamaður í Reykjavík, ættaður frá Hafursstöðum í Kolbeins- staðahreppi í Hnappadal á Snæ- fellsnesi, f. 11. ágúst 1890, d. 13. desember 1984, og Árný Ingi- björg Jónsdóttir, húsmóðir, frá Miðhúsum í Mjóafirði á Austur- landi, f. 16. október 1891, d. 6. apríl 1976. Albróðir Eiríks var Jóhann Svavar, f. 31. júlí 1929, d. 1) Haukur, f. 10. maí 1950. Eig- inkona hans er Brynja Björk Kristjánsdóttir, f. 10 september 1953. Þeirra börn eru: a) Krist- ján Þórir, f. 1972, maki Sif Rós Ragnarsdóttir, þau eiga samtals fjögur börn. b) Eiríkur Þór, f. 1975, hann á tvo syni. c) Kolbrún Þórey f. 1976, maki Jónas Guð- mundsson, þau eiga tvö börn. 2) Helgi, f. 14. september 1963. Eiginkona hans er Berglind Gylfadóttir, f. 1. júní 1961. Þeirra dætur eru a) Helen Lilja, f. 1988, maki Hannes Guðmunds- son, b) Sandra Rós, f. 1990. 3) Fósturdóttir, Thelma M. Cherry, f. 25. október 1965, búsett í Bandaríkjunum. Eiríkur starfaði til fjölda ára sem verkstjóri og seinna meir sem bílstjóri. Hann sinnti einnig ýmsum félags- og trúnaðar- störfum, t.d. í verkstjórafélagi Hafnarfjarðar og innan Sjálf- stæðisflokksins. Útför Eiríks fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 12. mars 2013, kl. 13. 23. desember 2012. Eiríkur átti þrjú systkini samfeðra, Guðmund Ragnar, Guðbjörn og Rakel, sem öll eru látin. Einnig tvær systur, sammæðra, Bryn- hildi Haraldsdóttur og Svövu Jóns- dóttur, þær eru báðar látnar. Eiríkur kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Ólafíu Þóreyju Erlingsdóttur, f. 15. mars 1932, hinn 25. maí 1952. Foreldrar hennar voru Erlingur Jónsson, vélstjóri, f. 3. apríl 1908, d. 24. ágúst 1957, og Helga Eyþórsdóttir, húsmóðir, f. 28, janúar 1912, d. 3. desember 1993. Synir Eiríks og Ólafíu eru: Á kveðjustund langar mig að segja nokkur orð um hversu góð- ur faðir þú varst mér. Takk pabbi fyrir allar skemmtilegu sögurnar, takk fyr- ir að kenna mér að bera virðingu fyrir öðrum, takk fyrir að styðja mig í íþróttum, takk fyrir allar veiðiferðirnar og golfhringina, takk fyrir að vera vinur vina minna, takk fyrir að vera frábær afi barnanna minna og frábær tengdapabbi konunnar minnar, takk fyrir allar samverustundirn- ar. Sofðu í friði, elsku pabbi. Helgi Eiríksson. Elsku tengdapabbi, ég gleymi því aldrei hversu vel þú og Lóa tókuð á móti mér þegar ég kom í fyrsta skipti til ykkar, þú gerðir mér mín fyrstu kynni svo auðveld með þinni skemmtilegu fram- komu og hlýju. Ég gleymi aldrei þegar þú bauðst mér í minn fyrsta veiðitúr, mikið hlegið og haft gaman af og ekki skemmdi fyrir að ég veiddi minn fyrsta fisk og eina fiskinn í túrnum. Hann var að vísu ekki mikið stærri en öngullinn en þú vildir endilega skrá hann í veiðibókina og ekki má gleyma öllum skemmtilegu golfhringjunum okkar. Elsku Eiríkur minn, þú varst svo miklu meira en bara tengda- pabbi, þú varst líka besti vinur minn. Hvíldu í friði, elsku Eiríkur minn. Berglind Gylfadóttir. Það var árið 1970 sem ég kynntist honum Eiríki og Lóu, þegar við Haukur hófum okkar samband. Mér var strax mjög vel tekið af þeim hjónum og bundumst við sterkum böndum. Eiríkur var kröftugur og lífs- glaður maður sem hafði áhuga á mörgu og tók þátt á mörgum víg- stöðvum. Fyrst má nefna fótbolt- ann, hann spilaði bæði með Reyni í Sandgerði í nokkur ár en þar hófu Eiríkur og Lóa sinn búskap. Þau fluttu í Hafnarfjörð 1956, þegar Eiríkur flutti sig yfir í FH og spilaði hann þar í mörg ár, lék sinn síðasta leik 1971. Eiríkur hafði einnig áhuga á veiðimennsku, fór í mörg ár upp á Arnarvatnsheiði með góðum fé- lögum í ævintýraferðir, í Eld- vötnin, Hrífunesálana og á fleiri staði, og oftar en ekki var mok- veitt og margar sögur sagðar þegar heim var komið. Eiríkur hafði gaman af að spila brids og oft hittist saumaklúbb- urinn hennar Lóu og makarnir með og þeir spiluðu og áttu góðar stundir saman. Golf var það áhugamál sem átti hug hans allan síðustu árin meðan heilsan leyfði og var þá ekkert hikað við að spila 18 holur, dag eftir dag, og stundum meira. Ég þakka margar og góðar minningar sem ég á eftir öll þessi ár, þín verður sárt saknað í fjöl- skyldunni. Hvíl í frið elsku tengdapabbi. Brynja Björk Kristjánsdóttir. Látinn er svili minn og vinur Eiríkur Helgason. Hann ólst upp í Blesugrófinni hér í Reykjavík. Hann var stór, sterkur og þrek- mikill, áræðinn dugnaðarmaður að hverju sem hann gekk. Hann fór ungur að vinna fyrir sér og stundaði sjómennsku í nokkur ár. Að sjómennsku lokinni réðst hann til ÍAV á Keflavíkurflugvelli og varð þar verkstjóri yfir vinnu- flokki sem meðal annars vann við að steypa nýja veginn til Kefla- víkur. Sem verkstjóri hjá ÍAV starfaði hann að ýmsum verkefn- um í nokkur ár. Eiríkur var órag- ur við að leggja inn á nýjar braut- ir. Þegar ákveðið var að byggja álver í Straumsvík blasti við nýr starfsvettvangur. Hann sótti um starf þar og var í hópi þeirra sem valdir voru til starfsþjálfunar í Sviss. Hann starfaði síðan sem verkstjóri í steypuskála Ísal í á annan áratug. Áræðinn og kapp- samur sem hann var, vildi hann nú reyna sig á eigin forsendum og kom sér upp vörubíl og stund- aði efnisflutninga. Síðan bætti hann við sig fleiri tækjum og tók að sér ýmis smærri jarðvinnslu- verk. Hann var verklaginn og vandvirkur. Seinna varð hann sér úti um atvinnuleyfi sem leigubíl- stjóri og lauk starfsævi sinni í þeirri grein með hléum inni á milli meðan hann vann sem ráð- herrabílstjóri. Meðfram allri sinni atorku í starfi átti Eiríkur langan íþróttaferil sem knatt- spyrnumaður og golfari. Á ung- lingsárum sínum lék hann með Víkingi í Reykjavík, síðan með Reyni í Sandgerði og lauk ferl- inum með FH í Hafnarfirði. Hann var í hópi betri knatt- spyrnumanna síns tíma, stór og sterkur skriðdrekasenter og af- burða skallamaður. Hann lauk ferlinum í hjarta varnarinnar og átti sinn þátt í sigrum Hafnar- fjarðarliðsins þá farinn að nálg- ast fertugt. Síðar tók golfið við og stundaði hann það af kostgæfni svo lengi sem kraftar og þrek entist. Hann náði góðri færni í íþróttinni og vann oft til verð- launa í flokki eldri kylfinga. Þá vann hann um nokkurt skeið sem vallarstarfsmaður við golfvöll þeirra Keilismanna. Í einkalífi sínu var Eiríkur gæfumaður, eignaðist góða og trausta konu. Saman ólu þau upp tvo mann- vænlega sonu Hauk og Helga, sem eru stolt foreldra sinna, góð- ir og traustir drengir. Kona mín Margrét og Lóa, kona Eiríks, eru systur. Við enga aðra fjölskyldu hefur samgangur okkar verið jafn náinn. Miklir kærleikar hafa verið með þeim systrum í gegn- um tíðina. Nú við fráfall Eiríks er svo margs að minnast en fátt eitt hægt að nefna. Margar ferðirnar fórum við saman meðan börnin voru yngri, og reyndar langt fram eftir aldri. Útihátíðir og úti- legur um allt land, berjaferðir og veiðitúrar. Oft var tekið í bridge og reglulega hist við tímamót og við tilbúin tækifæri. Fyrir allt þetta er nú þakkað. Lóa, eigin- kona Eiríks, stóð sem klettur við hlið hans lífið á enda. Síðustu þrjú árin fór heilsu hans hrak- andi. Hann fann að hverju stefndi og bað sína góðu konu að láta sig ekki frá sér. Með kærleika og umhyggju efndi hún það loforð með reisn. Fjölskylda mín kveður Eirík með söknuði og minning um góðan dreng lifir í hugum okkar allra. Hannes Þ. Sigurðsson. Elsku afi, Eiríkur afi, nafni minn. Þú varst svo miklu meira en bara afi og ég kveð þig með mikl- um söknuði en ég er duglegur að hugsa um allar góðu stundirnar sem ég átti með þér og þá brosi ég. Þú fékkst mig oft til að brosa og hlæja. Þú varst með góðan húmor og settir stundum upp smásýningu, eins og á jólunum yfir möndlugrautnum. Þóttist alltaf vera kominn með möndluna ár eftir ár en við höfðum alltaf jafngaman af því, já við vorum svo heppin að fá að hafa ykkur ömmu svo oft hjá okkur á jólun- um. Einhver áramót áttum við saman og þá varst þú auðvitað brennustjóri á Holtinu, hvað ann- að. Þú varst stærstur og mestur og langflottastur og það skemmtilega er að fótboltasög- urnar um þig eru sannar. Ég og þú vorum miklir vinir og ekki margir sem hafa gert jafn- mikið með öfum sínum og ég fékk að gera með þér. Veiðiferðir, hestaferðir, billjard og þegar ég var unglingur og þú varst að taka þátt í uppbyggingu á Krikanum og varst að koma með efni á völl- inn þá stökkstu gjarnan út úr bílnum og spilaðir í nokkrar mín- útur með mér og vinum mínum í fótbolta. Þetta fannst mínum vin- um alveg magnað og minnast ennþá á þetta í dag. Þú veist ekki hvað ég er glaður að þú helltir þér í golfið og það er ótrúlegt hvað þú náðir góðum árangri miðað við hvað þú byrjaðir seint í sportinu en á golfvellinum blómstraðir þú. Þetta var líf þitt og yndi síðustu árin og tókum við heilan helling af golfhringjum saman þar sem við skemmtum okkur vel. Það verður skrítið að rekast ekki lengur á þig á golf- vellinum því þó að þú spilaðir ekki síðustu tvö árin var ég samt að mæta þér á planinu á Hvaleyr- inni. Þið amma að rúnta á góðum sumardögum og þá henti maður auðvitað kossi á þig og ömmu rétt áður en mætt var á teig, teig, teig eins og þú sagðir alltaf. Það munu ekki allir skilja af hverju ég endurtek teig, teig, teig svona oft en það kallast einkahúmor sem nokkrir af þínum nánustu skilja og munu aldrei gleyma. Þú varst mjög duglegur alla tíð og lærði ég ýmislegt af þér. Ég bónaði með þér ráðherrabílinn, ég skrapaði og málaði með þér hlerana af vörubílnum og þegar ég var tvítugur hvattir þú mig til að taka meiraprófið og sagðir að ég mætti þá keyra leigubílinn um helgar fyrir þig sem ég gerði um nokkurt skeið og ég veit að þú varst ánægður með mín störf. Elsku afi minn, ég á alltaf eftir að minnast þín með bros á vör því ég á bara skemmtilegar minning- ar um þig. Vá hvað ég á eftir að sakna þess að fá stóra faðminn þinn og klapp á bakið. Eiríkur Þór Hauksson. Elsku Eríkur afi, þú varst allt- af góður afi og vinur. Þú varst ekki bara góður vinur okkar heldur líka vinkvenna okkar, það gleymir enginn frægu setning- unni þinni „hey girls“, þú slóst alltaf í gegn, sama hvar þú varst, með húmorinn í lagi. Það höfðu margir orð á því hversu góður maður þú varst enda mikill og góður persónu- leiki. Við eigum svo margt að þakka þér, þú varst svo góður við okk- ur. Þau voru ófá skiptin sem þú skutlaðir og sóttir okkur í skól- ann, á skólaböll eða sama hvað var, þú varst alltaf til taks. Man svo vel eitt skiptið þegar þú sótt- ir mig (Helen) og það var lag í út- varpinu með Eminem og þú sagðir: „Erpur er miklu betri rappari en þessi Eminem!“ Það var alltaf hægt að hafa gaman með þér. Takk fyrir öll árin og allar góðu stundirnar sem við áttum með þér, þetta eru dýrmætar og góðar minningar sem við munum alltaf geyma. Þín verður sárt saknað elsku afi okkar. Þínar afastelpur, Sandra Rós Helgadóttir og Helen Lilja Helgadóttir. Elsku afi, ég kveð þið með söknuði og þakklæti fyrir allan þann tíma sem við áttum saman. Þú varst ekki bara afi minn heldur líka vinur, ég fékk að gera svo margt með þér og eru ferð- irnar á Arnarvatnsheiði minnis- stæðar. Ég man að eitt árið veiddum við svo mikið að við þurftum að skilja stóran hluta aflans eftir í snjóskafli og sóttum hann svo síðar. Þetta voru ekki bara veiðiferðir heldur líka jep- patúrar og þótti mér sá hluti ekki síður skemmtilegur en veiðin sjálf. Þú sýndir því sem ég var að gera áhuga og þótti mér vænt um þegar þú komst að horfa á mig keppa í fótboltanum í gamla daga. Árið 1997 byrjuðum við svo í golfi, ég, þú og Eiríkur bróðir, en Helgi var búinn að stunda sportið frá barnsaldri og stóð okkur því framar. Golfið sameinaði okkur enn frekar og spiluðum við ófáa hringina saman allir fjórir. Ég hringdi heim til ykkar ömmu og þegar amma svaraði spurði ég „er afi heima“ svona eins og maður hringir og spyr eftir vinum sínum, og stundum fórum við á bílasölurúnt, í golf eða bara í bíltúr. Drengirnir mínir Benjamín og Kristófer tala ennþá um þegar þú lékst við þá í fótbolta á pallinum heima hjá ykkur ömmu þegar þeir voru litlir eins og þeir segja. Elsku afi hvíldu í friði og takk fyrir allan þann tíma sem við átt- um saman. Þú þreyttur varst orðinn og þrekið smátt, um þrautir og baráttu ræddir fátt og kveiðst ekki komandi degi. (Hugrún) Kristján Þórir Hauksson. Það er stundum stutt á milli kveðjustunda. Eiríkur föðurbróð- ur okkar lést hinn 27. febrúar en faðir okkar og bróðir Eiríks kvaddi þennan heim á Þorláks- messu síðastliðinni. Bræðurnir Eiríkur og Jóhann voru alla tíð í góðum tengslum og órjúfanleg bönd tengja fjölskyldur þeirra. Bræðurnir voru ólíkir á margan hátt en sameiginlegt áttu þeir að vera miklir fjölskyldumenn og hafa gaman af útivist og íþróttum. Í fjölskylduboðum var oft rifjað upp ýmislegt frá æskuárum þeirra bræðra en þeir þekktu tím- ana tvenna, höfðu upplifað her- námsárin og krepputíma. Dugnaður og elja einkenndi Ei- rík alla tíð og byggði hann glæsi- legt hús á Móabarði í Hafnarfirði og var alltaf gaman að koma í heimsókn til hans og Lóu enda höfðingjar heim að sækja. Garð- urinn þeirra var einstaklega fal- legur, prýddur fegurstu plöntum og umhirða til fyrirmyndar. Eiríkur stundaði heilbrigt líf- erni og hafði mikinn áhuga á íþróttum og stundaði golf eins lengi og hann gat þar til heilsan setti honum mörk. Minningar okkar um elskulegan föðurbróður eru margar og munu ylja okkur um ókomin ár. Elsku Lóa, við biðjum algóðan Guð að veita styrk og blessun til þín og allra í fjölskyldunni. Þorbjörg Rósa, Guðrún Ásta, Sveindís Anna og fjölskyldur. Elsku langafi okkar. Takk fyrir að vera þú. Þú varst besti langafinn okkar. Manstu þegar við fórum í fót- bolta saman í garðinum heima hjá þér og þú varst í marki. Þú leyfðir okkur að skjóta fast og varðir alla boltana frá okkur. Manstu þegar þú sagðir okkur fótboltasögurnar af þér. Manstu þegar þú og amma pössuðuð okkur. Manstu þegar við hittumst úti á golfvelli og fórum í golf saman. Þú varst mikill brandarakarl. Þér fannst þú alltaf fyndnastur og hlógum við mikið með þér. Elsku Eiríkur langafi, það er með sorg í hjarta sem við kveðjum þig en við munum muna eftir þér sem fótboltasnillingnum, brand- arakarlinum og besta langafa sem við höfum átt. Þínir Grímur Freyr og Haukur Leifur. Í dag kveð ég yndislegan mág minn Eirík Helgason. Bræðurnir Eiríkur og Jóhann unnu saman í skóverksmiðju og þar hófust okk- ar kynni eftir að ég fékk starf í skóverksmiðjunni. Við Jóhann urðum fljótt ástfangin og Eiríkur átti sína kærustu, Ólafíu, sem hann kvæntist síðar. Þegar ég fór í fyrsta sinn með Jóhanni í heim- sókn til Eiríks og Ólafíu bjuggu þau í Sandgerði en Ólafía ólst þar upp. Síðar fluttu þau um tíma til Sviss en settust að í Hafnarfirði þegar þau fluttust aftur heim til Íslands. Eiríkur var hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom. Hann sagði skemmtilega frá og átti auðvelt með að hrífa fólk með sér. Hann var mikið ljúfmenni og vel liðinn af sínu samferðafólki. Kært var á milli þeirra bræðra og fjölskyldurnar alla tíð í góðum tengslum. Ég bið góðan Guð að veita Ólafíu, eftirlifandi eiginkonu, styrk sem og fjölskyldunni allri. Að lokum vil ég vitna í útgöngu- sálm Jóns í Garði: Vígðu helgum himins eldi hjörtu vor. Ó, Drottinn minn! Og að loknu lífs vors kveldi lyft oss blítt í faðiminn þinn. Ellen Marie Sveins. Eiríkur Jakob Helgason Niðurlag minningargreinar vantaði Í minningargrein um Mattheu Katrínu Guðmundsdóttur eftir Marsibil Ólafsdóttur sem birtist í blaðinu í gær, 11. mars, vant- aði niðurlag greinarinnar, sem hljóðar svo: Við Stefán sendum öllum aðstandendum alúðarkveðjur og um leið og við biðjum Möttu Guðs blessunar þökkum við henni fyrir að hafa auðgað líf okkar allra. Höfundur er beðinn velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Þegar andlát ber að höndum REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Blóm eru okkar fag Útfaraskreytingar Samúðarblóm REYKJAVÍKURBLÓM BORGARTÚNI 23 S: 561-1300 www.reykjavikurblom.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.