Morgunblaðið - 12.03.2013, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.03.2013, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2013 Inn og út um gluggann Engu var líkara en annað höfuð kæmi út um gluggann þegar málarinn stakk sínu inn fyrir dyragættina þar sem hann var að störfum í gær. Golli Skoðanafrelsi: Einn er sá hópur þegna í þjóðfélagi okkar sem með óréttmætum hætti er stundum settur hjá. Ekki er tekið sann- gjarnt tillit til skoðana eldri borgara og þeim er ekki gefið tækifæri til að hafa áhrif á sam- félagið með sama hætti og öðrum þjóðfélags- hópum. Sum fyrirtæki, sem standa fyrir skoðanakönnunum meðal al- mennings, leggja ekki spurningar fyrir fólk eldra en 67 ára. Það er eins og viðhorf þess skipti engu máli. Með sterkum rökum má segja að tjáningarfrelsi aldraðra sé heft með þessu framferði, en klárlega er þetta virðingarleysi gagnvart galvösku fólki á góðum aldri. Atvinnufrelsi: Annað tilvik af svipuðum toga er það þegar stór hópur aldraðra er sviptur atvinnu- frelsi. Þeim sem unnið hafa hjá hinu opinbera og raunar mörgum einka- fyrirtækjum er gert að hverfa úr störfum ekki seinna en sjötugir, al- veg án tillits til heilsufars, vinnu- getu, starfshæfni eða vilja viðkom- andi. Sem betur fer býr þjóðin enn við góða heilsugæslu og margir halda góðri vinnufærni langt fram yfir sjötugt. Margt af þessu fólki er ekki ginnkeypt fyrir því að láta af störfum og setjast í sófann og ein- angrast frá þjóðlífinu. Mikill vinnu- kraftur fer þannig forgörðum að óþörfu. Efnahagsstaða: Sem betur fer er staða margra aldraðra sæmileg eða góð. Margir hafa eignast íbúðir sínar að fullu en aðrir þurfa að berjast við að halda úti stökkbreyttum húsnæð- islánum eins og þeir sem yngri eru. Sennilega hafa aldraðir tapað meiri fjármunum í hruninu en aðrir þjóð- félagshópar. Óreiðumennirnir sem settu þjóðina hérumbil á hausinn komu aðeins í undantekning- artilfellum úr hópi eldra fólks. Það eru ekki margir í hópi 67 ára og eldri sem hafa fengið gefnar upp skulda- súpur og sennilega fáir úr þessum hópi sem eru eigendur að fúlgum í skatta- skjólum erlendis. Fjárhagslegt frelsi: Eignir aldraðra fyrir hrun voru fyrst og fremst húsnæði og réttindi í lífeyr- issjóðum. Sumir áttu einnig innstæður í bönkum og einhver hlutabréf. Húsaverð hefur fallið, innstæður rýrnað vegna verð- bólgu og halda hvergi nærri verðgildi sínu, hlutabréf eru í flestum tilfellum orðin verðlaus og lífeyrisgreiðslur stórlega skertar, bæði frá sjóðum og frá trygging- unum. Nú er það í sjálfu sér ástæðu- laust að aldraðir skilji eftir sig veru- legan arf. Hitt ætti að vera sanngjarnt að sem allra flestir þurfi ekki að líða skort og geti búið við sæmilegt efnahagslegt öryggi á efri árum. Því miður er alls ekki svo hjá öllum. Einnig ber á það að líta að eldra fólk sem hefur orðið fyrir efna- hagslegum áföllum, hefur hvorki möguleika né tækifæri til að byggja á ný upp sjóði sér til öryggis á ævi- kvöldinu. Um 20% þjóðarinnar eru svokallaðir eldri borgarar. Það er sárt að tilheyra hálfgerðum ut- anveltuhópi í þjóðfélaginu og því verðum við að breyta. Ef við sýnum samstöðu og dug getum við haft veruleg áhrif á okkar sameiginlegu hagsmuni. Málefni aldraðra þurfa aukna athygli og þeir að njóta eðli- legs réttlætis. Eftir Sigrúnu Magnúsdóttur » Gamalt fólk sem hef- ur orðið fyrir efna- hagslegum áföllum hef- ur hvorki tíma né tækifæri til að byggja á ný upp sjóði sér til ör- yggis á ævikvöldinu. Sigrún Magnúsdóttir Höfundur er fyrrverandi borgar- fulltrúi og skipar annað sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík norður. Hvers eiga gamlir að gjalda? Helgi Magnússon framkvæmdastjóri skrifar snúðuga grein í Fréttablaðið 8. mars sl., í kjölfar landsfundar Sjálf- stæðisflokksins. Hann sakar þar yf- irgnæfandi meiri- hluta flokkssystkina sinna um að hafa gengið í lið með ein- angrunarsinnum og fylgt þeim sem „tilheyra veröld sem var“. Helgi tekur með þess- um orðum að sér það erfiða hlut- verk að hafa vit fyrir þorra landsfundarfulltrúa. Það hefur alltaf reynst jafnerfitt á lands- fundi og milli funda. Þó er sýnu erfiðara fyrir Helga að fara í föt Bjarna Benedikts- sonar, fyrrverandi forsætisráð- herra og formanns Sjálfstæð- isflokksins. Helgi reynir að leggja nafn Bjarna við aðild að ESB með eftirfarandi orðum: „Rökin, sem þarna (þ.e. í ræðu Bjarna Benediktssonar á lands- fundi Sjálfstæðisflokksins 1969) voru færð fram árið 1969 vegna EFTA-aðildar eru enn í fullu gildi vegna afstöðu til ESB.“ Ég hef freistað þess, með út- gáfu bókar og fjölmörgum grein- um um Evrópusambandið, að færa út svið umræðunnar um ESB og tengja hana sögunni. Þær upplýsingar, sem ég hef bor- ið á borð fyrir lesendur, eru að mestu fengnar úr gögnum Evr- ópusambandsins sjálfs. En einnig hef ég vitnað í bækur og ræður sannfærðra ESB-sinna, sem móta umræðuna innan sambandsins. Segja má að rúmlega ársgömul lýsing mín á líklegri framtíð- arþróun ESB falli í öllum aðal- atriðum að nýlegri lýsingu belg- íska hagfræðingsins Pauls De Grauwes, sem á sér merkan fræðimannsferil innan London School of Economics, Katholieke Universiteit Leuven, IMF og Seðlabanka Evrópu, auk þess sem hann sat á þingi í Belgíu svo eitthvað sé nefnt. Þótt ég hafi víða leitað fanga hef ég ekki fyrr kynnst því sjónarmiði Helga Magnússonar að sömu rök gildi um aðild að EFTA og ESB. EFTA er frí- verslunarsvæði. Evr- ópusambandið er tollabandalag og ríkjasamband með miðstýrðar stofnanir, þangað sem fullveldi aðildarþjóða hefur verið flutt í miklum mæli og stendur til að flytja meira. Hug- mynd framkvæmdastjórans er því ærið djörf, svo ekki sé meira sagt. Tónninn sem Helgi Magnússon slær er ekki nýr. Ég gegndi for- ystu í utanríkismálanefnd Alþing- is á árunum áður en allar gáttir erlendra lánardrottna opnuðust Íslendingum eftir 2002. Þá þurfti ég oft að bregðast við síend- urteknum fullyrðingum þáverandi utanríkisráðherra, Halldórs Ás- grímssonar, að EES-samning- urinn, sem hann átti í raun að standa vörð um, væri ónýtur. Þegar ég varði samninginn og ís- lenska gjaldmiðilinn var algengt að frammámenn í atvinnulífi, einkum þeir sem voru þá þegar að fá á sig heiðursnafnbótina út- rásarvíkingar, veittust að mér fyrir að verja íslenska gjaldmið- ilinn og EES-samninginn. Þessir heiðursmenn áttu sér ekki heitari ósk en að komast inn í Evrópu- sambandið til að geta slegið stærri lán, grætt meira með skuldsettum yfirtökum og limað sundur fleiri fyrirtæki. Þetta voru kapítalistar framtíð- arinnar, án þess að menn gerðu sér fyllilega grein fyrir því hvers eðlis sá kapítalismi átti eftir að verða. Þeir voru þá þegar, á ár- unum um aldamótin, orðnir þreyttir á Davíð Oddssyni for- sætisráðherra og Sjálfstæðis- flokknum og voru farnir að leita að samvinnuþýðari flokki og for- manni. Þeir fundu hvort tveggja. Var sú trúlofun lofsungin í svo- kallaðri Borgarnesræðu. Ást þessara manna á Evrópu- sambandinu átti aðeins eftir að aukast og dýpka. Eftir lánsfjár- kreppuna sem breyttist í efna- hagskreppu var ákveðið innan ESB og Seðlabanka Evrópu að seilast freklega ofan í vasa evr- ópskra skattborgara til að verja fjármálastofnanir og banka. Um þessa stefnu bera vitni breyt- ingar á tilskipunum um trygging- arsjóði innistæðueigenda svo og hver björgunaráætlunin á fætur annarri. Grundvallarreglan var að einkavæða gróðann en þjóð- nýta tapið. Sá kapítalismi, sem leit dagsins ljós 2009-2010 innan Evrópusambandsins, hefur verið nefndur á íslensku pilsfaldakapí- talismi. Þar eru vasar skattgreið- enda veðsettir til að draga rík- isstjórnir, banka og fjármála- stofnanir upp úr skuldafeninu. Íslendingar hafa ekki áhuga á pilsfaldakapítalisma Evrópusam- bandsins. Það hefur verið kann- að. Þeir vilja hins vegar að stjórnmálamenn snúi sér að því að bæta kjör fólksins með hag- vexti, lækkandi sköttum og heil- brigðari ríkisrekstri. Þetta er það verk sem landsfundur Sjálfstæð- isflokksins samþykkti að ráðast í. Helgi Magnússon, útrásarvík- ingar og pilsfaldakapítalistar munu aldrei stjórna Sjálfstæð- isflokknum. Það sýndi nýafstað- inn landsfundur. Og nú geta sjálfstæðismenn einbeitt sér að verkinu framundan sem er ærið stórt. Eftir Tómas Inga Olrich » Íslendingar hafa ekki áhuga á pils- faldakapítalisma Evr- ópusambandsins. Það hefur verið kannað. Þeir vilja hins vegar að stjórnmálamenn snúi sér að því að bæta kjör fólksins með hagvexti, lækkandi sköttum og heilbrigðari ríkis- rekstri. Tómas Ingi Olrich Höfundur er fyrrv. alþm. og ráðherra. Lítum fram á veginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.