Morgunblaðið - 12.03.2013, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2013
Athyglisverð orðaskipti áttu sérstað í fyrirspurnartíma á Al-
þingi í gær og undirstrikuðu þau þá
stöðu ríkisstjórnarinnar að geta
ekki upp á eigin spýtur komið mál-
um í gegnum þingið.
Jón Gunnarssonspurði Svandísi
Svavarsdóttur um-
hverfisráðherra að
því hvort hún styddi
stjórnarfrumvörp
Steingríms J. Sigfús-
sonar, flokksbróður
síns, um stóriðju á
Bakka. Svörin voru
loðin en gátu ekki
misskilist.
Svandís sagði aðhafa þyrfti varann á um slík
áform og það gilti einnig þó að orku-
nýtingarsvæðið væri komið í nýting-
arflokk.
Nýsamþykkt rammaáætlun ásem sagt ekki að hafa vægi í
þessu og má segja að þar með hafi
ráðherrann endanlega gert út af við
það plagg.
Svandís bætti því við að á kjör-tímabilinu hefði verið settur
skýrari rammi um ívilnanir vegna
fjárfestingar í stað „tilviljanakenndra
ákvarðana“. Hún gagnrýndi einnig
að frumvörp Steingríms gerðu ráð
fyrir miklum fjárútlátum ríkisins. Að
öllu samanlögðu má því ljóst vera að
Svandís styður ekki umrædd stjórn-
arfrumvörp.
En hverju breytir það svo sem íallri vitleysunni sem ríkis-
stjórnin býður upp á um þessar
mundir? Ráðherrar dæla út ókláruð-
um frumvörpum sem engin áform
eru um að klára. Hvers vegna skyldi
ríkisstjórnin við þær aðstæður gera
ráð fyrir stuðningi ráðherra við
stjórnarfrumvörp?
Jón Gunnarsson
Innra ósætti um
Bakkafrumvörpin
STAKSTEINAR
Svandís
Svavarsdóttir
Veður víða um heim 11.3., kl. 18.00
Reykjavík 3 skýjað
Bolungarvík 2 skýjað
Akureyri 4 skýjað
Kirkjubæjarkl. 4 léttskýjað
Vestmannaeyjar 3 skýjað
Nuuk -3 léttskýjað
Þórshöfn 3 skýjað
Ósló 1 heiðskírt
Kaupmannahöfn -2 skýjað
Stokkhólmur -2 heiðskírt
Helsinki -5 léttskýjað
Lúxemborg -1 snjókoma
Brussel -2 snjókoma
Dublin 1 skýjað
Glasgow 2 léttskýjað
London -1 snjóél
París 2 skúrir
Amsterdam -1 skýjað
Hamborg -2 snjókoma
Berlín -2 snjókoma
Vín 8 skýjað
Moskva -7 heiðskírt
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 13 léttskýjað
Aþena 17 skýjað
Winnipeg -10 alskýjað
Montreal 6 alskýjað
New York 8 alskýjað
Chicago 4 alskýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
12. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:56 19:20
ÍSAFJÖRÐUR 8:03 19:23
SIGLUFJÖRÐUR 7:46 19:06
DJÚPIVOGUR 7:26 18:49
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Aðeins einn fíkniefnaleitarhundur
tollgæslunnar er nú staðsettur á
Keflavíkurflugvelli. Þeir voru áður
tveir en ekki hefur enn verið fyllt í
skarð annars þeirra sem veiktist og
drapst í fyrra. Úttekt er nú í gangi
innan embættisins á því hvort bætt
verður við hundum en búist er við
miklu álagi á flugvellinum í sumar ef
áætlanir um fjölgun ferðamanna
ganga eftir.
Að sögn Kára Gunnlaugssonar
yfirtollvarðar eru þó þrír leitar-
hundar í Reykjavík sem vinna á móti
þeim sem er á flugvellinum. Mun
auðveldara sé að færa mannskap á
milli svæða eftir að tollembættin
voru sameinuð í eitt árið 2009. Mis-
jafnt er hins vegar hvernig hundarn-
ir eru þjálfaðir en þeir eru ekki allir
fullþjálfaðir.
Kári segir það ekki nóg að hafa
einn hund á flugvellinum og verið sé
að gera úttekt á hundamálum toll-
gæslunnar með það fyrir augum að
hafa tvo fasta þar.
„Það hefur verið mikið álag og lít-
ur út fyrir að sumarið verði svaka-
legt. Það stefnir í að það verði það
stærsta sem við höfum fengið frá
upphafi eins og áætlanirnar líta út
núna. Það verður mikið álag á öllum
starfsmönnum. Þetta hefur heldur
ekkert dottið niður í vetur, það hafa
ótrúlega margir farþegar verið á
ferðinni,“ segir hann.
Hafa forvarnaráhrif
Snorri Olsen tollstjóri segir að
reynslan af fíkniefnaleitarhundun-
um sé afar góð. Þeir hafi fundið tals-
vert af efnum og þá telji hann þá
hafa forvarnaráhrif. Meiri líkur séu
á að smyglarar náist ef slíkir hundar
séu við eftirlit.
Hann segir það álitamál hvort það
sé nóg að einn hundur sé staðsettur á
Keflavíkurflugvelli. Hundamál emb-
ættisins séu nú til skoðunar áður en
lengra er haldið en ekki hafi enn ver-
ið tekin afstaða til þess hvað verði
gert í þeim.
„Í tengslum við niðurskurð þarf að
skoða hvernig að fjármunir nýtast
best en frá 2008 hafa fjárveitingar
farið lækkandi til embættisins. Við
viljum fá yfirsýn yfir það með hvaða
hætti eigi að velja hunda og þjálfa þá
og við töldum tímabært að skoða það
áður en við ákveðum að fjölga hund-
um,“ segir Snorri.
Morgunblaðið/Jim Smart
Þefvís Fíkniefnaleitarhundur að störfum. Góð reynsla hefur verið af hund-
unum að sögn tollstjóra. Hann telur þá hafa fælingaráhrif á innflutning.
Vilja fjölga
leitarhundum
Leitarhundum tollsins hefur fækkað
Evrópusamvinna
frá sjónarhóli Norðurlandanna
Opinn fundur á Hótel KEA
miðvikudaginn 13.mars, kl. 12-13:30
Reynsla Dana af sjávar-
útvegsstefnu ESB
Ole Poulsen, sviðsstjóri sjávarút-
vegsmála í matvæla-, landbún-
aðar- og sjávarútvegsráðuneyti
Danmerkur, fjallar um reynslu
Dana, stærstu fiskveiðiþjóðar ESB,
af sjávarútvegsstefnu ESB.
Súpa og kaffi verður selt á staðnum gegn vægu gjaldi.
Fundurinn er annar í fundaröðNorrænu
upplýsingaskrifstofunnar, Norræna félagsins
og Evrópustofu, í samstarfi við sendiráð hinna
norrænu landa, þar sem fjallað er ummál semeru
ofarlega á baugi í Evrópuumræðunni.
Aukablað alla
þriðjudaga