Morgunblaðið - 12.03.2013, Page 21

Morgunblaðið - 12.03.2013, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2013 AFP Lögreglumenn í Ishinomaki-borg í Japan fínkemba leðjukenndan árbakkann í leit sinni að líkamsleifum fórnarlamba flóðbylgjunnar sem skall á austurströnd Japans 2011. Í gær voru tvö ár liðin frá jarðskjálftanum stóra sem leiddi til flóðbylgjunnar. Talið er að nær 19.000 manns hafi látið lífið í hamförunum. Fórnarlamba flóðbylgjunnar enn leitað Helsti sakborningurinn í hópnauðg- unarmáli sem kom upp á Indlandi í desember síðastliðnum fannst látinn í gærmorgun í fangaklefa sínum. Talsmenn Tihar-fangelsis í Nýju- Delí segja að hann hafi tekið eigið líf en fjölskylda hans og verjandi sögðu að hann hefði verið myrtur og gagn- rýndu aðstæður í fangelsinu. Sakborningurinn, Ram Singh, keyrði strætisvagn og var einn af sex mönnum sem ákærðir hafa verið fyr- ir mannrán, hrottalega nauðgun og morð á 23 ára gamalli konu sem var á heimleið úr kvikmyndahúsi ásamt unnusta sínum í desember síðast- liðnum. Málið vakti öldu mótmæla á Indlandi gegn kynbundnu ofbeldi gagnvart konum. Fjölskylda Singhs ásakaði starfs- fólk fangelsisins og sagði að hann hefði ekki getað hengt sig sjálfur vegna áverka á hendi sem hann hlaut fyrir nokkrum árum. Þá hefði Singh tjáð fjölskyldu sinni að sér hefði ver- ið ítrekað misþyrmt í fangelsinu af samföngum sínum. Atvikið mun ekki hafa nein áhrif á réttarhöldin yfir hinum sakborning- unum fimm að sögn ónefnds lög- reglumanns. Þeir hafa allir lýst yfir sakleysi sínu. Fjórir mannanna eiga yfir höfði sér dauðarefsingu en sá fimmti er undir lögaldri og hans bíð- ur því allt að þriggja ára fangelsi. sgs@mbl.is Aðalsakborningur finnst látinn  Fjölskylda hans ásakar fangaverði Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Kardinálar kaþólsku kirkjunnar verða í dag lokaðir inni í páfakjörs- salnum í Vatíkaninu til þess að taka þátt í kjöri á nýjum páfa. Þeir mega ekki fara þaðan út fyrr en búið er að kjósa nýjan páfa. Boðað var til kjörs- ins í kjölfar þess að Benedikt XVI. sagði óvænt af sér fyrir aldurs sakir. Til að ná kjöri þurfa tveir þriðju af kardinálunum að kjósa sama mann- inn. Eftir hverja atkvæðagreiðslu eru gefin reykmerki út til almenn- ings og er reykurinn svartur ef ekki hefur tekist að útkljá kjörið en hvít- ur þegar úrslitin eru ljós. Fáir útvaldir koma til greina Þó að allir kaþólskir karlmenn séu í kjöri er staðreyndin sú að einungis örfáir af kardinálunum 115 eru taldir eiga raunhæfan möguleika á því að verða næsti páfi. Oftar en ekki hefur páfakjörið þó komið á óvart og er stundum sagt að sé maður páfi við upphaf þess verði maður kardináli áfram þegar því lýkur. Á meðal þeirra sem helst eru tald- ir koma til greina er Brasilíumaður- inn Odilo Scherer, erkibiskupinn af Sao Paolo. Scherer þykir alþýðlegur og er einn af fáum kardinálum sem hafa tekið sér samfélagsmiðla í þjón- ustu sína. Það sem helst gæti staðið honum fyrir þrifum er að einungis 19 af kardinálunum 115 eru frá róm- önsku Ameríku og því þarf Scherer að fá bandamenn annars staðar frá. Annar kardináli sem þykir koma sterklega til greina sem eftirmaður Benedikts XVI. er Ítalinn Angelo Scola, erkibiskupinn af Mílanó. Talið er að hann gæti tekið af festu á þeim hneykslis- og spillingarmálum sem skekið hafa Páfagarð á undanförnum misserum. Yrði Scola kjörinn myndi það þýða að Ítali væri aftur kominn á páfastól eftir 35 ára fjarveru. Verður næsti páfi ekki evrópskur?  Páfakjörið hefst í dag  115 kardi- nálar taka þátt AFP Líklegur Erkibiskupinn Odilo Sche- rer þykir koma til greina sem páfi. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Kosningabaráttan fyrir komandi forsetakosningar í Venesúela er hafin af fullum þunga. Nicolás Mad- uro, varaforseti Hugos heitins Chá- vez, kallaði mótframbjóðanda sinn, Henrique Capriles, fasista eftir að hinn síðarnefndi hafði ásakað Mad- uro um að notfæra sér andlát Chá- vez til þess að vinna sér inn fylgi. Kosningarnar verða haldnar 14. apríl næstkomandi. Capriles tilkynnti framboð sitt á sunnudaginn. Hann bauð sig einnig fram gegn þáverandi forseta, Hugo Chávez, árið 2012 en beið þá lægri hlut. Talið er að Capriles muni eiga á brattann að sækja í baráttunni næstu vikur en skoðanakannanir sýna 14 prósentustiga mun á milli hans og Maduros. Capriles hóf bar- áttuna á því að gagnrýna Maduro, sem nú gegnir starfi forseta fram að kosningum, og sagði hann vera „valdasjúkan“. Capriles ásakaði Maduro um að hafa leynt þjóðinni því hversu veik- ur Chávez hefði verið en hann lést í liðinni viku eftir að hafa glímt við krabbamein í tvö ár. Spurði Capri- les hvort einhver vissi hvenær Chá- vez hefði látist í raun. Maduro svaraði fyrir sig í sjón- varpsávarpi, þar sem hann stóð fyr- ir framan mynd af Chávez, að Capriles hefði kastað grímunni og að undir henni glitti í andlit fasist- ans. Hörð barátta framundan um forsetastól Venesúela AFP Frambjóðandi Henrique Capriles tilkynnti framboð sitt til forseta Venesú- ela á sunnudaginn. Bar hann mótframbjóðanda sinn þungum sökum.  Henrique Capriles fer fram gegn Maduro Sænska prins- essan Lilian lést á heimili sínu í Stokkhólmi í fyrradag, 97 ára að aldri. Lilian sem var velsk fyrirsæta kynntist Bertil, frænda Karls Gústafs Svíakon- ungs í London árið 1943. Hún skildi tveimur ár- um síðar við þáverandi eiginmann- inn, leikarann Ivan Craig. Gústaf Adolf, afi núverandi konungs, neitaði að leggja blessun sína yfir hjónaband prinsins og þessarar fráskildu almúgastúlku. Það var ekki fyrr en 33 árum síðar, eða árið 1976 er Karl Gústaf tók við krúnunni, að þau máttu loks eig- ast. Svíþjóð Lilian prins- essa látin Lilian Svíaprinsessa. VICTORINOX HNÍFAR Laugavegi 29 - sími 552 4320 www.brynja.is - brynja@brynja.is Lykilverslun við Laugaveg síðan 1919 Áratuga þekking og reynsla 1.147 kr 25 CM 4.840 kr 18 CM 3.330 kr 22 CM 9.380 kr 15 CM 6.485 kr Gaffall 3.115 kr 4.795 kr

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.